Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Dýrindis saltkjöt var á boðstólum auk gúllassúpu sem rann ljúft ofan í mannskapinn.
Dýrindis saltkjöt var á boðstólum auk gúllassúpu sem rann ljúft ofan í mannskapinn.
Líf og starf 22. júlí 2021

Buðu hestamönnum í saltkjötsveislu

Um hundrað manns mættu til veisluhalda á Króksstöðum í Eyjafjarðarsveit á dögunum. Króksstaðabændur, hjónin Helga Árnadóttir og Guðmundur Karl Tryggvason, eigendur jarðarinnar ásamt Stefáni Erlingssyni sem á þar hús, buðu hestamönnum að koma við og gera sér glaðan dag yfir saltkjöti og gúllassúpu. „Það var greinilegt að fólk þyrstir í skemmtilegar samverustundir, eftir langan vetur án mikils samkomuhalds,“ segir Guðmundur. Hann og Helga hafa hross sín í haga á Króksstöðum, halda þar hænur og eru með matjurtagarð, en búa á Akureyri.

Guðmundur og Stefán hafa lengi verið samtíða í hestamennsku og brallað eitt og annað saman í áranna rás. Þeir til að mynda salta hrossakjöt í tunnur á haustin og sáu þegar á leið vorið að annaðhvort hafi verið ríflega sett í tunnurnar eða matarlystin með lakara móti, því mikið var til. Þeim datt því í hug að blása til veislu og bjóða Léttisfélögum að koma yfir, en hægur vandi er úr hesthúsahverfum Akureyrar yfir á Króksstaði einhesta.

„Það var nóg til fyrir alla, við vorum undir það búnir að taka á móti svo stórum hóp,“ segir Guðmundur sem er matreiðslumaður og starfaði og rak Bautann um árabil. Um 60 manns höfðu boðað þátttöku og þá mátti alltaf eiga von á slatta af fólki sem ekki hefði hirt um að skrá sig. Auk saltkjötsins var elduð gúllassúpa og fengu allir vel að borða, það var slegið á létta strengi, mikið hlegið og vitanlega tóku hestamenn lagið og sungu við raust.

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna
Fréttir 7. ágúst 2026

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um starf forstjóra Stofununnar atvinnuveganna. Starfið var auglýst...

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbær...

Moskítóflugur og mítlar
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hv...

Keldnakirkja afhent Þjóðminjasafninu
Fréttir 6. ágúst 2026

Keldnakirkja afhent Þjóðminjasafninu

Keldnakirkja á Rangárvöllum hefur formlega verið afhent Þjóð minjasafni Íslands ...

Eimverk eykur starfsemi í Bjálmholti
Fréttir 6. ágúst 2026

Eimverk eykur starfsemi í Bjálmholti

Fyrirtækið Eimverk framleiðir viskí og er stórtækt í ræktun og kaupum á korni. S...

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega
Fréttir 5. ágúst 2026

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega

Sauðfjárslátrun hjá SS á Selfossi hefst formlega 8. september í haust og stendur...

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“
Fréttir 5. ágúst 2026

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“

Á dögunum fór fram hönnunarsamkeppni um lopapeysu kvenbóndans en árið 2026 er, s...

Samráðshópur um lífrænan úrgang
Fréttir 5. ágúst 2026

Samráðshópur um lífrænan úrgang

Umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra hefur skipað starfshóp um meðhöndlun lí...