Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Blómin um jólin
Á faglegum nótum 16. desember 2019

Blómin um jólin

Höfundur: Vilmundur Hansen

Jólin eru á næsta leiti og því ekki úr vegi að fjalla lítillega um vinsælustu jólablómin. Jólastjörnur eru líklega þær pottaplöntur sem flestir tengja við jólin en riddaraliljur og jólakaktus fylgja þar fast á eftir.

Jólastjörnur eru ekki auðveldustu plönturnar í ræktun til að halda lifandi en langt frá því að vera þær erfiðustu. Jurtin þrífst best við 12 til 21° C en endist best við neðri mörkin. Þegar jólastjarna er keypt skal láta pakka henni inn og það má alls ekki geyma þær lengi úti í köldum bíl, þar sem þær fá kuldasjokk og því ráðlegt að fara með þær strax í hús. Best er að vökva jólastjörnur lítið en oft og með volgu vatni.

Moldin má aldrei þorna alveg og það má ekki heldur láta pottinn standa í vatni. Látið því pottinn standa í djúpri pottahlíf sem fyllt er í botninn með vikri. Þannig stendur jólastjarnan ekki í vatni en nýtur góðs af uppgufun og loftraki leikur um hana. Jólastjörnur þurfa góða birtu og þrífast best í björtu herbergi eða í austur- eða vesturglugga.

Jólastjörnur geta valdið ofnæmi eða ertingu í húð hjá fólki sem er viðkvæmt fyrir slíku en plantan er ekki eitruð eins og stundum er haldið fram. Rannsóknir sýna að blöð jólastjörnunnar geta valdi uppköstum sé þeirra neytt í miklum mæli. Þrátt fyrir þetta er engin stæða til að setja hana í jólasalatið þar sem hún er sögð mjög bragðvond.

Jólakaktusar ganga undir ýmsum heitum eins og haust-, nóvember-, eða krabbakaktus, algengasta heitið er þó að öllum líkindum jólakaktus. Sérstaklega þegar hann blómstrar um jólahátíðina. Jólakaktusinn er upprunninn á Amasonsvæði Suður-Ameríku, nánar tiltekið í Brasilíu, þar sem hann vex sem ásæta uppi í trjákrónum. Ólíkt flestum öðrum kaktusum vex jólakaktusinn því í raka og skugga. Þetta gerir það að verkum að hann dafnar best í hálfskugga og þolir talsvert meiri vökvun en aðrir kaktusar. Kjörhiti hans er 15 til 20 °C. Eftir að blómgun lýkur er gott að hvíla hann á svölum stað og draga úr vökvun í nokkrar vikur. Jólakaktusa er hægt að fá í ýmsum litum, rauða, hvítableika og lillabláa.

Riddarastjarna eða amaryllis eins og þessi glæsilega laukplanta er oft nefnd er upprunnin í Suður-Ameríku en hefur dreifst þaðan sem pottaplanta vegna þess hversu harðger og auðveld hún er í ræktun auk þess að vera blómviljug. Blómin eru í mörgum litum, rauð, hvít og bleik, auk þess sem þau geta verið marglit.

Áður en laukurinn er settur í mold er gott að láta neðri hluta hans standa í volgu vatni í nokkra klukkutíma þar sem slíkt hraðar rótarmyndun. Amaryllis-laukar þrífast best í næringarríkum og vel framræstum moldarjarðvegi við 15 til 20 °C.

Þegar lauknum er komið fyrir í potti skal láta helming til einn þriðja af honum standa upp úr moldinni en þrýsta henni þéttingsfast að neðri hlutanum án þess þó að skemma ræturnar séu þær farnar að myndast. Moldin í pottunum skal alltaf vera rök yfir vaxtartímann en laukurinn þolir nokkurn þurrk á meðan hann er í hvíld.

Heimsmet í skráningum
Fréttir 12. júní 2025

Heimsmet í skráningum

Hið árlega Reykjavíkurmeistaramót Fáks fer fram nú í vikunni í Víðidalnum. Þetta...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 12. júní 2025

Heildarlög um loftslagsmál

Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftslagsmál hefur verið birt í Samrá...

Auðhumla sýknuð í máli um umframmjólk
Fréttir 12. júní 2025

Auðhumla sýknuð í máli um umframmjólk

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði samvinnufélagið Auðhumlu af kröfum einkahlutaféla...

Landbúnaðarstuðningur ígrundaður
Fréttir 12. júní 2025

Landbúnaðarstuðningur ígrundaður

Í nýrri skýrslu um svæðisbundinn stuðning í íslenskum landbúnaði er nokkrum mögu...

Salmonella í Fellshlíð
Fréttir 12. júní 2025

Salmonella í Fellshlíð

Salmonella hefur greinst á kúabúinu Fellshlíð í Eyjafirði. Matvælastofnun hefur ...

Bændum tryggt svigrúm til hagræðingar
Fréttir 12. júní 2025

Bændum tryggt svigrúm til hagræðingar

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að vinna standi yfir við nýtt...

Nýtt mælaborð í Jörð
Fréttir 11. júní 2025

Nýtt mælaborð í Jörð

Mælaborði hefur verið bætt í skýrsluhaldskerfið Jörð.is og auðveldar það bændum ...

Lífgúmmí framleitt úr birkiberki
Fréttir 10. júní 2025

Lífgúmmí framleitt úr birkiberki

Gúmmíiðnaðurinn hefur verið að þróast, m.a. í viðleitni til að minnka kolefnisfó...