Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Áveitugarðar á engjum Bæjar í Borgarfirði.
Áveitugarðar á engjum Bæjar í Borgarfirði.
Lesendarýni 21. apríl 2021

Áveitur – þakkir til heimildarmanna

Höfundur: Bjarni Guðmundsson

Vorið 2019 birti Bændablaðið stutta grein mína, Minjar um áveitur?, þar sem ég spurðist fyrir um þær og þá fyrst og fremst áveitur utan hinna vel þekktu svæða þeirra, t.d. í Árnessýslu.

Og það gerðist sem oftar að lesendur Bændablaðsins brugðust vel við. Á fimmta tug heimildarmanna bentu á og/eða sögðu frá áveituminjum. Sumar þeirra hafa komist inn á fornminjaskrár; aðrar ekki. Nokkrir svarendur sendu ljósmyndir. Einnig bárust frásagnir af síðustu notkunarárum áveitna, ýmist byggðar á eigin upplifun heimildarmanns eða sögnum eldri kynslóðar. Skal þá ekki látið ónefnt að enn eru dæmi um áveitur í notkun. Sumar frásagnanna voru afar ítarlegar. Ég legg ekki í að mismuna heimildarmönnum með því að nefna suma en ekki aðra; freistast þó til þess að upplýsa að í hópi þriggja rækilegustu greinargerðanna voru tvær þingeyskar og ein rangæsk.

Svör og ábendingar bárust frá heimildarmönnum víða um land.

Svör heimildarmannanna sýna að áveitur á einu eða öðru formi hafa verið algengar í sveitum landsins nokkuð fram á tuttugustu öld. Eðlilega hefur almenn athygli beinst að hinum stóru áveitum, svo sem um Skeið og Flóa, framkvæmdum sem á þeirra tíð voru með þeim stærstu á landsvísu. En það má líka minnast þeirra mörgu og smáu sem aðeins áttu að hvetja grasvöxt á örfáum dagsláttum, jafnvel bara einni. Ræktunarfrömuðir hvöttu til áveitna á engjaræktunartímanum – fram á fyrsta fjórðung síðustu aldar. Margar minjanna eru því frá þeim tíma en einnig greindu heimildarmenn frá áveitum sem taldar eru vera mun eldri.

Við ritun áveitukaflans í bókinni Yrkja vildi eg jörð, sem út kom í fyrra, studdist ég við svör þeirra sem sendu mér fróðleik. Margt var þar þó ónefnt en svörin verða geymd. Ef til vill get ég gert efninu rækilegri skil síðar.

En að lokum það tvennt sem ég hafði í huga með þessari grein: Að minna á minjar um áveitur sem enn kunna að sjást og eiga þekkta sögu – að hlúð sé að þeim svo sem fært er og tiltækur fróðleikur um þær skráður. Og svo hitt, að þakka öllum heimildarmönnum mínum kærlega fyrir liðsemdina. Leynist enn frekari fróðleikur þigg ég hann með þökkum.

Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri

Skylt efni: áveitur

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum
Fréttir 12. febrúar 2026

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti mjólkaði 16.779 kílógrömmum af mjólk á síðasta ...

Engin riða í heilasýnum
Fréttir 12. febrúar 2026

Engin riða í heilasýnum

Engin merki um sauðfjárriðu var að finna í heilasýnum sem tekin voru í sláturhús...

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum
Fréttir 12. febrúar 2026

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum

Garðyrkjubændum með vaxtarlýsingu hefur nýlega boðist að lækka raforkukostnað si...

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga
Fréttir 12. febrúar 2026

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) telja ótækt að frumvarp um breytingar á bú...

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði
Fréttir 12. febrúar 2026

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði

Deiliskipulag fyrir vesturhluta Þjóðgarðsins á Þingvöllum felur í sér vernd, upp...

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu
Fréttir 12. febrúar 2026

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu

Um sextíu prósent bænda í Bændasamtökum Íslands eru ósammála eða nokkuð ósammála...

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist
Fréttir 12. febrúar 2026

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist

Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar...

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli
Fréttir 12. febrúar 2026

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli

Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar fóru á árinu 2024 um 84% dýra...