Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Aukið sýklalyfjaónæmi lekandabakteríunnar, Neisseria gonorrhoeae, getur torveldað meðferð lekanda.
Aukið sýklalyfjaónæmi lekandabakteríunnar, Neisseria gonorrhoeae, getur torveldað meðferð lekanda.
Á faglegum nótum 28. apríl 2020

Aukning á lekanda og sárasótt

Höfundur: Vilmundur Hansen

Útbreiðsla lekanda og sárasóttar hefur aukist umtalsvert á Íslandi á síðastliðnum árum. Sambærileg aukning hefur ekki sést í tölum um klamydíu og HIV.

Sam- og eða tvíkynhneigðir íslenskir karlmenn á aldrinum 20 til 44 ára mun vera helsti áhættuhópurinn fyrir þessar sýkingar og er aukningin í samræmi við faraldsfræði þessara sýkinga í vestrænum löndum. Sambærileg aukning hefur ekki sést í tölum um klamydíu og HIV.

Til að bregðast við þessu er bent á nýútkomnar Leiðbeiningar sóttvarnalæknis um greiningu og meðferð lekanda, klamydíu, sárasóttar og HIV sem finna má á vef landlæknis. Leiðbeiningarnar voru unnar í samvinnu fjölda innlendra sérfræðinga. Leiðbeiningarnar eru ein af tillögum starfshóps til að stemma stigu við vaxandi útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi.

Vaxandi sýklalyfjaónæmi lekandabakteríunnar

Á heimasíðu landlæknis segir að til að ná árangri í baráttunni gegn þessum sýkingum sé áríðandi að bregðast rétt við með viðeigandi sýnatöku, réttri sýklalyfjameðferð, sem oft þarf að fylgja eftir til að tryggja árangur meðferðar.

Vaxandi sýklalyfjaónæmi lekandabakteríunnar getur torveldað meðferð, en eina leiðin til að kanna sýklalyfjanæmið er með ræktun, því greining á erfðaefni gefa ekki upplýsingar um sýklalyfjanæmi. Þá þarf einnig að finna þá einstaklinga sem gætu hafa orðið fyrir smiti með góðri rakningu smitleiða.

Lekandi

Fleiri greindust með lekanda á árinu 2019, borið saman við síðastliðin ár, því þann 30. nóvember 2019 höfðu alls 111 einstaklingar greinst með lekanda sem er töluvert fleiri en árlegur fjöldi á undanförnum árum.

Sýkingin greinist mun oftar í körlum en konum. Samkvæmt klínískum tilkynningum frá læknum á þessu ári var 41 karlanna sam- og eða tvíkynhneigður, sex voru gagnkynhneigðir en upplýsingar um kynhneigð vantar fyrir 50 karla.

Þegar ríkisfang þeirra sem greindust með lekanda er kannað kemur í ljós að Íslendingar eru í miklum meirihluta sýktra. 

Þegar aldur þeirra sem greinast með lekanda er skoðaður, sést að sýkingin greinist oftast meðal einstaklinga á aldrinum 20 til 44 ára.

Sárasótt

Alls greindust 36 einstaklingar hér á landi með sárasótt á árinu 2019, frá 1. janúar til 30. nóvember. Þetta er aukning miðað við árið 2018, en nær þó ekki sama fjölda og 2017 en það ár greindust flestir með sárasótt.
 

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild
Fréttir 14. ágúst 2026

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur ...

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB
Fréttir 14. ágúst 2026

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB

Bjørn Gimming hélt erindi um norskan landbúnað utan Evrópusambandsins á málþingi...

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi
Fréttir 14. ágúst 2026

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi

Húsfyllir var á málþingi Bændasamtakanna um landbúnað í evrópsku samhengi sem ha...

Færri og stærri býli
Fréttir 14. ágúst 2026

Færri og stærri býli

Ingrid Rydberg, sérfræðingur hjá sænsku bændasamtökunum LRF, hélt erindi á málþi...

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna
Fréttir 14. ágúst 2026

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna

Esa Härmälä fór fyrir samninganefnd finnska utanríkisráðuneytisins um landbúnaða...

Réttalistinn í smíðum
Fréttir 14. ágúst 2026

Réttalistinn í smíðum

Síðustu ár hefur Bændablaðið tekið saman lista yfir tíma- og staðsetningar rétta...

Barkarbjalla hefur numið land
Fréttir 14. ágúst 2026

Barkarbjalla hefur numið land

Barkarbjalla hefur fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. Hún er í h...

Áhættu- og viðkvæmnismat
Fréttir 14. ágúst 2026

Áhættu- og viðkvæmnismat

Árlegur viðbótarkostnaður getur numið allt að 4-5% af framleiðslu- verðmæti mjól...