Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Aðfangaverð í landbúnaði leitar niður á við
Á faglegum nótum 26. júní 2023

Aðfangaverð í landbúnaði leitar niður á við

Höfundur: Sverrir Falur Björnsson

Hagstofur og bændasamtök ýmissa landa hafa tekið upp á því að mæla breytingar í aðfangaverði landbúnaðar og nota þær mælingar til að gera grein fyrir stöðu framleiðslugreinarinnar hverju sinni og hvernig ytri aðstæður hafa áhrif á rekstrarkostnað.

Rétt eins og með aðrar verðlagsmælingar er framsetningin yfirleitt í formi vísitölu. Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, hefur verið framarlega í þessum greiningum en birtir niðurstöður sínar þó aðeins árlega og því nýtast þau gögn ekki alltaf vel. Svíþjóð, Írland og Slóvenía eru dæmi um þrjú ólík lönd sem hafa tekið upp á að birta aðfangavísitölu byggða á aðferðafræði Eurostat en þó birt sín gögn mánaðarlega.

Eins og fjallað hefur verið um margsinnis undanfarin misseri voru öfgakenndar hækkanir á aðfangaverði úti um allan heim í framhaldi af Úkraínustríðinu og heimsfaraldrinum. Þegar rýnt er í mælingarnar sést skýrt að þessi ólíku lönd, sem öll eru staðsett hvort á sínum enda Evrópu, eru á sama hagsvæði þegar kemur að landbúnaðaraðföngum. Til að mynda ná vísitölurnar þrjár lágpunkti sínum á nánast sama tíma og á það einnig við um hápunkt sinn. Leiðréttingin á verði frá þeirri skörpu hækkun sem byrjaði 2021 er þó komin mislangt hjá þeim. Í nýjustu mælingum, sem eru frá því í mars, er vísitalan í Svíþjóð búin að lækka um 9% frá sínum hæsta punkti en í Írlandi aðeins búin að lækka um 3%.

Samband aðfangaverðs og matvælaverðs er einnig sífellt til umræðu og sýna þessar töflur hvernig sambandið þar á milli hefur minnkað á undanförnum árum. Á árunum 2017 til 2020 hélst verðþróun aðfangaverðs í landbúnaði og matvælaverð nánast alveg hönd í hönd, mánuð eftir mánuð. Á árunum 2021 og 2022 jókst verðbólga í aðfangaverði umfram matvælaverð sem mánaðarlega nam 1,3% í Írlandi, 0,9% í Slóveníu og 0,8% í Svíþjóð. Nú þegar aðfangaverð eru farin að leita niður á við er áhugavert hvernig matvælaverð mun þróast á næstu tveim til þremur mánuðum.

Ekki er til aðfangavísitala fyrir íslenskan landbúnað en lögð hafa verið fram drög að þeirri vinnu. Í Verðlagsgrundvelli Kúabús, sú greining sem kemst næst því að vera aðfangavísitala íslensks landbúnaðar, var metið að breytilegur kostnaður þann 1. mars hafi verið 3% hærri en í desember árið á undan. Er það ekki í samræmi við þær breytingar sem farnar eru að sjást erlendis. Aðeins eru nokkrir dagar þar til að næsta útgáfa grundvallarins fær að líta dagsins ljós og vonandi verða betri fréttir í honum.

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...

Atvinnulífssýning dagana  19. og 20. september
Fréttir 10. ágúst 2026

Atvinnulífssýning dagana 19. og 20. september

Atvinnulífssýning verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðarkróki í haust eða dagana...

Selja blóm, steina og tré
Fréttir 10. ágúst 2026

Selja blóm, steina og tré

Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir hafa verið í plöntuframlei...

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna
Fréttir 7. ágúst 2026

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um starf forstjóra Stofununnar atvinnuveganna. Starfið var auglýst...

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbær...

Moskítóflugur og mítlar
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hv...