Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
„Íslenskt lambakjöt“ fær upprunavottun
Fréttir 27. mars 2023

„Íslenskt lambakjöt“ fær upprunavottun

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Evrópusambandið hefur nýlega samþykkt umsókn Icelandic lamb um að vörumerkið „Íslenskt lambakjöt“ verði upprunavottað – en það er fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vottun.

Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri Íslensks lambakjöts.

Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna, eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu, en það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti.

„Íslenskt lambakjöt“, eða enska vörumerkið „Icelandic lamb“, mun þannig standa fyrir lambakjöt af hreinræktuðum íslenskum lömbum, sem eru alin og slátrað á Íslandi.

Matvælastofnun samþykkti umsókn Markaðsráðs kindakjöts í byrjun árs 2018, um að „Íslenskt lambakjöt“ yrði verndað afurðaheiti, sem er nauðsynlegt skref í átt að evrópsku vottuninni. Varð vörumerkið þar með fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vernd á Íslandi. Síðan fékk íslenska lopapeysan slíka vernd og hjá Matvælastofnun liggur nú umsókn um vernd fyrir íslenskt viskí.

Hafliði Halldórsson, fram­kvæmdastjóri Íslensks lambakjöts, segir að Markaðsstofan Íslenskt lambakjöt hafi unnið að því undanfarin ár að fá íslenska lambakjötið skráð sem verndað afurðaheiti á Evrópumarkaði undir PDO­merkingunni, með það fyrir augum að auka virði íslenska lambakjötsins. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að PDO­merking muni auka virði íslenska lambakjötsins, bæði á innanlandsmarkaði og erlendis. Reynsla Evrópuþjóða hefur sýnt að vörur sem hafa PDO­merkingu seljast að meðaltali á tvöföldu útsöluverði í löndum ESB, samanborið við staðgönguvörur. Merkingarnar bæta einfaldlega samningsstöðu bænda og framleiðenda verulega í Evrópusambandinu.

Þá hafa kannanir á innanlands­markaði mælt að evrópsk upprunavottun geti hækkað kaup­- og greiðsluvilja íslenskra neytenda umtalsvert,“ segir Hafliði.

Ráðuneytið telur ástæðu til ítarlegrar yfirferðar flokkunar
Fréttir 14. maí 2026

Ráðuneytið telur ástæðu til ítarlegrar yfirferðar flokkunar

Í 7. tölublaði Bændablaðsins var greint frá samanburðartölum úr skýrslu Efnahags...

Víkur Mörk af lóðinni
Fréttir 14. maí 2026

Víkur Mörk af lóðinni

Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum fyrir kosningar á fimmtudag í síðustu ...

Innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 14. maí 2026

Innbrot í svínabú Stjörnugríss

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfararnótt 11. m...

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum
Fréttir 13. maí 2026

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum

Matvælastofnun hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt sta...

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur
Fréttir 13. maí 2026

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur

Mánudaginn 18. maí verður fræðsluganga um Grasagarð Reykjavíkur í tilefni af alþ...

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Fréttir 13. maí 2026

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi

Tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi og kv...

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá
Fréttir 13. maí 2026

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá

Reykholt í Biskupstungum er einn af byggðakjörnum Bláskógabyggðar en þar búa um ...

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði
Fréttir 13. maí 2026

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði

Ljóð munu flæða um götur, sundlaugar, veggi og verslanir á Egilstöðum og Seyðisf...