Fornbílar og glímutök á Hvanneyrarhátíð
Fjölmenni mætti á Hvanneyrarhátíðina laugardaginn 6. ágúst sl. Dagskrá hátíðarinnar var að vanda fjölbreytt og afþreyingin ekki af verri endanum.
Fram fór keppni í dráttarvélaakstri og félagar í Fergusonfélaginu slógu tún á forndráttarvélum. Bjartmar Guðlaugsson og Torfi&Eva léku tónlist og Glímusamband Íslands stóð fyrir glímusýningu. Auk þess gátu gestir skoðað Landbúnaðarsafnið og Ullarselið. Handverks- og matarmarkaður var haldinn. Hátíðinni lauk svo með tónleikum og balli á Hvanneyri pub um kvöldið.