Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Kaðlapeysa á hunda
Hannyrðahornið 9. febrúar 2022

Kaðlapeysa á hunda

Höfundur: Handverkskúnst

Kaðlapeysur eru alltaf fallegar og auðvitað á besti vinur mannsins skilið að eiga eina þannig.


DROPS Design: Mynstur u-919

Stærðir: XS (S) M

Mál á hundi:
- Yfirvídd: ca 28/32 (40/44) 48/52 cm
- Lengd á baki: ca 24 (32) 40 cm

Dæmi um hundategundir: XS=Chihuahua, S=Bichon Frisé, M=Cocker Spaniel

Garn: DROPS KARISMA (fæst í Handverkskúnst)
- 150 (150) 200 g litur á mynd 01, rjómahvítur

Prjónar: Hringprjónar 80 cm, nr 3 og 4. Sokkaprjónar nr 3.

Prjónfesta: 21Lx28 umf = 10x10 cm.

Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

Útaukning (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 6,8.

Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna en með opi mitt að neðan sem síðar er saumað saman. Stykkið skiptist síðan þannig að það verður op fyrir framfætur og stykkin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er fram og til baka yfir allar lykkjur eins og áður. Prjónaður er kantur í kringum op fyrir framfætur og prjónaður er kantur í kringum op á peysu (= neðri hlið á framstykki og bakstykki). Að lokum er peysan saumuð saman mitt að neðan.

Kantur í hálsmáli: Fitjið upp 72 (82) 92 lykkjur á hringprjón nr 3 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 70 (80) 90 lykkjur (= 7 (8) 9 mynstureiningar með 10 lykkjur), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram, fram og til baka, þar til stykkið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 12 (20) 26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNNG að ofan = 84 (102) 118 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan.

Berustykki: Prjónið áfram í mismunandi stærðum þannig:

Stærð XS: Prjónið þannig frá réttu: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 yfir næstu 12 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.5 (= 20 lykkjur), A.3 yfir næstu 12 lykkjur, A.6 (= 20 lykkjur).

Stærð S: Prjónið þannig frá réttu: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur), A.4 (= 9 lykkjur), A.3, A.5 (= 20 lykkjur), A.3, A.4, A.3, A.6 (= 20 lykkjur).

Stærð M; Prjónið frá réttu þannig: A.2 (= 20 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur), A.7 (= 4 lykkjur), A.4 (= 9 lykkjur), A.8 (= 4 lykkjur), A.3, A.5 (= 20 lykkjur), A.3, A.7, A.4, A.8, A.3, A.6 (= 20 lykkjur).

Prjónið mynsturteikningu fram og til baka þar til stykkið mælist ca 2 (4) 7 cm, mælt frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé frá röngu og prjónið þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11 (11) 15 lykkjur, setjið þessar lykkjur síðan á þráð (= framstykki hluti-2), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 62 (80) 88 lykkjur, setjið þessar lykkjur á þráð (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11 (11) 15 lykkjur (= framstykki hluti-1). Prjónið nú hvort stykki fyrir sig:

Framstykki – hluti 1: Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá réttu (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 12 (12) 16 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9 (11) 13 cm frá skiptingu, endið á umferð frá röngu og fellið af kantlykkju (að opi á fæti) í byrjun á síðustu umferð = 11 (11) 15 lykkjur. Klippið þráðinn og geymið stykkið.

Framstykki – hluti 2: Setjið lykkjur af þræði á prjón nr 4. Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni) = 12 (12) 16 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9 (11) 13 cm frá skiptingu – endið eftir sömu umferð og í hluta-1 og fellið af kantlykkju (að opi á fæti) í byrjun síðustu umferðar = 11 (11) 15 lykkjur. Klippið þráðinn og geymið stykkið.

Bakstykki: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón nr 4. Byrjið frá réttu, prjónið mynstur eins og áður og fitjið að auki upp 1 kantlykkju í lok umferðar frá réttu og 1 kantlykkju í lok umferðar frá röngu = 64 (82) 90 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9 (11) 13 cm frá skiptingu – endið eftir sömu umferð og á framstykki og fellið af kantlykkjur í byrjun á 2 síðustu umferðum.

Fram- og bakstykki: Setjið nú fram- og bakstykki á sama prjón = 84 (102) 118 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist 14 (19) 28 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 3 cm undir peysu (meðfram maga) og ca 10 (12) 12 cm efst á peysu (meðfram baki). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.

Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 11 (11) 15 lykkjur 1 sinni, fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 2 (3) 3 sinnum, fellið af 1 lykkju 3 sinnum, fellið af 2 lykkjur 2 (3) 3 sinnum og fellið af 3 lykkjur 1 sinni = 28 (38) 46 lykkjur. Fellið af síðustu 28 (38) 54 lykkjur í næstu umferð. Stykkið mælist ca 21 (29) 37 cm frá prjónamerki.

Kantur í kringum fætur: Notið sokkaprjóna nr 3 og prjónið upp ca 48 til 68 lykkjur innan við 1 kantlykkju í opi sem var gert fyrir framfætur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Tengið í hring og prjónið stroff (= 2L sl, 2L br) hringinn þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum – sjá AFFELLING. Prjónið hinn kantinn eins.

Kantur í hringum fram- og bakstykki: Prjónið kant meðfram neðri hlið á peysu. Byrjið frá réttu og notið hringprjón nr 3, prjónið upp ca 98 til 122 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, *2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið*, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
FRÁGANGUR: Saumið peysuna mitt að neðan. Saumið í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði ekki þykkur.

Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is

Lillemor bylgjuteppi
Hannyrðahornið 23. apríl 2024

Lillemor bylgjuteppi

Uppskriftina með fleiri myndum og nánari leiðbeiningum er að finna á www.GARN.is...

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð