Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Hipsumhaps-sjal
Hannyrðahornið 21. júní 2021

Hipsumhaps-sjal

Hannaðu þitt eigið sjal eftir „Hipsum-haps“ aðferðinni: auðveld leið til að prjóna bogalagað sjal – þú velur mynstur og stærð, eða lætur bandið ráða. Skemmtilegt og einfalt prjón sem kemur sköpunargleðinni í gang.

Efni:
Dís frá Uppspuna, (100 g = 400 m), 100 g dugar í sjal af stærðinni 180 x 40 cm.

Hringprjónn, 4,5 mm (80 cm).

Ef annað band er notað hafið prjónastærð u.þ.b. 1 númeri stærra en gefið er upp = lausara prjón fyrir sjal!
Affellingin þarf að vera mjög laus til þess að hægt sé að strekkja sjalið í sitt bogalagaða form. Aðferðin sem ég nota gjarnan heitir “suspended bind off” og má finna á youtube.

Eða picotkantur: (þarf u.þ.b. 3-4 sinnum meira af bandi til að fella af heldur en með aðferðinni hér að framan!!). Ég mæli með a.m.k. 6- 8 umf. af garðaprjóni eða perluprjóni svo kanturinn rúllist ekki upp.

Picot: Byrjað á að fella af 2 L eins og venjulega, byrjað svo á picot:,
* færa L frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Búa til 3 nýjar L eins og segir hér: Fara milli fyrstu og annarrar L og sækja bandið eins og verið sé að prjóna, steypa bandinu með vinstri snúningi á vinstri prjón. Endurtekið tvisvar sinnum (+3 L). Fella svo af 6 L.* Endurtekið frá* til* . Fallegastur verður kanturinn ef fyrstu 3 L eru felldar af frekar fast og næstu 3 L frekar laust. Tímafrekur kantur en f lottur!

Frágangur:
Ganga frá endum en ekki klippa þá af fyrr en sjalið hefur verið þvegið og strekkt. Skolið sjalið úr volgu vatni með örlitlu af ullarsápu eða sjampói, skolið úr hreinu vatni og strekkið svo í bogaform. Leggið til þerris eða hengið á herðaslá eða snúru og festið með klemmum.

Aðferðin felst í nokkrum hlutum sem eru eftirfarandi:
A. Veld u grunnmynstrið; slétt prjón, garðaprjón eða kannski perluprjón?

B. Byrjun og grunnaðferðin: Byrjað er efst í miðjunni, og aukið út í enda umferðar = bogalagað sjal, þú ræður stærðinni.

1. umf: Fitjið upp 5 L (lykkjur).

2. umf: (á réttunni): Prjónað aftan í fyrstu L (gert í hverri umferð!), p1 (prjóna 1 L), slá upp á, p1, slá upp á, p1, p aftan í síðustu L (gert í hverri umferð!).

3. umf: (á röngunni): Prjónað aftan í fyrstu L (gert í hverri umferð), p1. Þá er komið að útaukningu. Aukið er út með því að prjóna þrjár lykkjur í bandið sem slegið var upp á í síðustu umferð: * p1 framan í bandið , p1 aftan í bandið, p1 framan í bandið* prjónið með grunnmynstrinu að uppslætti, aukið út á sama hátt og í byrjun umferðar (**). P aftan í síðustu L (eins og alltaf!).

4. umf: (á réttunni): Prjónað aftan í fyrstu L (gert í hverri umferð!), p1, slá upp á, prjónað þar til 2 L eru eftir, slá upp á, p1, p aftan í síðustu L (gert í hverri umferð!).
Endurtakið umf. 3 & 4 út sjalið. Munið að fara alltaf aftan í fyrstu og síðusti lykkju í hverri umferð, (styrkir kantinn!) og prjónið altaf 3 L úr uppslætti.

C. Skrautumferðir: Þú velur hvenær þú prjónar skrautumferðir, t.d. þegar þú skiptir um lit, eða á 8 umferða fresti eða hipsumhaps… þú ert hönnuðurinn!
Alltaf halda áfram sömu grunnaðferðinni og auka út á báðum endum, líka í skrautumferðum!

Gatamynstur: 1. umf: (á röngunni): prjóna 1 umf. Slétt. 2. umf: (réttan) * slá upp á, p2 saman* endurtekið út umferðina. Ef það verður lykkja afgangs í enda umferðar þá prjónið hana slétta.

3. umf: (rangan) Prjóna slétt til baka.
Þú getur haft reglulegar gataumferðir, eða bara hafa það hipsum-haps.
Garðar: ef grunnmynstrið er slétt prjón eða perluprjón getur þú prjónað slétt til baka (á röngunni) af og til, eða 6. hverri umferð... þá myndast garðar.
Í garðarprjóni: prjóna eina umferð brugðið = 3 umferðir verða sléttar. Þú getur leikið þér með að búa til rendur (garða), t.d. þegar þú skiptir um lit eða með reglulegu millibili, eða bara þegar þér dettur í hug.

Skipt um grunnmynstur: Þú getur búið til gataumferð og skipt svo um grunnmynstur, t.d haft perluprjón á milli tveggja gataumferða ...allt eftir smekk.

D : Í lokin:
Lokaumferðir fyrir affellinguna: (halda áfram útaukningu, eins og alltaf!).
Blúndukantur: (Passaðu þig að eiga eftir nógu mikið af bandinu). Prjóna garðaprjón í a.m.k. 6 umf. ( 3 garðar), næsta umf.: * slá upp á, p1* út umf. (núna eru lykkjurnar tvisvar sinnum fleiri!), prjóna 2-4 garðar garðaprjón, fella laust af.

https://www.facebook.com/uppspuni.is/

© Maja Siska

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð

Jólakósí
Hannyrðahornið 11. desember 2023

Jólakósí

Prjónuð flöskuhulstur úr DROPS Nepal