Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Til varnar smádýrunum
Skoðun 19. ágúst 2014

Til varnar smádýrunum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Ótrúlegt er hve mörgum er illa við smádýr, hvaða nafni sem þau nefnast.

Köngulær, geitungar, blaðlýs, ranabjöllur og humlur, svo ég tali nú ekki um snigla. Öll þessi dýr virðast í huga marga vera hræðileg óargakvikindi sem ekki mega sjást í görðum, hvað þá inni í húsum.

Á hverju einasta sumri hefst hatrömm barátta við að drepa þessi dýr hvar sem til þeirra næst. Öllum brögðum er beitt og ekkert eitur er svo eitrað að ekki megi nota það í baráttunni við þessa óværu. Þetta gerist þrátt fyrir að flestir viti að öll þessi dýr þjóna tilgangi í náttúrunni, hvort sem hann er að frjóvga blóm eða er fæða fyrir önnur dýr.

Afleiðing einsleitrar ræktunar

Smádýrin sem spretta upp á sumrin laðast flest að plöntum og eru fylgidýr aukins áhuga á garðrækt og hækkandi lofthita. Einsleitt plöntuval í ræktun veldur því að ákveðnar tegundir smádýra geta fjölgað sér mikið á skömmum tíma enda framboð á fæðu mikið.

Yfirleitt ganga þessi blómaskeið smádýranna yfir á nokkrum vikum og plönturnar jafna sig í flestum tilfellum aftur.

Humlur og ánamaðkar eru líklega allra gagnlegustu dýrin sem finnast í garðinum. Ánamaðkar flýta rotnun og grafa göng í jarðveginum sem vatn og næringarefni streyma um. Fæstum er illa við ánamaðka, enda fer lítið fyrir þeim og þeir sjást sjaldan nema í rigningu, þegar þeir koma upp á yfirborðið til að drukkna ekki.

Annað mál gildir um humlur og eru margir hreinlega hræddir við þær þótt sárasaklausar séu. Á Íslandi finnast fjórar eða fimm tegundir af humlum og ættum við að fagna hverri tegund.

Víða um heim hefur býflugum fækkað gríðarlega og það mikið að til vandræða horfir í ávaxtaræktun. Býflugur finnast ekki villtar á Íslandi og margir rugla þeim saman við humlur enda skyldar tegundir og sinna báðar frjóvgun blóma. Haldi býflugum áfram að fækka vegna notkunar á skordýraeitri er raunveruleg hætta á að margar ávaxtategundir hverfi að markaði.

Sniglar eru merkileg kvikindi

Af öllum smádýrum sem heimsækja garðinn eru stórir sniglar alla jafna óvinsælastir. Sniglar eru hægfara og værukær dýr sem halda sig í skugganum og líður best í röku loftslagi. Eins og börnunum finnst þeim jarðarber og ferskt salat gott og kunna sér ekki magamál komist þeir í slíkt sælgæti. Þeir eru einnig sólgnir í bjór og hefur það orðið mörgum þeirra að falli.

Séu sniglar skoðaðir nánar sést að þeir eru ótrúlega fallegir og þá sérstaklega þegar þeir líða áfram á kviðlægum fætinum og teygja augnfálmarana rannsakandi út í loftið. Ólíkar tegundir lifa á landi, í sjó og ferskvatni og þeir eru til með og án kuðungs. Sumar tegundir eru tvíkynja, sem þýðir að hittist tveir sniglar undir salatinu geta þeir frjóvgað hvor annan eða sjálfan sig séu þeir einir á ferð.

Að lokum vil ég biðja fólk að hætta að traðka niður sveppi. Þeir eru æxlunarfæri sem koma upp á yfirborðið til að mynda gró. Stærstur hluti sveppa er neðanjarðar og vinnur nauðsynlegt niðurbrotsstarf við að umbreyta lífrænu efni í ólífrænt sem plöntur nýta sér til vaxtar. Sveppir í garðinum eru merki um grósku og þeim skal taka fagnandi.

Fagfundur og afmælisráðstefna
Skoðun 11. mars 2024

Fagfundur og afmælisráðstefna

Tveir viðburðir tengdir sauðfjárrækt haldnir dagana 21. -22. mars næstkomandi.

Er framtíðin lægra verð fyrir minni gæði?
Skoðun 15. febrúar 2024

Er framtíðin lægra verð fyrir minni gæði?

Við sem neytendur gerum miklar kröfur til innlendrar matvælaframleiðslu og við t...

Heilsársvegur yfir Öxi er skynsamleg fjárfesting
Skoðun 16. nóvember 2023

Heilsársvegur yfir Öxi er skynsamleg fjárfesting

Tilhneiging stjórnmálamanna er að líta á fjármagn sem veitt er í samgöngur sem k...

Óvissutímar
Skoðun 16. nóvember 2023

Óvissutímar

Á óvissutímum með eldgos yfirvofandi, þegar þetta er skrifað, er hægt að fullyrð...

Hinn glæsilegi árangur
Skoðun 14. nóvember 2023

Hinn glæsilegi árangur

Mér líður satt að segja hálf hjárænulega að setjast við skriftir um þrasið og ós...

Dagur sauðkindarinnar
Skoðun 13. nóvember 2023

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu var haldinn í reiðhöllinni Skeiðvangi á...

Áhættumatið og aðför að íslenskum hagsmunum
Skoðun 1. ágúst 2023

Áhættumatið og aðför að íslenskum hagsmunum

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar, ranns...

Landbúnaðurinn og aðstoð við Úkraínu
Skoðun 8. júní 2023

Landbúnaðurinn og aðstoð við Úkraínu

Við lifum á óstöðugustu og hættulegustu tímum síðan síðari heimsstyrjöldinni lau...