Innlendar fréttir

23.5.2013 
Þegar ég var ungur drengur í sveitinni var ekki algengt að komast í tæri við þekkta Íslendinga. Ómar Ragnarsson kom til dæmis aldrei fljúgandi á Frúnni, lenti á túninu heima og tók viðtal við bændur og búalið sem svo birtist í sjónvarpsfréttum. Ekki heima hjá mér. Hemmi Gunn og Bylgjulestin átti ekki leið um sveitirnar og Valgeir Guðjónsson sat ekki uppi á Stuðmannarútunni með gjallarhorn og auglýsti ball í félagsheimilinu.
23.5.2013 
Ingvar Björnsson ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins segir að allt upp í 80 prósenta kal sé á fjölda bæja í Eyjafirði. Ingvar segir að um langversta kal sé að ræða á svæðinu síðan hann hóf störf sem ráðunautur fyrir áratug og telur hann jafnvel að ekki hafi kalið jafn illa í Eyjafirði frá því á kalárunum um 1970. Ljóst er að mikla vinnu þarf að leggja í endurræktun túna með tilheyrandi kostnaði. Þá er sömuleiðis ljóst að verulega mun draga úr kornrækt á Norðurlandi í ár.
22.5.2013 
Ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lítur á landbúnað sem eina af mikilvægustu atvinnugreinum framtíðarinnar og kanna á með hvaða hætti er unnt að auka verðmætasköpun í sveitum landsins. Skipa á starfshóp sem móta skal tillögur um hvernig auka megi matvælaframleiðslu á Íslandi og tryggja að ávinningur af aukinni eftirspurn skili sér í bættum kjörum bænda.
22.5.2013 
Þann 14. maí undirritaði Matvælastofnun þjónustusamning við Matís um öryggismælingar á sviði varnarefna. Varnarefni eru notuð við ræktun og geymslu matvæla svo sem ávaxta, grænmetis og kornvöru til að koma í veg fyrir eða draga úr skaða af völdum sveppa, illgresis, skordýra og annarra meindýra. Til varnarefna teljast plöntulyf (skordýra- og sveppaeitur), illgresiseyðar og stýriefni.
21.5.2013 
Kynbótasýning fer fram á Melgerðismelum í Eyjafirði dagana 3. til 7. júní næstkomandi. Í tilkynningu frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins kemur fram að skráning og greiðsla sýningargjalda fari fram á veflægu formi…
17.5.2013 
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, gagnrýndi harðlega tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld varðandi landbúnað á umræðufundi Samtaka mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja síðasta miðvikudag. Við vinnu verkefnisstjórnarinnar hefðu engir fulltrúar landbúnaðarins verið kallaðir á borðinu og það væri væri með ólíkindum að lagðar væru til róttækar breytingar á landbúnaðarkerfinu í því ljósi.
16.5.2013 
Síðasti kaflinn í rafrænu Kjötbókinni var gefinn út á dögunum, en hann fjallar um fuglakjöt. Á aðalfundi Félags kjúklingabænda kynnti Óli Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmeistari og sérfræðingur hjá Matís, efni bókarinnar. Áður var búið að opna kafla um lambakjöt, nautakjöt, grísakjöt og hrossakjöt.
15.5.2013 
Kynbótasýningar verða í Hornafirði og á Fljótsdalshéraði dagana 27. til 31. maí næstkomandi  ef næg þátttaka verður. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.
14.5.2013 
Bændablaðið greindi fyrir skemmstu frá áhugaverðri aukabúgrein minkabúsins á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Þar stefna bændur að þróun á vörum úr minkafitu, en mörg tonn af henni falla til og yrðu annars urðuð. Áralöng handavinna við verkun skinnanna sannfærði bændurna um að fitan hefði græðandi áhrif á húðina.
13.5.2013 
Mjólkursamsalan hyggst setja á markað laktósafría léttmjólk í næsta mánuði. Mjólkin er henta þörfum þeirra sem eru með mjólkuróþol. Í laktósafrírri mjólk er búið að fjarlægja laktósann en laktósi er mjólkursykur sem er í mjólkinni frá náttúrunnar hendi. Til þessa hefur MS kynnt á markaði fjölmargar vörunýjungar þar sem búið var að draga úr laktósa en ekki fjarlægja hann alveg s.s. sykurskerta Kókómjólk, Hleðslu og Skyr.is drykki. Nú er hins vegar í fyrsta skipti í boði vara án laktósa.
8.5.2013 
Glóey er ansi sérstök kollótt 8 vetra ær á Akranesi sem er í eigu frístundabóndans Atla Viðars Halldórssonar. Hún er er sérstök fyrir þær sakir að hún er í raun kollótt en á henni vex eigi að síður eitt horn. Það vex þó ekki upp úr hvirflinum á hausnum heldur ú túr snoppunni framan við hægra augað.
8.5.2013 
„Það stefnir allt hraðbyri í það að hér verði engu korni sáð þetta,“ segir Marteinn Sigurðsson á Kvíabóli í Köldukinn, en þar eins og víðast hvar norðanlands er mikill snjór, um 70 sentímetra þykkt snjólag er yfir túnum og heljarstórir snjóskaflar, allt upp í 5 metra háir umhverfis bænum. Þetta kemur fram í forsíðufrétt nýs Bændablaðs sem kom út í dag.

8.5.2013 
Fóðurblandan lækkaði verð á kjarnfóðri um allt að fimm prósentum 6. maí síðastliðin og er lækkunin mismunandi eftir tegundum. Ástæðan er styrking krónunnar og lækkun á hráefnum til fóðurgerðar á erlendum mörkuðum. Fóðurblandan lækkaði síðast verðskrá sína 2. apríl síðastliðinn.
7.5.2013 
Reglulega kemur fyrir að bændur heimta útigengið fé og hafa verið fluttar býsna margar fréttir af því tagi að undanförnu. Það er þó óvanalegt að bændur heimti útgengið í öðrum sýslum og hvað þá að kindunum fylgi nýborin lömb. Það gerðist þó hjá Guðmundi Skúlasyni bónda á Staðarbakka í Hörgárdal á dögunum.
6.5.2013 
Verð á kjarnfóðri lækkar hjá Bústólpa í dag, mánudaginn 6. maí 2013. Verðlækkunin nemur allt að 5%, mismunandi eftir tegundum fóðurs. Ástæða lækkunar nú er hagstæð þróun gengis og lækkun á hráefnum til fóðurgerðar.
2.5.2013 
Formaður Bændasamtakanna ásamt formanni og framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda hefur í dag farið um Norðurland og hitt bændur. Miklar vetrarhörkur hafa sem kunnugt er staðið lengi á Norður- og Austurlandi og gert bændum erfitt fyrir. Nú er sauðburður að komast á skrið og hefur reynst erfitt víða að koma lambfé út. Það gerir það að verkum að farið er að þrengjast á húsum hjá bændum og valta erfiðleikum. Þá eru ýmsir bændur farnir að verða knappir á heyjum en síðasta sumar var víða erfitt heyskaparár á þessum svæðum, vegna þurrka.
30.4.2013 
Lífland hefur gefið út nýjan verðlista á tilbúnu fóðri sem tekur gildi 1. maí nk. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að lækkun sé á öllum fóðurtegundum frá fyrri verðlista og nemur hún að lágmarki 4%. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en mest nemur hún 5%. Ástæða verðbreytinga er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar og styrking íslensku krónunnar.
29.4.2013 
Jóhanna María Sigmundsdóttir, sauðfjárbóndi frá Látrum í Súðavíkurhreppi og formaður Samtaka ungra bænda, náði kjöri í Alþingiskosningunum á laugardaginn sl. undir merkjum Framsóknarflokksins. Hún var þá 21 árs gömul og 303 daga gömul og þar með yngsti þingmaðurinn í sögu Alþingis. Hún sló met Gunnars Thoroddsen sem var 23 ára og 177 daga þegar hann var kjörinn árið 1934.
29.4.2013 
Fulltrúar Bændasamtakanna munu hitta embættismenn í atvinnuvegaráðuneytinu klukkan 13:00 í dag og fara yfir stöðu mála vegna yfirvofandi kals, heyskorts og kuldatíðar á Norður og Austurlandi. Óska samtökin eftir því að komið verði á fót viðbragðshóp sem muni koma að málum. Slíkum starfshóp yrði meðal annars ætlað að meta þörf á heymiðlun og hugsanlega koma slíkri miðlun á fæturnar, en víða eru bændur orðnir heylitlir eftir óvenju langan vetur á fóðrum. Þá heyjaðist víða minna á síðasta ári en í meðal ári vegna þurrka.
26.4.2013 
Almenn andstaða er meðal stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til Alþingis við að hingað til lands verði leyft að flytja lifandi dýr. Þá varar meirihluti þeirra einnig við því að leyft verði að flytja til landsins hrátt kjöt eða aðrar ómeðhöndlaðar dýraafurðir. Flokkarnir eru jafnframt sammála um mikilvægi þess að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar, þó að mismundi útfærslur séu kynntar í þeim efnum.
26.4.2013 
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ekki standi til að fella niður tolla og setja með því innlenda búvöruframleiðslu í uppnám. Í morgun barst nokkrum fjölda kjósenda á aldrinum 25 til 35 ára bréf, undirritað af Bjarna, þar sem sagði að Sjálfstæðisflokkurinn ætlað að afnema tolla og aðflutningsgjöld af neysluvörum. Flokkurinn teldi að hægt væri með því að tryggja sambærilegt vöruverð hér á landi og í öðrum löndum. Voru matvörur sérstaklega tilteknar í þeim efnum ásamt barnafötum, tölvum og farsímum. Viðtakendum bréfsins í bændastétt brá í brún við þessi ummæli enda tollvernd mikilvæg fyrir íslenskan landbúnað.
26.4.2013 
Þann 24. apríl sl. var undirritað samkomulag milli atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Bændasamtaka Íslands og Landssamtaka sláturleyfishafa um ráðstöfun þriggja sjóða sem ekki er lengur innheimt í. Stærstum hluta fjárins sem í sjóðunum voru verður varið til viðhalds og endurnýjunar varnargirðinga til að hefta útbreiðslu sauðfjársjúkdóma, alls 40 milljónum króna.
24.4.2013 
„Sá sem ekki þyrfti að éta yrði fljótt ríkur“. Mig minnir endilega að það hafi verið pabbi sem lét sér þessa visku um munn falla. Líklega er nokkuð til í þessu hjá honum. Samkvæmt tölum Eurostat verja Íslendingar 13 prósent útgjalda sinna til kaupa á mat- og drykkjarvörum. Meðalfjölskyldan eyðir um 750.000 krónum á ári til kaupa á matvöru samkvæmt gögnum hagstofunnar. Það mætti nota þann aur í annað.
24.4.2013 
Almenn andstaða er meðal stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til Alþingis við að hingað til lands verði leyft að flytja lifandi dýr. Þá varar meirihluti þeirra einnig við því að leyft verði að flytja til landsins hrátt kjöt eða aðrar ómeðhöndlaðar dýraafurðir. Flokkarnir eru jafnframt sammála um mikilvægi þess að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar, þó að mismundi útfærslur séu kynntar í þeim efnum.
24.4.2013 
Frá bankahruni og fram til september 2011 voru ríflega 165 milljónir króna afskrifaðar af lánum fjármálafyrirtækja til bænda. Á sama tíma voru tæpir 94 milljarðar króna afskrifaðir af lánum til verslunar- og þjónustufyrirtækja. Þá höfðu sjávarútvegsfyrirtæki fengið afskrifaðar tæpar 13 milljarða króna. Þetta kemur fram í skýrslum Eftirlitsnefndar um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar.
23.4.2013 
Hvalfjörður, í leikstjórn Guðmundar Arnars Guðmundssonar, hefur verið valin til þátttöku í aðalkeppni Cannes kvikmyndahátíðarinnar, í flokki stuttmynda. Hvalfjörður sýnir sterkt samband tveggja bræðra, sem leiknir eru af Ágústi Erni B. Wigum og Einari Jóhanni Valssyni. Þeir búa á litlum sveitabæ ásamt foreldrum sínum.
22.4.2013 
Á laugardaginn var haldið málþing um íslenskan matvælaiðnað, umhverfismál og vistvæna nýsköpun sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matís og Samtök iðnaðarins stóðu að. Á sama tíma var efnt til sýningar á verkefnum nemenda í vistvænni nýsköpun matvæla en nemendur höfðu keppt um titilinn vænlegasta og vistvænasta nýsköpunarhugmyndin á matvælasviði árið 2013 í keppninni Ecotrophelia Iceland.
22.4.2013 
Formaður dómnefndar í teiknisamkeppni grunnskólanna, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, tilkynnti fyrr í vikunni, úrslit í samkeppninni sem hófst sl. haust í tengslum við þrettánda Alþjóðalega skólamjólkurdaginn. Teiknisamkeppnin er opin öllum nemendum í fjórða bekk en Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins stendur fyrir keppninni. Alls tóku rétt tæplega þúsund nemendur í 46 skólum þátt í keppninni.
18.4.2013 
Hlutfall útgjalda til matvörukaupa samkvæmt nýjustu tölum Eurostat á árinu 2013 sýna að Íslendingar verja 13% heildarútgjalda sinna til kaupa á matvörum en meðaltal ESB-ríkja er 14% . Tölur Eurostat sýna hlutfall matvælakostnaðar í neyslu íbúa í 32 löndum í Evrópu. Evrusvæðið í heild er með hærra hlutfall en Ísland sem er í 24. sæti á listanum ...
18.4.2013 
Íbúar heimsins eru 7,1 milljarður. Af þeim eru 900 milljónir sem lifa undir hungurmörkum eða 15 prósent. Talið er að um 2060 muni mannfjöldi í heiminum ná hámarki og verða u.þ.b. 10 milljarðar. Því þarf að tvöfalda matvælaframleiðslu í heiminum með minna vatni og minni notkun á jarðefnaeldsneyti. Við verðum því að nota auðlindir okkar af skynsemi. Það er nauðsynlegt að framleiða mat á öllu landbúnaðarlandi í heiminum, okkur nægir ekki að framleiða mat þar sem náttúrulegar aðstæður henta best til landbúnaðarframleiðslu. Til þess þarf að móta landbúnaðarstefnu og bæta upp fyrir erfiðari náttúrulegar aðstæður milli landa með tollvernd.
17.4.2013 
Undir lok þinghalds á dögunum voru ný lög um velferð dýra samþykkt á Alþingi. Sömuleiðis voru ný lög um búfjárhald þá samþykkt. Lögin taka gildi um næstu áramót en um síðustu áramót tók Matvælastofnun (MAST) við eftirliti með lögum um dýravernd af Umhverfisstofnun.
16.4.2013 
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins stendur fyrir fundi með bændum í Höfðaborg á Hofsósi þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:30. Framsögumaður er Ingvar Björnsson jarðræktarráðunautur hjá RML.
16.4.2013 
Föstudaginn 19. apríl milli kl. 15 og 17 verður til sýnis nýbyggt fjárhús á Hurðarbaki í Flóahreppi. Húsið sem rúmar um 300 fjár var tekið í notkun í haust með nýjum fjárstofni úr Öræfum.
15.4.2013 
Aðalfundur Svínaræktarfélags Íslands haldinn í Bændahöllinni í Reykjavík 13. apríl 2013 harmar þá neikvæðu, villandi og ósönnu umræðu um svínaræktina í landinu sem talsmenn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa staðið fyrir að undanförnu og sem stafar í besta falli af vanþekkingu en í versta falli af annarlegum hvötum.
11.4.2013 
Nýtt Bændablað kom út í morgun og á forsíðu er greint frá þeim miklu verðmætum sem felast í grisjunarviði íslenskra skóga, en áætlað er að hægt verði að grisja allt að 290 þúsund rúmmetra af trjáviði á næstu 5-10 árum.
10.4.2013 
Alls hafa orðið til 81,4 ársverk í skógrækt hér á landi á tímabilinu 2001-2010 fyrir tilstuðlan landshlutaverkefnanna í skógrækt. Ársverkunum fjölgaði úr 63 árið 2001 upp í um 100 árið 2007 en hefur fækkað aftur niður í 47 ársverk árið 2012. Á Fagráðstefnu skógræktar sem haldin var á Hallormsstað í liðnum mánuði voru birtar niðurstöður úr nýrri rannsókn á atvinnuuppbyggingu í skógrækt á Íslandi og er frá þeim greint á vef Skógræktar Íslands.
9.4.2013 
Í tilkynningu frá Sláturfélagi Suðurlands kemur fram að félagið lækki verð á fóðri um allt að 5% frá og með 9. apríl 2013.
9.4.2013 
Félag sauðfjárbænda í Strandasýslu veitti á dögunum Jóni Bjarnarsyni, fyrrum landbúnaðarráðherra, þakkarviðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu bænda. Guðbrandur Björnsson Smáhömrum, formaður félags sauðfjárbænda í Strandasýslu, veitti Jóni viðurkenninguna á aðalfundi sauðfjárbænda í Bændahöllinni þann 5. apríl.
9.4.2013 
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, skipaði á dögunum Stefán Thors  í embætti ráðuneytisstjóra í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
5.4.2013 
Við lok aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda og málstofu um beitarmál og landnýtingu voru tveir kostahrútar sæmdir nafnbótinni „mesti alhliða kynbótahrútur sæðingastöðvanna árið 2013“ og „besti lambafaðir sæðingastöðvanna á starfsárinu 2011-2012“.
5.4.2013 
Kosin hefur verið ný stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda sem hefur á að skipa þeim Þórarni Inga Péturssyni, formanni, Helga Hauk Haukssyni , Oddnýju Steinu Valsdóttur, Þórhildi Þorsteinsdóttur og Atla Má Traustasyni.
4.4.2013 
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda hefst í dag, fimmtudag. Fundurinn verður settur kl. 13.00 með ávarpi formanns. Einnig flytja ávarp Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og Sindri Sigurgeirsson formaður BÍ. Eftir hefðbundna dagskrá og afgreiðslu mála fagna sauðfjárbændur með árlegri árshátíð sem haldin verður í Súlnasal annaðkvöld.
3.4.2013 

Fóðurblandan hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri og tók lækkunin gildi í gær, 2. apríl. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en er allt að 5 prósentum. Ástæða lækkunarinnar er styrking íslensku krónunnar og lækkun á hráefnum til fóðurgerðar á erlendum mörkuðum.


 

3.4.2013 
Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar – stéttarfélags, telur ummæli framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu um erlenda starfsmenn sem starfa við framleiðslu á kjúklingakjöti og svínakjöti hér á landi óviðeigandi. Framkvæmdastjórinn ætti að biðja opinberlega afsökunar á ummælunum sem séu honum ekki sæmandi.
2.4.2013 
Félag kjúklingabænda sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) eru gagnrýnd fyrir villandi málflutning í garð greinarinnar. Formaður SVÞ hefur í fjölmiðlum undafarna daga haldið því fram að alifugla- og svínaræktendur stundi ekki hefðbundinn landbúnað heldur iðnaðarframleiðslu og kallað þá laumufarþega innan bændastéttarinnar. Þessu mótmæla kjúklingabændur og benda á að þessar tvær greinar landbúnaðar standi undir framleiðslu u.þ.b. helmings alls kjöts sem neytt er í landinu, gæði þeirra og kröfur um framleiðsluaðferðir séu með þeim mestu sem gerast í heiminum og fjöldi fólks hafi atvinnu sína af kjúklingarækt og afleiddum störfum. Samanburður SVÞ sé villandi en ekki sé verið að bera saman sambærilegar vörur þegar talað sé um að lækka megi verð á svínakjöti og kjúklingum með því að gefa innflutning frjálsan.
26.3.2013 
Lög um búfjárhald og lög um velferð dýra voru rétt í þessu samþykkt á Alþingi. Í gær fór þriðja umræða um frumvörpin fram en atkvæðagreiðslu var þá frestað. Talsverð umræða fór fram um frumvarp til laga um dýravelferð, einkum um gildruveiðar á mink og geldingu grísa. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þeir Einar Kristinn Guðfinnsson og Jón Gunnarsson, lögðu fram breytingartillögu þar sem kvað á um að fleirum en dýralæknum væri heimilt að gelda grísi yngri en vikugamla ef verkjastillandi lyfjum væri beitt meðfram geldingunni. Sú breytingartillaga var felld. Sömu þingmenn lögðu fram breytingartillögu um rýmri heimild til aflífunar minka með drekkingu. Sú breytingartillaga var einnig felld.
25.3.2013 
Póst- og fjarskiptastofnun hefur tekið bráðabirgðaákvörðun um að fresta skul gildistöku fyrirhugaðrar hækkunar Íslandspósts á gjaldskrá fyrir sendingar í þyngdarflokknum 51 – 2000 gr. Er þetta gert í framhaldi af kvörtun Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, til stofnunarinnar vegna hækkunarinnar.
22.3.2013 
Sextíu prósent íslenskra kúabænda eru mótfallnir því að blanda erlendu erfðaefni við íslenska kúastofninn í því skyni að auka hagkvæmni mjólkurframleiðslu. Þetta kom fram í setningarræðu Sigurðar Loftssonar formanns Landssambands kúabænda við upphaf aðalfundar sambandsins en hann hófst á Egilsstöðum nú í morgun.
22.3.2013 
Aðalfundur Landssambands kúabænda árið 2013 verður haldinn á Icelandair Hótel Héraði á Egilsstöðum, dagana 22. og 23. mars næstkomandi.
21.3.2013 
Landssamtök sauðfjárbænda gangast fyrir opinni málstofu um beitarmál í tengslum við aðalfund samtakanna. Málstofan verður haldin á hótel Sögu föstudaginn 5. apríl kl. 14.30-16.30. Meginefnið verður beitarnýting og landgræðslustörf bænda.
Á málstofunni munu þrír framsögumenn flytja erindi. Anna Guðrún Þórhallsdóttir prófessor við Landbúnaðarháskólann mun í sínu erindi fara í stuttu máli yfir umfang og sögu sauðfjárbeitar á Íslandi og ætluð áhrif hennar á gróður og landslag með tilvísun í nýrri rannsóknir á sögu gróðurs og jarðvegs á Íslandi. Einnig fjallar hún um stefnur og strauma í beitarfræðum erlendis, breyttar áherslur í beitarstjórnun og samspil beitar og náttúruverndar.
21.3.2013 
Yfirskrift þessa pistils er tilvitnun í Baldur Ragnarsson, gítarleikara hljómsveitarinnar Skálmaldar, en hann hefur það sem af er mánuði vakið mikla athygli fyrir þátttöku sína í Mottumars. Mottumars er árlegt árveknis- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins sem snýr að baráttunni gegn krabbameini hjá körlum og fer þannig fram að fólk (yfirleitt karlmenn þó á því séu undantekningar) safnar yfirvaraskeggi, skráir sig til keppni á netinu og safnar áheitum fyrir Krabbameinsfélagið.
21.3.2013 
Vilhjálmur Svansson dýralæknir á Keldum segir ekki sjálfsagt mál að heimila innflutning á hráu kjöti. Af því sé áhætta þó deila megi um hversu mikil hún sé. Þá varði hættan ekki eingöngu íslenska bústofna því smit geti einnig borist í menn. Þetta kemur fram í nýju Bændablaði sem út kom í dag.
 
Upplýst var á dögunum að ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, telji að bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti brjóti gegn ákvæðum EES-samningsins. Voru þetta viðbrögð vegna kvörtunar Samtaka verslunar og þjónustu til ESA í árslok 2011. Stofnunin hefur veitt íslenskum stjórnvöldum frest til loka maí til að standa fyrir máli sínu, en áskilur sér rétt til að fara með málið fyrir dómstóla. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra sagði í kjölfarið að tekið verði til ítrustu varna gegn Eftirlitsstofnun EFTA.
20.3.2013 
Félag sauðfjárbænda í Skagafirði hélt aðalfund sinn 12. mars síðastliðinn á Löngumýri. Á dagskrá fundarins voru hefðbundina aðalfundarstörf og veiting verðlauna fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt. Í stjórn voru kosin Ásta Einarsdóttir á Veðramóti, formaður, Stefán Magnússon á Þverá, Högni Gylfason á Korná, Merete K. Rabølle á Hrauni og Jóhannes Ríkharðsson á Brúnastöðum.
20.3.2013 
Matarsmiðjur og ráðgjöf Matís eru árangurríkar leiðir til þess að lágmarka kostnað smáframleiðenda matvæla við að fá svörun frá markaðinum. Mikilvægt er að styðja við fyrstu skref framleiðenda enda byrja öll fyrirtæki sem smá fyrirtæki. Þetta kom fram í erindi Haraldar Hallgrímssonar sviðstjóra Matís á sviði Nýsköpunar og neytenda, sem hann hélt á Landsýn – vísindaþingi landbúnaðarins.
20.3.2013 
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn stóð fyrir kynningu á íslensku ullinni, eiginleikum, meðhöndlun og hönnun, í húsakynnum sendiráðsins þann 7. mars síðastliðinn. Fljótlega eftir að boðskort höfðu verið send út varð ljós sá gríðarlegi áhugi og sú athygli sem íslenska ullin nýtur en yfir tvö hundruð boðsgestir sóttu viðburðinn.
19.3.2013 
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var Geir Gunnar Geirsson, svínabóndi hjá Stjörnugrís, heimsóttur vegna umræðu síðustu daga um aðbúnað dýra og verksmiðjubúskap í íslenskri svínarækt. Geir Gunnar sagði hræðilegt að heyra hvernig umræðan hafi þróast því svínarækt á Íslandi væri ekki verksmiðjubúskapur og að enginn hafi neitt upp úr því að fara illa með dýr.
18.3.2013 
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) hefur opnað nýja heimasíðu þar sem nálgast má allar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins. Meðal annars má nálgast upplýsingar um starfsfólk, stjórn, netföng og símanúmer og gjaldskrá fyrirtækisins. Netfang síðunnar er rml.is.
15.3.2013 
Fulltrúar stærstu stjórnmálaflokka landsins hafna með öllu innflutningi á erlendu kúakyni til landsins. Þetta kom skýrt fram á opnum fundi Samtaka ungra bænda sem haldinn var á Hvanneyri í gærkvöld Jafnframt kom fram að fulltrúarnir töldu að varnarlínur Bændasamtakanna eigi að liggja til grundvallar samningsafstöðu Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, hvað varðar innflutning á lifandi dýrum. Töldu fundarmenn ljóst að ekki gæti farið saman að flytja hingað til lands nýtt kúakyn og að standa á bak við varnarlínurnar.
14.3.2013 
„Þegar ég tók við sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að loknum alþingiskosningum árið 2009 ákvað ég að leggja frumvarp um innleiðingu á matvælalöggjöf ESB fram þannig breytt að innflutningur á hráum og lítt söltuðum sláturafurðum, bæði unnum sem og óunnum og hráum eggjum væri áfram bannaður og háður leyfi ráðherra hverju sinni að fenginni staðfestingu yfir8 dýralæknis um heilbrigði afurðanna. […] Eftir mjög vandaða vinnu í sjávarútvegs-og landbúnaðarnefnd undir stjórn Atla Gíslasonar varð frumvarp þetta að lögum og samþykkt einróma.“ Svo skrifar Jón Bjarnason, alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í grein í Morgunblaðinu í dag.
13.3.2013 
Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi, er handhafi Eyrarrósarinnar 2013 og veittu aðstandendur þess verðlaununum móttöku við athöfn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Verðlaunin eru Eyrarrós í hnappagatið, 1.650.000 krónur, auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands.
Dorrit Moussaieff forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar, afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar ávörpuðu samkomuna Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Hanna Styrmisdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri. Kórinn Hymdodia söng spunasöng undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar.
12.3.2013 
Þórarinn Pétursson formaður Landssamband sauðfjárbænda fór á fundinum yfir söluþróun á dilkakjöt á liðnum áratug, en útflutningur hefur rokið upp frá árinu 2009. Hann hefur minnkað heldur frá því sem var í fyrra. Noregur er sem fyrr dýrmætasti markaðurinn og gefur hæsta verð fyrir afurðina en Bretland kemur þar á eftir. Þórarinn sagði Evrópumarkað mjög dapran um þessar mundir vegna efnahagslægðar. Bandríkjamarkaður væri líka verðmætur og myndi eflaust stækka til framtíðar litið, á þann markað fór 5% útflutningsmagns í fyrra og skilaðií heild 14% af verðmæti alls útflutnings. Heildarverðmæti úflutnings á liðnu ár nam 3,1 milljarði.
11.3.2013 
Þau gleðilegu tíðindi urðu á nýafstöðnu Búnaðarþingi að konur skipuðu sér í fyrsta sinn í meirihluta stjórnarmanna Bændasamtaka Íslands. Þetta er mikil tíðindi þegar horft er til sögunnar. Með kosningunni er mikið karlavígi fallið.

Það eru ekki nema 27 ár síðan fyrstu konurnar tóku sæti á búnaðarþingi, árið 1986. Það voru þær Ágústa Þorkelssdóttir og Annabella Harðardóttir sem rufu einokun karla í stefnumótun íslensks landbúnaðar.
8.3.2013 
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segir í samtali á vefsíðu ruv.is að tekið verði til ítrustu varna gegn Eftirlitsstofnun EFTA, sem telur að innflutningsbann á hráu kjöti standist ekki ákvæði EES samningsins.
8.3.2013 
Í umræðu um innflutningsbann á hráu kjöti til Íslands og áætlunum Eftirlitsstofnunar EFTA að rannsaka lögmæti þess spyrja menn hvaða hætta felist í óheftum innflutningi. Við vinnslu matvælafrumvarpsins árið 2008 voru ýmsar umsagnir lagðar fram til að styrkja málflutning þeirra sem vöruðu eindregið við auknum innflutningi á hráu kjöti. Ein þeirra var frá doktor Margréti Guðnadóttur ...
8.3.2013 
Bygg gæti verið meginuppistaða í kjarnfóðri fyrir íslenskar kýr. Í fyrirlestri Grétars Hrafns Harðarsonar á Vísindaþingi landbúnaðarins – Landsýn, um hlut byggs í fóðrun mjólkurkúa, kom fram ótvírætt fram að bygg getur verið meginuppistaða í sterkjufóðrun kúa. Þær niðurstöður eru afar mikilvægar fyrir kúabændur og raunar þjóðarbúið allt. Með því er sýnt fram á að aukin byggræktun gefur möguleika á aukinni sjáfbærni í fóðuröflun og að hægt sé að draga úr innflutningi á kornvöru.
7.3.2013 
„Möguleikar landbúnaðarins eru svo sannarlega miklir. Fjölmargir átta sig sífellt betur á því bæði hér heima og erlendis. Það er skortur á landrými í heiminum og vatn og orka eru líka takmarkaðar auðlindir. Það þarf að framleiða mat fyrir vaxandi mannfjölda. Á hverjum einasta degi þarf að metta 250 þúsund fleiri munna, eða næstum allan íbúafjölda Íslands.“ Svo kemst nýkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands, Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti, að orði í leiðara nýs Bændablaðs.
6.3.2013 
Fimm stjórnarmenn Bændasamtaka Íslands viku úr stjórn nú á Búnaðarþingi 2013. Fjórir þeirra höfðu setið samfleytt í níu ár en sá fimmti í þrjú ár. Því varð mikil endurnýjun í stjórn eins og áður hefur verið getið.
Áður en kosningar til stjórnar fóru fram voru stjórnarmönnunum fráfarandi veittar þakkir fyrir störf þeirra í þágu bænda. Áður hafði Haraldi Benediktssyni, fráfarandi formanni verið færðar þakkir fyrir sín störf. Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð, varaformaður, þakkaði fyrir þann stuðning sem hann hefði átt hjá bændum síðustu níu ár sem stjórnarmaður.
6.3.2013 
Búnaðarþing 2013 ítrekar andstöðu sína við aðild að Evrópusambandinu og telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan sambandsins. Jafnframt geldur þingið varhug við áhrifum af innstreymi fjármagns frá sambandinu sem ætlað sé að hafa áhrif á viðhorf til aðildar. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var samhljóma á þinginu.
5.3.2013 
Rétt í þessu voru úrslit í kosningum til stjórnar Bændasamtakanna gerð heyrinkunn. Í fyrsta sinn í sögu samtakanna er meirihluti stjórnar skipaður konum. Átta höfðu gefið kost á sér til setu í stjórn, en auk formanns sitja sex manns í stjórn Bændasamtakanna. Sem kunnugt er var Sindri Sigurgeirsson kjörinn formaður Bændasamtakanna fyrr í dag.
5.3.2013 
Sindri Sigurgeirsson, bóndi í Bakkakoti, var rétt í þessu kjörinn nýr formaður Bændasamtaka Íslands. Sindri hlaut 31 atkvæði en Guðbjörg Jónsdóttir sem bauð sig fram rétt fyrir formannskjör hlaut 13 atkvæði. Tveir seðlar voru auðir og einn ógildur. Sindri er því réttkjörinn formaður Bændasamtakanna.
5.3.2013 
Guðbjörg Jónsdóttir bóndi á Læk tilkynnti rétt í þessu að hún hyggðist gefa kost á sér sem formaður Bændasamtaka Íslands. Allt fram til þess var einungis Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti búinn að lýsa yfir framboði en all langt er um liðið frá því hann gerði það. Yfirlýsing Guðbjargar kom skömmu áður en hefja átti kosningar til formanns. Því verður kosið milli tveggja frambjóðenda en úrslit ættu að verða kunn um klukkan 15:00.
5.3.2013 
Búnaðarþing samþykkti nú í morgun að beina því til Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins að efla ráðgjöf við ábúendaskipti á bújörðum. Við ábúendaskipti á bújörðum þarf að formfesta ýmsa þætti, hvort sem um er að ræða kaup eða sölu, leigu, lán, eða blandaðar leiðir. Þegar ábúendaskipti eiga sér stað getur öflug ráðgjöf án efa skilið milli þess hvort ferlið gengur upp eða ekki, segir meðal annars í greinargerð með ályktuninni.
4.3.2013 
Í almennum umræðum á búnaðarþingi í dag lýstu átta þingfulltrúar yfir að þeir hyggðust gefa kost á sér til setu í stjórn Bændasamtakanna en eins og kunnugt er verður mikil endurnýjun við kosningu nýrrar stjórnar. Enn sem komið er hefur Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti einn gefið kost á sér til formanns.
4.3.2013 
Annar fundur Búnaðarþings 2013 hófst í morgun, en áður höfðu starfsnefndir tekið til starfa. Haraldur Benediktsson formaður flutti þá skýrslu formanns og stiklaði á stóru um starf Bændasamtakanna síðastliðið ár en auk þess fór hann yfir starf sitt síðustu níu ár á formannsstóli, en sem kunnugt er hyggst Haraldur láta af embætti á þessu þingi.
3.3.2013 
Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt nú við setningu búnaðarþings fyrr í dag. Að þessu sinni hlutu bændurnir í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða verðlaunin sem Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega og nýsköpunarráðherra veitti.
3.3.2013 
Búnaðarþing 2013 var sett við hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótels Sögu nú fyrr í dag. Að þessu sinni eru einkunnarorð þingsins „Bændur segja allt gott“. Búnaðarþing stendur fram á miðvikudaginn og er fjöldi mála á dagskrá þingsins að venju.
1.3.2013 
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Sjóðurinn hefur nú úr um 70 milljónum króna að spila auk áður úthlutaðra styrkja sem ekki hafa verið sóttir. Umsóknafrestur er til 4. apríl næstkomandi.
27.2.2013 
Gæðakokkar í Borgarnesi hafa framleitt og markaðssett tvær tegundir matvöru sem sagðar eru innihalda nautakjöt en við athugun reyndist ekkert nautakjöt vera í vörunum. Þetta kom í ljós við rannsókn Matvælastofnunar (MAST) á kjötinnihaldi 16 íslenskra matvara sem framkvæmd var til að kanna hvort umræddar matvörur innihéldu hrossakjöt án þess að um það væri getið á umbúðum. Engin af vörunum sem til skoðunar voru uppfyllti allar kröfur um merkningar.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að hrossakjöti hafði ekki verið blandað í vörurnar án þess að um það væri getið. Hins vegar reyndust tvær vörur ekki innihalda nautakjöt þrátt fyrir merkingar þar um.
26.2.2013 
Miklir vatnavextir eru nú víða um land en rigningar og hlýindi undanfarna daga hafa valdið mikilli snjóbráðnun. Mest eru flóðin á Suðurlandi, m.a. í Hvítá og Ölfusá en einnig er miklir vatnavextir í Eyjafirði. Ófært er um Auðsholtsveg í Hrunamannahreppi vegna vatnavaxta.
25.2.2013 
Sveitarstjórnir Hrunamannahrepps og Bláskógabyggðar hafa ásamt garðyrkjubændum stofnað félagið Uppsveitarorku ehf. Félagið ætlar að sækja um leyfi til að stofna rafveitu. Markmiðið er að afla og dreifa orku til garðyrkju­bænda og annars atvinnurekstrar á hagkvæmari hátt en nú er. Hugmyndin með stofnun félagsins er að geta boðið orkusæknum fyrirtækjum á svæðinu mun hagkvæmari ...
25.2.2013 
Skógræktarritið er nú fáanlegt í lausasölu á völdum stöðum en undanfarin ár hefur það eingöngu verið selt í áskrift og á skrifstofu Skógræktarfélags Íslands, útgefanda ritsins. Með þessu móti vill Skógræktarfélag Íslands koma til móts við lesendur sem kjósa að kaupa stök rit í stað áskriftar. Jafnframt er þetta liður í að kynna Skógræktarritið fyrir nýjum lesendum.
22.2.2013 
Það hefur verið baráttumál æðarbænda á Vesturlandi í mörg ár að fá samþykkta friðunarlínu út fyrir eyjar og sker við Mýrar í Faxaflóa og inn í Borgarfjörð vegna grásleppuveiða. Ástæðan er sú að æðarbændur telja að æðarfugl í ætisleit snemma vors ánetjist í stórum stíl og drepist í netum grásleppuveiðimenn. ...
21.2.2013 
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í Laugardalshöll í dag en Bjarni Benediktsson, formaður flokksins setur fundinn klukkan 17:00. Fundurinn stendur fram á sunnudag en þá verður kosið í embætti formanns, varaformanns og 2. varformanns auk þess sem stjórnmálaályktun fundarins verður afgreidd. Ekki hafa borist framboð gegn sitjandi formanni en Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur tilkynnt að hún bjóð sig fram til varformanns. Ólöf Nordal sitjandi varaformaður hafði áður gefið út að hún hyggðist láta af embætti.
21.2.2013 
Þann 1. september næstkomandi taka gildi lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40 prósent í stjórnum lífeyrissjóða og fyrirtækja þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG tók saman tölfræði um þau fyrirtæki sem féllu undir löggjöfina 1. september síðastliðinn, þegar ár var til stefnu að lögin tækju gildi. Niðurstöðurnar voru sláandi. Einungis 47 prósent fyrirtækja uppfylltu þá skilyrðin og aðeins 42 prósent lífeyrissjóða. Samtals vantaði 223 konur í stjórnir til að uppfylla skilyrði laganna. Ekki skal þvertekið fyrir að einhver breyting hafi orðið á síðan KPMG tók umræddar tölur saman en ekki myndi pistlahöfundur veðja stórum fjárhæðum á það samt.
21.2.2013 
Fóðurblandan hefur lækkað verð á fjórum tegundum áburðar sem fyrirtækið hefur í sölu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu sem barst nú í morgun. Breytingarnar eru á tegundunum Græðir 8, Græðir 9, Fjölmóða 3 og Fjölgræði 9b. Lækkunin er mismunandi milli tegunda, á bilinu 2 til 5 prósent.
20.2.2013 
Nefnd um lagningu raflína í jörð náði ekki samstöðu í vinnu sinni en nefndin skilaði niðurstöðum til ráðherra atvinnuvega- og nýsköpunar nýverið. Ekki tókst að komast að sameiginlegri niðurstöðu um heildstæða stefnu um lagningu raflína í jörð.
19.2.2013 
Skógarplöntustöðin Barri hf. fór í þrot í byrjun árs en hún var ein hin fullkomnasta og stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Hún var stofnuð árið 1990, af 109 hluthöfum, og var lengi framan af eina einkarekna stöðin sem starfaði við það að stærstum hluta að rækta skógarplöntur. Nú liggur það fyrir að nýtt félag, Gróðrarstöðin Barri ehf., hefur gert tilboð í þrotabú Barra hf.;  birgðir, lausafé ...
19.2.2013 
Allir áburðarsalar hafa nú gefið út verðlista á áburði fyrir árið 2013. Fóðurblandan hf. gaf sinn verðlista út síðastliðinn föstudag en áður höfðu Sláturfélag Suðurlands (SS) og Skeljungur gefið út sína verðlista. Þá hefur Búvís kynnt verðlista sem gildir til 25. febrúar nk. en verð eru breytileg eftir vikum hjá fyrirtækinu.
19.2.2013 
Málþing um landnýtingu verður haldið í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti í dag, þriðjudaginn 19. febrúar kl. 12:00. Þingið er haldið að frumkvæði Rótarýklúbbs Rangæinga en þar verður fjallað um ýmsar spurningar um ráðstöfun á landi.
14.2.2013 
Upplýsingar hafa borist Matvælastofnun um að Kaupás ehf. hafi, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði First Price Lasagne. Innköllunin er framkvæmd í varúðarskyni vegna gruns um að varan innihaldi hrossakjöt sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu.
14.2.2013 
Skipulagðar hreinsunaraðgerðir hófust í Kolgrafarfirði í gær. Markmiðið með aðgerðum er að hreinsa grút og dauða síld úr fjörunni fyrir framan bæinn Eiði. Dauð síld verður plægð niður í fjöruna til að koma í veg fyrir að hún rotni og bæti í grútinn. Grútur verður hreinsaður upp eftir megni og hann fluttur til urðunar. Heimamenn sjá um aðgerðirnar en kostnaður verður greiddur af stjórnvöldum.
12.2.2013 
Matvælastofnun hefur tekið sýni úr íslensku hakki og framleiðsluvörum á markaði hér á landi til að kanna hreinleika kjötsins. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort hrossakjöt er að finna í vörunum án þess að það komi fram í merkingum.
11.2.2013 
Nær áttatíu þúsund lítrar af rjóma fóru út í verslanir og bakarí vikuna fyrir bolludag. Til þess að framleiða svo mikinn rjóma þarf um eina milljón lítra af mjólk, sem er það magn sem fæst úr u.þ.b. 8.000 kúm á einni viku. Á Íslandi eru um 25.000 mjólkurkýr og því þurfti um 30% af heildarstofninum til þessa verkefnis.
8.2.2013 
Flokksþing Framsóknarflokksins hóft í morgun en þingið fer fram í Gullhömrum í Grafarvogi. Drög að fjölda ályktana liggur fyrir þinginu en nefndarstörf hefjast samkvæmt áætlun þingsins klukkan 18:00 í kvöld. Nefndarstörf halda áfram eftir þörfum á laugardag og afgreiðsla þeirra hefst klukkan 10:00 á sunnudagsmorgun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður setur þingið með ræðu klukkan 14:00 í dag. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu af þinginu á síðu flokksins.
8.2.2013 
Vegna umræðu um nýtingu síldar sem drepist hefur í Kolgrafafirði vill Matvælastofnun benda á að allt fóður skal vera heilnæmt og síld sem rekur á fjöru, rotnuð og vargfugl hefur komist í, er ekki heimilt að nota sem fóður fyrir dýr sem gefa af sér afurðir til manneldis. Í dauðum fiski getur rotnun hafist mjög fljótt með hröðum vexti ýmissa örvera, sem sumar geta verið skaðlegar fyrir dýr.
7.2.2013 
Nýtt Bændablað kom út í morgun. Þau mistök áttu sér stað að hluti smáauglýsinganna skilaði sér ekki í prentuðu útgáfuna. Smáauglýsingar úr síðasta tölublaði eru þar aftur birtar. Í útgáfunni sem finna má hér á síðunni - PDF-útgáfunni - eru hins vegar réttar smáauglýsingar.

Í nýju Bændablaði er annars í forsíðufrétt...


6.2.2013 
Í upphafi fjórða uppboðsdags hjá Kopenhagen fur í Kaupmannahöfn er ljóst að meðalverð á íslenskum minkaskinnum mun enn hækka. Björn Halldórsson formaður íslenskra loðdýrabænda er staddur í Kaupmannahöfn og segir hann að von sé til þess að um 400 milljónir fáist fyrir íslensk skinn á uppboðinu sem líkur í dag. Ef fer fram sem horfir stefnir í að útflutningstekjur af íslenskum minkaskinnum verði um eða yfir tveir milljarðar króna á árinu.
6.2.2013 
Bocuse d‘Or, óopinber heimsmeistarakeppni matreiðslumanna, var haldin í frönsku borginni Lyon í lok síðasta mánaðar. Að þessu sinni var það Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, matreiðslumaður á Vox, sem keppti fyrir hönd Íslands. Er skemmst frá því að segja að Sigurður lenti í áttunda sæti af 24 þátttakendum.
1.2.2013 
Ónýttir möguleikar eru í framleiðslu á nautakjöti hér á landi en eftirspurn eftir íslensku nautakjöti er mun meiri en framleiðendur anna. Ástæður þess eru að einkum að nautakjötsframleiðslan er að stærstum hluta stunduð sem hliðarbúgrein með mjólkurframleiðslu og flestir sláturgripir eru af íslenskakúakyninu sem fyrst og fremst er ræktað til mjólkurframleiðslu en ekki til kjöt framleiðslu. Ef stunda á kjötframleiðslu í einhverju mæli með holdanautakynjum er nauðsynlegt að flytja inn erfðaefni úr slíkum kynjum.
1.2.2013 
Útflutningsverðmæti sauðfjárafurða drógust saman um 200 milljónir í fyrra frá árinu 2011. Alls voru fluttar út sauðfjárafurðir að verðmæti rúmlega þriggja milljarða króna. Tveir þriðju hlutar útflutningsverðmætis urðu til við útflutning á kjöti og kjötafurðum , fjórðungur fékkst með sölu á gærum og afgangurinn með sölu á ull og ullarvörum . Langmest var flutt til Evrópu en 78 prósent útflutningsverðmætis skapaðist með sölu á Evrópumarkað, þar sem Noregur trónir á toppnum.
31.1.2013 
Salmonella hefur greinst í kjúklingafóðri frá Fóðurblöndunni. Um er að ræða hitameðhöndlað fóður sem ber heitið Holdakurl START og var framleitt 12. desember síðastliðinn. Búið er að senda sýni úr fóðrinu í tegundagreiningu en niðurstöður hennar liggja ekki fyrir. Fóðurblandan hefur tilkynnt kaupendum fóðursins um niðurstöðuna og innkallað fóðrið.
28.1.2013 
Norðlenskir skógarbændur gróðursettu alls ríflega 536 þúsund plöntur á liðnu ári og er það aukning sem nemur rúmlega 70 þúsund plöntum frá fyrra ári. Engin ný skjólbelti voru ræktuð, en íbætur í eldri belti voru ríflega þúsund plöntur.
25.1.2013 
Góður árangur hefur verið af samstarfi á milli sveitarfélaga við Eyjafjörð um eyðingu minka á undanförnum árum, en Atvinnuþróunar­félag Eyjafjarðar (AFE) hefur haldið utan um verkefnið. Jón Þórarinsson á Hnjúki í Svarfaðardal, formaður landbúnaðarráðs Dalvíkurbyggðar, segir að orðið sé aðkallandi að fara í sambærilegt átak til að fækka ref, sem farinn sé að hafa slæm áhrif á fuglalíf víða um land.
24.1.2013 
Hreindýraveiðikvóti ársins eykst um 220 dýr frá fyrra ári en heimilt verður að veiða allt að 1.229 dýr í ár samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra. Ákvörðunin er byggð á tillögum Umhverfisstofnunar en er háð því að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að þeim tíma er veiðitímabilið hefst.
23.1.2013 
Sem kunnugt er úr fréttum liðinna vikna rak dauð síld í miklu magni á fjörur í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi í desember sl. Nú er talið að síldin hafi drepist vegna súrefnisskorts. Mikinn óþef leggur af síldinni sem úldnar í fjörunni og er til mikillar óþægindar fyrir ábúendur við fjörðinn.
22.1.2013 
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, sauðfjárbóndi í Bakkakoti í Stafholtstungum, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem formaður Bændasamtaka Íslands. Nýr formaður verður kosinn á komandi búnaðarþingi í byrjun mars en Haraldur Benediktsson mun þá láta af formennsku eftir níu ára setu. Sindri er fyrrum formaður Landssamtaka sauðfjárbænda og hefur setið á búnaðarþingi síðustu tólf árin.Sindri er fæddur í Reykjavík 5. apríl 1974. Hann er giftur Kristínu Kristjánsdóttur og hafa þau búið í Bakkakoti frá árinu 1994. Þau eiga tvö börn, Lilju Rannveigu og Kristján Franklín.
21.1.2013 
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands mun stíga af formannsstóli á komandi búnaðarþingi, sem sett verður 3. mars næstkomandi. Ástæðan er sú að Haraldur mun sitja í öðru sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi til komandi Alþingiskosninga. Ljóst er því að nýr formaður Bændasamtakanna verður kjörinn á búnaðarþingi.
16.1.2013 
Síðasta rekstrarár Ístex var eitt hið besta í rekstri fyrirtækisins, bæði hvað varðar tekjur og magn ullar sem unnið var. Hagnaður fyrirtækisins eftir skatta nam 77,3 milljónum króna á síðasta ári og skuldir lækkuðu um 74 milljónir króna. Tekjur fyrirtækisins jukust um 82 milljónir milli ára en rekstargjöld hækkuðu hins vegar um 107 milljónir króna. Aðalfundur Ístex var haldinn sl. föstudag og var þar greint frá umræddum lykiltölum úr rekstrinum. Á fundinum var samþykkt að greiða hluthöfum 20 prósenta arð vegna rekstrarársins 2011-2012.
15.1.2013 
Starfshópur um beitarstjórnun og sjálfbæra landnýtingu skilaði umhverfis- og auðlindaráðherra og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra tillögum sínum í síðustu viku. Tillögurnar eru sjö talsins og er í þeim fjallað um ýmis atriði til að vinna að markmiðum um sjálfbæra búfjárbeit svo og skipulag hennar og annarrar landnýtingar.
14.1.2013 
Starfshópur, undir formennsku Jóns Loftssonar skógræktarstjóra, sem unnið hefur að gerð stefnumótunar í skógrækt hefur skilað tillögum sínum til Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Nefndin, sem var skipuð árið 2006, hefur unnið greinargerð með stefnumarkandi tillögum um áherslur í skógræktarstarfinu sem hún kynnti ráðherra á dögunum.
11.1.2013 
Sigurborg Daðadóttir hefur verið skipuð í Embætti yfirdýralæknis. Sigurborg er dýralæknir frá Tieräztlich Hocschule í Hannover og hefur auk þess lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
11.1.2013 
Það eru ekki mörg ár síðan ég tók mitt fyrsta alvöru sumarfrí. Fram til þess höfðu sumrin farið í að vinna eins og mögulegt var til að eiga fyrir salti í grautinn yfir vetrartímann á námsárunum. Þegar ég var í kringum tvítugt þóttist ég góður ef ég náði fjórum frídögum um Verslunarmannahelgi og hugsanlega tveimur um hvítasunnu. Þar með var það líka að mestu upp talið.
10.1.2013 
Stjórn Jötunn Véla hefur ákveðið að opna útibú á Akureyri í mars næstkomandi og er opnunin liður í að efla þjónustu og færa nær viðskiptavinum Jötunn Véla á norðurlandi.
10.1.2013 
„Mér finnst íbúarnir bara ótrúlega brattir eftir það sem á undan er gengið og staðráðnir í að láta áföll ekki buga sig. Menn hafa tekið hlutunum af æðruleysi,“ segir Dagbjört Bjarnadóttir, oddviti Skútustaðhrepps.
9.1.2013 
Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum í Önundarfirði segir að reynslan hafi kennt sér að vera alltaf  viðbúinn rafmagnstruflunum og lokun vega vegna snjóa. Því hafi veðuráhlaupið um jólin ekki plagað hann mikið þrátt fyrir að rafmagn færi af raforkukerfinu sem sumir þurftu að búa við allt upp í nærri 40 klukkustundir og til dæmis Árneshreppur töluvert lengur.
7.1.2013 
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, situr í starfshópi á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um vernd vöruheita með uppruna- eða staðarvísun. Hópurinn var skipaður í kjölfar ráðstefnu sem haldin var að frumkvæði samtaka mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja í september síðastliðnum.
4.1.2013 
Mjólkurbændur og Mjólkursamsalan urðu ekki fyrir tjóni á Vestfjörðum þrátt fyrir illviðri og ófærð í lok síðasta árs og um áramót. Ófærð hafði tafði þó mjólkursöfnun, bæði á Vestfjörðum og Norðurlandi en þrátt fyrir það tókst að koma allri mjólk í vinnslu. Þá varð ekki skortur á mjólkurvörum í verslanir þrátt fyrir erfiðleika við dreifingu.
3.1.2013 
Tveir lambhrútar heimtust í Hlíðarfjalli í Mývatnssveit í gær. Eftir að vélasleðamaður hafði keyrt fram á hrútana og haft samband niður í byggð voru þeir sóttir á öðrum sleða og þannig fluttir til byggða. Fréttavefurinn 641.is greindi frá.
2.1.2013 
Hrútur sem Kristján Stefánsson frá Gilhaga í Skagafirði hefur nýlega lokið við að stoppa upp vakti mikla lukku á jólaskemmtun á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.
31.12.2012 
Margar perlur sem ekki mega glatast vegna byggingar- og menningarsögulegs gildis
Síðastliðin tvö sumur hefur hópur fólks unnið að skrásetningu eyðibýla á landinu. Nú fyrir skemmstu komu út tvær bækur með myndum og upplýsingum um verkefnið en áður var ein bók þegar komin út. Fyrsta bindið sem kom út í fyrra fjallar um eyðibýli í Austur- og Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Síðari bindin tvö fjalla annars vegar um Norður- og Suður-Þingeyjarsýslu og Eyjafjarðarsýslu og hins vegar um Dalasýslu, Snæfells- og Hnappadalssýslu, Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu.
28.12.2012 
Þrátt fyrir ákjósanleg skilyrði til vaxtar í kornræktinni hefur framþróun í greininni verið óveruleg á síðustu árum. Helst er talað um að kornþurrkstöðvar séu of fáar og smáar hér á landi – og það standi greininni fyrir þrifum. Áframhaldandi vöxtur innan greinarinnar sé þannig háður því að gott aðgengi sé að afkastamiklum þurrkstöðvum svo gera megi kornið að markaðsvöru.
28.12.2012 
Niðurstöður áburðareftirlits Matvælastofnunar sýna að 8 áburðartegundir voru með meira frávik í efnainnihaldi en leyfilegt er, samkvæmt ákvæðum reglugerða, á árinu sem er að líða. Þar af voru 2 með of mikið kadmíuminnihald og nokkrar tegundir þar sem áburðarefni voru minni en gefið var upp á umbúðum. Alls voru flutt inn til landsins tæplega 52 þúsund tonn af áburði árið 2012 ...
28.12.2012 
Öll mjólkurpökkun verður flutt frá MS í Reykjavík til MS á Selfoss. Það er því mikið að gerast í framkvæmdum hjá MS Selfossi enda iðnaðarmenn og starfsmenn búsins að vinna á öllum stöðum við að gera hlutina klára fyrir júní 2013 þegar öllu á að vera lokið. Framkvæmdirnar skapa verktökum vinnu og er góð innspýtingin í atvinnulífið á staðnum. Magnús Hlynur Hreiðarsson hitti Guðmund Geir Guðmundsson, mjólkurbússtjóra og spurði út í breytingarnar og áhrif þeirra fyrir starfsemi MS Selfossi.
27.12.2012 
Á komandi ári verða 170 ár síðan torfbærinn Sænautasel á Jökuldalsheiði var reistur, en það var árið 1843. Var búið í bænum nær samfellt í 100 ár, en síðustu ábúendur fluttu úr bænum árið 1943. Þar hefur Lilja Hafdís Óladóttir, bóndi á Merki á Jökuldal, rekið ferðaþjónustu á sumrin síðan 1994 eftir endurreisn bæjarins sem hófst árið 1992.
26.12.2012 
Sé horft yfir Skagafjörð fanga eyjar tvær augað og gera útsýnið mikilfenglegt. Þó er önnur þeirra, Drangey, mikilfenglegri í sjón og rís hærra úr sjó. Drangey er þekktur staður úr sögunni, þar dvaldi Grettir Ásmundarson í útlegð sinni og þar var hann veginn. Jafnframt er rekin ferðaþjónusta sem bera nafnið Drangeyjarferðir og út í eyjuna koma hundruðir fólks á hverju sumri. Minna fer fyrir Málmey á Skagafirði. Þó er það svo að Málmey var í byggð fram um miðja síðustu öld og saga hennar um margt merkileg. Byggð lagðist af í Málmey eftir að íbúðarhúsið þar brann til kaldra kola að kvöldi 22. desember 1951. Hefur þar ekki verið búið síðan þó ábúendur sem þá voru hafi dvalið í eynni fram á vor, yfir búfé sínu.
25.12.2012 
Á komandi ári verða 170 ár síðan torfbærinn Sænautasel á Jökuldalsheiði var reistur, en það var árið 1843. Var búið í bænum nær samfellt í 100 ár, en síðustu ábúendur fluttu úr bænum árið 1943. Þar hefur Lilja Hafdís Óladóttir bóndi á Merki á Jökuldal rekið ferðaþjónustu á sumrin síðan 1994 eftir endurreisn bæjarins sem hófst árið 1992. Hluti bæjarins féll reyndar aftur árið 2009 og var enn ráðist í endurbyggingu árið 2010. Meðal þeirra sem starfað hafa við þá þjónustu er Eyþór Guðmundur Guðmundsson sem fæddist þar og flutti burt með foreldrum sínum og fjórum systkinum þegar bærinn lagðist í eyði.
24.12.2012 
Frá örófi alda hefur skegg og skegghirða haft táknræna merkingu um þroska og visku í menningarsamfélögum. Á Íslandi þekkist þetta ekki síst úr Íslendingasögunum þar sem skeggprýði þótti merki um hugrekki, dug og karlmennsku. Það er því hverjum karlmanni sem ber skegg nauðsyn að hirða það vel. Ekki á það síst við þegar að líður að stórhátíðum eins og jólum. Gott er að fá fagaðila til að snyrta skeggið, eins og Stjúri rakari í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar gerði við blaðamann Bændablaðsins á dögunum.
22.12.2012 
Norðurorka á Akureyri hefur undirritað samning um kaup á gashreinsistöð frá fyrirtækinu Greenlane – Flotech í Svíþjóð. Stöðin hreinsar metan út svonefndu hauggasi sem vinna á úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal. Mjög góð reynsla er komin á stöðvarnar sem Greenlane - Flotech hefur framleitt undanfarin ár og þær byggja á þekktum tæknilausnum sem eru margreyndar. Gert er ráð fyrir að stöðin verði tekin í notkun síðsumars 2013.
22.12.2012 
Vilmundur Hansen þjóð- og garðykjufræðingur lauk í haust meistaraprófi frá Háskólanum í Kent sem er staðsettur í Canterbury Englandi. Lokaverkefni Vilmundar nefnist The Historical Ethnobotany Of Iceland from Settlemennt to 1901 og fjallar um nytjar á gróðri á Íslandi frá landnámi til 1901. Vilmundur varð með því fyrstur Íslendinga til að taka meistarapróf í ethnobotany, sem er sambræðingur úr mann-, þjóð- og grasafræði.
21.12.2012 
Búið er að ganga frá ráðningum í stjórnunarstöður hjá nýju ráðgjafarfyrirtæki bænda sem tekur formlega til starfa um áramótin. Karvel Lindberg Karvelsson verður framkvæmdastjóri en hann starfar nú sem landsráðunautur í svína- og alifuglarækt hjá Bændasamtökum Íslands.
21.12.2012 
Jólatréð í ýmsum myndum er ómissandi hluti jólahátíðarinnar á flestum íslenskum heimilum. Siðurinn í nútímabúningi er þó fremur ungur í jólasögulegu samhengi. Líkt og marga aðra ágæta siði sækjum við hann til Danmerkur og má rekja hann aftur til síðari hluta 19. aldar. Elstu heimildir um skreytt tré á jólum eru hins vegar frá Suður-Þýskalandi á 16. öld.
21.12.2012 
Jón Helgi og Rúnar Þór Þórarinssynir tölvuleikjahönnuðir, [synir Þórarins Lárussonar fyrrum ráðnautar Búnaðarsambands Austurlands] hafa skrifað pistil á visi.is undir fyrirsögninni „ Spennufíklar í sæstrengsspreng“. Þar vara þeir við áformum Landsvirkjunar um að leggja rafstreng til Skotlands. Sagði Rúnar í samtali við Bændablaðið að gagnrýni þeirra byggðist m.a. á reynslu þeirra sjálfra af því þegar Norðmenn tóku í notkun rafstrengi sem lagðir voru til Þýskalands og Hollands. Jón Helgi bjó þar í 9 ár og Rúnar í 5 ár. Raforkuverð til almennings í Noregi hafi stórhækkað í kjölfarið. Þá noti Landsvirkjun nú nánast orðrétta þýðingu á rökfærslum norskra orkufyrirtækja fyrir lagningu sæstrengs frá Noregi.
20.12.2012 
Breytingar á búnaðar- og búvörulögum voru samþykktar á Alþingi í gær. Í breytingunum felst staðfesting á samningum bænda við ríkisvaldið, annars vegar varðandi nýjan búnaðarlagasamning og hins vegar varðandi búvörusamninga í sauðfjárframleiðslu, mjólkurframleiðslu og grænmetisframleiðslu. Samningarnir voru allir undirritaðir 28. september síðastliðinn. Samningar um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt voru síðan samþykktir í almennri atkvæðagreiðslu meðal bænda í nóvember.
19.12.2012 
Nokkur skógræktarfélög munu selja jólatré nú síðustu daga fyrir jól. Þar gefst fólki kostur á að höggva sér tré að eigin vali, en sums staðar er einnig ýmislegt annað í boði. Þannig hefur t.d. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar verið með lifandi tré í pottum á boðstólum...
19.12.2012 
Greiddar verða 10.000 krónur á hverja fullorðna kind sem bændur töpuðu í óveðrinu í byrjun septembers sl. umfram þær bætur sem Bjargráðasjóður greiðir. Umræddar bætur verða greiddar með fjármunum sem safnast hafa í söfnunarátaki Landssambands sauðfjárbænda, „Gengið til fjár“ en tæplega 40 milljónir króna hafa safnast í því átaki.
18.12.2012 
Meirihluti er í utanríkismálanefnd Alþingis fyrir þingályktunartillögu um að gert verði hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þær ekki hafnar að nýju fyrr en að aflokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókninga. Jón Bjarnason þingmaður Vinstri grænna stendur að tillögunni ásamt þingmönnum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í nefndinni.
18.12.2012 
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á búnaðarlögum og lögum um framleiðslur, verðlagningu og sölu á búvörum. Í breytingartillögu Sigurðar er lagt til að felldir verði út fyrirvarar sem settir voru við búvörusamninga en þeir fólu í sér að fyrirvara um hugsanlegar breytingar á þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands sem kunni að leiða af niðurstöðum samningaviðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
18.12.2012 
Landssamband hestamannafélaga er 63 ára í dag. Sambandið var stofnað 18. desember 1949 og stóðu tólf hestamannafélög að stofnuninni. Aðdragandi stofnunar sambandsins var nokkur en almennt er almennt er talað um að upphaf þess megi rekja til svokallaðs Þingvallafundar árið 1941. Jón Pálsson dýralæknir á Selfossi og þáverandi formaður Hestamannafélgsins Sleipnis átti hugmyndina að Þingvallafundinum. Þangað komu 140 hestamenn úr fjórum hestamannafélögum, Fáki, Faxa, Glað og Sleipni, ríðandi á 333 hrossum og dvöldu yfir helgi.
17.12.2012 
Verð á minkaskinnum hækkaði enn á uppboði Kopenhagen fur sem lauk um síðustu helgi. Ekki er búið að gefa út lokaniðurstöður í verðum en talað er um að meðaltalshækkunin hafi verið um 25 prósent. Meðalverð fyrir skinn var því um 13.000 íslenskar krónur og hefur það aldrei verið hærra. Óvenju margir kaupendur voru á uppboðinu, sem er fyrsta uppboð sölutímabilsins, en á milli 400 og 450 kaupendur mættu á svæðið. Vanalega eru kaupendur á þessu fyrsta uppboði sölutímabilsins um 250 til 300 talsins.
14.12.2012 
Áform Landsvirkjunar um lagningu sæstrengs til Skotlands vekur ugg á landsbyggðinni. Guðmundur Halldórsson, sauðfjárbóndi á Svarthamri í Álftafirði við Ísafjarðardjúp, segir forsendur byggðar víða um land brostnar ef verði af hugmyndum Landsvirkjunar um að leggja sæstreng til Skotlands sem lýst var í síðasta Bændablaði. Nú þegar sé verið að greiða óheyrilega hátt verð fyrir kyndingu íbúðarhúsnæðis með raforku á köldum svæðum landsins. Það sé hreinlega að sliga fólk þrátt fyrir þær niðurgreiðslur sem veittar eru.
14.12.2012 
Mamma mín er bóndi. Um það hefur aldrei þurft að efast neitt enda hefur hún alla tíð gengið í öll störf, utanhúss sem innan. Mamma mín hefur mjólkað, gefið, heyjað og smalað síðustu áratugi. Hún hefur mætt á fundi, tekið þátt í félagsstörfum og setið í nefndum sveitarfélagsins. Mamma hefur þar fyrir utan sinnt stóru heimili í mat, bekstri, þvottum og hverjum þeim húsverkum sem á hefur þurft að halda. Hún hefur sinnt okkur börnunum fimm, vinnufólki og gestkomandi og svo pabba karlinum. Mér finnst mamma mín vera algjör hetja.
14.12.2012 
Bændablaðið hefur undanfarið fjallað um hugsanlega sinu- og skógarelda, varnir gegn þeim og viðbúnað. Í október síðastliðnum héldu stjórnendur slökkviliða í landinu árlegan félagsfund sinn á Sauðárkróki. Þar voru þessi mál eitt aðal umræðuefni fundarins. Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu hefur verið framarlega í þessari umræðu og hélt hann meðal annars erindi um elda í gróðurlöndum á umræddum fundi.
13.12.2012 
Enginn ágreiningur er í utanríkismálanefnd um að gerð verði krafa í samningaviðræðum við Evrópusambandið (ESB) um að áfram verði bannað að flytja lifandi dýr til Íslands. Þetta kemur fram í bókun Árna Þórs Sigurðssonar formanns nefndarinnar. Í drögum að samningsafstöðu Íslands er nú tekið fram að það skipti sköpum fyrir Ísland að banni við innflutningi lifandi dýra verði viðhaldið. Í bókun Árna Þórs kemur einnig fram að hann telur að ekki komi til greina að víkja frá þessar afdráttarlausu afstöðu nema með samþykki Alþingis þar að lútandi.
13.12.2012 
Einungis tveir nefndarmenn atvinnuveganefndar Alþingis mættu á fund nefndarinnar í morgun en á fundinn var búið að boða fulltrúa bænda til að ræða frumvörp til breytinga á búnaðarlögum og breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, sem kom norðan úr Eyjafirði til fundarins, finnst framkoman lýsa skeytingarleysi.
13.12.2012 
Útlit er fyrir að norðlenskir bændur muni neyðast til að verja háum upphæðum í heyflutninga eftir áramót, en fáir bændur á svæðinu eru aflögufærir með hey. Aftur á móti bendir allt til að marga vanti umtalsvert magn af heyi fram á vorið. Miklir þurrkar einkenndu síðastliðið sumar, vetur settist snemma að og því algengt að lítið sem ekkert yrði úr seinni slætti bænda norðan heiða. Þá fór búpeningur mun fyrr á gjöf en vant er í meðalári vegna veðurs. Frá þessu er greint á forsíðu nýs Bændablaðs sem kom út í dag.
13.12.2012 
Fóðurblandan mun hækka verð á kjarnfóðri frá og með næstkomandi mánudegi, 17. desember. Verðhækkunin er á bilinu 1 til 4 prósent, mismunandi eftir tegundum. Samkvæmt fréttatilkynningu er ástæða hækkunarinnar verðhækkun á aðföngum á erlendum hráefnamörkuðum en einnig veiking krónunnar.
12.12.2012 
Miðdalur í Kjós heldur stöðu sinni sem afurðahæsta kúabú landsins þriðja mánuðinn í röð samkvæmt niðurstöðum afurðaskýrsla í nautgriparæktinni í nóvember. Árskýrin á búi þeirra Guðmundar og Svanborgar í Miðdal mjólkaði á síðustu tólf mánuðum 7.977 kg. Næst á eftir kemur bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði en þar var meðalnytin 7.911 eftir árskú. Er það annar mánuðurinn í röð sem Hóll er í öðru sæti yfir afurðahæstu bú en Hóll var afurðahæsta bú landsins í ágúst síðastliðinn. Í þriðja sæti í röðinni var bú Helga Bjarna Steinssonar á Syðri-Bægisá í Öxnadal en þar var meðalnytin 7.559 kg eftir árskúna.
11.12.2012 
Unnið er að umfangsmiklum breytingum á mjólkurbúum MS á Selfossi og á Akureyri þessa dagana. Um milljarða framkvæmdir er að ræða við endurnýjun á húsnæði og tækjabúnaði. Stefnt er að því að framkvæmdunum verði lokið í júní á næsta ári og endurskipulagningunni allri lokið fyrir árslok 2013.
7.12.2012 
Hinn 10. desember nk. ætla Slow Food-samtökin um heim allan að hampa staðbundnum mat og gera sér dagamun. Dagurinn er tileinkaður Móður Jörð (Terra Madre) og er haldinn á stofndegi alþjóðlegu Slow Food samtakanna. Tilgangurinn er að beina sjónum að þeim jarðargróða sem Móðu Jörð getur brauðfætt okkur með, ef við umgöngumst hana af nærgætni.
7.12.2012 
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest úthlutunarreglur Bjargráðasjóðs vegna bóta fyrir tjón af völdum óveðursins sem gekk yfir Norðurland í september síðastliðnu. Í reglunum kemur fram að sjóðurinn bætir meðal annars tjón á búfé og afurðum, kostnað sem hlýst af viðgerðum á girðungum sem urðu fyrir tjóni, og kostnað vegna fóðurkaupa vegna óvenjulegra aðstæðna af völdum veðursins. Óbeint tjón, svo sem rekstrartap, tafir í framleiðslu auk annars, verður ekki bætt.
6.12.2012 
Alls bárust fimm umsóknir um embætti yfirdýralæknis en eins og kunnugt er lætur Halldór Runólfsson af embætti um komandi áramót. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. janúar 2013. Umsækjendur eru öll dýralæknar og eru eftirtalin:
6.12.2012 
Matvælastofnun (MAST) hefur afturkallað starfsleyfi tveggja kúabúa á síðustu þremur vikum. Í báðum tilfellum var óþrifnaður helsta ástæða þess að lokað var fyrir framleiðslu en auk þess var neysluvatn í ólagi á öðrum bænum. Bæði málin komu upp eftir fjósaskoðun. Séu athugasemdir alvarlegar fá rekstraraðilar skamman frest til úrbóta. Séu þau minna alvarleg er fresturinn lengri og menn fá ítrekun á athugasemdum. Ekki er algengt að gripið sé til aðgerða sem þessa en síðast var það gert árið 2010.
6.12.2012 
Endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna veiða á ref og mink munu verða 50,2 milljónir króna á næsta ári. Þetta er ljóst eftir að breytingartillaga meirihluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2013 var samþykkt nú á þriðja tímanum.
6.12.2012 
„Ríki Vatnajökuls er svæði sem nær yfir Suðausturland og einkennist af öflugri ferðaþjónustu, fallegri og aðgengilegri náttúru og fjölbreyttri matvælaframleiðslu,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls sem tók í annað sinn þátt í sýningunni Salone del Gusto í Tórínó á Ítalíu, sem haldin var á dögunum.
6.12.2012 
Lokað hefur verið fyrir mjólkur- og kjötframleiðslu á kúabúinu Brúarreykjum í Borgarfirði. Matvælastofnun (MAST) tók ákvörðunina á mánudag í síðustu viku og var hún svo birt framleiðendum á Brúarreykjum á föstudaginn var
6.12.2012 
Rúmlega 20 skógræktarfélög um land allt bjóða fólki að koma í skóginn á aðventunni og höggva eigið jólatré gegn vægu gjaldi. Þetta er um þriðjungur allra skógræktarfélaga á landinu og hefur þeim fjölgað nokkuð frá frá síðasta ári þegar ein 15 félög buðu upp á þessa þjónustu.
5.12.2012 
„Íslandsstofa hafði samband og bauð okkur að taka þátt, þetta er í fyrsta skipti sem við tökum þátt enda ekki nema tveggja ára gamalt fyrirtæki,“ segir Þóra Þórisdóttir, myndlistarmaður og eigandi Urta Islandica, um tildrög þess að hún tók þátt í sýningunni Salone del Gusto á Ítalíu á dögunum.
5.12.2012 
Verð á kjarnfóðri hjá Líflandi hækkaði í gær, 4. desember. Hækkunin er misjöfn eftir tegundum, á bilinu 1,5 til 4 próesnt. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu er ástæða hækkunarinnar veiking krónunnar og hækkun á verði á hráefnum. Síðast hækkaði Lífland verð á kjarnfóðri í lok september.
4.12.2012 
„Við tókum þessa ákvörðun mjög seint – að fara á sýninguna. Við höfðum fengið mikla hvatningu til að fara; bæði frá aðilum í matvælaframleiðslu og eins frá matreiðslumönnum sem þekkja þessa sýningu. Var hvatningin bæði fólgin í því að við færum sem þátt­takendur og kynntum hvað við væru að gera og eins – og ekki síður – til að skoða og fá hugmyndir.
4.12.2012 
Fjöldi hreindýra hefur haldið til í Breiðdal það sem af er hausti og vetrarbyrjun. Mestur fjöldinn er í Suðurdal, sem þjóðvegur 1 liggur um, en minni hópar halda einnig til í Norðurdal. Í Suðurdalnum eru líklega á milli 300 og 400 dýr. Sagt var frá ágangi hreindýra í Breiðdal á forsíðu Bændablaðsins í lok maí sl. en þá höfðu hreindýr í hundruðatali haldið þarf til yfir veturinn og valdið tjóni á landi, skógrækt og girðingum.
4.12.2012 
Skylt verður að merkja nýsjálenskt lambakjöt sem selt verður hér á landi þannig að skýrt sé hver uppruni þess er. Þetta kemur ljóslega fram í 6. grein reglugerðar um merkingar matvæla og er undirstrikað í svari Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar um innflutning á lambakjöti frá Nýja-Sjálandi.
4.12.2012 
Erlendir aðilar eiga 101 jörð á Íslandi, að hluta eða í heild. Þar af eiga erlendir aðilar 28 jarðir að fullu. Jarðir á Íslandi teljast vera 7.607 og eru því 1,33 prósent jarða í eigu útlendinga að hluta eða í heild. Á síðasta áratug hafa erlendir aðilar eignast 21 eina jörð að fullu. Þetta kemur fram í svari atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns Framsóknarflokksins.
3.12.2012 
Áfram höldum við á bbl.is að segja frá íslenskum þátttakendum á matarhátíðinni Salone del Gusto sem haldin var á Ítalíu á dögunum. Hér fer frásögn Pálínu Jónsdóttur, sem rekur sveitasetrið Lónkot í Skagafirði ásamt systur sinni Júlíu.. „Þetta er í fyrsta skiptið sem við förum á hátíðina en við höfum vitað af henni lengi og langað til að fara.
3.12.2012 
Mörður Árnason þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram fyrirspurn til umhverfis- og auðlindaráðherra um hugsanlegar breytingar á hlutverki ofanflóðasjóðs. Spyr Mörður í fyrirspurninni um afstöðu Svandísar Svavarsdóttur til þess að Ofanflóðasjóði verið breitt í almannvarnasjóð, þ.e. sjóð sem ætlað væri að veita fé til verkefna sem tengjast náttúruvá og almannvörnum almennt. Hlutverk sjóðsins, sem stofnaður var í kjölfar snjóflóðanna hörmulegu sem féllu á Súðavík og Flateyri, er að samkvæmt lögum að byggja upp varnargarða sem verja skuli byggð fyrir snjó- og skriðuföllum. Þá er það jafnframt hlutverk sjóðsins að kaupa upp fasteignir á hættusvæðum.
30.11.2012 
Fyrsta umræða um frumvarp til laga um breytingu á búnaðarlögum og lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum er á dagskrá fundar Alþingis síðar í dag. Eins og kunnugt er samþykktu kúa- og sauðfjárbændur breytingar á búvörusamningum greinanna í almennri atkvæðagreiðslu á dögunum. Til að samningar ríkisins og bænda taki gildi þarf þingheimur hins vegar að samþykkja þá fyrir sitt leyti með breytingum á umræddum lögum.
30.11.2012 
Spónaverksmiðjan Fengur er starfrækt í Hveragerði en þar er unninn undirburður úr endurunnu timbri, þekktur undir merkinu Spónn.is. Einkum er unninn undirburður undir hross en fyrirtækið hefur einnig verið að fikra sig í áttina að því að þjónusta kúa- og kjúklingabændur. Afurðirnar sem Fengur vinnur eru mjög umhverfisvænar auk þess að vera gjaldeyrissparandi en verulegur hluti þess undirburðar sem notaður hefur verið hér á landi er innfluttur.
30.11.2012 
Vefútgáfa Landsmarkaskrár markar tímamót í birtingu búfjármarka hér á landi. Hún á sér langan aðdraganda og var orðin mjög tímabær vegna sívaxandi tölvunotkunar á seinni árum.

Tölvudeild Bændasamtaka Íslands (áður Búnaðarfélags Íslands) skráði öll mörk í Landsmarkaskrá allt frá 1989 og hafa þrjár slíkar verið gefnar út á prenti, 1989, 1997 og 2004. Nú, 2012, voru gefnar út nýjar markaskrár í öllum markaumdæmum landsins, 17 að tölu, og var þeim dreift fyrir og um réttir í haust. Efni þeirra myndar grunn þessarar vefútgáfu auk þeirra marka sem síðan hafa borist til birtingar frá markavörðum. Framvegis verður hún í stöðugri endurnýjum, ný mörk verða skráð inn jafnóðum og þau berast, og því verður hægt að leita öruggra upplýsinga úr henni eftir þörfum, hvenær sem er. Nýtt forrit hefur nú leyst hið gamla af hólmi.
29.11.2012 
Dagur íslensku geitarinnar er á morgun, 30. nóvember. Af því tilefni stendur Erfðanefnd landbúnaðarins fyrir málþingi um íslensku geitina í Þjóðminjasafninu og hefst þingið klukkan 13:00. Kynnt verður verndaráætlun fyrir stofninn auk margra fróðlegra erinda um þennan einstaka stofn sem er á válista enn sem komið er. Til að stofninn verði tekinn af válista þarf hann að ná 1.000 huðnum. Í dag telur stofninn ríflega 800 dýr sem eru í eigu um 50 einstaklinga á vítt og breitt um landið. Engar geitur er þó að finna á Vestfjörðum en það er eini landshlutinn sem svo er ástatt um.
29.11.2012 
Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga, hefur undanfarin ár unnið að brunavarnaráætlunum í bændaskógum á Suðurlandi. Hann segir að það hafi verið búið að gera 100 skógræktaráætlanir á Suðurlandi án þess að hugað væri að brunavörnum. Björn hefur hins vegar áhyggjur af sumarhúsahverfum, sem mörg hver eru umkringd skógi. Þetta kemur fram í nýju Bændablaði sem kom út í morgun.
28.11.2012 
Staðfest hefur verið að schmallenberg vírus hefur numið land í Noregi og breiðist hratt út. Mótefni við vírusnum hefur fundist í sjötta hverju mjólkursýni sem tekið var til að skima fyrir vírusnum. Noregur bætist þar með í hóp fjölda Evrópulanda þar sem vírusinn hefur farið eins og eldur í sinu síðasta árið en hann uppgötvaðist fyrst í nóvember á síðasta ári. Engar vísbendingar eru um að schmallenberg vírusinn hafi numið land hér á landi.
28.11.2012 
Tökum er lokið á fyrstu kvikmynd í fullri lengd hérlendis þar sem íslenski hesturinn er í aðalhlutverki. Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri, er nú að klippa og vinna að eftirvinnslu með mynd sína Hross og menn sem frumsýnd verður á næsta ári.
27.11.2012 
Í nýjum búvörusamningi sauðfjárbænda og ríkisins eru gerðar breytingar á ráðstöfun fjármuna vegna ullarnýtingar. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur nú staðfest hinar nýju verklagsreglur með auglýsingu í Stjórnartíðindum. Meginbreytingin felst í því að framvegis mun meginhluti greiðslnanna berast bændum beint í stað þess að þær séu hluti af ullarverðinu sjálfu, eins og tíðkast hefur undanfarin ár.
27.11.2012 
Fóðurblandan verður með opið hús í verslunum sínum nk. miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Opið verður á Selfossi á miðvikudeginum, á Hvolsvelli á fimmtudeginum - til klukkan 21:30 - en svo á föstudeginum á Egilsstöðum til klukkan 20.
26.11.2012 
Haraldur Benediktsson, bóndi á Vestri-Reyn og formaður Bændasamtaka Íslands, sigraði um liðna helgi kosningu um annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Raðað var niður á listann á fundi kjördæmisráðs sem haldinn var í Borgarnesi 24. nóvember síðastliðinn. Einar Kristinn Guðfinnsson þingmaður mun leiða listann.
23.11.2012 
Ekki er lengur skylt að bólusetja sauðfé við garnaveiki í svokölluðu Dalahólfi. Dalahólf afmarkast af Hvammsfjarðarlínu úr Hvammsfirði um Laxárdal til Hrútafjarðar annars vegar og af Gilsfjarðarlínu úr Gilsfirði í Bitrufjörð. Ákvörðun þessi er tekin og staðfest með breytingarreglugerð númer 962/2012 við reglugerð númer 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni.
23.11.2012 
Sauðfjár- og kúabændur samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta breytingu búvörusamninga, sem undirritaðir vour 28. september síðastliðinn, í almennum kosningum. Þetta varð ljóst eftir talningu atkvæða í gær en póstkosningu lauk síðastliðinn mánudag. Um níutíu prósent þeirra bænda sem greiddu atkvæði samþykktu mjólkursamning og sami fjöldi samþykkti sauðfjársamning. Fremur dræm þátttaka var í atkvæðagreiðslunum. Alþingi á eftir að afgreiða breytingarnar fyrir sitt leyti.
22.11.2012 
Dr. Lisa S. Andersson flytur erindi um tímamótauppgötvun sína og félaga sinna á Hvanneyri miðvikudaginn 28. nóvember nk. Erindið fjallar um tilvist skeiðgensins „Pace maker gene“ sem ef til vill mætti kalla „Gangráðinn“ í hrossum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru nýverið kynntar í hinu virta vísindariti Nature.
21.11.2012 
Engar breytingar verða gerðar á reglum um rjúpnaveiðar á þessu ári, þrátt fyrir að ótíð hafi hamlað veiðum. Rjúpnaveiðimenn hafa ítrekað spurst fyrir um mögulega lengingu á veiðitímabilinu vegna rysjótts veðurs en samkvæmt tilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu verða, eins og áður segir, ekki gerðar breytingar á veiðitímabilinu þrátt fyrir þetta. Ákvörðunin er tekin í samráði við Umhverfisstofnun.
21.11.2012 
„Ég fór fyrst á Salone del Gusto sýninguna árið 2000 og hef farið í hvert sinn síðan þá. Sýningin er stærsti viðburður Slow Food-samtakanna og einn kröftugasti vettvangur fyrir matvælaframleiðendur sem völ er á. Maður má bara ekki missa af henni, sér í lagi ef maður á þátt í þessu félagsstarfi líkt og ég hef átt undanfarin 12 ár,“ segir Eygló Björk Ólafsdóttir frá Móður Jörð...
21.11.2012 
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands haldinn í Reykjavík laugardaginn 10. nóvember 2012 skorar á stjórnvöld að leggja fram sambærilega tillögu um breytta skipan á minkaveiða á Íslandi og lögð hefur verið fram um breytta skipan refaveiða á Íslandi. Tillagan miði að því að stuðla að útrýmingu villts minks á Íslandi.
20.11.2012 
Í gær rann út frestur til að póstleggja atkvæðaseðla í almennum kosningum um breytingar á búvörusamningum. Atkvæðagreiðslan náði til breytinga á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar og á samningi um stafsskilyrði í mjólkurframleiðslu. Atkvæði verða talin á fimmtudaginn kemur, 22. nóvember, og munu niðurstöður atkvæðagreiðslunnar liggja fyrir seinnipart þess dags að óbreyttu.
20.11.2012 
„Að fá tækifæri til þess að taka þátt í Salone del Gusto er nokkuð sem ég held að fáir ættu að láta framhjá sér fara. Það verðmætasta í því er að komast í bein samskipti við viðskiptavini, sjá hvað aðrir eru að gera og ræða við þá,“ segir Björn Steinar Jónsson saltari hjá Saltverki, sem kynnti íslenska sjávarsaltið sitt á matarhátíðinni Salone del Gusto í lok október sl.
19.11.2012 
Átta íslenskir sýnendur voru mættir til Tórínó á Ítalíu hinn 25. október síðastliðinn til að taka þátt í Salone del Gusto og Terra Madre, einni stærstu matarsýningu og -ráðstefnu sinnar tegundar í heiminum. Sex þessara sýnenda eru smá framleiðendur; Sívakur ehf., Móðir Jörð, Erpsstaðir, Saltverk, Ytri-Fagridalur og Urta Islandica – auk þess sem fulltrúar frá Ríki Vatnajökuls og Lónkots í Skagafirði voru mættir til að kynna sig.
19.11.2012 
Embætti yfirdýrlæknis er nú auglýst laust til umsóknar en eins og greint hefur verið frá mun hefur Halldór Runólfsson núverandi yfirdýralæknir verið skipaður skrifstofustjóri afurða í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. janúar næstkomandi.
19.11.2012 
Neysla á kindakjöti var að meðaltali 18,8 kg á hvern íbúa hér á landi á síðasta ári. Það er minnst neysla á kindakjöti frá árinu 1983 en þá hóf Hagstofan að safna gögnum þess efnis. Það ár var meðalneysla íbúa á landinu 45,3 kg. Þetta kemur fram í Landshögum 2012, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kom út í dag.
17.11.2012 
Á dögunum bárust af því fréttir að hundur hefði lagst á fé skammt frá Svalbarðseyri við Eyjafjörð. Var talið ljóst að hundurinn væri af husky tegund. Hundar af þeirri tegund þurfa gríðarmikla hreyfingu og ljóst að fái þeir hana ekki geta þeir tekið upp á að haga sér með þessum hætti. Elfa Ágústsdóttir dýralæknir á Akureyri sagði í viðtali við Akureyri-Vikublað, sem flutti fréttir af dýrbítnum, að einungis sé tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verði á barni af völdum hunda sem gangi lausir.
16.11.2012 
Í vor var hleypt af stokkunum norrænu samstarfsverkefni um byggkynbætur. Þar leiða saman hesta sína öll kynbótafyrirtæki sem sinna byggkynbótum á Norðurlöndunum og tveir háskólar, LbhÍ og Kaupmannahafnarháskóli. Landbúnaðarráðuneyti allra landanna leggja til fjármagn til verkefnisins auk þess sem fyrirtækin sjálf greiða helming af öllum kostnaði. Umsýsla er síðan í höndum Norræna genabankans (NordGen).
16.11.2012 
Í nýju Bændablaði, sem kom út í gær, kemur fram að frjótæknar standi í kjaradeilu við búnaðarsamböndin. Í fréttatilkynningu frá frjótæknum kemur fram að þeir hafi dregist mikið aftur úr í launum sé miðað við aðrar stéttir. Þeir hafi verið með lausa samninga frá 1. janúar 2008 og hafi samningafundir sem farið hafa fram ekki skilað neinum árangri. Náist ekki samningar fyrir komandi áramót sé hið eina í stöðunni að þeir boði til verkfalls. Formaður Landssambands kúabænda segist ekki geta hugsað þá hugsun til enda að svo færi.
16.11.2012 
Bráðabirgðatölur liggja nú fyrir um sauðfjárslátrunina í haust. Þrátt fyrir áföll í haust sem óveðrið norðanlands hafði í för með sér eykst framleiðsla milli ára um 3,5 prósent sé horft til tólf mánaða tímabils. Á síðust þremur mánuðum, ágúst til og með október, jókst framleiðslan um 3,3 prósent en það er sá tími sem meginþunginn af sláturtíð stendur. Á því tímabili voru framleidd hátt í 10.000 tonn af kindakjöti, eða 9.598 tonn. Á ársgrundvelli eykst framleiðsla í öllum flokkum, þ.e. dilkakjöti, ærkjöti, kjöti af veturgömlu og hrútum.
16.11.2012 
Í síðustu viku var stofnandi Howard G. Buffet sjóðsins á ferðinni hér á landi ásamt tveggja manna föruneyti. Hann heitir fullu nafni Howard Graham Buffet og er elsti sonur hins heimsþekkta stóreignamanns Warren Buffet, sem af mörgum er talinn farsælasti fjárfestir 21. aldarinnar. Sjóðurinn vinnur að mannúðarmálum víða um heim og hefur m.a. þau markmið að efla ræktun og ...
16.11.2012 
Gríðarleg aukning er í framleiðslu á hrosskjöti á landinu samkvæmt gögnum frá Landssamtökum sláturleyfishafa. Aukningin er ríflega 55 prósent á milli ára, sé miðað við tólf mánaða tímabil þar sem október er síðasti mánuðurinn. Í október var aukningin enn meiri, tæp 80 prósent miðað við október í fyrra. Þetta staðfestir vel frétt Bændablaðsins frá 18. október síðastliðnum en þar var einmitt sagt frá því að útlit væri fyrir að fleiri hrossum yrði slátrað nú en undanfarin ár.
15.11.2012 
Svampar sem notaðir hafa verið til samstillingar gangmála í ám eru nánast ófáanlegir á landinu. Ástæðan er að umræddir svampar, sem heita Veramix, fást ekki hjá birgjum erlendis. Svamparnir eru framleiddir í Grikklandi og hráefni í þá hafa ekki fengist frá Bandaríkjunum.
14.11.2012 
Matvælastofnun (MAST) leggur til að allir gripir sem greinst hafa með smitandi barkabólgu verði felldir en ákvörðun um frekari niðurskurð verði tekin á frundvelli niðurstaðna úr þeim rannsóknum sem nú standa yfir. MAST hefur sent atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu tillögur þessa efnis en skv. lögum um dýrasjúkdóma er það í höndum ráðherra að fyrirskipa ráðstafanir til að útrýma eða hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma, að fengnum tillögum MAST.
14.11.2012 
Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir sendi í fyrra frá sér bókina Íslenskar lækningajurtir – notkun þeirra, tínsla og rannsóknir. Nýverið gaf Anna Rósa út aðra bók um lækningajurtir – nú í samstarfi við matreiðslumanninn Albert Eiríksson – þar sem gefinn er gaumur að eiginleikum jurtanna sem hráefnis til matreiðslu.
14.11.2012 
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins beindi í gær, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi, fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar um afstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi lausagöngu búfjár. Ástæða fyrirspurnarinnar er grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra í síðasta Bændablaði þar sem hún lýsti þeirri skoðun sinni að banna ætti lausagöngu búfjár á landinu en setja þess í stað heimildir um undanþágur á því banni. Í fyrirspurn sinni spurði Höskuldur hvort búast megi við því að tillögur í þá veru kæmu fram frá ríkisstjórninni fyrir komandi kosningar og sömuleiðis hvort umræddar skoðanir samrýmist stefnu Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Frétt um grein Svandístar og viðbrögð sauðfjárbænda við henni, sem birtist í síðasta Bændablaði, má sjá hér.
13.11.2012 
Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga á Alþingi um mótun framleiðslustefnu í lífrænum landbúnaði. Í ályktuninni er skorað á ríkisstjórnina að móta framleiðslustefnu í lífrænum landbúnaði og beita sér fyrir aðgerðum til að veita bændum sérstakan aðlögunarstuðning við lífrænan landbúnað. Sá stuðningur skuli vera sambærilegur þeim stuðningi sem veittur er á Norðurlöndum, þannig að ná megi því markmiði að lífrænt vottaðar vörur nemi 15 prósentum landbúnaðarframleiðslu árið 2020. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Þuríður Backman þingkona Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og ásamt henni flytja fjögur flokkssystkyn hennar tillöguna.
13.11.2012 
Óveðrið sem gekk yfir Norðurland 9. til 11. september sl. olli tjóni sem metið er á um 142 milljónir króna. Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að veita Bjargráðasjóði 120 milljónir króna til að standa straum af bótagreiðslum og jafnframt verði sjóðnum heimilað að nýta á bilinu 20 til 30 milljónir króna af ónýttum fjárheimildum sem sjóðurinn fékk vegna tjóns í eldgosum á Suðurland. Með þessu er sjóðnum gert kleyft að greiða bætur vegna tjónsins.
13.11.2012 
Langstærsti áhrifavaldur á verð hrossa er frá hvaða ræktunarbúi þau koma. Þá hafa brokk, vilji og geðslag, bygging, að því er varðar háls, herðar og bóga og BLUP einkunn jákvæð áhrif á verð. Stóðhestar seljast alla jafna á hærra verði en hryssur og geldingar auk þess sem aldur hefur jákvæð áhrif á verð sýndra hrossa en neikvæð áhrif á verð ósýndra hrossa.
12.11.2012 
Miðdalur í Kjós er afurðahæsta kúabú landsins síðustu tólf mánuði, skv. afurðaskýrslum í nautgriparæktinni, en á því tímabili eru meðalafurðir árskúnna í Miðdal 7.889 kg. Þetta kemur fram í niðurstöðum afurðaskýrslna í nautgriparæktinni eftir októbermánuð. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem Miðdalsbúið er afurðahæsta bú landsins. Í öðru sæti er Hóll í Sæmundarhlíð í Skagafirði en þar var meðalnytin 7.807 kg eftir árskú. Í þriðja sæti er svar Hraunháls í Helgafellssveit á Snæfellsnesi en meðalnytin þar var 7.711 kg á síðustu tólf mánuðum. Hóll og Hraunháls hafa haft sætaskipti frá síðasta uppgjöri en búin þrjú hafa setið í efstu sætunum undanfarna þrjá mánuði, þó röðin hafi breyst milli uppgjöra.
9.11.2012 
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar næsta vor. Valið verður á listann 25. nóvember.
9.11.2012 
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, hefur verið skipaður skrifstofustjóri afurða í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að því er kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þá hefur Jón Geir Pétursson, doktor í umhverfis- og auðlindastjórnun, verið skipaður skrifstofustjóri landgæða í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
9.11.2012 
Risjótt veður hefur valdið rjúpnaveiðimönnum vanda á þessari veiðitíð en illviðri hamlaði veiðum um síðustu helgi. Töluverðrar óánægju gætir með að ekki skuli ljáð máls á því í umhverfisráðuneytinu að bæta veiðimönnum upp þá daga sem ekki var hægt að ganga til veiða.
9.11.2012 
Talið er að hundur af huskytegund hafi ráðist á og drepið kind, með því að bíta hana á hálsi og hnakka, skammt frá Svalbarðseyri á dögunum. Þá hefur önnur kind fundist dauð á svipuðum slóðum og var hún einnig dýrbitin. Leiða má líkum að því að sama hundur eiga þar í hlut. Frá þessu er greint í Akureyri-Vikublaði.
8.11.2012 
Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokksins lagði í dag fram fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um eignarhald bújarða. Í fyrirspurninni spyr Ásmundur m.a. um hvort ríkisstjórnin hafi í hyggju að takmarka eignarhald erlendra aðila á landnæði. Óskað er skriflegra svara við fyrirspurninni.
7.11.2012 
Engu fé verður veitt til refaveiða á næsta ári af hálfu ríkissjóðs en rúmum 20 milljónum króna verður varið í endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna minkaveiða. Þetta kemur fram í svari Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.
6.11.2012 
Föstudaginn 9. nóvember nk. verður margt góðra gesta á Bjarteyjarsandi og íslenska ullin í aðalhlutverki. Opið hús verður í fjárhúsunum, þar sem rúningsmeistarinn Julio verður með klippurnar á lofti; sýnir og kennir rúningshandtök af sinni alkunnu snilld. Julio er þrefaldur Íslandsmeistari í rúningi ásamt því að vera þolinmóður kennari og því ætti enginn áhugamaður um rúning ...
2.11.2012 
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsir í grein í Bændablaðinu í dag þeirri skoðun sinni að banna eigi lausagöngu búfjár á landinu en setja ákvæði um heimildir til að veita undanþágur frá því banni. Í dag er þessu öfugt farið en í lögum um búfjárhald er meginreglan sú að lausaganga sé leyfð en heimildir eru til að banna hana á afmörkuðum svæðum. Forsvarsfólki sauðfjárbænda hugnast hugmyndir ráðherrans afar illa og segja að ef af yrði myndi það kippa stoðunum undan sauðfjárbúskap víða um land.
2.11.2012 
Hagmunaaðilar og fyrirtæki í matvælaframleiðslu hafa tekið höndum saman og boðað til ráðstefnu um Matvælalandið Ísland á Hótel Sögu þriðjudaginn 6. nóvember næstkomandi. Spurt verður hvernig auka eigi verðmætasköpun og nýta þær matarauðlindir sem landið býr yfir. Að mati ráðstefnuhaldara eru fjölmörg tækifæri sem liggja í aukinni framleiðslu og sölu á íslenskum mat og tengdri þjónustu.
2.11.2012 
Heimildir Finnlands og Svíþjóðar til að styðja sérstaklega við landbúnaða á norðlægum slóðum getur ekki talist varanleg. Þetta er niðurstaða Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors og Benedikts Egils Árnasonar héraðsdómslögmanns en þeir hafa að beiðni Bændasamtakanna unnið minnisblað þar sem fjallað er um umrædda heimild í aðildarsamningi Finnlands og Svíþjóðar við Evrópusambandið (ESB). Í niðurstöðum þeirra Stefáns og Benedikts kemur fram að framkvæmdastjórn ESB taki ákvörðun um styrkina og hún sé ekki bundin við neitt lágmark fjárhæða við þá ákvörðun, aðeins hámark. Ljóst er að styrkirnir geta lækkað eða eftir atvikum fallið alveg niður, t.a.m. ef landbúnaðarlöggjöf sambandsins breytist.
1.11.2012 
Erla Björk Örnólfsdóttir, sjávarlíffræðingur, tók við starfi rektors Háskólans á Hólum þann 1. júní síðastliðinn en áður hafði hún gengt starfi forstöðumanns Varar Sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð. Hún segir nýja vettvanginn krefjandi og að tækifærin til að gera Hólaskóla enn sýnilegri séu mörg. Erla Björk vill að Hólaskóli verði í fararbroddi þegar kemur að rannsóknum á fræðasviðum skólans og vonast til að láta gott af sér leiða í íslensku menntakerfi.
31.10.2012 
Brynja Davíðsdóttir er hamskeri sem hefur sérhæft sig í uppstoppun fugla. Á heimsmeistaramóti hamskera síðastliðið vor vann hún til tvennra verðlauna fyrir smáfugla en auk þess hefur hún sérhæft sig í uppstoppun fiðrilda. Einnig hefur færst í vöxt að hún stoppi upp refi fyrir einstaklinga og stofnanir.
29.10.2012 
Auka búnaðarþing 2012 samþykkti nú fyrir skömmu að stofna skuli félag um leiðbeiningaþjónustu bænda á landsvísu. Mikil samstaða var um stofnun félagsins en alls voru 41 búnaðarþingsfulltrúi því samþykkur. Engin mótatkvæði voru greidd. Stefnt er að því að nýtt fyrirtæki taki til starfa um komandi áramót.
29.10.2012 
Síðasti dagur matarhátíðarinnar Salone del Gusto og Terra Madre í Tórínó á Ítalíu er í dag en hátíðin var sett sl. miðvikudagskvöld. Íslensku þátttakendurnir eru almennt ánægðir með sýningarhaldið enda hafa íslensku básarnir fengið mikla athygli.
29.10.2012 
Í síðustu viku fór sending með þúsund pörum af íslenskum ullarsokkum til skósölurisans Ecco í Kanada undir merkjum Varma sem Glófi framleiðir. Einnig fengu þeir sýnishorn af fleiri sokkategundum fyrirtækisins en spennandi verður að sjá hvernig íslensku sokkunum verður tekið hjá Kanadabúum. 
25.10.2012 
Eins stærsta matarhátíð og -ráðstefna sinnar tegundar í heiminum, Salone del Gusto og Terra Madre, var formlega sett í gær í Torino á Ítalíu en þar er þessi hátið haldið annað hvert ár. Sjö íslenskir smáframleiðendur matvæla kynna afurðir sínar á hátíðinni, en til marks um stærð hennar má nefna að um 170 viðburðir eru á dagskrá þessa fimm daga á meðan hún stendur yfir og búast má við um 200.000 gestum.
23.10.2012 
Í gær flutti Guðbjörg Inga Aradóttir, skordýrafræðingur við Rothamsted rannsóknarstofnunina í Englandi, fyrirlestur um rannsóknir á erfðabreyttu hveiti sem stofnunin vinnur að. Fyrirlesturinn fór fram í húsi Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti.
23.10.2012 

Fyrsti haustfundur Landssambands kúabænda (LK) var haldinn í matsal Landbúnaðarháskólans fimmtudagskvöldið 18. október. Um 40 manns mættu á fundinn, þar sem formaður og Sigurður Loftsson, framkvæmdastjóri samtakanna fóru yfir helstu mál sem unnið er að þessi misserin. Á fundinum kom m.a. fram að samdráttur í ásetningi nautkálfa er um 8% það sem af er ári.

23.10.2012 
Fyrsti haustfundur Bændasamtaka Íslands þetta haustið var haldin í Hlíðarbæ í Hörgársveit í gærkvöld, en fjöldi funda er framundan víða um land á næstu dögum. Nokkrir fundanna eru að þessu sinni haldnir í samvinnu við LK og LS.
22.10.2012 
Bændafundir verða haldnir á næstu dögum og vikum og er fyrsti fundurinn haldinn í kvöld í Hlíðarbæ í Eyjafirði. Að þessu sinni eru nokkrir fundanna haldnir í samvinnu við LK og LS.
18.10.2012 
Menntaskóli Borgarfjarðar og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um tilraunakennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs.
18.10.2012 
Nú þegar farið er að styttast í annan endann á sláturtíð virðist ljóst að meðalvigt dilka verður meiri en í fyrra. Þó þarf að slá varnagla við því hvernig fé sem lenti í hremmingum norðanlands í óveðrinu í byrjun síðasta mánaðar mun vigtast.
17.10.2012 
Sunnudaginn 14. október var opnað eins konar lífrænt markaðstorg í Norræna húsinu. Það samanstóð af sýnishornum afurða frá 18 lífrænum matvælaframleiðendum og málstofum um t.a.m. sjálfbærni, eiturefnalausa ræktun heimagarða, lífræna ylrækt og svínarækt. Viðburðurinn var skipulagður af Samtökum lífrænna neytenda og var afar vel sóttur.
17.10.2012 
Ágústa Margrét Arnardóttir er hugmyndasmiður og einn af skipuleggjendum sýningarinnar Fashion with Flavor sem stendur fyrir „tísku sem bragð er af“. Ágústa telur þetta einu sýningu sinnar tegundar í heiminum þar sem fyrirsætur bera fram mat klæddar fatnaði úr aukaafurðum hráefnisins sem þær bera fram.
17.10.2012 
Lýst er eftir tveggja vetra ljósrauðri, stjörnóttri, glófextri hryssu sem hvarf sporlaust úr girðingu í Kalastaðakoti í Hvalfjarðarsveit um miðja síðustu viku. Hryssan er spök, örmerkt og faxmikil.
16.10.2012 
Páll Kr. Pálsson og Logi Arnar Guðjónsson keyptu ullarvörufyrirtækið Glófa á Akureyri í lok árs 2005 og fleiri fyrirtæki í ullariðnaði árin 2006 og 2007, til að stækka rekstrareininguna og ná þannig hagræðingu í rekstrinum. Fyrirtækið hannar, framleiðir og selur eigin ullarvörur undir vörumerkinu Varma en auk þess framleiðir Glófi ullarvörur fyrir fjölda hönnuða og fyrirtækja.
12.10.2012 
Í gær var formlega hleypt af stað á Sauðárkróki söfnun til að styðja við bakið á bændum á þeim svæðum sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu, sem gekk yfir Norðurland snemma í september. Þar kom fram að Kaupfélag Skagfirðinga (KS) gæfi 5 milljónir króna í söfnunina. Þá gefur Landsbankinn einnig 5 milljónir króna, eina milljón fyrir hvert útibú bankans á Norðurlandi. Afhendingin framlaganna fór fram í tengslum við Bændadaga KS sem hófust í gær og standa yfir í allan dag.
11.10.2012 
Samtök lífrænna neytenda standa fyrir viðburðinum Lífrænt Ísland - framboð, fróðleikur og smakk! í Norræna húsinu sunnudaginn 14. október nk. frá kl. 12:00-17:00 en þar verður leitast við að gefa sem gleggsta mynd af stöðu hins lífræna Íslands eins og það er í dag.
11.10.2012 
Einar Kristinn Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, hyggst á næstunni leggja fram þingályktunartillögu á Alþingi um bætur vegna tjóns af völdum gróðurelda. Eins og fjallað var um í síðasta Bændablaði er nokkur vakning varðandi hættuna af slíkum eldsvoðum en síðasta sumar urðu talsvert miklir gróðureldar á tveimur stöðum á landinu. Annars vegar brann sina og mór á Rauðkollsstöðum á Snæfellsnesi og hins vegar brann sina, lyng og kjarr í Laugardal í Ísafjarðardjúpi. Kostnaður vegna slökkvistarfs á Laugardal varð um 20 milljónir króna sem samsvarar um fjórðungi útsvarstekna Súðavíkurhrepps á ársgrundvelli. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu mikill skellur slíkt er fyrir lítið sveitarfélag. Þessi nýlegu dæmi eru meðal ástæðna þess að Einar Kristinn hyggst leggja fram umrædda þingsályktunartillögu.
11.10.2012 
Dagur sauðkindarinnar verður haldinn í Skeiðvangi, Hvolsvelli á laugardaginn kl. 14-17. Meðal dagskráratriða er að 10-15 efstu lamb- og veturgamlir hrútar úr heimasýningum verða boðaðir og dæmdir upp á nýtt og verðlaunaðir.

10.10.2012 
Landssamband kúabænda hefur óskað eftir samstarfi við Matvælastofnun um að farið verði í sýnatökur á öllum kúabúum landsins vegna sjúkdómsins smitandi barkabólgu sem greindist á Egilsstaðabúinu á Völlum í sýni sem tekið var við reglubundna skimun.
9.10.2012 
Þann 28. september sl. var í Reykjavík undirritaður samningur fimm aðila, frá þremur löndum, um verkefni sem heitir Kraftmeiri skógur. Það er styrkt af endurmenntunaráætlun Evrópusambandsins, The Lifelong Learning Programme 2007-2013. Í verkefninu felst gerð fræðsluefnis fyrir skógarbændur auk þess sem með því er ætlunin að auka skilning þeirra á rekstri skógræktar...
8.10.2012 
Evrópusambandið hefur fallist á tillögu Íslands um opnunarviðmið þau sem þarf að uppfylla til að hægt sé að hefja samningaviðræður um landbúnaðarkafla aðildarviðræðna við sambandið. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi og sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að nú sé því hægt að hefja viðræður við ESB um landbúnaðarmál.
8.10.2012 
Í síðustu viku kom í ljós að í kúm á Egilsstaðabúinu á Egilsstöðum fundust mótefni gegn barkabólgu í nautgripum en sjúkdómnum veldur herpesveira. Það að mótefni hafi fundist gefur vísbendingar um að veikin, sem meðal annars getur valdið fósturláti í kúm, hafi á einhverjum tímapunkti grasserað í stofninum en þarf ekki að þýða að veikin sé til staðar í þessum tímapunkti. Engin einkenni eru um sjúkdóminn á búinu og heilsufar almennt gott. Er þetta í fyrsta sinn sem umrætt mótefni greinist hér á landi. Nálega hefur tekist að útrýma því á hinum Norðurlöndunum.
5.10.2012 
Í nýju Bændablaði er rætt við Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóra Búgarðs, sem segir mikilvægt að fá upplýsingar um raunverulegt ástand mála varðandi heyforða á svæðinu þar sem óveðrið var hvað verst á Norðurlandi á dögunum.
4.10.2012 
Á forsíðu Bændablaðsins, sem kom út í dag, er greint frá því að talið sé að enn sé 10.000 fjár saknað, eða það hafi fundist dautt eftir veðurhaminn norðanlands í upphafi síðasta mánaðar. Mikill fjöldi björgunarsveitarfólks og sjálfboðaliða hefur undanfarnar vikur lagt bændum lið við leit að fé víðs vegar um svæðið en skipulagðri leit hefur nú verið hætt. Ljóst er þó að bændur munu halda áfram að leita fjár...
4.10.2012 
Í skýrslunni Niðurstöður búreikninga 2011 ásamt uppgjöri ársreikninga 2010, eru birt þrenn uppgjör sem unnin hafa verið á árinu 2012.
3.10.2012 
Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir, háskólanemi og heklari með meiru byrjaði fyrir tveimur árum að ullargraffa. Það snýst um að fara út með heklaðan eða prjónaðan hannyrðabút, finna honum góðan stað í almannarýminu og sauma hann þar upp. Þetta nýja listform er talið að hafi byrjað í Hollandi eða Bandaríkjunum árið 2004 og fer ört vaxandi um allan heim.
28.9.2012 
Nýr búnaðarlagasamningur var undirritaður í dag af hálfu Bændsamtakanna og ríkisvaldsins. Við sama tilefni voru núverandi búvörusamningar um framleiðslu sauðjárafurða, mjólkur og samningur um starfsskilyrði garðyrkjuframleiðenda framlengdir um tvö ár.
27.9.2012 
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur unnið að því í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörgu að skipuleggja aðgerðir til aðstoðar bændum um komandi helgi.
27.9.2012 
Mánudaginn 1. október 2012 mun allt tilbúið fóður hjá Fóðurblöndunni hf. hækka  um 2% - 9%  misjafnt eftir tegundum.
27.9.2012 
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2012 eftir mat og tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar. Veiðar verða leyfðar í níu daga frá og með föstudeginum 26. október, yfir fjórar helgar. Áfram verður sölubann á rjúpu og rjúpnaafurðum og ákveðið svæði á Suð-Vesturlandi er enn friðað fyrir veiði.

26.9.2012 
Hanar verða framvegis bannaðir á Selfossi en landsnámshænur verða leyfðar sé sótt formlega um leyfi fyrir þær. Eyþór Laxdal Arnalds, formaður bæjarráðs Árborgar segir þetta skynsamlega ákvörðun enda vakni hanar snemma á morgnanna og valda ónæði.
24.9.2012 
Guðmundur Hjálmarsson hefur ásamt fjölmörgum öðrum leitað að fé í Skagafirði að undanförnu. „Það er viðbjóðslegt að sjá hvernig tófan hafi farið með lifandi fé sem sat fast í snjónum.“ Sagði hann að tófur hafi m.a. ráðist á varnarlaus lömb í Hamraheiðinni neðan og sunnan við Mælifellshnjúk. Þar hafi tófurnar rifið lömbin í sig lifandi.
21.9.2012 
Kristín Halldórsdóttir, gæðastjóri Mjólkursamsölunnar á Akureyri, hefur verið ráðin mjólkurbússtjóri félagsins þar frá 1. október. Hún tekur við af Sigurði R. Friðjónsyni sem verður verkefnastjóri í vöruþróun félagsins í Reykjavík. Friðjón G. Jónsson, sem ætlað var að tæki við starfi Sigurðar hefur óskað eftir breytingum af persónulegum ástæðum. Hann verður áfram verkstjóri í mjólkurbúinu.
20.9.2012 
Óvenju miklum snjó kyngdi niður, einkum í uppsveitum norðaustanlands í byrjun síðustu viku. Þegar bændur fóru til að leita að fé á Þeistareykjasvæðinu fyrir síðustu helgi þurfti að fá jarðýtu til að ryðja slóða fyrir leitarmenn í gegnum skaflana...
19.9.2012 
Edda Sigurdís Oddsdóttir, sérfræðingur á Rannsóknarstöð skógræktar ríkisins á Mógilsá og Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, hafa unnið að samstarfsverkefni á sviði skógvistfræði í jarðhitaskóginum að Reykjum í Ölfusi. Þar rannsaka þau upphitun sem varð á 45 ára gömlum sitkagreniskógi í kjölfar jarðskálftans árið 2008.
18.9.2012 
Það leyndi sér ekki eftirvæntingin í hugum bænda undir Eyjafjöllum og sjálfboðaliða þegar fé var heimt af fjalli á Almenningum á föstudaginn í síðastliðinni viku. Bændur ákváðu í vor að sleppa fé lausu til beitar á afréttinum, sem verið hefur friðaður og uppgræddur síðastliðin 22 ár. Af um 30 manna hópi smala voru einungis þrír sem áður höfðu farið þessa leið og rifjuðu þeir upp gangnaleiðir og örnefni sem smölum af yngri kynslóðinni þóttu fróðlegt að fræðast um.
14.9.2012 
Meginþorri fjárleitarmanna í Skagafirði nota tímann í dag til að hvílast eftir að hafa komið með nærri fjögur þúsund fjár af afrétti í gær. Þar á enn eftir að ná mörgu fé en um sjö þúsund fór þar á afrétt í vor. Leitarskilyrði eru erfið enda töluverður snjór inni á heiðum.
13.9.2012 
„Hér er maður nú bara í hefðbundnum vorverkum,“ segir Kári Þorgrímsson bóndi í Garði í Mývatnssveit sem var að lagfæra girðingar við tún sín í gær. Þær eru illa farnar eftir óveðrið sem geysaði í sveitinni á mánudag, „og ætli það séu ekki um það bil tveir þriðju hlutar af mínum girðingum sem fóru illa,“ segir Kári.
13.9.2012 
Í Skagafirði eru bændur og aðrir að leita að fé en víða gerði aftakaveður á svæðinu. Nokkuð vel hefur gengið á Öxnadalsheiði síðustu tvo daga og verið er að rétta í Silfrastaðarétt því fé sem náðist þar. Ekki hafa fundist dauðar kindur þar. Í Fljótum var búið að smala áður en veðrið skall á en eitthvað tjón hefur samt orðið þar heima á bæjum. Meðal annars drápust kindur í krapaelg inni í Stíflu. Í Kolbeinsdal hefur verið unnið að því að ná fé úr fönn og á þriðjudag náðust um 400 kindur þar. Eitthvað var um dautt fé en þó ekki mikið. Afréttur er ósmalaður og óljóst hvernig ástand er þar og í dölum inn.
13.9.2012 
Þeir Friðjón Jóhannsson á Gautlöndum í Mývatnssveit og Víðir Pétursson sem býr á Laugum í Reykjadal voru að leita að fé á túnum neðan vegar við Gautlönd í gær ásamt fleira fólki, um 15 manna flokki.
13.9.2012 
Afleiðingar veðurhamsins sem gekk yfir Norðurland í byrjun vikunnar halda áfram að koma fram. Í gær var nokkrum fjölda lamba úr Mývatnssveit lógað í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. Um var að ræða lömb sem hafð tekist að bjarga tiltölulega fljótt úr hremmingum og ríkti ákveðin bjartsýni um að þau væru tæk til slátrunar, enda liggur mikið við að létta á húsum og högum bænda. Því miður kom í ljós að í hluta dilkanna mælist stress og slíkt kjöt er ekki hæft til manneldis. Það verður því að farga kjötinu og gefa fé lengri tíma til að jafna sig.
12.9.2012 
Ekki er sjálgefið að hægt verði að lóga öllu fé sem náðst hefur út fönn á Norðurlandi á fyrirhuguðum tíma. Bæði getur féð hafa marist, mæðst og jafnvel stressast úr hófi fram. Mikilvægt er að reyna að hlúa sem allra best að kindum sem hafa lent á hremmingum og best væri ef hægt væri að hýsa þær.
12.9.2012 
Fulltrúar upplýsingatæknisviðs Bændasamtakanna funduðu í dag með ráðunautum grænlensku ráðgjafaþjónustunnar, þeim Nukajaraq og Henrik, sem komu í heimsókn í Bændahöllina. Fundarefnið var samstarf um forrit fyrir grænlenska sauðfjárbændur, en fjarvis.is hefur verið í notkun á undanförnum árum á Grænlandi.
12.9.2012 
Nú er þegar orðið ljóst að bændur á Norðurlandi hafa orðið fyrir tjóni vegna illviðrisins sem gekk yfir í byrjun vikunnar. Nokkur fjöldi fjár hefur þegar fundist dauður og líklegt að fleiri dauðar kindur eigi eftir að finnast. Því gæti fjárhagslegt tjón bænda orðið verulegt. Á þessu stigi máls er ómögulegt að að leiða getum að því hversu mikið tjónið verður en það veltur meðal annars á veðurfari á næstunni og hvernig björgunarstarf mun ganga.
12.9.2012 
Nú stendur yfir fundur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda og Bjargráðasjóðs fara yfir stöðu mála með fulltrúum ráðuneytisins vegna illviðrisins sem gekk yfir Norðurland og þess tjóns sem orðið er eða er yfirvofandi. Ljóst er að fjöldi fjár er í hættu og þegar hafa fundist dauðar kindur.
11.9.2012 
Fimm björgunarsveitir eru nú að störfum á landinu og hafa verið frá því snemma í morgun. Tvær þeirra, Blanda á Blönduósi og Strönd á Skagaströnd eru að aðstoða bændur við að bjarga fé sem fennti í veðurofsanum í gær. Hinar sveitirnar eru á Norðurlandi til aðstoðar viðgerðarmönnum Landsnets og Rarik við línuviðgerðir. Útköll vegna óveðurs og foks eru yfirstaðin. Ef veður helst skaplegt má búast við að verkefni björgunarsveitanna klárist í dag.
11.9.2012 
Bændur á Norðurlandi fóru víða af stað í birtingu til að reyna að bjarga fé sem fennt hefur og hrakist í óveðrinu. Verst virðist ástandið vera inn til dala á Norðausturlandi og ekki síst við Mývatn. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi á Grýtubakka í Eyjafirði og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir að menn séu enn ekki farnir að gera sér grein fyrir umfangi vandans, en nokkuð ljóst að eitthvað af fé hafi drepist.
10.9.2012 
Aftakaveður er nú víða um land, einkum á Norðurlandi og miðhálendinu. Rafmagnslaust er í Mývatnssveit og víða annars staðar á Norðausturlandi og einnig á Norðvesturlandi. Þá er símasambandslaust í hluta Skagafjarðar vegna bilunar. Fjöldi rafmagnsstaura er brotinn í Mývatnssveit hið minnsta og hugsanlega víðar. Þar í sveit óttast bændur um fé en ómögulegt er að koma því í skjól á meðan veðurhamurinn er eins og hann er nú að því er Morgunblaðið hefur eftir Eyþóri Péturssyni bónda í Baldursheimi í Mývatnssveit. Þá bíða smalar átekta í gangnakofum á suðurlandi en þar verður ekki smalað í dag sökum veðurs.
10.9.2012 
„Ertuyglan, sem er fiðrildalirfa, hefur verið nokkuð skæð á Suðurlandi í sumar. Hún kom fyrr og fór seinna en síðastliðin ár,“ segir María E. Ingvadóttir, skógarbóndi á Suðurlandi. „Hún er mjög mikið á lúpínunni, en fer einnig á lauftré og barrtré. Þar sem hún gengur hreint til verks standa laufblöðin eftir sem berir strengir. Það fer ekkert á milli mála hvar ertuyglan hefur verið, eða hvar hún er.“
6.9.2012 
Í júní síðastliðnum úthlutaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytið tollkvótum vegna innflutnings á ýmsum kjötvörum, smjöri og ostum. Meðal þeirra fyrirtækja sem fengu úthlutað tollkvóta var fyrirtækið Íslenskar matvörur. Íslenskar matvörur fengu, auk annars, úthlutað 50 tonna kvóta til innflutnings á kinda- og geitakjöti en það mun vera í fyrsta skipti sem tollum fyrir slíkt kjöt er úthlutað. Nú er svo komið að fyrirtækið er að kanna eftirspurn eftir innfluttu lambakjöti á markaði hér á landi.
6.9.2012 
Hólmfríður Geirsdóttir, garðyrkjufræðingur og eigandi Garðyrkjustöðvarinnar Kvista í Reykholti, er ánægð með berjauppskeru sumarsins sem er helmingi meiri en í fyrra. Þetta er annað sumarið sem hindber eru týnd og seld á stöðinni og gefur ræktun þeirra góða raun hérlendis. Frá þessu er sagt í nýju Bændablaði sem kom út í dag.
5.9.2012 
Síðasta sumar var óvenju þurrt um nánast allt land. Það hafði svo þau áhrif á sveppatínslu að víðast hvar var óvenju rýr uppskera. Lengi fram eftir sumri í ár voru sömuleiðis miklir þurrkar, en á síðustu vikum hefur rignt víða og vonir vaknað í brjóstum sveppatínslufólks.
4.9.2012 
Nú sér fyrir endann á fjósbyggingu hjónanna Berglindar Hilmarsdóttur og Guðmundar Guðmundarsonar á Núpi undir Eyjafjöllum. Góður gangur hefur verið í framkvæmdunum og hyggjast þau taka nýja fjósið í notkun í sumarbyrjun á næsta ári.
31.8.2012 
Ekki eru allir á eitt sáttir um þá stefnu sem tekin hefur verið í rekstri MS á Akureyri. Þá heyrast óánægjuraddir vegna fyrirhugaðs brotthvarfs Sigurðar Rúnars Friðjónssonar úr stóli mjólkurbússtjóra. Boðað hefur verið til félagsfundar í Norðuausturdeild Auðhumlu, móðurfélags MS, næstkomandi þriðjudag þar sem mjólkurbændur á svæðinu hyggjast ræða stöðu mála.
31.8.2012 
Í síðasta Bændablaði birtist listi yfir fjár- og stóðréttir á komandi hausti. Eins og verða vill leyndust villur í listanum sem skylt er að leiðrétta. Bagalegasta villan er sú að í blaðinu var stóðrétt í Miðfjarðarrétt í Miðfirði sögð vera 1. september næstkomandi, eða á morgun. Það er hins vegar ekki öldungis rétt heldur er hún eftir rúma viku eða laugardaginn 8. september næstkomandi.

Aðrar villur sem leyndust í réttalistanum í síðasta blaði voru eftirfarandi:
29.8.2012 
Árið 1992 kynnti Lely tímamótanýjung í landbúnaði: Lely Astronaut mjaltaþjóninn. Til þess að sýna velgengni þessara einstöku véla hefur Lely ákveðið að halda upp á þessi 20 ára tímamót hjá viðskiptavinunum sjálfum.
28.8.2012 
Landskeppni Smalahundafélags Íslands verður haldin að Kaldármelum um komandi helgi, 1. og 2. september. Það er Smalahundadeild Snæfellsness og Hnappadalssýslu sem heldur keppnina að þessu sinni. Svanur Guðmundsson, smalahundaræktandi og bóndi í Dalsmynni, segist búast við fjölda hunda til þátttöku í mótinu.
24.8.2012 
Alvöru sveitaball verður haldið í Aratungu á morgun, laugardaginn 25. ágúst. Það eru Vinir Tungnarétta sem halda ballið en allur hagnaður fer í enduruppbyggingu á Tungnaréttum.
24.8.2012 
Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkurbússtjóri MS á Akureyri mun láta af störfum 1. október næstkomandi og taka til starfa við vöruþróunardeild fyrirtækisins í Reykjavík. Í hans stað mun Friðjón Guðmundur Jónsson  taka við starfi hans sem mjólkurbústjóri en Friðjón er mjólkurfræðingur og hefur starfað í mjólkurbúinu á Akureyri um árabil.
23.8.2012 
Í nýju Bændablaði er fjallað um komandi göngur og réttir. Fyrstu fjárréttir á landinu verða sunnudaginn 2. september en samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verður réttað á þremur stöðum á landinu þann dag.
22.8.2012 
Sláturfélags Suðurlands (SS) skilaði 160 milljóna króna hagnaði á tímabilinu janúar til júní. Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 4.925 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2012, en 4.397 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um 12%. Aðrar tekjur voru 23 mkr. en 31 mkr. árið áður.
21.8.2012 
Íslandsmót í hrútadómum fór fram á Sauðfjársetri á Ströndum á þann 18. ágúst
og tókst afbragðs vel. Þetta er í 10. skipti sem keppni í hrútadómum fer
fram og stóð Kristján Albertsson bóndi á Melum í Árneshreppi uppi sem
sigurvegari.
17.8.2012 
Framleiðsla á kjöti var 12,4% meiri í júlí en sama mánuði í fyrra. Mest munar um aukna alifuglakjötsframleiðslu. Síðastliðna 12 mánuði var framleiðsla á kjöti 4,3% meiri en næstu 12 mánuði á undan. Athygli vekur mikil aukning í slátrun hrossa eða 45,5% á ársgrundvelli.
15.8.2012 
„Það verður engin mokuppskera, það er þegar orðið ljóst,“ segir Bergvin Jóhannsson, bóndi í Áshóli í Grýtubakkahreppi og formaður Félags kartöflubænda, um uppskeruhorfur í haust.
14.8.2012 
Jákvæður viðsnúningur hefur orðið í ýmissi innlendri framleiðslu eftir bankahrunið síðla árs 2008. Við gengisfall íslensku krónunnar var skyndilega orðið raunhæft að hefja framleiðslu á vörum sem áður fyrr voru fluttar inn til landsins frá útlöndum.
13.8.2012 
Víkingur Björnsson framkvæmdastjóri hjá Fjallalambi á Kópaskeri. Starfsmenn verða milli 60 og 70 talsins. „Við erum bara bjartsýn á haustið. Lömb eru víða mjög falleg og hefur farið vel fram. Þurrkar virðast ekki hafa haft mikil áhrif á vöxt lambanna í sumar," segir Björn Víkingur. Hann segir að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um forslátrun hjá Fjallalambi en málið verði skoðað og ákvörðun tekin um miðjan ágúst.
10.8.2012 
„Við höfum fengið góð viðbrögð og hlökkum til að setja þennan skóla á fót,“ segir Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóri Bústólpa á Akureyri, en fyrirtækið mun í tengslum við Handverkshátíð á Hrafnagili og landbúnaðarsýningu setja upp „Litla bændaskóla Bústólpa.“ Hann er fyrir áhugasama krakka frá 10 ára aldri og verður
10.8.2012 
Vottunarstofan Tún hefur staðfest að Grand Hótel Reykjavík við Sigtún í Reykjavík uppfylli reglur um meðferð lífrænna matvæla við framreiðslu á lífrænum hluta morgunverðar.
10.8.2012 
Hin árlega Ólafsdagshátíð verður haldin sunnudaginn 12. ágúst nk. frá 13:00-17:30. Það er Ólafsdalsfélagið sem hefur veg og vanda af hátíðinni en markmið þess er að stuðla að eflingu og varðveislu Ólafsdals í Dölum, sem er í flokki merkustu menningarminjastaða á Vesturlandi. Þar var fyrsti bændaskóli á Íslandi.
10.8.2012 
Mikill annatími er í minjagripa- og handverksverslunum um allt land yfir sumarmánuðina. Bændablaðið leit við í Álafossi í Mosfellsbæ á dögunum og tók eigendurna tali. Íslenska lopapeysan hefur vinninginn í ár, að mati Guðmundar Arnars Jónssonar og Gerðar Gunnarsdóttur sem eiga og reka verslunina í Álafosskvosinni.
9.8.2012 
Það verður mikið um dýrðir á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit um komandi helgi en á morgun, 10. ágúst, verður Handverkssýningin sett þar í tuttugasta sinn. Búnaðarsamband Eyjafjarðar slæst í hópinn og fagnar 80 ára afmæli sínu með því að setja upp veglega landbúnaðarsýningu.
9.8.2012 
„Við mun slátra hér um 31.000 fjár og ætlum að byrja 12. september næstkomandi,“ segir Björn Víkingur Björnsson framkvæmdastjóri hjá Fjallalambi á Kópaskeri. Starfsmenn verða milli 60 og 70 talsins. „Við erum bara bjartsýn á haustið. Lömb eru víða mjög falleg og hefur farið vel fram...
8.8.2012 
Jón bóndi ehfNýverið var gengið frá samningi um kaup Jötunn Véla á rekstri fyrirtækisins Jóns bónda sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á rekstrarvörum fyrir bændur og aðra dýraeigendur. Á meðal þess sem Jón bóndi hefur boðið upp á er Lister klippur og rúningsvörur ásamt Durinn rimlagólfunum og Wagg gæludýrafóðri.
8.8.2012 
„Það er ljóst að veiðin í sumar er langt undir væntingum og á það sérstaklega við um þær laxveiðiár sem við köllum sjálfbærar veiðiár. Á hinn bóginn er veiðin í Rangánum og hliðarám í góðu meðallagi,“ segir  Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga.
6.8.2012 
Norðlenska og SS hafa gefið út ákvörðun um verðlagningu sauðfjárafurða fyrir komandi sláturtíð. Hjá Norðlenska hækkar verð um 6,3% á lömbum en verð fyrir fullorðið breytist ekkert frá fyrra ári. Álagsgreiðslur verða með sama hætti og áður. Í tilkynningu frá Norðlenska segir að félagið áskilji sér rétt til að endurskoða verðskrána ef tilefni verður til.
3.8.2012 
Vaxandi áhugi virðist vera fyrir því að halda hænur í þéttbýli, sú er að minnsta kosti raunin á Akureyri. Íbúar á dvalarheimilinu Hlíð þar í bæ tóku í notkun við hátíðlega athöfn nýjan hænsnakofa á dögunum og gáfu honum nafnið Höllin. Íbúarnir halda 10 landnámshænur ...
30.7.2012 
Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda hefur gefið út viðmiðunarverð á lambakjöti fyrir komandi sláturtíð og birt á vefsíðu sinni saudfe.is. Haustið 2011 var meðalverð á lambakjöti til bænda 502 kr/kg en 249 kr/kg á öðru kindakjöti. Þetta verð er að meðtöldum uppbótargreiðslum sem afurðastöðvar greiddu fyrr á þessu ári. Stjórn LS telur að lambakjötsverð til bænda þurfi að hækka um 48 kr/ kg á komandi hausti ...
27.7.2012 
„Ég skil ekki af hverju er verið að vernda jafn grimmt dýr og tófuna. Tófunni hefur farið mjög fjölgandi, er nú farin að svelta á Hornströndum og sækir því annað. Hún hefur verið að leika sér hér við bæinn og er að eyðileggja möguleikana á því að vera hér með búskap. Það þýðir ekkert að basla við að búa hér því refurinn er að leggja þetta í eyði. Á síðastliðnum sex árum vantar mig nákvæmlega 173 ...
26.7.2012 
Upprekstur sauðfjár á Almenninga í nágrenni Þórsmerkur hefur verið harðlega gagnrýndur síðustu daga. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri sagði í samtali við RÚV að sú ákvörðun tveggja fjáreigenda að senda þangað nokkra tugi sé m.a. óumdeilanlegt brot á fjallskilasamþykkt Rangárvallasýslu. Vegna gagnrýninnar hefur Guðmundur Viðarsson, formaður stjórnar félags afréttareiganda á Almenningum, sent eftirfarandi yfirlýsingu:
25.7.2012 
Geitum hefur fjölgað um tæp þrjúhundruð á landinu á síðust fimm árum og voru í fyrra ríflega áttahundruð talsins. Verulegar áhyggjur voru af því að íslenski geitastofninn gæti hreinlega þurrkast út en árið 1983 voru til að mynda ekki nema 200 geitur í landinu. Geitastofninn er nokkuð dreifður um landið en þó er ekki ein einasta geit á Vestfjörðum. Flestar eru geiturnar á Vesturlandi, ríflega 300 talsins. Er líklegt að þar gæti áhrifa frá Geitabúinu á Háafelli í Hvítaársíðu en Geitfjársetur Íslands opnaði einmitt formlega þar síðasta laugardag.
19.7.2012 
Bændur víða um land bíða nú í ofvæni eftir rigningu sem spáð er um komandi helgi. Miklir þurrkar í júní og það sem af er júlí hafa tafið grassprettu og eru tún víða orðin gul og líflaus. Að sögn Ólafs Dýrmundssonar landnýtingarráðunautar er víða að skapast mjög alvarlegt ástand vegna þessa.
18.7.2012 
Vinnuslys meðal bænda eru mun fleiri en skráningar hjá Vinnueftirliti segja til um, þannig að takmarkaðar upplýsingar eru til um vinnuslys meðal íslenskra bænda. Það hefur í för með sér að ekki er vitað um eðli og afleiðingar slysa í bændastétt, sem leiðir svo aftur til þess að ekki er með góðu móti hægt að sinna forvörnum eða fræða bændur um helstu hætturnar sem störfum þeirra fylgja og grípa til aðgerða gegn þeim. Þetta er mat Kristins Tómassonar, yfirlæknis hjá Vinnueftirlitinu.
16.7.2012 
„Við teljum okkur eiga alla kolefnisbindingu sem til verður í okkar skógum, ætli ríkið að slá eign sinni á hana er það ekki annað en eignaupptaka,“ segir Edda Björnsdóttir, formaður Félags skógareigenda í samtali við Bændablaðið sem kom út í síðustu viku.
12.7.2012 
Í maí tók gildi breyting á 10. grein laga um dýrasjúkdóma þar sem bann við innflutningi á ósoðinni mjólk var fellt úr gildi. Því fá ferðamenn nú leyfi til að flytja til landsins allt að eitt kíló af osti úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota. Hingað til hefur ekki verið leyfilegt að flytja inn mjólkurafurðir úr ógerilsneyddri mjólk í varnaðarskyni gegn útbreiðslu dýrasjúkdóma. Landbúnaðarráðherra getur heimilað innflutning á meira magni en eingöngu til einkaneyslu. Reglugerðarbreytingin kemur að frumkvæði stjórnvalda en ekki eftir erlendri forskrift og er aðeins um takmarkað magn að ræða.
12.7.2012 
Í dag hefst sannkallað stórátak í kynningu innlendrar ferðaþjónustu. Verkefnið Ísland er með’etta er sameiginlegt verkefni allra markaðsstofa landsins, Ferðaþjónustu bænda, Höfuðborgarstofu og Ferðamálastofu en markmið þess er að hvetja Íslendinga til ferðalaga innanlands og kynna fyrir þeim allar þær stókostlegu upplifanir sem landið hefur upp á að bjóða. Nýtt og glæsilegt vefsvæði, undir merkjum átaksins, islandermedetta.is, hefur verið opnað. Þar gefst landsmönnum færi á að kynna sér allra handa ævintýri og upplifanir á einstaklega aðgengilegan hátt.
11.7.2012 
Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 18.-22. júlí næstkomandi. Frítt verður inn á mótið og ýmislegt við að vera. A-úrslit munu fara fram á sunnudegi og verður RÚV með beina sjónvarpsútsendingu frá þeim.
11.7.2012 
Samkeppniseftirlitið mun hefja rannsókn á viðskiptakjörum birgja til matvöruverslanna með það að markmiði að kanna hvort að verið sé að brjóta gegn samkeppnislögum. Í skýrslu sem eftirlitið birti í byrjun þessa árs kom fram að mismunandi kjör dagvöruverslanna hjá birgjum valdi hindrunum að aðgengi á dagvörumarkaði. Þrjár stærstu verslunarkeðjurnar, Hagar, Kaupás og Samkaup ráða yfir um 90 prósent markaðshlutdeild. Minni verslanir greiði umtalsvert hærra verð til birgja en þessar keðjur.
10.7.2012 
Eins og áður hefur verið greint frá verður landsliðshópur Íslands sem taka mun þátt í Norðurlandamótinu í hestaíþróttum kynntur 16. júlí næstkomandi. Mótið, sem fer fram 1.-5. ágúst verður væntanlega firnasterkt og spennandi að fylgjast með íslensku knöpunum etja kappi við keppinauta sína á hinum Norðurlöndunum.
9.7.2012 
Fyrirtækið Seigla á Akureyri, sem smíðar jafnan plastbáta, hefur lokið við smíði á nýjum spöðum í vindmylluna í Belgsholti í Melasveit í Borgarfirði. Gömlu spaðarnir eyðilögðust þegar mótorinn og spaðarnir fuku í miklu hvassviðri þann 29. nóvember síðastliðinn en vindmyllan var gangsett fyrir réttu ári.
6.7.2012 
Norðurlandamótið í hestaíþróttum fer fram í Eskilstuna í Svíþjóð dagana 1. - 5. ágúst næstkomandi. Tilkynnt verður um hverjir skipa landslið Íslands 16. Júlí næstkomandi en Ísland sendir átján knapa á mótið, 10 fullorðna og 8 unglinga/ungmenni. Landsliðið er í mótun þessa dagana en fjöldi sterkra knapa hafa sótt um að komast í liðið.
6.7.2012 
Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, var í óðaönn að ljúka við þjóðhátíðarlag Vestmannaeyinga í samvinnu við lúðrasveit bæjarins þegar blaðamaður Bændablaðsins náði tali af honum á dögunum. Það er aðeins eitt af metnaðarfullu verkefnum Halldórs um þessar mundir þegar kemur að tónlistinni því hann fékk þá brjáluðu hugmynd, í samstarfi við Fjallabræður, fyrir nokkrum árum að fá 10 prósent þjóðarinnar til að syngja inn á Þjóðlagið með sér.
5.7.2012 
Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra hefur fyrir hönd ríkisins lagt fram kröfur um þau landssvæði sem teljast skuli þjóðlendur á svæði 8 norður. Þar er um að ræða svæði á Norðvesturlandi sem samanstanda af Húnavatnssýslu vestan Blöndu auk Skaga. Ráðherra hefur afhent óbyggðnefnd kröfur sínar og eru þær birtar í Lögbirtingarblaðinu í dag.
5.7.2012 
Innleiðing á nýju gæða- og umhverfiskerfi til aðila í ferðaþjónustu er nú komin á fullt skrið hjá Ferðamálastofu. Gæðakerfið, sem ber heitið VAKINN felur í sér viðameiri úttekt á starfsemi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu en áður hefur þekkst hér á landi. Í gær var því fagnað að fyrstu íslensku fyrirtækin hafa lokið innleiðingu á VAKANUM, nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir aðila í ferðaþjónustu. Fyrirtækin eru öll umsvifamikil á sviði íslenskrar ferðaþjónustu en þau eru: Elding hvalaskoðun, Bílaleiga Akureyrar – Höldur, Ferðaskrifstofan Atlantik og Iceland Excursions Allrahanda.
4.7.2012 
Í dag undirrituðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Erla Björk Örnólfsdóttir, rektor Hólaskóla -  Háskólans á Hólum, nýja samninga um kennslu og rannsóknir við skólana til næstu fimm ára. Með undirritun þeirra hafa samningar af þessu tagi verið gerðir við alla háskóla í landinu.
4.7.2012 
Ferðaþjónustubændurnir Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir í Vatnsholti í Flóahreppi hlutu nýverið viðurkenningu frá ferðaþjónustusíðunni Tripadvisor og fengu einnig viðurkenningu frá Ferðaþjónustu bænda sem framúrskarandi ferðaþjónustubær árið 2011.
3.7.2012 
Ábúendum í Skollagróf í Hrunamannahreppi var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdar 13,9 milljóna króna bætur frá íslenska ríkinu vegna riðusmits sem greindist á bænum árið 2007. Matsnefnd eignarnámsbóta mat tjónið á sínum tíma á 13,9 milljónir króna en ríkið var ósátt við niðurstöðu nefndarinnar og fór með málið fyrir dómstóla.

3.7.2012 
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra í Frakklandi, undirritaði Landslagssamning Evrópu fyrir Íslands hönd í París síðastliðinn föstudag. Markmið Landslagssamningsins er að stuðla að verndun, stýringu og skipulagi landslags ásamt því að koma á fót evrópsku samstarfi um landslag.
2.7.2012 
Í gær lauk Landsmóti hestamanna 2012 í Víðdal með úrslitakeppni í A-flokki gæðinga sem jafnan er talinn einn hápunkta landsmóts. Óhætt er að segja að úrslit í A-flokknum hafi komið á óvart en Fróði frá Staðartungu og Sigurður Sigurðarsson sigruðu á lokasprettinum í orðsins fyllstu merkingu. Fláki frá Blesastöðum 1A og Þórður Þorgeirsson sem voru taldir sigurstranglegir urðu í öðru sæti einungis fjórum kommum á eftir Fróða og Sigurði sem fengu einkunnina 8,92.
29.6.2012 
Það má með sanni segja að veðrið leiki við Landsmótsgesti í Víðidalnum í Reykjavík þar sem keppni stendur nú sem hæst og mun gera alla helgina. Í gærkvöldi var setning mótsins og safnaðist mikill mannfjöldi saman af því tilefni. Gestir eru sammála um að mótið sé hið vandaðasta í alla staði og að vel sé staðið að skipulagninu þess.
28.6.2012 
Framkvæmdir eru hafnar við nýtt 41 herbergis hótel, Fosshótel Vestfirðir á Patreksfirði og voru samningar um verkefnið undirritaðar á Patreksfirði í dag. Stefnt er að opnun þess fyrir gesti í maí 2013. Hið nýja hótel verður til húsa í endurbyggðri húseign við Aðalstræti 100. Þar var síðast rekið sláturhús og áður fiskvinnsla. Heildarfjárfesting vegna kaupa á fasteigninni og við breytingar á henni er áætluð 350-400 milljónir króna. Kynningarfundur um verkefnið var haldinn í dag.
28.6.2012 
Nýtt Bændablað kom út í dag og er að venju stútfullt af áhugaverðu efni. Eðli málsins samkvæmt fer töluvert fyrir umfjöllun um Landsmót hestamanna sem fer fram þessa dagana í Víðidal í Reykjavík. Þó er tæpt á fleiri áhugaverðum málefnum eins og litið er inn til íslenskra smáframleiðenda í Kaupmannahöfn, kíkt er á lélegt ástand á vegum í Bárðardal og fjallað er um nýja sjónvarpsþætti sem Bubbi Morthens stýrir þar sem bændur fá til sín þekkta tónlistarmenn á tónleika heima í stofu hjá sér.
27.6.2012 
Í aflögðu frystihúsi á Rifi á Snæfellsnesi er búið að koma upp leikhúsi af svo miklum myndarskap að það hrópar og kallar á mann, rétt eins og náttúran á Snæfellsnesi. Nú um stundir sýna Kári Viðarsson og Benedikt Karl Gröndal leikritið Trúðleik í Frystiklefanum. Leikritið, sem er eftir Hallgrím H. Helgason, fjallar um tvo trúða og samstarf þeirra sem er sannkölluð rússíbanareið.
26.6.2012 
Hjá Mjólkursamsölunni eru nú sem endranær ýmsar nýjungar í vöruframboði og þróun á vörum og umbúðum. Þrátt fyrir efnahagslega erfiðleika hérlendis hefur Mjólkursamsalan haldið áfram að þróa og markaðssetja nýjar vörur í takt við þarfir neytenda með því að nútímavæða þær og hafa hollustu- og manneldissjónarmið í huga.
25.6.2012 
Í haust mun hefja göngu sína á Stöð 2 sjónvarpsþátturinn Beint frá býli sem Bubbi Morthens stýrir. Þar fylgir hann bændum eftir í einn dag sem endar með tónleikum þekktra tónlistarmanna og hljómsveita heima á viðkomandi bæ.
21.6.2012 
Mikið hefur borið á stuldi á reiðtygjum að undanförnu. Í tilkynningu frá Ástund kemur fram að þeir sem hyggist kaupa notaðar vörur skuli hafa það í huga þegar viðskipti með þær eigi sér stað. Er sérstaklega bent á að allir hnakkar frá árinu 2004 og lofthnakkar frá árinu 1999 séu merktir með raðnúmeri og að eigendaskráning hafi átt sér stað við sölu.
21.6.2012 
Verð á mjólk til bænda hækkar um 3,6 prósent frá 1. júlí næstkomandi samkvæmt ákvörðun Verðlagsnefndar búvara sem birt var í dag. Afurðastöðvarverð hækkar því úr 77,63 krónum í 80,43 krónur. Frá sama tíma mun heildsöluverð á mjólk, sem og þeim mjólkurafurðum sem nefndin verðleggur, hækka um 4 prósent.
21.6.2012 
Í víðáttunni í Landssveit innan um hraunfláka og birkiskóga stýra hjónin Anders Hansen og Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir einu stærsta sveitahóteli landsins á Leirubakka. Þau eru full af eldmóði og hugmyndum fyrir frekari uppbyggingu staðarins, því bygging glæsilegs fjögurra stjörnu hótels og gestastofu um hálendi Íslands er í kortunum.
19.6.2012 
Fjögurra ára og tólf ára samgönguáætlanir voru samþykktar á Alþingi í dag. Með auknum fjármunum verður hægt að ráðast í ýmsar mikilvægar framkvæmdir svo sem jarðgöng, brúargerð, breikkun vega, endurbætur á tengivegum auk stórátaks í eflingu almenningssamgangna. Meðal breytinga sem gerðar voru á fjögurra ára áætluninni í meðförum Alþingis er að framkvæmdir við Norðfjarðargöng eiga að hefjast fyrr en í upphafliegu tillögunni eða á næsta ári með 1.200 milljóna króna framlagi.
15.6.2012 
Sá einstaki atburður gerðist um páskana á 50 ára afmælisári Hótels Sögu að hvítvoðungur kom þar inn aðeins um sjö klukkustunda gamall og gisti með foreldrum sínum fyrstu fimm nætur ævinnar. Foreldrarnir Einar Kristján Jónsson, starfsmaður Frumherja og Liselotta E. Pétursdóttir, rekstrarfulltrúi hjá Vistor, hafa svo sannarlega kynnst því síðastliðið ár að lífið tekur oft óvænta stefnu.
14.6.2012 
Guðmundur Þórarinsson bóndi í Vogum, skammt frá þjóðveginum við sunnanvert Víkingavatn í Öxarfirði, segir að gróðurfarið þar um slóðir sé mun verra en ætla mætti af fréttum. „Hér er mestallt fé enn á fóðrum og enga beit að hafa í úthaga,“ sagði Guðmundur. Þykir honum frekar undarleg ummæli framkvæmdastjóra Búgarðs í nýjasta Bændablaðinu um ástandið og að menn væru nokkuð bjartsýnir í Norður-Þingeyjasýslu.
14.6.2012 
Heimasætan í Brúnagerði í Fnjóskadal, Guðbjörg Erna Sigurpálsdóttir og er 15 ára, á eins og mörg börn bænda kindur eða nánar tiltekið fjórar talsins. Þær báru allar fjórum lömbum nú í vor svo fjáreign Guðbjargar jókst um 400% en greint er frá þessu á vefsíðunni 641.is.
14.6.2012 
Sláttur er víða hafinn á landinu en í litlum mæli þó. Þurrkar, næturkuldar og kuldatímabil í maímánuði valda því að víða er þó nokkuð í að heyskapur hefjist af alvöru. Á Austurlandi eru menn ekki byrjaðir að hugsa sér til hreyfings sökum kulda og lítillar sprettu. Á Norðvesturlandi eru þurrkar að leika bændur grátt en þar eru tún farin að brenna vegna skorts á vætu. Á Vesturlandi er sumstaðar ágætis spretta og menn byrjaðir að heyja af krafti en annars staðar vantar úrkomu.
13.6.2012 
Hljómsveitin Sigurrós setti sig í samband við hönnunarfyrirtækið Farmers Market í byrjun árs og bað fyrir hönnun á íslenskum ullarteppum til að selja fyrir tónleikaferðalag sveitarinnar. Fyrsta upplag af teppunum seldist upp í forsölu á nokkrum klukkustundum þannig að ákveðið var að framleiða annað eins magn svo nú fljúga senn 600 íslensk ullarteppi út um allan heim til dyggra aðdáenda Sigurrósar.
11.6.2012 
Það var margt um manninn á bæjarhátíð Selfyssinga, Kótelettunni 2012, sem fór fram um helgina. Gestir og gangandi kunnu vel að meta matvæli sem í boði voru en félagar úr Meistarafélagi kjötiðnaðarmeistara voru með grillvagn sauðfjárbænda á svæðinu og buðu upp á nýgrillað lambakjöt. Svínabændur gáfu einnig smakk og sama má segja um nautgripabændur en starfsfólk frá Sláturhúsinu á Hellu buðu upp á sýnishorn af heilgrilluðu nauti.
7.6.2012 
Þann 25. maí sl. var gefin út breyting á reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2012. Með henni er ráðstöfun, á 87,6 milljónum króna af óframleiðslutengdum og /eða minna markaðstruflandi stuðningi, nánar skilgreind.
7.6.2012 
Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, fjallar í hádegisfyrirlestri í Þjóðminjasafninu í dag 7. júní kl. 12:10 um samspil vatns og jarðvegs. Mold er mikilvægur liður í hringrás vatnsins á jörðinni. Jarðvegsvernd er því sérlega þýðingarmikil en Íslendingar eru komnir skammt á þeirri braut að huga að mold í tengslum við vatnsvernd.
6.6.2012 
Ferðaþjónustubændur, nokkrir bændur innan Opins landbúnaðar og Beint frá býli bjóða heim sunnudaginn 10. júní næstkomandi. Uppákoman er í samstarfi við Ferðaþjónustu bænda, Opins landbúnaðar og Beint frá býli og er haldin í tilefni af útgáfu bæklingsins "Upp í sveit".
5.6.2012 
Á ársfundi Byggðastofnunar í síðustu viku var Örlygi Kristfinnssyni, forstöðumanni Síldarminjasafnsins á Siglufirði, afhentur Landstólpinn árið 2012. Samkvæmt orðabókinni er landstólpi einhver eða eitthvað sem eflir hag landsins og Örlygur stendur sannarlega undir nafni í sinni heimabyggð.
1.6.2012 
Verð á umframmjólk frá og með deginum í dag, 1. júní, verður 37,50 krónur fyrir fyrstu 2 prósent innlagðrar mjólkur umfram greiðslumark. Fyrir mjólk umfram það verður verðið 32,50 krónur. Bæði Auðhumla og KS hafa tekið þessa ákvörðun.
1.6.2012 
Það liggur sætan ilm af möltuðu byggi, geri og humlum í vinnslusal Ölvisholts brugghúss í Ölvisholti í uppsveitum Árnessýslu. Þar stendur Jón Elías Gunnlaugsson, bruggmeistari og eigandi vaktina, ásamt Kristni Daníel Gunnarssyni bruggara. Hér er það hreinlæti, rétt hitastig og gerjun á ákveðnum tímapunkti sem gildir til að rétta bjórbragðið verði að veruleika.
31.5.2012 
Nú eru hafnar sýningar á fjórum heimildarþáttum um offitu á Íslandi. Þættirnir sem unnir eru af Ingu Lind Karlsdóttur, sjónvarpskonu og Einari Árnasyni, myndatökumanni, í samvinnu við Stöð 2, upplýsa áhorfendur um stöðu mála á Íslandi á þessu mest vaxandi heilsufarsvandamáli í heiminum.
30.5.2012 
Síðastliðinn laugardag voru átta grísir frá Brúarlandi á Mýrum afhentir bændunum á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, þar sem þeir verða aldir vistvænt í sumar. Bjarteyjarsandur er eitt þeirra búa sem taka þátt í tilraunaverkefni Svínaræktarfélags Íslands (SÍ) um eldi á vistvænum grísum.
30.5.2012 
Mikið hvassviðri var á Norðurlandi fyrir og um síðustu helgi. Að mati ráðunauta er hætta á að fræ hafi fokið úr flögum og bændur hafi orðið fyrir tjóni. Rokið var mikið bæði í Skagafirði og Eyjafirði.
30.5.2012 
Það var vegna einskærs áhuga á ostagerð sem Sigurður Guðbrandsson stofnaði vefsíðuna ostagerd.is þar sem hann selur efni og tæki til ostagerðar, búlgarska jógúrtgerla, ostamót, hleypi og mismunandi kúltúra svo fátt eitt sé nefnt.
25.5.2012 
Landsbankinn hefur skert þjónustu sína á landbyggðinni verulega en í hagræðingarskyni hefur átta útibúum bankans verið lokað. Af útibúunum sem lokað verður eru sjö á landsbyggðinni. Ekki er um nýja þróun að ræða en á síðustu árum hefur bankinn lokað ýmsum útibúum á landsbyggðinni.
24.5.2012 
Alþingi felldi rétt í þessu breytingartillögu Vigdísar Hauksdóttur við frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni. Breytingartillagan gekk út á að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort draga eigi umsókn Íslands að ESB til baka. Atkvæði féllu þannig að 34 þingmenn voru á móti en 25 studdu tillögu Vigdísar.
23.5.2012 
Þann 1. júní nk. kemur á markað – og til sölu á vefnum Google play – nýtt forrit fyrir Android-farsíma og spjaldtölvur sem auðveldar fólki að greina plöntur. Forritið heitir Plöntulykill og er hannað með það að leiðarljósi að allir geti notað það – bæði leikmenn og hinir sem eru lengra komnir í fræðunum.
23.5.2012 
Nú í vor stóð dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun (MAST)í samvinnu við dýralæknadeild Landbúnaðaháskóla Svíþjóðar fyrir námskeiði um greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Námskeiðið, sem var framhaldsnámskeið og haldið á Hólum var vel sótt en átta dýralæknar sem starfa hér á landi tóku þátt í því.
22.5.2012 
Flest bendir til þess að meirihluti sé fyrir því í utanríkismálnefnd Alþingis að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Jafnvel yrði kosið um málið fyrir árslok en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingmaður Vinstri grænna lagði fram bókun þess efnis á fundi nefndarinnar nú í hádeginu. Ríkisútvarpið greindi frá.
22.5.2012 
Gerður hefur verið þjónustusamningur við dýralæknaþjónustuna Dýrin mín stór og smá ehf. um að sinna dýralæknaþjónustu á svokölluðu þjónustusvæði 4 en einnan þess svæðis falla Húnaþing vestra, Blönduósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshreppur. Dýralæknaþjónustan er í eigu Ingunnar Reynisdóttur, fyrrum héraðsdýralæknis Vestur Húnaþingsumdæmis. Samningurinn er gerður í samræmi við reglugerð um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum.
22.5.2012 
Mjólkurframleiðsla á landinu síðustu 12 mánuði jókst um 3,2 prósent en frá maí á síðasta ári og til loka apríl á þessu ári var heildar innvigtun mjólkur 126,3 milljónir lítra. Þetta kemur fram í söluyfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði sem birt var í gær og sagt er frá á heimasíðu Landssambands kúabænda, naut.is.
22.5.2012 
Íslensk stjórnvöld hafa skilað drögum að áætlun um innleiðingu landbúnaðarkafla Evrópusambandsins með það að markmiði að hægt verði að opna viðræður um kaflann. Vekur nokkra athygli að svo skuli vera í ljósi þess að ekki hefur enn verið mótuð samningsafstaða í landbúnaðarmálum. Bændasamtök Íslands mótmæla því hvernig stjórnvöld hafa staðið að málum og telja að með þeirri framgöngu sé verið að veikja málstað Íslands í viðræðunum alvarlega og varanlega.
21.5.2012 
Sigurður Guðjónsson, formaður Æðarræktarfélags Skagafjarðar (ÆS), segist hafa áhyggjur af því að ýmsa sé farið að klæja í gikkfingurinn við tilhugsunina um að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Ástæðan er sú að æðarfugl, sem hefur verið friðaður á Íslandi síðan um miðja nítjándu öld, er réttdræpur í ríkjum Evrópusambandsins.
18.5.2012 
Matís leggst á árarnar með heimamönnum beggja vegna Breiðafjarðar og hefur blásið til sóknar í matavælaframleiðslu og tengdum greinum á svæðinu. Liður í þeirri sókn er ráðning tveggja starfsmanna sem hefja munu störf á Patreksfirði á næstu dögum en þessir starfsmenn bætast í hóp þeirra tveggja sem nýlega voru ráðnir til starfa á Grundarfirði á Snæfellsnesi.  Starfsmennirnir fjórir munu starfa í nánu samstarfi sín á milli og við aðra starfsmenn Matís, um allt land.
16.5.2012 
Hér á landi er nú stödd kínversk sendinefnd með aðstoðar- landbúnaðaráðherra Kína, Gao Hongbin, í fararbroddi. Í morgun heimsótti sendinefndin gróðarstöðina Lambhaga í Reykjavík og skoðaði aðstöðu þar, en Hafberg Þórisson garðyrkjumaður hefur verið að vinna með Kínverjum að hugmynd um að setja upp gróðarstöð í svipuðum stíl í Kína.
16.5.2012 
Þorsteini Ólafssyni, sérgreinadýralækni Matvælastofnunar (MAST), blöskrar sá mikli fjöldi dýraverndarmála sem upp hefur komið í vetur og segist ekki hafa vitað verra ástand frá því hann tók við stöðunni árið 2009. Þá sé mikið áhyggjuefni hversu seint mál berist inn á borð stofnunarinnar ...
15.5.2012 
Í lok síðasta árs kom út afar vönduð og glæsileg uppskriftabók eftir hjónin Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson sem ber heitið Góður matur, gott líf í takt við árstíðirnar. Hún er grafískur hönnuður og hann ljósmyndari en saman hafa þau í gegnum tíðina unnið að fjölmörgum verkefnum sem tengjast mat. Því lá beinast við að nýta sameiginlega reynslu og sanna ástríðu fyrir tilraunaeldhúsinu og fersku hráefni í yfirgripsmikla bók þar sem hver og ein árstíð fær notið sín.
10.5.2012 
Spáð er vonskuveðri um komandi helgi en búast má við norðaustanátt allt upp í 23 m/s með slyddu og síðar snjókomu á sunnudeginum um landið norðan- og austanvert. Þá er spáð kólnandi veðri og búist er við að hiti verði um og undir frostmarki. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er útlit fyrir áframhaldandi norðanátt og snjókomu eða él á mánudag og fram á miðvikudag en úrkomulaust verður sunnan- og vestanlands.
9.5.2012 
Nýlega fannst fé sem hafði verið flutt úr Rangárvallahólfi yfir í Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf. Um er að ræða brot á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, en auk þess fannst fé sem hafði verið flutt á milli bæja í síðarnefnda hólfinu sem er óheimilt samkvæmt reglugerð um útrýmingu á riðuveiki.  Í tilkynningu frá Matvælastofnun (MAST) kemur fram að um 19 kindur hafi verið að ræða sem voru í eigu þriggja aðila.
8.5.2012 
Fullt hús var í Norræna húsinu sl. laugardag þegar málþing var þar haldið um væntanleg áhrif virkjana í Hólmsá og Skaftá í Skaftárhreppi.  Landvernd og Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi - stóðu að málþinginu. 
8.5.2012 
Aðalfundur Félags skógareigenda á Suðurlandi (FsS) sem haldinn var á Geysi 5. maí sl. mótmælir mótmæla harðlega frumvarpi til laga um mat á umhverfisáhrifum sem nú liggur fyrir Alþingi. Telur fundurinn að þar séu mjög íþyngjandi ákvæði um matsskyldu á umhverfisáhrifum skógræktar fyrir verðandi skógarbændur sem ekki sé í samræmi við kvaðir á annan landbúnað. Sá kostnaðaruki sem frumvarpið hafi muni hafa för með sér geti hæglega valdið því að aðeins sterkefnaðir aðilar hafi tök á að hefja skógrækt.
7.5.2012 
Á dögunum gáfu Bændasamtök Íslands út bækling með nafninu Tollar og íslenskur landbúnaður. Eins og nafnið gefur til kynna er í bæklingnum fjallað um það tollaumhverfi sem íslenskur landbúnaður býr við en einnig dregin upp sú sviðsmynd sem skapast myndi væru tollar afnumdir. Í ljósi umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu (ESB) er sú spurning gríðarlega mikilvæg en ein að meginstoðum Evrópusamstarfsins er frjálst flæði vöru milli aðildarlanda ESB, án tolla.
Í bæklingnum er, auk tollaumhverfis, fjallað um landbúnaðarstefnu stjórnvalda og dregin um mynd af þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að hvað varðar viðskipti með landbúnaðarvörur. Einkum er þar horft til ESB og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO.
7.5.2012 
Starfsmenn Norðurlandsskóga munu í sumar og haust gera eldvarnaáætlun fyrir hvert skógræktarsvæði innan Norðurlandsskóga í samstarfi við skógarbændur og slökkvilið. Þeir hafa verið á ferðinni undanfarið og haldið fundi með skógarbændum á starfssvæði sínu, sem nær yfir Húnavatnssýslur, Skagafjörð, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur, þar sem m.a. hefur verið fjallað um skógarelda og aðgerðir sem hægt er að grípa til til að draga úr hættu á að eldar breiðist út.
4.5.2012 
Nokkur umræða hefur skapast síðustu daga um rekstur Bændasamtaka Íslands á hótelum í þeirra eigu. Er þar um að ræða Hótel Sögu og Hótel Ísland. Eins og hjá mörgum fyrirtækjum, og vel flestum stærri hótelum, þyngist rekstur hótelanna verulega við efnahagshrunið haustið 2008. Unnið er að endurskipulagningu fjárhagsstöðu hótelanna og er búist við að þeirri vinnu ljúki á næstunni.
4.5.2012 
Gengið hefur verið frá sölu á Þverholtabúinu á Mýrum. Í Þverholtum hefur undanfarin ár verið rekið eitt af stærri kúabúum landsins en búið var í eigu Jóhannesar Kristjánssonar, sem oft var kenndur við Fons.
4.5.2012 
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að barist verði með kjafti og klóm fyri því að Íslandi geti viðhaldið banni við innflutningi á hráu kjöti til landsins. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lýst efasemdum um að bann við innflutningnum standist EES-saminginn.
4.5.2012 
Íslenskir bændur hafa verið stórtækir í uppgræðslu örfoka lands og endurheimt landgæða á undanförnum árum og áratugum. Í samvinnuverkefni bænda og Landgræðslunnar „Bændur græða landið“ (BGL) sem hófst árið 1990 hafa verið græddir upp um 30 þúsund hektarar, eða um 300 ferkílómetrar. Til gamans má geta að þetta er svipað landsvæði og jörðin Grímsstaðir á Fjöllum, sem mjög hefur verið í umræðunni vegna áhuga Kínverjans Huang Nubo á henni.
4.5.2012 
Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Crude Oil) hefur fallið ört síðan 1. maí. Hjá Brent Crude Oil í London er verðið nú skráð á um 115 dollara tunnan en var í ríflega 125 dollurum þegar verðið var hæst fyrir miðjan mars.
3.5.2012 
Þá er nýtt Bændablað komið út og hefur því verið dreift um allt land – í um 60 þúsund eintökum. Blaðið er óvenju ríkt af góðu myndefni, enda var sérstaklega auglýst eftir myndum frá lesendum af bændum að sinna vorverkum. Á síðu 26 í blaði dagsins eru þær myndir að finna, auk þess sem heil myndaopna er í miðju blaðsins frá garðyrkjubændum í uppsveitum Árnessýslu, en þeir eru nú í óða önn ...
2.5.2012 
Landvernd og Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi efna til málþings um áhrif virkjana í Skaftárhreppi á laugardaginn kemur. Síðustu ár hafa tvær virkjanahugmyndir verið til umræðu á Fjallabakssvæðinu, Búlandsvirkjun í Skaftártungu (í Skaftá og Tungufljóti) og Atleyjarvirkjun austan Mýrdalsjökuls (í Hólmsá).
30.4.2012 
María Dís Ólafsdóttir er einungis 17 ára gömul, nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri, en hefur gefið út sitt fyrsta prjónablað, Ölduna, með 24 fjölbreyttum uppskriftum. María Dís sem kemur frá bænum Fjöll 1 í Kelduhverfi notar íslenska ull í allar uppskriftirnar.
27.4.2012 
Í gamla kaupfélagshúsinu á Hvolsvelli er starfræktur sveitamarkaður sem opinn er alla daga ársins nema yfir jólahátíðina. Þar selja hátt í 200 aðilar handverk sitt og á sumrin lifnar enn frekar yfir starfseminni þegar uppskera frá bændum úr héraði kemur í hús.
24.4.2012 
Í næsta Bændablaði verða birtar myndir af bændum að sinna vorverkum. Blaðið óskar eftir því að lesendur sendi stafrænar myndir til ritstjórnar en þeir myndasmiðir sem fá myndir sínar birtar fá veglega bókargjöf.
24.4.2012 
Allur tækjabúnaður Vesturmjólkur er nú auglýstur til sölu á heimasíðu fyrirtækisins. Ekki hafa verið framleiddar vörur hjá fyrirtækinu frá því í janúar síðastliðnum og var starfsmönnum sagt upp um mánaðarmótin janúar-febrúar síðastliðinn. Ástæðan var sögð skortur á fjármagni til rekstar. Fyrirtækið framleiddi og markaðssetti vörur undir merkinu Baula-Beint úr sveitinni og var stofnað snemma árs 2010. Fyrstu vörur fyrirtækisins komu á markað í júní á síðasta ári en fyrirtækið framleiddi m.a. jógúrt og sýrðar mjólkurvörur.
23.4.2012 
Í síðustu viku var nýr mjólkurbíll tekinn í notkun  hjá MS á Egilsstöðum. Á honum er 8.500 lítra mjólkurtankur, vöruskápur með öflugri kælivél og lyftubúnaði. Þannig er hægt að taka með í bílnum mjólkurvörur til viðskiptavina MS á þeim svæðum sem bíllinn ekur um. Söfnunarsvæði bílsins er frá Vopnafirði og suður í Breiðdal.
23.4.2012 
Allt útlit er fyrir að verð á minkaskinnum hækki um a.m.k. 10 prósent að meðaltali á uppboði Kopenhagen Fur sem nú stendur yfir. Hækkunin eftir þriggja daga uppboð er á bilinu 5 til 21 prósent, misjafnt eftir litum. Fjórði dagur uppboðsins stendur nú yfir og lýkur því annað kvöld.
20.4.2012 
Þóra Valsteinsdóttir er mörgum Íslendingum að góðu kunn fyrir fararstjórn í Evrópuferðum. Þóra sem fædd er og uppalin í Reykjavík, hefur dvalist í Grikklandi í hartnær 30 ár og á þar heimili sitt og fjölskyldu. Hún þekkir því vel til mála þar í landi og hefur ákveðnar skoðanir á orsökum og afleiðingum þess vanda sem Grikkir eiga nú við að etja. Þar hafi aðild þjóðarinnar að ESB m.a. verið afdrifarík.

20.4.2012 
Bændur landsins virðast standa nokkuð vel hvað hey og annað fóður snertir þetta vorið. Sverrir Þ. Sverrisson, hjá Matvælastofnun sem fer með forðagæslumálin, segir að hvergi sé útlit fyrir að bændur lendi í vandræðum.
20.4.2012 
Undanfarna daga hefur hópur um 60 norskra bænda kynnt sér landbúnað og búskaparhætti starfsbræðra sinna hér á landi. Eftir kynningu á íslenskum landbúnaði í Bændahöllinni var för þeirra heitið í vel heppnaða heimsókn til Sveins Ingvarssonar og Katrínar Andrésdóttur í Reykjahlíð á Skeiðum. Þau gistu síðan eina nótt á Hótel Heklu og komu við daginn eftir hjá Ólafi Eggertssyni á Þorvaldseyri þar sem þeim þótti mikið til safnsins um Eyjafjallajökulsgosið koma.
18.4.2012 
Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi á Fljótsdalshéraði og eigandi fyrirtækisins Móðir jörð ehf., er meðal þeirra ellefu sem tilnefndir eru til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Jens-Kjeld Jensen frá Færeyjum er einnig tilnefndur í sama flokki en þeir þykja með grasrótarstarfi sínu hafa unnið að því að varðveita fjölbreytileika náttúrunnar í nærumhverfi sínu.
18.4.2012 
Fyrirtækið Icelandic Byproducts ehf. á Húsavík er í eigu Norðlenska, en var stofnað í samvinnu við írska fyrirtækið Irish Casings árið 2010 til vinnslu á görnum og vömbum til útflutnings. Reynir Eiríksson, framleiðslustjóri hjá Norðlenska, segir að reksturinn hafi gengið vel en megin vinnslan fari fram samhliða sláturtíðinni á haustin. „Við fluttum út 164 tonn af vömbum í fyrra og 267 þúsund garnir.“
17.4.2012 
Áburðarinnflytjendum og áburðarframleiðendum verður skylt að leggja fram vottorð um kadmíuminnihald hverrar áburðartegundar fyrir innflutning eða markaðssetningu ef frumvarp til laga um breytingar á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mælir fyrir á Alþingi í dag nær fram að ganga.
16.4.2012 
Á Flúðum eru ræktaðir Flúða­sveppir, sem flestir Íslendingar munu þekkja. Lengi vel hefur þar verið eini sveppabúskapurinn á landinu – hjá samnefnu fyrirtæki. Fæstir setja sveppi í samhengi við uppsprettu D-vítamíns, en það er ástæða til að fara endurskoða það.
16.4.2012 
Á dögunum var haldið málþing um heilsutengda lífstílsferðaþjónustu hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands um ofþyngd unglinga og sérúrræði á Íslandi. Rætt var um stofnun meðferðarþjónustu hérlendis ætlaða erlendum unglingum sem eiga við ofþyngd að stríða. Meðal frummælenda var Arnheiður Hjörleifsdóttir, umhverfisfræðingur og bóndi á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, sem kom fram með hugleiðingar ferðaþjónustubóndans.
13.4.2012 
Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á síðasta ári nam tæpum 2,5 milljörðum króna. Rekstarhagnaður móðurfélagsins fyrir fjármagnsliði var 931 milljón króna. Eignir KS nema 29.360 milljónum króna og eigið fé fyrirtækisins er 17.800 milljónir króna. Meðal fyrirtækja sem eru í samstæðunni eru Fóðurblandan og Fisk-Seafood.
13.4.2012 
Mjólkurpökkun verður hætt í Reykjavík og hún flutt á Selfoss á næstu mánuðum. Ástæðan er sú að framundan er endurnýjun á pökkunarlínum mjólkur sem gera það að verkum að hægt verður að fækka þeim úr þremur í eina. Þar með skapast tækifæri til að nýta starfsstöð Mjólkursamsölunnar (MS) á Selfossi til pökkunar en nýta húsnæði fyrirtækisins á Bitruhálsi í Reykjavík til annars, einkum birgðahalds og sem dreifingarmiðstöðvar auk þess sem tæki til ostapökkunar verða endurnýjuð þar. Kostnaður við breytingar hleypur á bilinu 1,5 til 2 milljarðar króna.
13.4.2012 
Íslenskt lambakjöt er selt á sama verði og annað innflutt lambakjöt í Noregi, sem og norskt lambakjöt. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar var rætt við Ole Førre Skogstø, vörustjóra Rema 1000, sem er ein stærsta verslunarkeðja Noregs. Í samtali við fréttamann Stöðvar 2 sagði Skogstø jafnframt að frosin lambalæri væru sett á sérstök tilboð fyrir páskahelgina og þannig notuð til að laða að viðskiptavini. Þetta er í samræmi við þær ályktanir sem forsvarsmenn bænda og sláturleyfishafa drógu eftir að umræða um verðlag á íslensku lambakjöti fór af stað í fjölmiðlum í síðustu viku.
12.4.2012 
Fóðurblandan hyggst hækka verð á kjarnfóðri frá fyrirtækinu og tekur hækkunin gildi næstkomandi mánudag. Allt kjarnfóður mun hækka og er hækkunin á bilinu 2 til 8 prósent misjafnt eftir tegundum. Ástæðan er sögð vera hækkun á hráefnum erlendis og veiking íslensku krónunnar.
11.4.2012 
Blíða í Flatey á Mýrum er afurðahæsta kýr landsins síðustu tólf mánuði samkvæmt niðurstöðum afurðaskýrsluhalds nautgriparæktarinnar við lok marsmánuðar. Blíða mjólkaði 12.689 kg og er þetta þriðji mánuðurinn í röð þar sem hún er afurðahæsta kýr landsins. Hæsta meðalnyt á sama tímabili var á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði en þar skilaði árskúin 7.923 kg.
10.4.2012 
Íslendingurinn Guðni Ölversson sem búsettur er í Noregi greindi frá því á Facebook síðu sinn að hann hefði fyrir páskana keypt íslenskt lambalæri á tilboði í verslun þar úti. Lærið kostaði þar 58 norskar krónur á kíló sem Guðni útleggur sem rúmar 1.000 krónur íslenskar. Miðað við gengi norsku krónunnar í dag, 22,12, er kílóverðið hins vegar 1.284 íslenskar krónur. Guðni þakkar íslenskum skattborgurum fyrir að niðurgreiða fyrir sig lambakjötið sem hann kaupi í Noregi. DV gerir málinu svo skil á vef sínum og visir.is einnig auk þess sem rætt var við Guðni á Bylgjunni.
4.4.2012 
Fátt er vinsælla umfjöllunarefni á Íslandi en veðrið. Páskahret er nokkuð sem afar margir ganga út frá sem ófrávíkjanlegri staðreynd, þó páskar falli aldrei á nákvæmlega sama tíma frá ári til árs. Þó páskahretin eigi sér djúpar rætur í þjóðarsálinni er samt staðreynd að ekkert alvöru hret hefur komið um páska síðan 1996 og verður varla heldur í ár, samkvæmt gögnum Veðurstofu Íslands.
3.4.2012 
Í uppgjöri ársins 2011, um mjólkurframleiðslu kúabúa með mjaltaþjóna, kemur í ljós að hlutfall mjólkur frá slíkum búum er það hæsta í heiminum. Alls voru um áramótin 101 kúabú með mjaltaþjóna á Íslandi og sum þeirra með fleiri en einn, enda heildarfjöldi þeirra 120.
3.4.2012 
Á aðalfundi Norðlenska sem haldinn var í gær var ákveðið að fyrirtækið greiddi eiganda sínum, einkahlutafélaginu Búsæld, arð upp á 66 milljónir króna. Er þetta í fyrsta skipti sem fyrirtækið greiðir út arð. Hagnaður síðasta árs var 291 milljón króna, 120 milljónum hærri í krónutölu en árið 2010. Velta fyrirtækisins jókst um 10 prósent milli ára.
2.4.2012 
„Ég hef fengið góðar viðtökur,“ segir Kristinn Árnason í Hrísey, sem kynnt hefur þá hugmynd sína að setja upp ræktun á íslenskum landnámshænum og hefja eggjaframleiðslu í húsnæði sem Svínaræktarfélag Íslands á í Hrísey. Kristinn kynnti hugmyndina á Atvinnu- og nýsköpunarhelgi sem haldin var á Akureyri á dögunum og eins hefur hann rætt málið við ráðunaut hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar.
30.3.2012 
Í lok málþings um sauðfjárræktina sem haldið var að loknum aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda voru afhent verðlaun fyrir besta lambhrútinn og besta kynbótahrútinn á síðasta ári. Jón Viðar Jónmundsson lýsti verðlaunahrútunum en besti lamhrúturinn (lambafaðirinn) 2010-2011 var Gosi frá Ytri-Skógum sem er í eigu Sigurðar Sigurjónssonar bónda. Besti alhliða fullorðni hrúturinn var Bogi frá Heydalsá í Steingrímsfirði sem er í eigu Ragnars Bragasonar.
30.3.2012 
Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda 2012 er lokið og er Þórarinn Ingi Pétursson á Grýtubakka tekinn við sem nýr formaður samtakanna. Með honum í stjórn munu starfa næsta árið þau Einar Ófeigur Björnsson í Lóni, mótframbjóðandi Þórarins í formannskjöri og varamaður í fyrri stjórn og Oddný Steina Valsdóttir í Butru, sem líka svar líka varamaður í fyrri stjórn. Þá verða þeir Helgi Haukur Hauksson í Straumi og Jóhann Ragnarsson í Laxárdal áfram aðalmenn í stjórn eins og síðast.
30.3.2012 
Þórarinn Ingi Pétursson á Grýtubakka í Grýtubakkahreppi var kosinn nýr formaður Landssamtaka Sauðfjárbænda (LS) á aðalfundi samtakanna sem nú stendur yfir. Hann tekur við embættinu af Sindra Sigurgeirssyni sem gaf ekki kost á sér að nýju.
29.3.2012 
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda hófst í morgun í Bændahöllinni þar sem fjölmörg mál eru á dagskrá sem snúa meðal annars að búvörusamningum, landnýtingu, rannsóknum í sauðfjárrækt og kjaramálum svo fátt eitt sé nefnt. Sindri Sigurgeirsson, formaður LS, hefur ákveðið að stíga til hliðar en í setningarræðu sinni beindi hann því til félagsmanna sinna að þó að íslenska landbúnaðarkerfið væri á stundum gagnrýnt þá væri mikilvægt að hlusta á önnur sjónarmið þó að menn væru ekki alltaf sammála þeim.
29.3.2012 
Á forsíðu Bændablaðsins sem kom út í morgun er fjallað um ályktun aðalfundur Landssambands kúabænda (LK), um síðustu helgi, um eflingu ræktunar íslenska kúastofnsins.  Það sem vekur ekki síst athygli í ályktuninni er að þar er samþykkt að unnin verði áætlun um innskot annars erfðaefnis í íslenska kúastofninn til að hraða framförum í þeim erfðaþáttum sem litlar framfarir hafi náðst í.
28.3.2012 
Það er óhætt að segja að Sveinbjörn Benediktsson á Brúnavöllum í Austur-Landeyjum sé einn af stórauglýsendum Bændablaðsins þegar kemur að smáauglýsingum. Varla líður það tölublað að ekki birtist smáauglýsing frá Sveinbirni sem hefur allt milli himins og jarðar til sölu. Hann segist þó taka í umboðssölu fyrir vini og vandamenn og fullyrðir að Bændablaðið sé besti auglýsingamiðill landsins.
26.3.2012 
Mysuklakinn Íslandus var valinn vistvænasta og vænlegasta nýsköpunarhugmynd Íslands á matvælasviði í nemendakeppni sem haldin var í síðustu viku. Mysuklakinn, sem er með beina vísun til lífshlaups Sölva Helgasonar, var ásamt fleiri vörum borinn á borð fyrir gesti og gangandi á sýningu í Listaháskólanum um helgina.
26.3.2012 
Sigurður Loftsson var sl. laugardag endurkjörinn formaður Landssambands kúabænda með 35 atkvæðum. Tveir seðlar voru auðir og eitt atkvæði féll öðrum í skaut. Sigurður hefur gengt formennsku í LK frá árinu 2009 þegar hann bar sigurorð af Sigurgeiri Hreinssyni.
23.3.2012 
Mögulega verður starfsstöðvum Landbúnaðarháskólans (LBHÍ) á Reykjum í Ölfusi og í Keldnaholti í Reykjavík lokað vegna erfiðrar fjárhagsstöðu skólans. Á Reykjum fer fram nálega öll kennsla við starfsmenntanám í garðyrkju og skógrækt en í Keldnaholti er aðalsetur rannsókna skólans. Ef ekki fæst fram viðunandi lausn í samvinnu við ríkisvaldið hvað varðar fjárframlög til skólans og uppgjör á uppsöfnuðum innri halla hans blasir ekkert annað við en að loka starfsstöðvum, draga þar með úr innritun nemenda og segja upp starfsfólki segir Ágúst Sigurðsson rektor skólans.
23.3.2012 
Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við rekstur Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) í nýrri skýrslu um fjármálastjórn skólans. Frá stofnun skólans 2005, með sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskóla ríkisins, hafa heildarskuldir skólans fimmfaldast og eru nú 739 milljónir. Bent er á að forstöðumaður fari með ábyrgð á rekstri skólans og mennta- og menningarmálaráðuneytisins sé að tryggja að rekstrarforsendur séu raunhæfar og beitt sé aga í fjármálum. Þá þurfi ráðuneytið að ákveða hvernig farið verði með uppsafnaðan halla í samstarfi við stjórnendur skólans og fjármálaráðuneytið.
23.3.2012 
Nýverið útnefndi tímaritið Reykjavík Grapevine Skyrkonfektið frá Rjómabúinu á Erpsstöðum í Dölum vöru ársins. Að sögn Þorgríms Einars Guðbjartssonar mjólkurfræðings og bónda að Erpsstöðum er viðurkenningin ánægjuleg og segir hann það hafa komið mest á óvart í ferlinu hversu hrifnir erlendir ferðamenn eru af konfektspenanum góða.
23.3.2012 
Aðalfundur Landssambands kúabænda (LK) hófst klukkan 10.00 í morgun á Hótel Selfossi. Sigurður Loftsson formaður sambandsins setti fundinn og má nálgast ræðu hans á síðu sambandsins, naut.is. Sigurður kynnti sömuleiðis skýrslu stjórnar. Nú standa yfir ávörp gesta og umræður um skýrslu stjórnar.
22.3.2012 
Tengivagn aftan úr fóðurflutningabíl frá Líflandi fór á hliðina rétt í þessu á hringtorgi sem er á Suðurlandsvegi rétt austan við Reykjavík. Bíllinn sjálfur stóð á hjólunum en vagninn lá á hliðinni að sögn Freys Rögnvaldssonar blaðamanns Bændablaðsins sem átti þar leið um. Lögregla var á staðnum og vísaði umferð um hjáleið.
22.3.2012 
Norðurlandaráð fundar í Bændahöllinni þessa dagana. Á dagskrá fundarins eru m.a. umræður um fæðuöryggi og málefni norðurslóða. Í grein sem birtist í prentmiðlum í dag eftir Ann-Kristine Johansson og Jan-Erik Enestam sem sitja í umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs, kemur fram að Steingrímur J. Sigfússon muni koma á fund nefndarinnar til þess að lýsa því hvernig ...
20.3.2012 
Varmadælur sem orkugjafar til húshitunar og nýting þeirra á svæðum landsins þar sem hitaveita er ekki til staðar, verða kynntar á ráðstefnu fimmtudaginn 22. mars. Að ráðstefnunni stendur Lagnafélag Íslands í samvinnu við Iðu fræðslusetur, Félag pípulagningameistara, Mannvirkjastofnun, Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands.
20.3.2012 
Í tilefni Hönnunarmars verður opnuð sýning á verkefninu “Stefnumót hönnuða og bænda”, þriðjudaginn 20. mars á Klapparstíg 33 í Reykjavík. Stefnumót hönnuða og bænda stóð yfir í fjögur ár og er þetta í fyrsta sinn sem verkefnið er kynnt í heild sinni. Af sama tilefni mun einnig verða opnuð heimasíða verkefnisins ...
19.3.2012 
Sérákvæði um starfandi sorpbrennslustöðvar hafa verið felld úr gilgi með breytingu á reglugerð um brennslu úrgangs, en hún felur í sér að allar sorpbrennslustöðvar skuli uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.
15.3.2012 
Á forsíðu nýs Bændablaðs er sagt frá því að í lok ráðunautafundar, sem haldinn var í Bændahöllinni í síðustu viku, hafi verið haldin athyglisverð ráðstefna um orkunotkun í íslenskum landbúnaði og þau tækifæri sem geta leynst í orkubúskap á íslenskum bújörðum. Þar kom fram, í erindi Ágústu Loftsdóttur hjá Orkustofnun á Akureyri, að verulega hallar á landsbyggðina hvað varðar orkukostnað við húshitun.
14.3.2012 
Um þessar mundir eru tveir og hálfur mánuður liðinn síðan reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla og fóðurs tók að fullu gildi hér á landi.  Þann 1. september sl. tók fóðurhluti reglugerðarinnar gildi og um sl. áramót ákvæði um matvæli. Í óformlegri könnun Bændablaðisins kemur í ljós að reglum um merkingar erfðabreyttra matvara er ekki framfylgt.
14.3.2012 
Félagssýning Textílfélags Íslands er nú haldin á Korpúlfsstöðum en 38 textílkonur sýna verk sín þar sem nútíminn mætir þjóðlegum blæ í einum skemmtilegasta sýningarsal landsins sem hýsti í byrjun síðustu aldar stærsta mjólkurbú landsins. Þóra Björk Schram og María Valsdóttir, textílkonur og meðlimir í félaginu, tóku á móti blaðamanni Bændablaðsins og leiddu í gegnum salarkynnin.
13.3.2012 
Ráðstefna um búorku og möguleika landbúnaðarins í orkuframleiðslu framtíðarinnar var haldin á Hótel Sögu föstudaginn 9. mars sl. Á ráðstefnunni voru haldin fjölbreytt erindi en glærur flestra fyrirlesaranna eru aðgengilegar á vef Bændasamtakanna með því að smella hér.
12.3.2012 
Á aðalfundi Dýraverndarsambandsins í Norræna húsinu sl. laugardag var dýralæknirinn Sif Traustadóttir kjörin nýr formaður félagsins til næstu tveggja ára. Hún tekur við af Ólafi Dýrmundssyni sem hefur gegnt embættinu frá því í mars 2008. Sif hlaut 105 atkvæði en Árni Stefán Árnason, mótframbjóðandi hennar, 29 atkvæði.
12.3.2012 
Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna var haldin um helgina og bar Elmar Sveinsson frá Norðlenska matborðinu sigur úr býtum og var krýndur Kjötmeistari Íslands árið 2012. Hann hlaut flest stig samanlagt úr fimm stigahæstu vörum sínum.
8.3.2012 
Fulltrúar Sambands garðyrkjumanna, Sölufélags garðyrkjumanna, Bláskógarhrepps og Hrunamannahrepps undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um skoðun á möguleikum þess að reisa eigin dreifiveitu rafmagns fyrir garðyrkjubændur á Flúðum, Reykholti og í Laugarási.
8.3.2012 
Stjórn Auðhumlu hefur tekið ákvörðun um hækkun á gjaldi fyrir mjólkurflutninga frá 1. mars sl. Gjaldið fer úr 2,50 kr. á lítra í 2,90 kr. fyrir félagsmenn Auðhumlu en þeir sem standa utan félagsins greiða 3,50 kr. á lítra. Hækkunin er 16 prósent en síðast hækkaði gjald fyrir mjólkurflutninga í árslok 2008. Þá ákvað stjórnin jafnframt verð fyrir umframmjólk frá sama tíma og var það ákveðið 42 kr. á lítra. Það er lækkun um 8 kr. á lítra.
7.3.2012 
Gistinætur á hótelum í janúar voru 71.600 samanborið við 53.600 í janúar 2011. Þetta er enn ein staðfestingin á þeim stöðuga vexti sem verið hefur í ferðaþjónustunni. Gistinætur erlendra gesta voru um 81% af heildarfjölda gistinátta í janúar en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við janúar 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 21%.
7.3.2012 
Stjórn Norðlenska hefur ákveðið að greiða bændum 2,20% uppbót á allt innlegg ársins 2011. Uppbótin verður greidd út í næstu viku, alls um 33 milljónir króna án virðisaukaskatts. Þetta á við um allar búgreinar þannig að allir bændur sem leggja inn hjá Norðlenska fá greitt.
7.3.2012 
Stjórn SS hefur ákveðið að greiða bændum 2,15% uppbót á afurðaverð allra kjöttegunda fyrir árið 2011. Uppbótin verður greidd inn á bankareikninga bænda 12. mars næstkomandi.
6.3.2012 
Hvers virði eru vatnsréttindi til orkuöflunar? Þetta er yfirskrift málþings sem Auðlindaréttarstofnun Háskólans í Reykjavík og Draupnir lögmannsþjónusta standa fyrir í dómssal á 1. hæð HR, fimmtudaginn 15. mars nk. kl. 15-17.
5.3.2012 
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2011. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
5.3.2012 
Þriðjudaginn 6. mars næstkomandi verða þeir Vigfús Eyjólfsson og Böðvar Þórisson með erindi um rannsóknir sínar á sandlóunni. Þeir munu segja frá merkingum í Bolungarvík, Önundarfirði og á Stokkseyri og hvernig endurheimtur og aflestrar af litmerktum fuglum hérlendis og erlendis hafa varpað ljósi á ferðir, stofnstærð, útbreiðslu, varpárangur og fjölmargt annað í lifnaðarháttum þessa smávaxna og kvika vaðfugls, ...
2.3.2012 
Skógræktargeirinn á Íslandi, þar á meðal Skógrækt ríkisins, hefur farið fram á að málefni greinarinnar verði flutt að öllu leyti undir nýtt atvinnuvegaráðuneyti þegar til stofnunar þess kemur. Forsvarsfólk greinarinnar hefur sent ráðherranefnd um endurskipulagningu stjórnarráðsins erindi þessa efnis.
2.3.2012 
Frumkvöðlarnir Björn Steinar Jónsson, Garðar Stefánsson og Yngvi Eiríksson hófu framleiðslu á kristalsjávarsalti á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi á síðasta sumri og hafa viðtökurnar verið framar vonum. Við framleiðsluna nota þeir aldagamla íslenska vinnsluaðferð en sérstaða vörunnar er hreinleiki hins glitrandi hvíta flögusalts.
1.3.2012 
Búnaðarþingi 2012 lauk í gærkvöldi á ellefta tímanum. Meðal helstu mála þingsins voru sameining leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði. Samþykktu búnaðarþingsfulltrúar að sameina eigi ráðgjafarstarfsemi búnaðarsambandanna og Bændasamtaka Íslands í eina rekstrareiningu. Sú vinna mun hefjast á næstu misserum.
1.3.2012 
Nýtt Bændablað var gefið út í morgun og í forsíðufrétt er sagt frá áhuga Kínverja á samstarfi við Hafberg Þórisson, sem rekur garðyrkjustöðina Lambhaga í útjaðri Reykjavíkurborgar. Komu Kínverjarnir í heimsókn á dögunum og var blaðamaður á staðnum. 
29.2.2012 
Stjórnvöld eiga tafarlaust að setja fram samningsmarkmið sem vernda með skýrum hætti hagsmuni íslensks landbúnaðar í samningaviðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í því samhengi er þess krafist að varnarlínur þær sem Bændasamtökin hafa sett fram vegna aðildarumsóknarinnar verði að fullu virtar. Þetta er inntak ályktunar um aðildarviðræðurnar sem samþykkt var á búnaðarþingi nú rétt í þessu.
29.2.2012 
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda fór fram í vikunni og kom þar fram að afkoma sjóðsins hafi verið góð á síðasta ári og að bjartar horfur væru framundan. Eignasafnið er traust, hrein eign  23,8 milljarðar og aukin áhersla hefur verið lögð á greiningu á fjárhagslegri stöðu við fjárfestingar en ekki eingöngu horft til væntrar ávöxtunar.
28.2.2012 
Kanna á kosti þess og galla að sameina starfsemi við kúasæðingar yfir landið allt. Þetta var samþykkt á búnaðarþingi nú rétt í þessu. Eins og staðan er nú eru kúasæðingar á höndum búnaðarsambanda út um landið og gjaldskrár mismunandi eftir svæðum. Markmiðið með hugsanlegri sameiningu væri að sama gjaldskrá myndi gilda um land allt.
28.2.2012 
Búnaðarþing samþykkti rétt í þessu ályktun þar sem öllum þeim sem komu íbúum á Suðurlandi til aðstoðar þegar þeir börðust við afleiðingar eldgosa eru sendar bestu þakkir. Ályktunin, sem samþykkt var samhljóða með einni umræðu, er svohljóðandi:
28.2.2012 
Nauðsynlegt er að jafna að fullu flutnings- og dreifingarkostnað raforku fyrir alla notendur, hvar sem þeir eru búsettir á landinu. Stóriðjan yrði þó undanskilin í þessum efnum. Það verði gert með sameiningu flutninga- og dreifikerfa raforku í eina heild með einni gjaldskrá að því er fram kemur í drögum að ályktun sem er til umræðu á búnaðarþingi.
28.2.2012 
Búnaðarþing 2012 samþykkti rétt í þessu ályktun um nauðsyn þess að lækka eldsneytisverð. Það verði gert með því að dregið verði úr skattlagningu á eldsneyti en að mati búnaðarþings kemur hækkun eldsneytisverðs undanfarinna ára hvað harðast niður á íbúum landsbyggðarinnar. Senda á ályktunina til fjármálráðuneytis og þingnefnda ásamt því að ýta á eftir málinu við stjórnvöld með öðrum leiðum.
28.2.2012 
Nauðsynlegt er að freista þess að byggja upp traust á eftirlitsaðilum á nýjan leik eftir þau fjölmörgu vandræðamála sem upp hafa komið síðustu misseri. Fara verður yfir fyrirkomulag og stjórnsýslu opinberra stofnana sem annast eftirlit með landbúnaði, aðföngum og afurðum. Þetta er megininntak tillögu að ályktun um eftirlit í landbúnaði sem liggur fyrir búnaðarþingi.
28.2.2012 
Fyrir Búnaðarþingi liggja nú drög að ályktun þar sem lagt er til að sveitarfélögum og einstaklingum verði gert mögulegt að skrá tvöfalda búsetu. Er það lagt til með það að markmiði að skatttekjur skili sér til sveitarfélaga í eðlilegra hlutfalli.
27.2.2012 
Formaður Bændasamtakanna, Haraldur Benediktsson flutti í morgun skýrslu um störf stjórnar samtakanna á liðnu ári. Fór hann yfir sviðið í stórum dráttum um þau mál sem hæst hafa borið í starfinu. Nú standa yfir almennar umræður og hefur fyrirferðarmesta málið verið tillögur um breytingar á framtíðarskipulagi leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði.
27.2.2012 
Bændasamtökin gera alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi umhverfisráðherra um breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í umsögn samtakanna um frumvarpsdrögin kemur fram að allar athugasemdir og ábendingar Bændasamtakanna hafi hingað til verið hunsaðar. Þá leggjast samtökin gegn öllum fyrirætlunum um breytingar á ákvæðum laganna um hlunnindanýtingu.
26.2.2012 
Búnaðarþing 2012 var sett við hátíðlega athöfn í Súlnasal Bændahallarinnar í dag. Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands setti þingið með hátíðarræðu, Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpaði þingið og veitti jafnframt landbúnaðarverðlaun ársins 2012.
24.2.2012 
Hafið er átak til atvinnusköpunar, á vegum samtaka atvinnurekenda, launþega, sveitarfélaga og ríkisins, sem miðar að því að fjölga störfum og fækka atvinnulausum. Með þátttöku í átakinu, sem kallast „Vinnandi vegur“, eiga atvinnurekendur kost á styrk vegna ráðninga nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda – og má ætla að íslensk býli geti notið góðs af því ...
22.2.2012 
Búnaðarþing 2012 verður sett sunnudaginn 26. febrúar næstkomandi. Fjöldi mála liggur fyrir þinginu í ár en ekki er ólíklegt að eitt af fyrirferðarmestu málunum verði tillaga um endurskipulagningu ráðgjafarþjónustu í landbúnaði, sem unnið hefur verið að frá síðasta búnaðarþingi. Hér á eftir verður tæpt á nokkrum þeirra mála sem liggja fyrir þinginu.
21.2.2012 
Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, kom til viðtals hjá Þóru Arnórsdóttur í Kastljósinu í gær 20. febrúar og lét í ljós áhyggjur garðyrkjubænda vegna hins háa raforkukostnaðar.
20.2.2012 
Hjá Merkurbúinu sf., sem er félagsbú í Stóru-Mörk undir norðvestanverðum Eyjafjöllum, eru nú um 83 kýr og þar af um 75 mjólkandi auk þess sem öll naut eru sett á. Talið er, að á dögunum hafi met verið slegið í afköstum á einn mjaltaþjón þegar um 1.650 lítrar fengust á einum sólarhring.
19.2.2012 
Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, hlaut Safnasafnið á Svalbarðsströnd um helgina við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Safnasafnið – Alþýðulistsafn Íslands stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar.
17.2.2012 

Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, segir að þar á bæ sé nú unnið á fullu við að koma áfram átaksverkefni Bændasamtaka Íslands (BÍ) og Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) um orkumál landbúnaðarins.
„Við viljum gera þorpið á Hvanneyri sjálfbært um orku og nýta þá það sem til fellur á búinu til orkuframleiðslu. Einnig að slík uppbygging verði nýtt til að stunda hér rannsóknir í þessum fræðum og kennslu. Þannig verði hér til sýnishorn þess sem hægt er að gera í orkumálum í íslenskum landbúnaði."
16.2.2012 
Bændur hafa verulegar áhyggjur af kali á komandi vori. Á það við víða um Norður- og Austurland. Í Árneshreppi eru bændur t.a.m. orðnir mjög uggandi yfir kali í vor. Mikil svellalög eru á túnum og hafa verið meira og minna frá því í haust.
15.2.2012 
Matvælastofnun (MAST) var ekki heimilt að tilkynna strax um of hátt kadmíngildi í áburði í vor, þegar niðurstöður sýnatöku lágu fyrir og að liðnum andmælarétti, þar sem ekki var talið að það hefði í för með sér áhættu fyrir heilbrigði manna eða dýra.  Þetta kom fram í erindi Valgeirs Bjarnason, sérfræðings hjá MAST, sem fjallaði um áburðareftir­lit Matvælastofnunar á Fræðslufundi MAST ...
15.2.2012 
Kryddilminn leggur yfir Skerjafjörðinn þar sem blandaðar eru Bezt á-kryddblöndurnar fyrir kjöt og fisk í gömlu hverfisversluninni Skerjaveri. Á átta árum hafa Hjördís Andrésdóttir og Stefán Halldórsson maður hennar komið jafnmörgum kryddblöndum á markað og krydda að auki tilveru Færeyinga með vörum sínum.
14.2.2012 
Nýlega var opnuð sýningin Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur á þriðju hæð Þjóðminjasafns Íslands. Magnea Þorkelsdóttir, biskupsfrú, var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði meðal annars fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína en á sýningunni má sjá valda búninga úr safni fjölskyldunnar.
13.2.2012 
Framleiðsla á kjöti í janúar var 1.731 tonn, 24,6% meiri en í sama mánuði í fyrra. Mest munar þar um aukna framleiðslu alifuglakjöts 134,7 tonn og mikla slátrun hrossa, en í janúar 2011 nam hrossaslátrun 82,2 tonnum. Aukningin er því 122 tonn.
10.2.2012 
Fóðurblandan hefur gefið út áburðarverðskrá fyrir árið 2012. Áður höfðu Sláturfélag Suðurlands og Skeljungur gefið út sínar verðskrár og er því Búvís eina fyrirtækið af stóru áburðarinnflytjendunum sem á eftir að birta sína verðskrá. Verðskrár eru nokkru fyrr á ferðinni í ár en verið hefur undanfarin ár. Bændur hafa kallað eftir því að útgáfa verðskráa verði flýtt og við því hafa fyrirtækin nú brugðist.
9.2.2012 
„Við erum kannski ekki alveg að byrja að selja þetta fóður núna  –  þetta hefur verið tilraunaverkefni hjá okkur sl. fimm ár,“ segir Arnar Bjarni Eiríksson, framkvæmdastjóri Landstólpa, um nýjar fóðurblöndur sem þeir kynntu formlega á baksíðu síðasta Bændablaðs.
9.2.2012 
Skeljungur birti í gær áburðaverðlista fyrir árið 2012. Er fyrirtækið þar með annað stóru áburðarsalanna fjögurra til að birta verðlista en áður hafði Sláturfélag Suðurlands (SS) birt verðlista. Almennt hækkar áburður Skeljungs um á bilinu 3 til 9 prósent.
8.2.2012 
Matvælastofnun (MAST) stendur fyrir fræðslufundi í dag klukkan 15:00 um eftirlit með áburði í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Er áætlað að fundurinn standi til 16:30 og hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vef Matvælastofnunar undir...
8.2.2012 
Umhverfisstofnun og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem inniber að stofnanirnar hyggist efla með sér samstarf varðandi fræðslu og menntun á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Stofnanirnar munu vinna saman að þróun menntunar, endurmenntunar og þekkingar landvarða.
7.2.2012 
Sprotafyrirtækið Metanorka ehf. vinnur nú að kortlagningu á helstu svæðum sem hentað geta til metanvinnslu á landinu. Áður hefur verið safnað saman heildarupplýsingum um stór landsvæði en nú er athyglinni beint að þeim stöðum þar sem mikið fellur til af lífrænu hráefni. Dæmi um slíka staði eru landsvæði með um 10 km radíus þar sem finna má eitthvað af eftirtöldu; nokkur stór kúabú, kjúklingabú, svínabú, fiskvinnslu, sláturhús, mjólkurvinnslu, matvælaframleiðslu í stórum stíl og möguleika á ræktun orkuplantna til að auka á framleiðsluna.
6.2.2012 
Hættulegasti vegarkafli landsins er vegurinn milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar. Þar urðu á árabilinu 2007-2010 að meðalatali 1,63 slys á hvern kílómetra leiðarinnar og 1,68 slys á hverja milljón ekna kílómetra. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Þórodds Bjarnasonar prófessors við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og Sveins Arnarssonar meistaranema í félagsfræði við sama skóla, en rannsóknin birtist í nýjasta hefti Læknablaðsins.
6.2.2012 
Eyrarósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum laugardaginn 18. febrúar næstkomandi. Þrjú verkefni eru tilnefnd að þessu sinni, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, veitir verðlaunin.
6.2.2012 

Aðild Íslands að Evrópu-sambandinu (ESB) myndi hafa í för með sér umtalsverðan samdrátt í tekjum svínabænda. Gera má ráð fyrir að verð til bænda lækki um 39 % ef af aðild yrði. Þá má sömuleiðis gera ráð fyrir að hagnaður í svínarækt minnki um á bilinu 9 til 41% miðað við núverandi tekjur, þó að búið sé að gera ráð fyrir styrkjum og/eða mótvægisaðgerðum af svipuðu tagi og fengust við aðild Finna að ESB árið 1995.
3.2.2012 
Samkvæmt gögnum Umferðarstofu voru 50 dráttarvélar nýskráðar á síðasta ári. Er um nokkra aukningu að ræða í samanburði við árið 2010 en þá voru nýskráðar dráttarvélar 32 samkvæmt sömu gögnum. Þrátt fyrir aukningu milli ára er enn langt í land með að metárinu 2007 verði náð en það ár voru nýskráðar vélar 382 talsins. Sala dráttarvéla hrundi með efnahagshruninu í byrjun október 2008 en fram til október mánaðar það ár voru 123 vélar nýskráðar. Ellefu vélar voru nýskráðar í október, nóvember og desember 2011 og má gera ráð fyrir að flestar þeirra hafi þegar verið pantaðar. Allt árið 2009 voru hins vegar einungis 29 vélar skráðar.
2.2.2012 
Elvar Eyvindsson bóndi á Skíðbakka í Landeyjum og Þorbjörn A. Friðriksson uppfinningamaður og efnafræðingur, telja að hæglega megi framleiða með vistvænum hætti úr grasi og öðrum lífmassa og raforku allt eldsneyti fyrir Íslendinga um ókomna framtíð. Einnig áburð og fjölþætta efnaflóru fyrir iðnaðinn.
1.2.2012 
Fyrra ár reyndist því miður ekki riðulaust eins og talið var. Staðfest hefur verið að smitefni riðu hafi fundist í heilasýni úr einni kind frá bænum Merki á Jökuldal. Kindinni var slátrað á sláturhúsi í haust og því var síðasta ár ekki án riðutilfella eins og talið var. Riðan er af afbrigðinu NOR 98 og er þetta fjórði bærinn á Íslandi þar sem þetta afbrigði finnst.

31.1.2012 
Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári. Heimildirnar skiptast þannig að leyft verður að veiða 588 kýr alls og 421 tarfa.
27.1.2012 
Kynning á skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um stöðu og horfur í íslenskri svínarækt verður haldin þriðjudaginn 31. janúar 2012 kl. 13:30 í ESJU á 2 hæð Radisson SAS/Hótel Sögu.
26.1.2012 
Verðhækkanir á dagvörum undanfarin ár skýrast fyrst og fremst af ytri aðstæðum, s.s. af gengishruni krónunnar, en frá ársbyrjun 2006 til ársloka 2011 hækkaði verð á dagvörum um tæplega 60%. Verulegur munur er á verðþróun einstakra vöruflokka en sem dæmi um vörur sem hafa hækkað í verði á tímabilinu umfram hækkun á almennri dagvöruvísitölu ...
26.1.2012 
Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur birt áburðarverðskrá fyrir yfirstandandi ár, fyrst þeirra fyrirtækja sem flytja inn hefðbundinn áburð. Verðskráin er birt óvenju snemma þetta árið en bændur hafa ítrekað farið fram á að áburðarsalar birti verðskrár sínar fyrr en verið hefur undanfarin ár. Verð hækkar milli ára og er hækkun á algengum tegundum um tíu prósent.
25.1.2012 
Niðurstöður afurðaskýrslna í nautgriparæktinni fyrir árið 2011 hafa nú birst á nautgriparæktarsíðum bondi.is og má skoða þær nánar hér. Hæsta meðalnytin eftir reiknaða árskú á árinu, var í Hraunkoti í Landbroti, sem nú telst til Skaftárhrepps, 8.340 kg - nær óbreytt frá nóvemberlokum. Nythæsta kýrin á árinu 2011 var Týra nr. 120 í Hraunkoti í Skaftárhreppi, nyt hennar á þeim tíma var 12.144 kg.
24.1.2012 
Greint var frá frækilegu sundafreki svartrar kindar í jólablaði Austurgluggans í desember sl. og er því nánar lýst í nýjasta tölublaði Bændablaðsins Virðist þarna hafa verið um sannkallaða sækind að ræða en ærin, sem er frá bænum Selstöðum, synti þvert yfir fjörðinn og ríflega það í hörkufrosti og töluverðri kviku.
23.1.2012 
Samkvæmt landskönnun á mataræði Íslendinga sem framkvæmd var árin 2010 og 2011, af Matvælastofnun, Embætti landlæknis og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands, er neysla landsmanna að færast yfir í heilsusamlegri átt en áður. Landsmenn borða nú meira af grænmeti og ávöxtum ásamt grófu brauði og hafragraut og fleiri taka lýsi að jafnaði en fyrir tíu árum.
23.1.2012 
Árið 1986 voru samtökin Slow Food stofnuð í Piedmonte á Norður-Ítalíu. Um alþjóðleg samtök er að ræða sem leggja áherslu á fjölbreytta og sjálfbæra matarmenningu, en berjast gegn einhæfum verksmiðjubúskap og fákeppni í framleiðslu og dreifingu matvæla. Eins og nafnið ber með sér er Slow Food þannig stefnt gegn skyndibitanum (fast food) sem hefur rutt sér mjög til rúms á síðustu áratugum.
20.1.2012 
Talsverður munur er á innbyrðismati yfirkjötmatsmanna Matvælastofnunar (MAST) á lambaskrokkum. Þá er mat yfirkjötmatsmanna fjær meðalgildi erlendra sérfræðinga en meðaltalsmat kjötmatsmanna sláturhúsanna. Þetta kom í ljós í ytri úttekt á kjötmati lambaskrokka sem fram fór síðastliðið haust. Forsvarsmenn sláturleyfishafa lýsa áhyggjum vegna þessa og leggja áherslu á að nauðsyn þess að samræmi sé á milli í mati yfirkjötmatsmanna.
20.1.2012 
Jón Kristjánsson fiskifræðingur er síður en svo sammála þeim friðunaráformum á fimm tegundum sjófugla af svartfuglaætt, sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur boðað í samræmi við niðurstöður meirihluta starfshóps sem hún skipaði í september. Telur hann það andstætt öllum lögmálum náttúrunnar að ætla sér að byggja upp sveltandi stofn með friðun.
20.1.2012 
Veitingastaðurinn Grillið á Hótel Sögu hefur um árabil verið einn virtasti veitingastaður höfuðborgarinnar. Á bóndadaginn verður tekinn upp nýr matseðill þar sem höfuðáherslan er á íslenskt hráefni og að tengja matinn við upprunann.
19.1.2012 
Í nýju Bændablaðið er á forsíðu viðtal við Steingrím Jónsson, sem var bóndi í Efri-Engidal þegar upp komst um díoxínmengun í mjólk frá bænum. Hann segir niðurstöður úr beitartilraun Matvælastofnunar ekki breyta miklu fyrir hann að svo stöddu, hvað varðar endurreisn búskapar.
19.1.2012 
Í Bændablaðinu sem kom út í dag segir Gylfi Þ. Gunnarsson útgerðarmaður í Grímsey að einstaklega mikið sé af fugli í og við eyjuna og furðar hann sig á tillögum starfshóps sem umhverfisráðherra skipaði síðasta haust um verndun og endurreisn svarfuglastofna, en nefndin lagði til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir veiðum og nýtingu næstu fimm ár.
18.1.2012 
Steingrímur J. Sigfússon, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sömuleiðis efnahags- og viðskiptaráðherra segir að íslenskur landbúnaður hafi sannað gildi sitt í þeim efnahagslegu erfiðleikum sem Ísland hefur glímt við. Hann sé í sókn, m.a. sem útflutningsgrein og staða hans slái á það tuð sem hér hafi hljómað á árum áður um að landbúnaðurinn væri baggi á þjóðinni. Sterk staða landbúnaðarins geri málflutning hælbíta hans hjáróma.
16.1.2012 
Framleiðsla á kindakjöti jókst um 4,6 prósent á síðasta ári frá árinu 2010 á meðan að eilítið dró úr framleiðslu á nautakjöti eða um 0,9 prósent. Þá jókst framleiðsla á alifuglakjöti um tæp fimm prósent og en mest jókst framleiðsla á hrossakjöti eða um tíu prósent. Hrossakjöt er þó ennþá langminnstur hluti kjötmarkaðarins, rétt rúm þrjú prósent, en aðeins voru framleidd 878 tonn á síðasta ári. Þá dregur nokkuð úr framleiðslu á svínakjöti eða um 1,8 prósent.
16.1.2012 
Mjólkursamsalan (MS) hefur innkallað fimm vörutegundir sem innihalda iðnaðarsalt. MS sendi frá sér tilkynningu um málið í dag, sem er svo hljóðandi: „Salt sem notað er í vinnslu Mjólkursamsölunnar er vottað matvælasalt.  Ein af 6 vinnslustöðvum MS hefur undanfarið fengið afgreitt iðnaðarsalt, þrátt fyrir að hafa pantað matvælasalt.  Það var lítið brot af heildarsaltnotkun fyrirtækisins.
13.1.2012 
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í dag út reglugerð þar sem tekin eru af öll tvímæli um heimild Matvælastofnunar (MAST) til að birta með ótvíræðum hætti niðurstöður efnagreininga á áburði. Er um breytingu á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði, nr. 291/2010 að ræða. Með henni er MAST heimilt að birta niðurstöður úr áburðareftirliti þegar í ljóst kemur að áburður sé ekki í samræmi við vörulýsingu eða ekki í samræmi við ákvæði laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Þá er sömuleiðis heimilt að birta niðurstöður þegar þær leiða til þess að MAST gefi fyrir mæli um afmengun, takmörkun á framleiðslu eða markaðssetningu, leggi hald á áburð eða fer fram á förgun hans.
11.1.2012 
Um þessar mundir er um það bil ár síðan upp komst um díoxínmengun í mjólk frá bænum Efri-Engidal í Skutulsfirði. Í kjölfarið skipaði Matvælastofnun (MAST) sérfræðihóp til að meta áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Skutulsfirði. Hópurinn skilaði svo á vordögum skýrslu þar sem lagt var til að beitartilraun yrði gerð ...
11.1.2012 
Á síðasta ári var meðalframleiðsla á hvert mjólkurbú í sögulegu hámarki. Skýrist það af því að framleiðslan var óvenju mikil, auk þess sem framleiðendum hefur farið fækkandi.
10.1.2012 
Um þrjú þúsund kjúklingar drápust þegar flutningabíll sem flytja átti þá til slátrunar valt á Holtavörðuheiði. Kjúklingarnir drápust flestir vegna súrefnisskorts sem varð þegar flutningskassar sem þeir voru í lentu á hliðinni við veltuna auk þess sem vindkælingu var ekki lengur til að dreifa. Um 5.800 kjúklingar voru í bílnum.
6.1.2012 
Bæjarráð Hveragerðis lét bóka á fundi í gærmorgun að það undrast að ekki hafi verið leitað álits Hveragerðisbæjar við útgáfu starfsleyfis til handa Orf líftækni að Reykjum og telur að skilyrðislaust hefði átt að kynna þetta mál fyrir bæjarstjórn eða á opnum fundi með íbúum.
6.1.2012 
Ekkert riðuveiki tilfelli kom upp í sauðfé hér á landi á síðasta ári. Um talsverð tíðindi er að ræði enda er það í fyrsta skipti sem ekki greinist riða frá því að baráttan við veikina hófst fyrir alvöru fyrir liðlega þremur áratugum. Eitt tilfelli greindist árið 2010, tvö árið 2009 en árin þar á undan voru tilfellin alla jafna á bilinu fimm til tíu. Áður kom fyrir að riðutilfelli voru talin í tugum á ári. Þetta kemur fram að vef Matvælastofnunar (MAST).
5.1.2012 
Hlöðver Guðnason formaður formaður í Veiðfélagi Bjarnareyinga í Vestmannaeyjum segir einkennilegt að við skipun í nefnd ráherra hafi ekkert verið leitað til þeirra sem mesta þekkingu og reynslu hafa af veiðum á fugli og eggjatínslu. „Það er algjört glapræði af ráðherra að ætla sér að knýja þetta fram með þessum hætti og beita lögum til þess.“
4.1.2012 
Eins og fram hefur komið í fréttum síðasta sólarhring var tilbúnum áburði með of hátt gildi þungmálmsins kadmíums, allt að þreföldu yfir leyfilegum mörkum, dreift í verulegu magni víða um land síðastliðið vor og í byrjun sumars.
4.1.2012 
Skeljungur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna innflutnings á áburði á síðasta ári sem innihélt í sumum tilvikum yfir þrefalt meira magn af þungmálminum kadmíum en leyfilegt er hér á landi. Þar kemur fram að fyrirtækið telji sig hafa tryggt að slíkt muni ekki endurtaka sig en í yfirlýsingunni segir:
3.1.2012 
Áburði sem innihélt kadmíum þungmálm langt yfir leyfilegum mörkum var dreift í verulegu magni víða um land á síðastliðnu vori og sumri m.a. til landgræðslu. Matvælastofnun (MAST) sér um eftirlit og rannsóknir á innfluttum áburði og bannaði dreifingu á nokkrum tegundum í kjölfar sýnatöku sem átti sér stað í fyrravor. Gallinn var bara sá að MAST beið með að upplýsa um málið og bannið kom of seint þar sem verulegur hluti áburðarins var þá þegar farinn í dreifingu og notkun víða um land.
3.1.2012 
Mikill ágreiningur er um tillögur starfshóps sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í september sl. um verndun og endurreisn svartfuglastofna. Ekki var farin sú leið að semja við hlunnindabændur, heldur verður lögum væntanlega breytt og lögvarinn hlunnindaréttur bænda skertur til að koma tillögunum í gegn. Fulltrúi Bændasamtaka Íslands sagði sig frá tillögum starfshópsins eftir að tillögurnar voru frágengnar í hópnum og stendur því ekki að þeim.
3.1.2012 

Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í september sl. um verndun og endurreisn svartfuglastofna leggur m.a. til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin. Þetta kemur fram í skýrslu sem hópurinn hefur skilað af sér og umhverfisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun.

3.1.2012 
Þann 29. desember sl. var birt ný reglugerð um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda fyrir verðlagsárið 2012. Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verður 114,5 milljónir lítra, en var á síðasta ári 116 milljónir lítra.
2.1.2012 
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segist gera ráð fyrir því að Steingrímur J. Sigfússon, sem nýr ráðherra landbúnaðarmála, standi við samþykkt forvera síns á þeim varnarlínum sem Bændasamtökin hafa dregið upp varðandi aðildarviðræður að ESB.
2.1.2012 
G-20 ríkjahópurinn hefur í fyrsta sinn sent fá sér skammtímaspá um þróun landbúnaðar og hráefnismarkaða á milli áranna 2011 til 2012. Búist er við að landbúnaðarframleiðslan í Evrópu ýmist standi í stað eða dragist saman á nýja árinu.
30.12.2011 
Matvælastofnun beinir þeim tilmælum til bænda og annarra umráðamanna útigangshrossa að huga vel að þeim nú þegar víða eru jarðbönn. Nauðsynlegt sé að gefa útigangi við þessar aðstæður, sérstaklega fylfullum og/eða mjólkandi hryssum og ungviði.
30.12.2011 
Í gær, 29. desember, voru samningar undirritaðir milli Vegagerðarinnar og landshlutasamtaka á Vestur- og Norðurlandi, þess efnis að sveitarfélögin á þessum svæðum taki við skipulagningu almenningssamgangna á vestan- og norðanverðu landinu, sem ríkið hefur haft umsjón með. Munu samningarnir taka gildi frá og með nk. áramótum, en áður hefur ríkið gert sambærilega samninga við landshlutasamtök á Suðurlandi og Austurlandi.
29.12.2011 
Á vef Matvælastofnunar eru nokkur heilræði til dýraeigenda sem vert er að taka undir. Þar kemur fram að við hver áramót verði slys eða óhöpp sem rekja megi til ofsahræðslu dýra við flugelda og hávaðann frá þeim. Dýraeigendum er m.a. ráðlagt að halda dýrum innandyra þar sem því er við komið, draga fyrir glugga, hafa ljós kveikt og jafnvel hafa útvarp í gangi til að deifa áhrifin af sprengingunum.
29.12.2011 
Í síðasta mjólkursamningi var kveðið á um að hvetja til nýliðunar í stétt kúabænda með fjárframlagi til nýbýlinga. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og fulltrúar Bændasamtakanna og Landssambands kúabænda hafa nú undirritað viljayfirlýsingu um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna er kveðið á um stuðning við nýliðun í bændastétt.
28.12.2011 
Umhverfisverðlaun Eyjafjarðarsveitar árið 2011 voru afhent fyrir síðustu helgi og fór athöfnin fram á skrifstofu sveitarstjórnar á Hrafnagili. Verðlaunin að þessu sinni fengu íbúðarhúsið Breiðablik og Jólagarðurinn.
28.12.2011 
Hópur fólks, félaga og stofnana, gerir alvarlegar athugasemdir við leyfisveiting fyrir ræktun erfðabreyttra lífvera í tilraunagróðurhúsum Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) að Reykjum í Ölfusi að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Eru mótmælin sögð borin fram í kjölfar skoðunar hópsins á því hvaða áhrif leyfisveitingin gæti haft í för með sér og skoðunar á drögum að leyfisveitingu og hvernig málið hefur verið unnið af hálfu Umhverfisstofnunar.
28.12.2011 
Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur annað kvöld, 29. desember. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið.
27.12.2011 
Vegagerðin hefur haft í nógu að snúast það sem af er vetri að moka ösku úr Svaðbælisá undir Eyjafjöllum. Vinnunni er lokið í bili og velta menn nú fyrir sér hvort þörf sé á frekari aðgerðum til að ekki safnist undir brúargólfið sem myndi valda stórflóði og mikilli eyðileggingu á vegum og túnum í nágrenninu.
27.12.2011 
Kýrin Týra í Hraunkoti í Skaftárhreppi mjólkaði mest allra íslenskra kúa síðustu 12 mánuði, eða til loka nóvember, en nyt hennar er 12.554 kg sem er mjög gott en þó ekki Íslandsmet. Þá vekur athygli að önnur kýr í Hraunkoti, sem nefnist Fríða, er í fjórða sæti á listanum yfir nytjahæstu kýr landsins á þessu tímabili, með 12.073 kg.
24.12.2011 
Bændablaðið óskar lesendum sínum og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Blaðið er nú komið í jólafrí og verður næst gefið út þann 19. janúar á nýju ári. Uppfærslur á vefnum verða eftir atvikum á milli jóla og nýárs.
22.12.2011 
Kadmíuminnihald áburðar sem Skeljungur flytur inn undir nafninu Sprettur reyndist allt of hátt í áburðareftirliti Matvælastofnunar (MAST). Af þrettán sýnum sem tekin voru reyndist kadmíuminnihald of hátt í ellefu þeirra, eða í öllum þeim áburðartegundum sem innihéldu fosfór. Innihald kadmíums var í sumum tilfellum ríflega þrefalt meira en leyfilegt er. Ekki verður leyft að dreifa þessum áburðartegundum til notenda fyrr en að lokinni sýnatöku og efnagreiningum sem sýni að kadmíum innihald sé innan leyfðra marka.
22.12.2011 
Meistarafélag Kjötiðnaðarmanna (FMK) hefur undanfarin þrjú ár komið saman og úrbeinað hangikjöt sem framleiðendur hafa gefið til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Föstudaginn 16. desember sl. var enn efnt til slíks viðburðar og að þessu sinni fór úrbeiningin fram í húsnæði Hótel- og matvælaskólans í Kópavogi.
22.12.2011 
Hollvinir íslensku geitarinnar halda styrktartónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld, 22. desember klukkan 21.00 til styrktar Geitfjársetri Íslands á Háafelli í Hvítársíðu. Á tónleikunum koma fram tónlistarmenn sem vilja styðja við geitfjársetrið og starf þess en á Háafelli hefur Jóhanna B. Þorvaldsdóttir ásamt fjölskyldu sinni unnið ötullega að því að viðhalda íslenska geitfjárstofninum.
21.12.2011 
Aukin álagning verslana skýrir væntanlega að einhverju leyti mikla verðhækkun á jólamatnum segir verkefnisstjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins í frétt á vefsíðu RÚV. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu er ekki sama sinnis og segist „hafa heyrt“ annað, þ.e. að hækkanir komi frá framleiðendum.
21.12.2011 
Stjórn Hestamannafélagsins Funa hefur á nýjan leik sent frá sér tilkynningu vegna ákvörðunar stjórnar Landssambands hestamannafélaga (LH) um val á landsmótsstöðum fyrir árin 2014 og 2016. Bændablaðið birti í morgun fyrri yfirlýsingu Funa. Samkvæmt ákvörðun stjórnar mun landsmót 2014 fara fram á Gaddstaðaflötum en landsmót 2016 á Vindheimamelum. Stjórn Funa er afar ósátt við þær málalyktir en félagið lagði inn umsókn um að halda bæði mótin á Melgerðismelum. Í nýju yfirlýsingunni kemur fram að stjórn Funa geri alvarlegar athugsemdir við að ákveðið hafi verið að mótið 2016 skuli fara fram á Vindheimamelum en ekki hafi legið fyrir umsókn um mótið frá staðarhöldurum þar. Stjórnin hyggst senda málið til meðferðar hjá Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) á næstu dögum, enda séu vinnubrögð stjórnar LH greininni í heild til minnkunar, eins og segir í yfirlýsingu stjórnar Funa.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:
21.12.2011 
Samtök iðnaðarins krefjast þess í jólablaðinu Íslenskur iðnaður að fyrirtæki á fjármálamarkaði virði niðurstöður dómstóla og leiðrétti þegar í stað þúsundir ólöglega lánasamninga. Þrír samhljóða dómar hafi fallið um ólögmæti lánasamninga í erlendri mynt. Síðast hafi Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu þann 1. desember að fjármögnunarleigusamningar Lýsingar væru í raun lánasamningar og því væri gengistrygging þeirra ólögleg.
21.12.2011 
Hestamannafélagið Funi í Eyjafirði hefur sent frá sér tilkynningu þar sem ákvörðun stjórnar Landssambands hestamannafélaga (LH) um landsmótsstaði árin 2014 og 2016 er harðlega gagnrýnd. Funi sótti um að landsmót 2014 yrði haldið á Melgerðismelum í Eyjafirði en eins og kunnugt er ákvað stjórn LH að mótið þá skyldi fara fram á Gaddstaðaflötum við Hellu. Tilkynningin frá Funa fer hér á eftir:
21.12.2011 
Hagþjónusta landbúnaðarins verður lögð niður um komandi áramót. Er þetta gert í samræmi við lög nr. 74/2011 sem samþykkt voru í júní síðastliðnum en í þeim felst að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skuli hlutast til um hagþjónustu í landbúnaði og er honum heimilt að gera samning við Landbúnaðarháskóla Íslands eða aðra háskóla og Hagstofu Íslands eða aðra hæfa aðila um framkvæmd hagþjónustu við landbúnaðinn. Gerður hefur verið samningur við Landbúnaðháskólann um yfirtöku verkefna og munu eignir Hagþjónustunnar einnig færast til skólans.

20.12.2011 
Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsóknarflokksins lagði á dögunum fram fyrirspurn til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um ófærð á vegum. Í fyrirspurninni, sem Sigurður óskar eftir skriflegu svari við, er annars vegar spurt um hvaða fjallvegir eða vegkaflar hafi oftast orðið ófærir síðustu tvo mánuði ársins 2011 og þá hversu lengi það hafi staðið. Hins vegar spyr Sigurður um hvar hafi verið þörf á mestri þjónustu varðandi snjómokstur og hálkuvarnir.
20.12.2011 
Búið er að ákveða staðarval fyrir þrjú næstu landsmót hestamanna á Íslandi. Eins og kunnugt er var búið að ákveða að landsmótið 2012 yrði haldið í Reykjavík en nú hefur Landssamband hestamannafélaga tekið ákvörðun um að landsmótið 2014 verði haldið á Hellu og að árið 2016 verði mótið haldið á Vindheimamelum í Skagafirði. Óljóst er hvort þetta hefur einhver áhrif á samstarf hestamannafélaga þar sem hestamannafélagið Funi hafði sótt um að halda mótið 2014 á Melgerðismelum í Eyjafirði.
20.12.2011 
Síðustu 12 mánuði hefur framleiðsla búvara aukist, en sala innanlands dregið saman. Sala á kjöti í nóvember var þó 5,5% meiri en í sama mánuði í fyrra. Mest jókst sala kindakjöts, um 15,7% en rösklega 11% söluaukning var í sölu alifugla- og nautakjöts. Þegar horft er til síðustu 12 mánaða hefur sala hins vegar dregist saman um 2,1%.
19.12.2011 
Matvælastofnun hefur auglýst eftir dýralækni til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu á þjónustusvæði 2 en innan þess fellur Dalabyggð, Reykjahólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Bæjarahreppur. Gerður verður þjónustusamningur við viðkomandi dýralækni í samræmi við reglugerð um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum.
19.12.2011 
Á Laugalæknum í Reykjavík er lítil kjötverslun sem ber heitið Pylsumeistarinn. Þar ráða ríkjum hjónin Ewa Bernadeta Kromer og Sigurður Haraldsson en þau stofnuðu fyrirtækið fyrir 7 árum síðan. Í búðinni bjóða þau upp á margar tegundir af alls kyns unnu kjötmeti, s.s. skinku, spægipylsu og margar tegundir af grillpylsum. Hróður verslunarinnar hefur spurst víða og það er nóg að gera. Nýjustu vörurnar í búðinni eru fjórar tegundir af lambapylsum sem merkilegt nokk hefur ekki borið mikið á í kjötmenningu landsmanna til þessa en greint er frá þessu í jólablaði Bændablaðsins.
16.12.2011 
Skynsamlegt hlýtur að teljast að endurskipuleggja íslenska landbúnaðarstefnu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi og koma á landsáætlun um landbúnað. Ísland býr yfir gnótt tækifæra í þeim efnum en til að svo geti orðið virðist nauðsynlegt að taka upp svokallaða nýja staðarstefnu, stefnu sem innber að lögð er áhersla á nýtingu aðfanga sem næst framleiðslusvæði þeirra og almenna áherslu á nærumhverfi. Í þessu ljósi er mikilvægasta skrefið að móta rökrétta flokkun á landbúnaðarsvæðum og afurðum, til að auka hagkvæmni og stefna að sjálfbærri þróun. Ef lánast mætti að koma landsáætlun um landbúnað á Íslandi sem byggði á sjálfbærri þróun á koppinn hefði það í för með sér aukið fæðuöryggi á Íslandi, sem og tækifæri fyrir íslenskan landbúnað.
16.12.2011 
Skógræktarfélag Íslands, í samstarfi við skógræktarfélög á suðvesturhorni landsins, hefur opnað jólatrjáamarkað við Umferðarmiðstöðina (BSÍ). Þar eru seld íslensk jólatré af ýmsum stærðum og gerðum sem ræktuð eru á umhverfisvænan hátt í skógum félaganna.
15.12.2011 
Í Bændablaðinu er fjallað um matarmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og þeirri hugmynd velt upp að gera Hegningarhúsið á Skólavörðustíg 9 að „Matarhöll“. Þar gætu gestir keypt ferska íslenska matvöru úr öllum áttum, búvörur, fiskmeti, brauð og annað góðgæti allt árið um kring. Í fangelsisgarðinum, þar sem múrar fengju að víkja, yrði útimarkaður á sumrin og jafnvel jólamarkaður í desember.
15.12.2011 
Hátt í 20 tonn af gróðureyðingarefnum eru flutt til landsins árlega en lítið sem ekkert eftirlit er með því hvar eða hvernig það er notað. Efnin eru hættuleg umhverfinu en engin lög eða reglugerðir kveða á um að leita skuli leyfis vegna notkunar þess. Þá er heldur ekki skylt að tilkynna til stjórnvaldsstofnana um notkun efnanna. Þetta kemur fram ítarlegri úttekt í nýju Bændablaði.
14.12.2011 
Í lok nóvember og byrjun desember duttu ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi og Mýrdalnum í lukkupottinn þegar íslenska framleiðslufyrirtækið Pegasus mætti á svæðið með hátt í 200 manna teymi til að taka upp þætti fyrir amerísku þáttaseríuna Game of Thrones sem byggðir eru á metsölubókum rithöfundarins George R.R. Martin. Hótelin á svæðinu voru uppfull vikurnar sem tökur áttu sér stað og fjölmargir verktakar fengu vinnu við að þjónusta þáttagerðarfólkið.
12.12.2011 
Arion banki og Stjörnugrís hafa ákveðið að höfða mál fyrir héraðsdómi á hendur Samkeppnisstofnun, áfrýjunarnefnd samkeppnismála og fimm svínabændum í kjölfar úrskurðar áfrýjunarnefndarinnar um að sameining Stjörnugríss og svínabúanna Brautarholts og Hýrumels væri ólögmæt. Samþykkt hefur verið að málið fái flýtimeðferð.
9.12.2011 
„Heilt yfir er staðan almennt góð hvað heyfeng snertir í Eyjafirði,“ segir  Ólafur G. Vagnsson ráðunautur hjá Búgarði.  Bændum ber að skila inn forðagæsluskýrslum fyrir 10. desember en skýrslurnar hafa streymt inn síðustu daga.
8.12.2011 
Stærsti Jólamatarmarkaður á Íslandi verður haldin á laugardaginn næsta milli kl. 12-16 að Nóatúni 17. Ljúfmetisverslunin Búrið og Beint frá býli taka höndum saman og halda jólamatarmarkað sá einan sinnar tegundar. Öllum verður boðið ókeypis kakó með rjóma meðan að birgðir endast. Tæplega 20 aðilar koma með vörur sínar og eru þær eins fjölbreyttar og þær eru margar.
6.12.2011 
Samkvæmt forðagæsluskýrslum, sem bændum ber að skila inn fyrir 10. desember nk., eru bændur í Þingeyjarsýslum almennt mjög tæpir á heyforða fyrir veturinn. Vefurinn 641.is, sem Hermann í Lyngbrekku í Reykjadal heldur úti, hefur eftir Maríu S. Jónsdóttur, ráðunaut hjá Búgarði á Húsavík, að flestir bændur eigi rétt nægan heyforða fyrir veturinn ...
5.12.2011 
Katrín Helga Andrésdóttir í Reykjahlíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur látið af störfum sem héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun eftir 25 ára farsælt starf. Gunnar Þorkelsson, sem áður var héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, hefur tekið við nýju starfi héraðsdýralæknis í Suðurumdæmi.
2.12.2011 
Mikið tjón varð síðastliðinn þriðjudagsmorgun þegar vindmylla í Belgsholti í Leirársveit féll til jarðar af mastri sínu. Einn spaði myllunnar brotnaði og við það losnaði hún af mastrinu, rakst í það með tilheyrandi tjóni og féll til jarðar. Frá þessu er greint á vef Skessuhorns.
2.12.2011 
Aðventan í Laugardalnum býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi getur fjölskyldan átt saman skemmtilegan dag; kíkt á dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, skautað í kringum jólatré í Skautahöllinni, gengið um Grasagarðinn og fengið sér heitt kakó og ristaðar möndlur á Café Flóru. Sjálfur jólakötturinn hefur svo komið sér vel fyrir í Húsdýragarðinum þar ...
2.12.2011 
Á fjölsóttum bændafundi sem haldinn var á Hótel Ísafirði í gær kom fram að vestfirskir bændur hafa áhyggjur af hvert stefni með mjólkuriðnaðinn í landinu. Eru þeir afar ósáttir við að MS leggi niður starfsemi sína á Ísafirði. Skert þjónusta MS á svæðinu hafi þegar leitt til vandræða varðandi dreifingu á mjólkurvörum og þjónustu við íbúa.
1.12.2011 
Ný reglugerð Evrópusambandsins um merkingar matvæla (food information to consumers) var birt 22. nóvember s.l. Reglugerðin verður innleidd á Íslandi á næstu misserum og mun leysa af hólmi núverandi reglugerðir um merkingu matvæla og merkingu  næringargildis matvæla. Matvælastofnun heldur fræðslufund til að kynna þessar nýju reglur þriðjudaginn 6. desember 2011 kl. 15:00 - 16:00.
30.11.2011 
Bændafundaröð vetrarins 2011 hófst í gær  með þremur fundum en fresta varð fundi sem fram átti að fara á Vopnafirði vegna veðurs. Fyrsti fundurinn var haldinn á Hvanneyri þar sem Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna og Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri fóru yfir stöðu mála.
29.11.2011 
Árlegir Bændafundir Bændasamtaka Íslands (BÍ) hefjast í dag þriðjudag með fundum á Hvanneyri, í Breiðabliki og á Egilsstöðum. Fundinum sem átti að vera á Hótel Tanga á Vopnafirði í kvöld klukkan 13:00 hefur verið aflýst vegna óveðurs.
29.11.2011 
Ófærð er nú á Norðurlandi og Víkurskarð var lokað í morgun þar sem flutningabíll sat fastur og ófært var á milli Akureyrar og Dalvíkur og einnig á milli Akureyrar og Grenivíkur. Veðrið er einna verst í Skagafirði, Eyjafirði og Húnavatnssýslum. Kennsla fellur niður í Varmahlíð, á Hofsósi, í Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal og í Sólgarðsskóla í Fljótum að því er fram kemur á vefsíðu RÚV.
Þá lenti bílstjóri mjólkurbíls MS á Akureyri með skrekkinn í árekstri við tönn á ýtu sem verið var að flytja á vagni sl. föstudag samkvæmt frétt Vikudags.
28.11.2011 
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp varðandi innflutningsbann á hráum dýraafurðum og lifandi dýrum. Starfshópnum er ætlað að gera taka saman þau gögn og rök sem fyrir liggja og gera með þeim grein fyrir stefnumörkun Íslands. Sú vinna mun nýtast í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og snýr að því að hægt verði að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til verndar íslensku búfé með takmörkun á innflutningi lifandi dýra og hrárra búfjárafurða ef til aðildar kemur.
25.11.2011 
Starfsmenn Skógræktarfélags Eyfirðinga hafa verið önnum kafnir að undanförnu við að höggva jólatré. Einkum og sér í lagi einbeita þeir sér að stærri trjám sem prýða torg eða standa við fyrirtæki hér og þar og eru allt að 10 metra há að því er fram kemur í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.
25.11.2011 
Það eru fleiri en norðlenskir bændur sem striplast kviknaktir um héruð. Kvenfélagskonur í Biskupstungum stunda greinilega svipað hátterni og hafa nú gefið út dagatal fyrir árið 2012. Þar sitja þær kviknaktar fyrir á myndum líkt og þær gerðu með svo eftirminnilegum hætti á dagatalinu fyrir árið 2010. Greint er frá þessu á vefsíðunni dfs.is.
24.11.2011 
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) og Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa ákveðið að hrinda af stað sannkallaðri byltingu í orkumálum landbúnaðarins. Takmarkið er að orka sem bændur kaupa að, minnki um 20% fyrir árslok 2015 og um 80% fyrir árslok 2020. Þetta kemur m..a fram í nýjasta tölublaði Bændablaðsins sem kom út í dag.
22.11.2011 
Bjarni Kristófer Kristjánsson, náttúrufræðingur og deildarstjóri fiskeldis- og fiskalíffræðideildar Háskólans á Hólum hefur unnið við skólann í 13 ár. Hann segir mikla eftirspurn eftir vinnuafli í fiskeldi sem margt hvert sækir nám við skólann meðfram vinnu með stuðningi fyrirtækja sem sé mjög jákvæð þróun.
15.11.2011 
Geitfjárræktarfélags íslands fagnaði 20 ára afmæli sínu á aðalfundi sínum sem haldinn var sl. laugardag hjá Búgarði á Akureyri. Ný stjórn félagsins er þannig skipuð: Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, Háafelli Borgarbyggð er formaður, Stefanía Sigurðardóttir, Vorsabæ 2 Skeiðum er ritari og Helgi H Bragason, Setbergi, Fellum er gjaldkeri.
14.11.2011 
Á vef Landssambands kúabænda (LK) hafa verðlistar kjarnfóðurs nú verið uppfærðir, en verðið lækkaði hjá þremur fóðursölum í síðustu viku; Líflandi, Bústólpa og Fóðurblöndunni. Lækkunin er mismikil eftir blöndum. Mest lækka þær sem innihalda fiskimjöl en verðið á því hefur lækkað nokkuð að undanförnu, að því er fram kemur á vef LK.
11.11.2011 
Í könnun Bændasamtaka Íslands á verði landbúnaðarvara í fimm verslunum á Norðurlöndunum, um miðjan október sl., kom í ljós að íslenskar afurðir eru samkeppnisfærar við vöruverð á hinum Norðurlöndum. Könnunin var gerð vikuna 12. – 20. október af starfsmönnum bændasamtaka viðkomandi landa.  Verðið var reiknað yfir í íslenskar krónur á gengi 19. október.
11.11.2011 
Landgræðsluverðlaunin 2011 voru veitt í Gunnarsholti í gær en verðlaunin eru árlega veitt einstaklingum, félagasamtökum og skólum sem unnið hafa að landgræðslu og landbótum. Með verðlaununum vill Landgræðslan vekja athygli á fórnfúsu starfi fjölda fólks að landgræðslumálum auk þess að hvetja aðra til að feta í þeirra fótspor.
10.11.2011 
Hreindýr á Mýrum í Hornafirði hafa valdið gríðarlegu tjóni hjá bændum síðustu ár. Meðal annars nemur tjón á girðingum og ræktarlandi hjá bændum í Flatey 8,5 milljónum króna á þessu ári einvörðungu. Hávær umræða hefur verið upp á síðkastið um hreindýr sem flækst hafa í girðingum, dýrunum til tjóns eða jafnvel dauða. Ráðunautur gagnrýnir einhliða og óvægna umræðu um málið og segir bændum að ósekju kennt um.
10.11.2011 
Stefnt er að því að endurskoða ráðgjafarþjónustu við bændur með það að markmiði að færa hana í eitt heildarsamstarf yfir landið allt. Yfirstjórn ráðgjafarþjónustunnar yrði á hendi Bændasamtaka Íslands samkvæmt þeim hugmyndum sem unnið er með. Þetta kemur fram í leiðara Haraldar Benediktssonar formanns Bændasamtakanna í nýútkomnu Bændablaði.
9.11.2011 
Það er óhætt að segja að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi haft verulegar afleiðingar í för með sér fyrir bændur sem búa á hamfarasvæðinu. Eldgosið hafði ýmsa eftirmála sem voru þó ekki allir neikvæðir. Svo fór til dæmis þegar Berglind Hilmarsdóttir, bóndi á Núpi III, var búin að berjast í gegnum mesta öskuskýið, að hún var beðin um að halda fyrirlestur fyrir forseta Eistlands sem kom hingað til lands þegar ósköpin dundu yfir. Ári síðar fékk Berglind síðan hringingu frá Eistlandi og var beðin um að halda opnunarerindi á árlegri leiðtogaráðstefnu þar í landi.
8.11.2011 
Þann 1. nóvember sl. kom til framkvæmda á Íslandi sá hluti nýrrar matvælalöggjafar á Evrópska efnahagssvæðinu sem snýr að bændum. Þessi hluti snýr þannig að þeim sem rækta fóður, framleiða dýraafurðir og dreifa, þeirra sem rækta eða nota grænmeti, korn eða gras til dreifingar, manneldis eða fóðurgerðar.
7.11.2011 
Handverkssýningin Handverk og Hönnun hefur heldur betur fest sig í sessi og fór fram að venju um helgina í Ráðhúsi Reykjavíkur og lýkur í dag. Þar sýna og selja hátt í 70 hönnuður vörur sínar áhugasömum viðskiptavinum sem stöðugur straumur hefur verið af alla helgina.
4.11.2011 
Eftir breytingar á skipan dýralæknaþjónustu sem tóku gildi 1. nóvember sl. ríkir nokkur óvissa um þjónustu dýralækna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu að mati starfandi dýralæknis á svæðinu. Eftir breytinguna er ekki lengur um skipulagðar dagvaktir á svæðinu að ræða. Einungis tveir dýralæknar eru starfandi á umræddu svæði. Yfirdýralæknir hefur ekki áhyggjur af stöðu mála.
4.11.2011 
Búið er að tryggja dýralæknaþjónustu í Húnavatnssýslum. Matvælastofnun (MAST) hefur gert þjónustusamning við Dýralæknaþjónustu Stefáns Friðrikssonar ehf um að taka að sér dýralæknaþjónustu á svæði 4, sem eru Húnaþing vestra, Blönduósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshreppur.
4.11.2011 
Grasagarður Reykjavíkur og Erfðanefnd landbúnaðarins hafa gert með sér samning um að Grasagarðurinn varðveiti safn rabarbaraklóna sem lengi hafa verið í ræktun á Íslandi. Með undirritun samningsins er plöntunum tryggður vaxtarstaður til framtíðar.
2.11.2011 
Á fimmta tug kokka, blaðamanna, bænda annarra gesta gæddu sér í dag á nýbökuðum eplakökum úr íslenskum eplum. Tilefnið var útgáfa nýju matreiðslubókarinnar „Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu“ sem er nýkomin í verslanir. Þorsteinn Sigmundsson ...
2.11.2011 
Íslenska vitafélagið stendur fyrir fræðslukvöldi í kvöld í fyrirlestraröðinni Spegill fortíðar- silfur.  Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, atvinnu- og hlunnindaráðgjafi Bændasamtaka Íslands, ræðir um íslenskan æðardún og náttúruleg verðmæti hans.
1.11.2011 
Enginn dýralæknir er starfandi í Húnavatnssýslum eins og stendur. Með breytingum á matvælalöggjöfinni sem tóku gildi í dag er héraðsdýralæknum óheimilt að sinna almennri dýralæknaþjónustu nema í neyð. Matvælastofnun tókst ekki að gera þjónustusamning við sjálfstætt starfandi dýralækni á svæðinu en engar umsóknir bárust um stöðuna.
1.11.2011 
Matvælastofnun hefur birt niðurstöðu um tilboðsmarkað á greiðslumarki mjólkur en hann var haldinn í dag, 1. nóvember. Verð á greiðslumarki mjólkur hefur hækkað um 5 kr/líter frá 1. apríl síðastliðnum og er nú 290 kr/líter. Alls bárust 9 gild tilboð um sölu á greiðslumarki en 34 gild tilboð um kaup. Eftirspurn hefur dregist saman frá síðasta markaði en að sama skapi er framboð mun meira.
1.11.2011 
Samfara miklum efnahagsvanda Evrópusambandsríkja sem alls ekki sér fyrir endann á glímir ESB við mikinn og vaxandi atvinnuleysisvanda sem nú er um 10% samkvæmt tölum Eurostat.
31.10.2011 
Heildargreiðslumark í mjólk fyrir verðlagsárið 2012 hefur verið ákveðið 114,5 milljónir lítra og er það 1,5 milljón lítrum minna en á yfirstandandi verðlagsári. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveður greiðslumark að fengnum tillögum framkvæmdanefndar búvörusamninga.
31.10.2011 
Matvælastofnun heldur fræðslufund um nýja matvælalöggjöf og áhrif hennar á bændur á morgun, þriðjudag 1. nóvember, á Hvanneyri. Á fundinum, sem hefst klukkan 15:30,  verður fjallað um löggjöfina með tilliti til framleiðslu búfjárafurða, sem tekur gildi 1. nóvember n.k. Jafnframt verður fjallað um breytingar á umdæmum héraðsdýralækna og dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum.
31.10.2011 
Vinstri græn vilja endurskoða ríkisstuðning við landbúnað á Íslandi með fæðu- og matvælaöryggi auk sjálfbærni að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun um landbúnað sem landsfundur hreyfingarinnar samþykkti í gær.
28.10.2011 
Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag, föstudaginn 28. október. Veiðdögum hefur verið fækkað um helming frá fyrra ári sökum bágrar stöðu rjúpnastofnsins og verður einungis heimilt að veiða 9 daga í ár. Áfram verður sölubann á rjúpu og öllum rjúpnaafurðum og einnig er rjúpan alfarið friðuð á ákveðnu svæði á suðvesturlandi. Rjúpnaskyttur eru hvattar til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar. Virkt eftirlit verður með veiðum og umferð rjúpnaskytta. Þá er rjúpnaskyttum bent á að afla sér leyfis hjá landeigendum þar sem það á við.
27.10.2011 
Nýtt Bændablað er komið út og verður að þessu sinni dreift í 64 þúsund eintökum. Meðal efnis er skemmtileg frétt og viðtal við Anke Domaske sem er fatahönnuður af þýskum og rússneskum ættum. Hún hefur farið heldur óhefðbundna leið í efnisvali fyrir nýjustu fatalínu sína og fundið upp aðferð til að búa til trefjaþræði úr mjólk sem hún notar í hátískufatnað. Nýja fatalínan heitir einfaldlega Qmilch.
27.10.2011 
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október er 384,6 stig og hækkaði um 0,34% frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitalan án húsnæðis um 5,0%. Hinsvegar lækkaði verð á búvörum án grænmetis frá fyrra mánuði um 0,2%.
26.10.2011 
Blaðamaður Bændablaðsins fór í vikunni í heimsókn í Loðskinn á Sauðárkróki þar sem liðið var á seinni hluta söltunar á gærum þetta haustið. Þegar yfir lýkur í lok október hafa um 300 þúsund gærur verið saltaðar og til þess notað um 400 tonn af salti. Afurðin er að mestu seld til Kína og Tyrklands þar sem hráefnið er mikils metið.
26.10.2011 
Síðastliðinn laugardag var skógræktarráðstefnan Heimsins græna gull haldin í salnum Kaldalóni í Hörpu. Um var að ræða ráðstefnu í tilefni af Alþjóðlegu ári skóga 2011 og var hún með fjölþjóðlegu yfirbragði. Flestir fyrirlesaranna voru komnir frá nágrannalöndum okkar, en eini fulltrúi Íslands var Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri Þjóðskóganna. Var ráðstefnan vel sótt og þótti takast prýðilega.
22.10.2011 
Fyrsti vetrardagur var sannkallaður kjötsúpudagur en fleiri þúsund manns þáðu þennan þjóðarrétt víða um land í dag. Í Reykjavík var mikill mannfjöldi á Skólavörðustíg og herma fregnir þaðan að um 4 þúsund manns hafi bragðað súpunni sem var afgreidd á sex stöðum. Í frétt á Vísi.is er haft eftir Úlfari Eysteinssyni veitingamanni á veitingahúsinu Þremur frökkum að hans skammtur, sem var 250 lítrar, hafi...
18.10.2011 
Ráðstefnan Heimsins græna gull verður haldin í Kaldalóni í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu, laugardaginn 22. október nk. Um er að ræða alþjóðlega ráðstefnu sem allur skógræktargeirinn á Íslandi stendur fyrir á alþjóðlegu ári skóga. Fjallað verður um ástand og horfur skóga heimsins.
17.10.2011 
Húsfyllir var á fyrirlestri Julians Cribb nú í hádeginu í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar en fyrirlesturinn bar yfirskriftina Matvælaframleiðsla morgundagsins. Í fyrirlestri sínum fór Cribb yfir þær miklu ákskoranir sem felast í því að brauðfæða ört fjölgandi mannkyn með minnkandi vatni, þverrandi olíu, við landeyðingu og efnahagslega örðuleika auk annars.
14.10.2011 
Alþjóðamatvæladagur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), verður haldinn sunnudaginn 16. október næstkomandi. Hann er að þessu sinni helgaður baráttunni gegn sveiflum í matvælaverði. Að því tilefni er umfjöllun í nýjasta tölublaði Bændablaðsins um matvælaframleiðslu og fæðuöryggi í heiminum.

14.10.2011 
Norræni matvæladagurinn verður haldinn 26. október næstkomandi í 122 gagnfræðiskólum í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington. Yfir 30 þúsund nemendur munu þá geta smakkað á ýmsum norrænum mat eins og sænskum kjötbollum, norskum laxi og skyri en boðið verður upp á skyr frá siggi´s skyr.
14.10.2011 
„Við uppskárum í fyrra um þrjú tonn á hektara af rúgi, en það má segja að það hafi verið tilraunaár hjá okkur í þessari ræktun,“ segir Fjóla Kjartansdóttir í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, en hún og Sigurður Ágústsson maður hennar hafa verið með rúgmjöl sitt til sölu í sveitaverslunum í sumar undir heitinu Ískorn.  Líklega er þetta eina íslenska rúgmjölið sem framleitt er til manneldis, en áætlað er að um 550-600 tonn séu flutt til landsins árlega.
13.10.2011 
Þann 15. október næstkomandi mun keppnin "Ungi bóndi ársins 2011" verða haldinn á vegum Samtaka ungra bænda í samstarfi við Sauðamessuna í Borgarnesi.

Þar verður keppt í hinum ýmsu greinum t.d. liðléttingafimi og fjárdrætti svo eitthvað sé nefnt. Keppt verður bæði í einstaklings og liðakeppni og mun sá er hlýtur flest stig í einstaklingskeppninni hljóta Jötunnvéla bikarinn til varðveislu.

Keppnin fer fram við Menntaskóla Borgarfjarðar og hefst hún klukkan 16:33.
13.10.2011 
Árlega valda álftir og gæsir gríðarlegu tjóni á ræktarlöndum bænda. Tjónið er mjög greinanlegt þegar þessir fuglar leggjast á kornakra en er ekki síður tilfinnanlegt að vori þegar fuglarnir bíta nýgræðing í túnum. Erfiðlega hefur þó gengið að afla gagna um hversu mikið tjónið er.
12.10.2011 
Það er fáheyrt í dag að bændur standi í stórframkvæmdum eins og ástandið er nú í þjóðfélaginu. Hjónin Guðmundur Guðmundarson og Berglind Hilmarsdóttir á Núpi undir Eyjafjöllum eru undantekning því þau standa nú í byggingu tæplega þúsund fermetra fjóss en fara þó rólega í sakirnar, byggja í áföngum, eftir því hvað fjárhagurinn leyfir.
10.10.2011 
Fyrr í dag var verkefninu „Ísland - Allt árið” hrundið af stað við hátíðlega athöfn í Hörpunni. Tilgangur verkefnisins er að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna og skapa þannig ný störf og auka arðsemi af greininni. Verkefnið mun byggja á þeirri fjárfestingu sem lögð hefur verið í markaðsátakið Inspired by Iceland og áfram verður unnið með það vörumerki.
7.10.2011 
Þekktur blaðamaður og ritstjóri frá Ástralíu, Julian Cribb, mun koma hingað til lands og halda fyrirlestur um fæðuöryggi og stöðu matvælaframleiðslu í heiminum mánudaginn 17. október næstkomandi. Af þessu tilefni verður sérstakur blaðauki gefinn út með næsta Bændablaði sem kemur út nk. fimmtudag, 13. október.
5.10.2011 
Umhverfisráðherra hefur fallist á ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða rjúpnaveiði árið 2011 upp á 31.000 fugla. Eru það ríflega helmingi færri fuglar en leyft var að veiða árið 2010. Skýrist þetta af verri stöðu rjúpnastofnsins að því er fram kemur í fréttatilkynningu umhverfisráðuneytisins. Með því að deila ráðlagðri veiði á fjölda skráðra rjúpnaveiðimanna undanfarin ár má þannig gera ráð fyrir um 6 rjúpum á hvern veiðimann.
5.10.2011 
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti á dögunum átta sérfræðingum útskriftarskírteini við útskrift þeirra úr Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
4.10.2011 
Árni Snæbjörnsson verður nýr aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann tekur við af Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur sem lét af störfum fyrir skömmu.
4.10.2011 
Áætlað er að 13-15 þúsund manns hafi sótt sýninguna MATUR-INN sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Þátttakendur í sýningunni voru á fjórða tug en sýningin var nú haldin í fimmta sinn og var sú stærsta hingað til hvað sýningarrými og aðsókn varðar.
4.10.2011 
Nemendur garðyrkjuframleiðslu við Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum hafa verið ötulir við að prófa ræktun á ýmiss konar grænmetistegundum. Bryndís Björk Reynisdóttir, nemandi á garðplöntubraut, ákvað að prófa að rækta sætar kartöflur en sú ræktun er mjög frábrugðin ræktun hefðbundinna kartaflna. Aðstoðarkona hennar við verkefnið var Bryndís Edda Snorradóttir.
3.10.2011 
Þann 1. nóvember nk. tekur gildi breytt skipan á umdæmum héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun (MAST) og verða umdæmin sex; Suðvesturumdæmi, Vesturumdæmi, Norðvesturumdæmi, Norðausturumdæmi, Austurumdæmi og Suðurumdæmi. Gengið hefur verið frá ráðningu í allar sex stöðurnar.
30.9.2011 
„Almennt séð þá klárast sveppatímabilið um miðjan október og nú eru einungis nokkrar tegundir eftir,“ segir Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur og áhugamaður um sveppi. „Þetta ár fer örugglega ekki í sögubækurnar yfir bestu ætisveppaárin og eru tvö atriði sem ráða úrslitum um það; annars vegar hafði það mikil áhrif hvað vorið var kalt, en enn meiri áhrif hafði það hversu miðsumarið var þurrt.
30.9.2011 
Húnvetnskir gangnamenn urðu fyrir töfum vegna þoku og voru degi lengur á fjalli en vanalega, að sögn Sigríðar Ólafsdóttur í Víðidalstungu í Vestur-Húnavatnssýslu. Sigríður sagði jafnframt að lömbin hjá þeim í Víðidalstungu kæmuheldur léttari af fjalli en síðustu ár að því er fram kemur í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.
29.9.2011 
Í fréttatímum Ríkisútvarpsins 28. september sl. voru fluttar fréttir af aukinni verðbólgu og m.a. var rætt við Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ um ástæður aukningarinnar. Gylfi taldi að verðhækkanir á íslenskum búvörum undanfarna mánuði skýrðu aukninguna. Bændasamtökin sendu í morgun frá sér yfirlýsingu þar sem málflutningi Gylfa er harðlega mótmælt og bentu m.a. á að íslensk búvara hefur aðeins hækkað um 32 prósent frá ársbyrjun 2007 á meðan að innfluttur matur hefur hækkað um 60,2 prósent. Almennt verðlag hefur hækkað um 43 prósent á sama tíma.
29.9.2011 
Fólksfjölgun , vaxandi matvælaverð og óstöðugleiki á matvæla- og hráefnismörkuðum leiða af sér minnkandi fæðuöryggi. Samkvæmt skýrslu OECD og FAO er fæðuöryggi meðal mikilvægustu málefna sem ríkisstjórnir glíma við í dag og á komandi árum.
28.9.2011 
Í Reykholti í Biskupstungum eru ungir bændur að byggja nýtt 2.200 fermetra gróðurhús þar sem ætlunin er að rækta tómata og taka á móti gestum. Þetta eru hjónin Helena Hermundardóttir og Knútur Rafn Ármann í Friðheimum en þau hafa um árabil ræktað tómata með góðum árangri ásamt því að bjóða upp á hestasýningar fyrir ferðamenn. Þá eru líka í hópi bænda í Opnum landbúnaði...
27.9.2011 
Formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) gagnrýndi landbúnaðarkerfið harkalega í ræðu sem hún flutti á opnum fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) um atvinnumál í gær. Formaður Bændasamtakanna segir gagnrýnina ekki koma á óvart enda séu samtökin hreinlega í stríði við bændur.
23.9.2011 
Á Laufskálaréttardaginn, laugardaginn 24. september hafa fulltrúar Sparisjóðs Skagafjarðar og Söguseturs íslenska hestsins mælt sér mót í Kolbeinsdal sem er afrétt Hóla- og Viðvíkurhreppa hinna fornu. Tilefnið er að Sparisjóður Skagafjarðar hefur ákveðið að styðja við rekstur Sögusetursins. Viðeigandi  þykir að undirrita samninginn í Kolbeinsdalnum en þar var Sparisjóðurinn stofnaður fyrir liðlega hundrað árum og síðar fluttur á klakki niður í Hólahrepp.
23.9.2011 
Opnunarskilyrði þau sem Evrópusambandið (ESB) hefur sett fyrir því að hafnar verði viðræður um landbúnaðarkafla aðildarsamnings Íslands og sambandsins koma Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verulega á óvart. Undrun ráðherra byggist einkum á að á rýnifundi um landbúnaðarkaflann, sem fram fór í Brussel 27. janúar sl. gaf íslensks samninganefndin út sérstaka yfirlýsingu um að unnt yrði að gera allar nauðsynlegar laga og stjórnsýslubreytingar sem þörf væri á svo að allt yrði til reiðu við gildistöku aðildar, ef af henni yrði. Slík yfirlýsing er ekki fullnægjandi að mati ESB, segir ráðherra í grein sem birt er á heimasíðu ráðuneytisins.
23.9.2011 
Ari Hultqvist hefur í samstarfi við Græna Hlekkinn og bændur sem selja lífrænt ræktaðar vörur staðið fyrir útimarkaði á Lækjartorgi undir merkinu Lífgrænt í sumar. Viðbrögðin hafa verið framar vonum að sögn Ara sem hyggst færa reksturinn undir þak í vetur.
21.9.2011 
Þann 1. nóvember nk. mun Matvælastofnun (MAST) taka við hlutverki heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga varðandi eftirlit með búfjárafurðum. Markmið nýrrar löggjafar eru meðal annars að tryggja rekjanleika matvæla og fóðurs og að afurðir á markaði uppfylli gæða- og heilnæmiskröfur óháð uppruna vörunnar.
21.9.2011 
Birt hefur verið reglugerð nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum. Reglugerðinni er ætlað að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landsvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna eru af skornum skammti. Samkvæmt reglugerðinni getur Matvælastofnun gert þjónustusamning við sjálfstætt starfandi dýralækna, sem munu þá hafa starfsstöð og sinna dýralæknaþjónustu á tilteknum þjónustusvæðum, sem tilgreind eru í reglugerðinni.
20.9.2011 
Búnaðarsamband Eyjafjarðar stendur fyrir opnum fundi á morgun miðvikudag þar sem kynnt verða drög að frumvörpum til laga um breytingar á jarðalögum, nr. 81/2004 og ábúðarlögum, nr. 80/2004 sem Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur látið vinna og eru nú til umsagnar.
19.9.2011 
Alþingi hefur samþykkt  frumvarp til laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna fullgildingar Árósasamningsins, en hann fjallar um aðgang almennings að upplýsingum, þátttöku hans í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Að auki samþykkti Alþingi annað frumvarp til ýmissa breytinga á lögum sem eiga að tryggja að íslensk löggjöf samræmist samningnum. Lögin taka gildi 1. janúar nk.
16.9.2011 
Ragnari Axelssyni, ljósmyndara á Morgunblaðinu, var í dag – á Degi náttúrunnar – veitt fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins – Jarðarberið. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Ragnar hafi „verið óþreytandi við að sýna okkur náttúru Íslands á myndrænan hátt. Ragnar Axelsson ljósmyndari eða Rax, hefur sérstaklega beint sjónum að samspili manns ...
16.9.2011 
Að undanförnu hafa  birgjar tilkynnt lækkanir á verði á kjarnfóðri og hefur Landssamband kúabænda af því tilefni tekið saman lista sem sýnir stöðu mála í dag og gefur samanburð.
15.9.2011 
Nýr upplýsingavefur um kjöt var opnaður í dag á vefslóðinni www.kjotbokin.is. Það var Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, sem opnaði vefinn formlega þegar hann hringdi í höfuðstöðvar Matís ofan af Holtavörðuheiði en þar var hann í göngum ...
15.9.2011 
Í nýju Bændablaði er fjallað ýtarlega um göngur og réttir í máli og myndum.  Sérstakur blaðauki er helgaður efninu og að auki eru ríkulega myndskreyttar síður frá réttardögum á forsíðu, síðum 6 og 7 og baksíðu.
15.9.2011 
Heimildir Bændablaðsins herma að ákveðið hafi verið að leggja af mjólkurvinnslu hjá Mjólkursamsölunni (MS) á Ísafirði. Áfram verði þó rekin starfsstöð þar vestra þar sem verði söfnunarstöð fyrir mjólk af svæðinu og eins dreifingarmiðstöð fyrir vörur MS á Vestfjörðum. Frá því í vor hefur öll mjólk af svæðinu verið flutt til Búðardals til vinnslu og engin vinnsla eða pökkun verið á Ísafirði. Ástæðan þá var sögð sú að bæði ætti að létta starfsemina yfir sumarleyfistímann og eins ætti að fara yfir vélakost starfsstöðvarinnar og meta framtíð hennar. Ákvörðun um framhaldið yrði síðan tekin í haust.

14.9.2011 
Út er komin fyrsta íslenska bókin með uppskriftum og fróðleik um ís. Höfundur bókarinnar er Jón Brynjar Birgisson, mjólkurfræðingur, en hann hefur haldið fjölda ísnámskeiða og starfað við ísgerð sjálfur. Góð viðbrögð þátttakenda á ísnámskeiðum og óþrjótandi ísáhugi höfundar urðu kveikjan að bókinni að sögn Jóns Brynjars.
13.9.2011 
Full borg matar/Reykjavík Real Food Festival
er matar- og uppskeruhátíð tileinkuð íslenskum mat og matarmenningu. Matís tekur þátt og býður m.a. gestum og gangandi að koma í höfuðstöðvar Matís að Vínlandsleið 12 (Grafarholt) fimmtudaginn 15. sept. kl. 14-17.
13.9.2011 
Bændasamtök Íslands hafa samið við Starfsgreinasamband Íslands annars vegar og hins vegar Framsýn stéttarfélag, Verkalýðsfélag Þórshafnar og verkalýðsfélag Akraness um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá og með 1. júní 2011 til 31. janúar 2014. Fyrirvari er á kjarasamningnum þar til stjórn BÍ hefur samþykkt ...
8.9.2011 
Nýverið tók til starfa matsölustaðurinn Grillmarkaðurinn sem staðsettur er í hjarta Reykjavíkur, á horni Lækjargötu og Austurstrætis, í uppgerðu húsnæði þar sem stórbruninn varð árið 2007. Þar hefur sú leið verið farin að allt aðalhráefni staðarins er fengið beint frá bónda.
7.9.2011 
Mjólkursamsalan (MS) flutti á dögunum út gám af gouda osti til Hollands. Það er í fyrsta skipti í tólf ár sem fastur ostur er fluttur út frá Íslandi og síðast var fastur ostur fluttur út að einhverju ráði árið 1992. Um er að ræða tilraunaverkefni og segir Jón Axel Pétursson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS að verið sé að kanna markaðsmöguleika með útflutningnum. Gríðarlega góður gangur hefur verið í sölu á skyri í Finnlandi upp á síðkastið og er það hvetjandi til að áframhaldandi markaðsstarfs.
6.9.2011 
Bændasamtökin hafa sent frá sér fréttatilkynningu vegna rýniskýrslu Evrópusambandsins sem kom út í gær. Í bréfi sem ESB sendi til íslenskra stjórnvalda í kjölfarið kemur fram að þjóðin sé ekki nægilega undirbúin til þess að opna samningakafla um landbúnaðarmál í aðildarviðræðunum við sambandið.
6.9.2011 
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti í morgun í ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Samhliða því kynnti umhverfisráðherra breytingar á tveimur greinum náttúruverndalaga.
6.9.2011 
Í vikunni kom út bókin „Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð“ eftir Hjörleif Guttormsson en hollvinasamtökin Vinir Vatnajökuls gefa bókina út. Þetta er fyrsta ritið sem gefið er út um stærsta þjóðgarð Evrópu sem er þó í raun aðeins rúmlega þriggja ára gamall. Hún kemur út á þremur tungumálum samtímis, íslensku, ensku og þýsku.
5.9.2011 
Skógræktarfélag Íslands hélt sinn 76. aðalfund í Grundarfirði helgina 2.-4. september sl.  Skógræktarfélag Eyrarsveitar var gestgjafi fundarins að þessu sinni og sóttu fundinn á annað hundrað fulltrúar skógræktarfélaga alls staðar af landinu.
5.9.2011 
Íslenskum stjórnvöldum barst á föstudaginn var niðurstaða Evrópusambandsins vegna rýnivinnu um landbúnað og dreifbýlisþróun sem er liður í viðræðum Íslands um aðild að ESB. Í svonefndri rýniskýrslu Evrópusambandsins endurspeglast málflutningur fulltrúa Íslands í viðræðuferlinu hingað til um mikilvægi og sérstöðu íslensks landbúnaðar en í henni kemur m.a. fram:

1.9.2011 
Lífland hefur lækkað verð á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 4%, en hún er þó mismunandi eftir tegundum. Í tilkynningu frá Líflandi kemur fram að ástæða verðbreytingarinnar sé lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar vegna nýrrar uppskeru.
1.9.2011 
Nýtt Bændablað kom út í dag. Á forsíðu er fjallað um tíðarfar sumarsins og afleiðingar þess, en fresta hefur þurft á þriðja tug rétta vegna þess. Vegna ótíðar í vor og framan af sumri fór fé í sumum tilfellum óvenju seint á fjall. Þá eru þess mörg dæmi að bændur séu enn að heyja og því vilja menn gjarnan að tún fái eilítið meiri tíma til að spretta á ný áður en fé verður sett á þau aftur.
31.8.2011 
Sigurður Gunnar Markússon framkvæmdastjóri innkaupasviðs Kaupáss, sem rekur bæði Nóatún og Krónuna, segir að ekki hafi orðið vart við kjötskort hjá fyrirtækinu í sumar. Þetta sagði hann í viðtali á Bylgjunni í morgun í þættinum Í bítið. „Við höfum átt nóg af kjöti, það er alveg ljóst, í allt sumar,“ sagði Sigurður en bætti við að það hefði komið upp skammtímavöruþurrð í einstaka vöruflokkum ...
30.8.2011 
Ekki eru allir á eitt sáttir um málefni landsmóts hestamanna og skemmst er að minnast umræðna um staðarval. Landsmótsnefnd er nú að hefja fundaherferð um landið til kynningar á skýrslu sem byggir á niðurstöðum nefndarmanna um málefni landsmóta hestamanna.
29.8.2011 
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill af gefnu tilefni vekja athygli á að opið er fyrir innflutning nautakjöts á lækkuðum tollum. Hefur heimildin sem rennur út 30. september næstkomandi verið í gildi frá því 10. júní á þessu sumri.
29.8.2011 
Í lok júlí hófst sala úr nýrri kjötvinnslu á Egilsstöðum. Hún heitir Snæfell og er í eigu Sláturfélags Austurlands, en heiti hennar er fengið frá Kaupfélagi Héraðsbúa og var notað síðast af Kjötkaup á Reyðarfirði.
29.8.2011 
Fyrstu fjárréttir á komandi hausti verða laugardaginn 3. september næstkomandi en þá verður réttað í sex réttum í Eyjafirði, Skagafirði og Austur- og Vestur-Húnavatnssýslum. Fyrsta stóðrétt ársins verður einnig laugardaginn 3. september, Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu.
26.8.2011 
Á vefnum nattura.is er nú að finna hjálpartæki fyrir þá sem áhuga hafa á að fræðast um E-efnin, en það eru aukaefni í matvælum sem Evrópusambandið hefur samþykkt að megi nota. Hægt er að slá inn númer E-efnis eða upphafsstafi í heitinu og þá birtast ýmsar upplýsingar um það, t.d. um uppruna, virkni og hvort það er talið vera skaðlegt.
26.8.2011 
Nýverið setti Steinn Kárason, garðyrkju- og umhverfisfræðingur myndband á Netið um sáningu birkifræs sem er hugsað öllum til góða, ekki hvað síst bændum sem geta farið eftir ráðleggingum myndbandsins við að endurheimta landgæði.
26.8.2011 
Í dag föstudag hefst uppskeruhátíðin Bláberjadagar í Súðavík og stendur fram á nk. sunnudag. Hátíðin eru engin venjuleg bæjarhátíð þó svo að bæjarbúar muni skemmta sér vel saman. Þemað er bláber, þessi holla og næringarríka náttúruafurð sem vex villt allt í kringum Súðavík og eru einmitt best og mest á þessum tíma.
25.8.2011 
Bændasamtök Íslands hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna greinarskrifa Þórólfs Matthíassonar deildarforseta hagfræðideildar Háskóla Íslands í fjölmiðlum og ummæla hans í fréttatíma Ríkisútvarpsins í gær og í dag um fund Landssamtaka sauðfjárbænda við rektor Háskóla Íslands.
25.8.2011 
Stjórn Auðhumlu svf. tilkynnti í dag að frá 1. september nk. mun verð fyrir mjólk umfram greiðslumark, sem fer til útflutnings, hækka. Fyrir fyrstu 2% umfram greiðslumarkið verða greiddar 50 kr./l og 40 kr./l fyrir allt umfram þau 2%.Kemur hækkunin til vegna hagfelldra aðstæðna á útflutningsmörkuðum.
25.8.2011 
Á vef afurðafyrirtækisins Norðlenska á Akureyri er greint frá því að það séu ekki eingöngu "bestu bitarnir" af lambinu sem eru seldir til útlanda eins og haldið hefur verið fram í blaðaskrifum Þórólfs Matthíassonar hagfræðings undanfarið. Sagt er frá því að í þessari viku flytji fyrirtækið þrjá gáma af lamba- og kindaafurðum á erlenda markaði.
24.8.2011 
Á stjórnarfundi félags sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu sem haldinn var þann 22. ágúst síðastliðinn var samþykkt ályktun þess efnis að bændur fari fram á að fá stærri sneið í sinn hlut vegna hærri útflutningstekna á lambakjöti og hækkandi verðs á gærum undanfarin tvö ár. Segir stjórnin það jafnframt sanngjarna og málefnalega kröfu sauðfjárbænda að fá hærra meðalverð fyrir afurð sína.
24.8.2011 
Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) átti fund með Kristínu Ingólfsdóttur rektor Háskóla Íslands síðdegis á mánudag. Tilefni fundarins eru ítrekuð skrif Þórólfs Matthíassonar, prófessors og deildarforseta hagfræðideildar HÍ í fjölmiðlum um framleiðslu og verðlagningu kindakjöts.
23.8.2011 
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um úthlutun tollkvóta í landbúnaði. Jón hefur verið gagnrýndur af forsvarsmönnum verslunarinnar fyrir það að breyta svokölluðum magntolli í verðtoll. Yfirlýsing ráðherra hljóðar svo í heild sinni:
19.8.2011 
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði á morgun, laugardaginn 20. ágúst.
18.8.2011 
Forsíðu á nýju Bændablaði prýðir uppgerð falleg Farmal-dráttarvél. Mikill Farmal fagnaður var á Hvanneyri þann 16. júlí. Þar voru uppgerðar glæsilegar fornar dráttarvélar af ýmsum toga sýndar en mest áberandi var þó að sjálfsögðu Farmallinn.
18.8.2011 
Matar- og uppskeruhátíðin „Full borg matar“ eða „Reykjavík Real Food Festival“ eins og hún er kölluð upp á enska tungu verður haldin í Reykjavík í fyrsta sinn í haust dagana 14. - 18. september. Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenskan mat og matarhefðir á léttan og skemmtilegan hátt fyrir Íslendingum og erlendum ferðamönnum.
16.8.2011 
Það verður sannkölluð stórhátíð fyrir áhugamenn um sauðfjárrækt í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum, laugardaginn 20. ágúst kl. 14:00. Þá verður haldið níunda Íslandsmeistaramótið í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl - en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð hylli meðal landsmanna, en Sauðfjársetrið hélt fyrsta mótið árið 2003.
12.8.2011 
Matvælastofnun (MAST) og Landssamband hestamanna hafa samið við fatahreinsunarfyrirtæki um að taka við notuðum reiðfatnaði í rauða hliðinu í tollafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli og skila hreinum að fáum dögum liðnum. Er boðið upp á þessa þjónustu til að auðvelda hestamönnum að fylgja reglum um varnir gegn dýrasjúkdómum; til að hindra að dýrasjúkdómar berist til landsins. 
10.8.2011 
Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði fer rangt með staðreyndir í skrifum sínum um sauðfjárrækt og undrum sætir að hann skuli ekki hafa aflað sér betri upplýsinga um fyrirkomulag atvinnugreinarinnar áður en hann tók að fjalla um hana í fjölmiðlum. Svo segir í ályktun Samtaka ungra bænda (SUB) en í ályktuninni skora samtökin jafnframt á rektor Háskóla Íslands að beita sér fyrir faglegum vinnubrögðum og málefnalegum málflutningi starfsfólks háskólans.
10.8.2011 
Næstkomandi  laugadag, þann 13. ágúst, verður lífrænn dagur á Sólheimum. Þar hófst lífræn ræktun fyrst á Norðurlöndunum fyrir rúmum 80 árum með ræktun á grænmeti fyrir heimilisfólk undir forystu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima.
9.8.2011 
Síðastliðið vor sóttu 65 um búfræðinám við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) á Hvanneyri, en ekki er pláss nema fyrir 34 nýnema á hverju ári. Ásóknin hefur stóraukist á undanförnum tveimur árum.
9.8.2011 
Fræðsluerindi um  uppruna,  eiginleika og umhirðu ávaxtayrkja sem Finnar hafa verið að nota í  ræktun sinni verður haldið  í fundarsal Arion banka Borgartúni 19  þann 17. ágúst klukkan 20-22. Þar verður farið yfir hvernig yrkin hafa reynst við norðlæg skilyrði.
5.8.2011 
Á sama tíma og hjálparstofnanir heimsins hvetja fólk, þar á meðal Íslendinga,  til að safna fé til að hjálpa sveltandi íbúum í Sómalíu og Súdan er verið að selja þaðan kindur á fæti til konungsríkisins Saudí Arabíu í stórum stíl. Er það gert vegna Ramadan hátíðarinnar og til að halda niðri verði á kindum til manneldis í Saudí Arabíu.
5.8.2011 
Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hefur gefið út nýja afurðarverðskrá vegna haustslátrunar á sauðfé 2011. Þar kemur fram að KS býður líkt og fleiri 15% álag á verð á lömb sem koma til slátrunar um miðjan ágúst. Álagið fer síðan stiglækkandi fram að 40. viku. KS mun inna tíðar gefa út fréttabréf með frekari upplýsingum um komandi sláturtíð.
5.8.2011 
Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssambands sauðfjárbænda, svarar í dag í Fréttablaðinu fullum hálsi grein Þórólfs Matthíassonar prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands í sama blaði 3. ágúst. Í grein Þórólfs og viðtali við hann í morgunþætti í Ríkisútvarpinu heldur hann því m.a. fram að íslenskir skattgreiðendur séu að niðurgreiða lambakjöt til útflutnings. Þetta segir Sindri einfaldlega vera rangt.
4.8.2011 
Fullyrðingar um skort á kindakjöti í verslunum að undanförnu virðast ekki eiga við rök að styðjast. Bændablaðið gerði lauslega könnun á ástandinu í kjötborðum, kælum og frystiborðum 12 stórra verslana á höfuðborgarsvæðinu í dag og þar var yfirleitt nægt framboð af kindakjöti og mjög mikið í sumum verslunum.

4.8.2011 
Norðlenska kynnti nú fyrir mánaðamótin ákvörðun um verðlagningu sauðfjárafurða haustið 2011. Verðskráin tekur tillit til sjónarmiða bæði almennings og bænda og er þeim bændum sem fyrstir koma með fé til slátrunar um miðjan ágúst boðnar 15% álagsgreiðslur.
4.8.2011 
Sauðfjárbændur hafa legið undir mikilli gagnrýni í fjölmiðlum í sumar og virðist hún ekki síst sprottin vegna  neikvæðrar afstöðu bænda til aðildar að Evrópusambandinu. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, bregður spéspeglinum á þessar alvarlegu umræður á fésbókarsíðu sinni í dag með eftirfarandi pistli:
3.8.2011 
Sláturleyfishafinn SS hefur sent frá sér tilkynningu um birgðir lambakjöts. Ástæðan er að undanfarna daga og vikur hafi komið fram fullyrðingar um að lambakjöt skorti á innanlandsmarkaði og neytendur geti ekki keypt kjöt þar sem það sé ekki á boðstólum í verslunum.
3.8.2011 
Ólafsdalshátíð verður haldin nk. sunnudag 7. ágúst en Ólafsdalur í Dölum er um 5 km langur dalur um 6 km inn með sunnanverðum Gilsfirði. Að þessari hátíð stendur Ólafsdalsfélagið. Það var stofnað var 3. júní 2007 með það að markmiði að stuðla að eflingu og varðveislu Ólafsdals í Dölum, sem er í flokki merkustu menningarminja á Vesturlandi.
3.8.2011 
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um aflífun búfjár.  Ávefsíðu Landssamtaka suaðfjárbænda (saudfe.is) segir að um tímabæra endurskoðun að ræða en hluti þeirra reglna sem um efnið giltu voru frá 1957.
2.8.2011 
Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp, segir slátt enn ekki hafinn á bænum og lítil spretta hafi verið í sumar  vegna  þurrka. Hún gerir sér nú vonir um að  geta hafið slátt um miðjan ágúst og hefur aldrei áður byrjað svo seint að slá.
28.7.2011 

Mikil sala hefur verið á lambakjöti síðustu vikur og virðist umræða um verðhækkanir til bænda hafa haft jákvæð áhrif á sölutölur. Gott veður, auglýsingar og ýmis tilboð á kindakjöti hafa gert það að verkum að salan hefur verið góð undanfarið að mati þeirra sem til þekkja. Ágúst Andrésson, sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, segir að verulegur ...

28.7.2011 
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla mun standa yfir dagana 5.-8. ágúst n.k. Hundrað sýnendur taka þátt í ár og fjölbreytnin er mikil segir í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Innandyra má sjá og versla fatnað, fylgihluti, keramik, list, snyrtivörur, textílvörur, skart ofl. úr rammíslenskum hráefnum svo sem hrauni, ull, roði, lambskinni og hreindýraskinni.
27.7.2011 
Sauðfjárbændur í Skaftártungu mega ekki við því að missa mikilvægt beitarland undir lón vegna fyrirhugaðrar Búlandsvirkjunar. Þetta segir bóndi í Skaftártungu í viðtali við Ríkisútvarpið en hann telur jafnframt að virkjun muni leggja í rúst Tungufljót sem veiðiá.
27.7.2011 
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur hnekkt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um það að heimila fyrirtækinu Stjörnugrís að taka yfir rekstur svínabúanna Brautarholts og Grísagarðs. Svínabúin höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Taldi Samkeppniseftirlitið á sínum tíma ekki unnt ...
26.7.2011 
Sláturfélag Suðurlands hefur sent frá sér ákvörðun um verðskrá kindakjöts vegna komandi sláturtíðar. Býður félagið bændum 17,2% hækkun frá fyrra ári á því meðalverði sem félagið mun greiða fyrir innlagt kindakjöt í haust. Verð til bænda á dilkakjöti mun hækka um 14% en kjöt af fullorðnu um 101%. Í fréttabréfi til bænda segir að haustslátrun sauðfjár hjá SS hefjist 31. ágúst næstkomandi.
26.7.2011 
Matvælastofnun hefur í samstarfi við Datamarket opnað sérstaka upplýsingaveitu fyrir tölur um búfjáreign og fóðurframleiðslu í landbúnaði. Notendum gefst með notkun veitunnar tækifæri til að setja saman eigin fyrirspurnir og sjá niðurstöður ýmist á línulegum gröfum, í töfluformi eða stöplaritum. Eins er á auðveldan hátt mögulegt að afrita töflur og línurit úr gagnasafninu til birtingar þar sem viðkomandi notandi kýs...
25.7.2011 
Umboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér álit í kjölfar kvörtunar Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) vegna reglugerða um tollkvóta og innflutning á landbúnaðarvörum. Í álitinu kemst hann að þeirri niðurstöðu að þær heimildir sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi til álagningar tolla samræmist ekki stjórnarskrá.
22.7.2011 
Aska og kuldi hafa valdið því að spretta á túnum er helmingi minni víða í Skaftárhreppi en í fyrra. Sum tún verður ekki hægt að slá vegna ösku.
21.7.2011 
Verðlag á kjöti hefur verið mjög til umræðu þjóðfélaginu að undanförnu. Sauðfjárbændur hafa gefið út viðmiðunarverðskrá þar sem gert er ráð fyrir 25% hækkun og kúabændur hafa lýst því yfir að afurðir þeirra þurfi að hækka í verði.
20.7.2011 
Matvælastofnun (MAST) hefur gefið það út að áfram verði í gildi bann á nýtingu lands í Engidal til fóðuröflunar fyrir dýr ætluð til manneldis.  Um leið setur stofnun fyrirvara við þá niðurstöðu sem lýst var í greinargerð stofnunarinnar þann 6. júlí sl. Þar kom fram í greinargerð stofnunarinnar að díoxín í jarðvegi sé í öllum tilvikum undir þeim mörkum sem kalla á takmarkanir ...
19.7.2011 
Aðeins einn bóndi í Árneshreppi hefur getað slegið tún sín, en kuldatíð hefur gert bændum þar lífið leitt. Á sama tíma í fyrra var sláttur langt kominn í hreppnum. Grasspretta hefur lagast talsvert síðustu daga, enda hitastig með sæmilegast móti dagana 10. til 14. júlí.
19.7.2011 
Nú liggja fyrir dagsetningar haustfunda Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) sem hefjast um miðjan næsta mánuð. Á fundunum munu formaður og framkvæmdastjóri LS fjalla um stöðu og horfur innan greinarinnar og jafnframt mun fulltrúi Matvælastofnunar flytja erindi um verkefni stofnunarinnar sem tengjast sauðfjárræktinni. Framsögumenn svara síðan fyrirspurnum.
18.7.2011 
Í dag komu nýjar íslenskar kartöflur í búðir, en það nokkuð seinna en á undanförnum árum. Kartöflurnar koma frá Seljavöllum í Hornafirði. Í Þykkvabænum er hins vegar ekki von á uppskeru fyrr en um mánaðamótin.
18.7.2011 
Sem kunnugt er hafa Landssamtök sauðfjárbænda gefið út viðmiðunarverð sauðfjárafurða sem gerir ráð fyrir hækkun á verðskrám um 25 prósent. Í dag hafa fréttir borist af því að Landssamband kúabænda (LK) vilji einnig hækkun á sínum afurðum.
16.7.2011 
Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda (LS), mótmælti harðlega í fréttum ljósvakamiðlanna í kvöld orðum forseta og framkvæmdastjóra ASÍ í garð sauðfjárbænda sem reyna nú að bæta sín kjör. Þá sendi LS frá sér eftirfarandi yfirlýsinu vegna málsins í dag:
15.7.2011 
Meira af kornframleiðslu Bandaríkjanna fer nú til etanol hreinsunarstöðva og eldsneytisframleiðslu en notað er af bændum sem fóður í nautgripa- og alifuglarækt. Þetta kemur fram í grein sem Gregory Meyer í New York skrifaði í Financial Times á þriðjudag. Segir hann þetta undirstrika áhrifin af  stuðningi bandarískra yfirvalda við framleiðslu á lífeldsneyti (biofuel). Það hafi jafnframt valdið vaxandi eftirspurn eftir korni og verðhækkunum.
15.7.2011 
Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út viðmiðunarverð á lamba- og kindakjöti til bænda fyrir árið 2011. Að þessu sinni hækkar verðskráin um 25% frá fyrra ári.  Að baki því liggur að markaðsaðstæður hafa verið góðar fyrir sauðfjárafurðir undanfarin misseri.  Útflutningur hefur aukist stórum og verð farið hækkandi í erlendri mynt, vegna aukinnar eftirspurnar.
15.7.2011 
Í frumvarpi til laga um dýravelferð er gert ráð fyrir að leyfi Matvælastofnunnar þurfi fyrir dýrahaldi og starfsemi sem því eru tengd. Á það m..a við um svínarækt, nautgriparækt, sauðfjárrækt, loðdýrarækt, hrossarækt, fuglarækt og margvíslega aðra starfsemi. Samkvæmt lögunum verður ráðherra heimilt í reglugerð að kveða á um að annað dýrahald og önnur sambærileg starfsemi og tilgreind er í viðauka I í frumvarpinu sé leyfisskyld. Óheimilt er að hefja leyfisskylda starfsemi áður en leyfi hefur verið veitt.
15.7.2011 
Mikið verður um að vera á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri á morgun 16. júlí. Þá verður haldinn Farmal-fagnaður undir kjörorðunum „Gömul vél er gaman manns.“  Það er því vel við hæfi að út skuli vera komin ný  bók um sögu dráttarvélanna á Íslandi eftir safnstjórann Bjarna Guðmundsson en hún ber heitið „Alltaf er Farmall fremstur.“
15.7.2011 
Ráðstefnan um garð- og landslagsplöntur fyrir norðlæg og hafræn svæði  verður haldin dagana 18. – 19. ágúst nk.  Verður ráðstefnann haldin í samstarfi New Plants for the Northern Periphery Market (NPNP) verkefnis á vegum Norðurslóðaáætlunar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Garðyrkjufélags Íslands, Félags garðplöntuframleiðenda, Félags iðn- og tæknigreina (FIT), Skógræktar Ríkisins og umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar.
14.7.2011 
Tölvuþrjótar eða svonefndir „hakkarar“ hafa gert ítrekaðar árásir á tölvukerfi Bændasamtaka Íslands á undanförnum dögum. Hefur það valdið truflunum á netsambandi BÍ og þar með vefsíðu Bændablaðsins bbl.is
14.7.2011 
Eygló Harðardóttir alþingismaður telur að fullyrðingar Margrétar Kristmannsdóttur og Andrésar Magnússonar, forystumanna Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), í Fréttablaðinu um að íslenskar landbúnaðarvörur séu með þeim dýrustu í heimi, séu beinlínis rangar.
14.7.2011 
Heldur dró úr innflutningi á fóðurvörum fyrstu fimm mánuði þessa árs miðað við sama tímabil 2010 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Mánuðina janúar til maí 2011 voru flutt inn 31.247 tonn á móti 32.121 tonni á sama tímabili 2010.
13.7.2011 
Hagstofa ESB (Eurostat) sendi fyrir skemmstu frá sér ítarlega verðkönnun þar sem  gerður er samanburður á heimilisútgjöldum í 37 Evrópulöndum.  Könnunin náði til ESB landanna 27 og 10 annara landa í Evrópu þ.á.m. Íslands sem reyndist vera með svipað verðlag og Frakkland og Belgía.
13.7.2011 

Mun minna hefur verið flutt inn af kartöflum það sem af er ári en í fyrra. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru flutt inn 1.421 tonn af kartöflum fyrstu fimm  mánuðina  2010 en einungis 660 tonn sömu mánuði 2011. Munar þar 761 tonni eða ríflega helming. Þá voru flutt inn 477 tonn í júní 2010 og 451 tonn í júlí en tölur fyrir þessa mánuði í ár liggja ekki fyrir.

12.7.2011 
Fyrsta skóflustunga var tekin að gestamótttöku stórs vinnuvélasafns  að Skútum í Hörgárbyggð síðasta laugardag við hátíðlega athöfn. Það verk unnu Valgerður Sigurbergsdóttir, matráðskona hjá fyrirtækinu Skútabergi á Akureyri og Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri Hörgárbyggðar,  í sameiningu.
11.7.2011 
Heyrúlla, um 800 kíló að þyngd, valt á fulltri ferð niður tún ofan við bæinn Kvíaból í Köldukinn í liðinni viku og braut sér leið inn í fjós.  Rúllan stöðvaðist í flórnum og þykir mildi að ekki fór verr, en Marteinn Sigurðsson bóndi á Kvíabóli telur að einhverjar kýr sem voru inni í fjósi hafi orðið fyrir henni, þó ekki sjáist á þeim.
11.7.2011 
Aðeins 8 bændur sóttu um styrki til aðlögunar á lífrænum búskap en umsóknarfrestur rann út þann 1.júlí og höfðu þeir verið auglýstir frá marslokum s.l. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir alhliða styrkir verða veittir, en verklagsreglur um þá voru gerðar samkvæmt samkomulagi á milli Bændasamtaka Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Bændasamtök Íslands annast alla umsýslu í tengslum við styrkveitingarnar en fjármunirnir, sem eru að þessu sinni nokkuð á annan tug milljóna, koma úr ríkissjóði.
9.7.2011 
Haraldur Magnússon bóndi í Belgsholti í Melasveit brýtur blað í sögu raforkuframleiðslu á Íslandi í dag með gangsetningu á  fyrstu vindmyllunni sem tengd er raforkukerfi landsins. Myllan er hefðbundin spaðamylla og afkastar 30 kW orku. Hún er sænsk frá Hannevind Vindkraft AB en umboðsaðili á Íslandi er Kiano ehf. Í Hveragerði.
8.7.2011 
Á vegum skógræktarverkefnisins Héraðs- og Austurlandsskóga verður í dag, föstudaginn 8. júlí, plantað 25 milljónustu trjáplöntunni. Plöntunin fer fram í landi Litla-Steinsvaðs í Hróarstungu eins og greint er frá í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.
8.7.2011 
Páll Lárusson Rist, bóndi á Litla-Hóli í Eyjafjarðarsveit verður níræður 1. ágúst næstkomandi og er að líkindum elsti starfandi bóndi landsins. Hann segist ekki muna jafn langvarandi kuldatíð á austan- og norðanverðu landinu og nú sem stóð frá því um miðjan maí og til loka júní.