Innlendar fréttir

28.7.2010  Tjörvi Bjarnason
Samverjar buðu upp á ókeypis hádegisverð
Síðustu þrjár vikur hefur eldhúsið í Stýrimannaskólanum í Reykjavík verið opið fyrir þá sem vilja þiggja ókeypis hádegisverð. Það voru Félag atvinnurekenda, Landssamband eldri borgara og fleiri opinberir aðilar og fyrirtæki sem höfðu frumkvæði að verkefninu sem ber heitið „Samverjinn“. Opið er frá hálf tólf til tvö alla virka daga en síðasti dagurinn er á föstudaginn 30. júlí.

Fjöldi fyrirtækja, þar á meðal afurðastöðvar bænda, og kokkar hafa gefið matvörur og vinnu sína en að sögn Gissurar Guðmundssonar kokks hefur samvinnan verið til fyrirmyndar. „Hingað koma um 200 manns daglega og þetta fellur í virkilega góðan jarðveg,“ segir Gissur og tekur fram að það séu ekki einungis atvinnulausir einstaklinga sem nýti sér þjónustuna. „Það er fullt af fólki sem að þótt það hafi vinnu þá nær það ekki endum saman, þá er gott að geta komið í mat til okkar enda eru allir velkomnir,“ sagði Gissur þegar Bændablaðið kíkti við á dögunum.

Á meðfylgjandi mynd eru þeir kampakátir kokkarnir Helgi Einarsson, Eiríkur Friðriksson og Gissur Guðmundsson – enda ánægjulegt að styðja gott málefni.

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður