
Í kjölfar hruns fjármálakerfisins í október árið 2008 varð eftirspurn eftir sumum innlendum viðarafurðum mun meiri en hefur verið vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Þannig tæplega tvöfaldaðist sala arinviðar milli áranna 2007 og 2008 og sala óunnins bolviðar var fjórfallt meiri en hún hafði verið áður að sögn Þrastar Eysteinssonr, sviðsstjóra þjóðskóganna.
Í kjölfar hruns fjármálakerfisins hér í október árið 2008 varð eftirspurn eftir sumum innlendum viðarafurðum mun meiri en hefur verið vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Þannig tæplega tvöfaldaðist sala arinviðar milli áranna 2007 og 2008 og sala óunnins bolviðar var fjórfallt meiri en hún hafði verið áður að sögn Þrastar Eysteinssonr, sviðsstjóra þjóðskóganna.
Aukin sala arinviðar skýrist einkum af því að markaðssetning á furu- og lerkiarinviði hófst fyrir alvöru árið 2008 og kom hann að einhverju leyti í staðinn fyrir innfluttan arinvið. Á árinu 2008 náðust góð viðskiptasambönd við fyrirtækið Hestalist sem framleiðir hefilspæni til að nota sem undirburð undir húsdýr. Hestalist flutti áður inn bolvið í sína framleiðslu en fall krónunnar varð til þess að fyrirtækið gat boðið verð fyrir innlendan bolvið á Suður- og Vesturlandi sem stóð undir kostnaði við grisjun og útkeyrslu, þ.e.a.s. þar sem tré voru sæmilega stór og ekki var langt að vegi. Í þessu umhverfi hófst árið 2009: Arinviður seldist sem aldrei fyrr og Hestalist vildi kaupa allan bolvið sem féll til á Suður- og Vesturlandi. Stór pöntun lá auk þess fyrir á fiskihjallaspírum, fyrirséð var að viðarkynt hitaveita mundi rísa á Hallormsstað og fyrirspurn hafði komið frá járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga um viðarkurl sem kolefnisgjafa í framleiðslu þeirra á kísilmálmi.
Ljóst var að eftirspurn eftir grisjunarviði yrði talsvert meiri en áður hafði þekkst og jafnljóst að það yrði umtalsvert átak fyrir Skógrækt ríkisins að auka grisjun verulega. Það átak fól m.a. í sér stórfellda fjölgun útboða á grisjunarverkefnum, ráðningu skógarhöggsmanna af atvinnuleysisskrá, kaup á timburvögnum og kurlara, mikla vinnu við mælingar á skógum, gerð grisjunaráætlana og heilmikinn lærdóm.
/Skógrækt ríkisins