Innlendar fréttir

23.7.2010  Sigurður Már Harðarson
Á annað hundrað sýnendur á leið á Handverkshátíð
Nú eru einungis tvær vikur í Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla sem fer fram dagana 6.-9.en þetta er í 18. sinn sem hátíðin er haldin og hefur vaxið ár frá ári. Margt verður í boði á sýningunni eins og vélrúningur, félag landnámshænsna verða með sýningu og fegurðarsamkeppni, sett verður upp söguþorp og sirkushópur mætir á svæðið svo fátt eitt sé nefnt.

Vel á annað hundrað sýnendur undirbúa nú komu sína norður en ásamt þeim verður fjöldinn allur af hópum og félögum sem heimsækja sýninguna. Verksvæði handverksmanna verður litríkt, tískusýningar fara fram, sett verður upp krambúð, sirkushópur mætir á svæðið og blöðrulist og andlitsmálun verður fyrir börnin. Einnig verður komið upp gríðarlega spennandi söguþorpi og tímavél spunnin með handverksmönnum, landnámsmenn í miðaldatjöldum sýna verklag gamla tímans frá miðöldum til baðstofustemningarinnar og svo til nútímamannsins.

Vélrúningur Birgis Arasonar úr Gullbrekku þar sem ullin er svo spunnin í réttinni og nú jafnvel jurtalituð í söguþorpinu verður alveg klárlega áhugavert að sjá. Félag landnámshænsna verður með sýningu og sína dásamlegu fegurðarsamkeppni. Kajaksmíði og vélasýning eru svo punkturinn yfir i-ið svo allir finni sér eitthvað skemmtilegt til að fylgjast með. Spennandi námskeið verða haldin í tengslum við hátíðina þann 10.-12.ágúst, Ölhænur, Flauelsskurður og Næfur. Bókanir standa nú yfir og það þéttist á námskeiðunum.

Sjá nánari upplýsingar á www.handverkshatid.is og á Facebook-síðu hátíðarinnar http://www.facebook.com/pages/Handverkshatid/95736836941

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður