Innlendar fréttir

22.6.2010  Sigurður Már Harðarson
Blóm í bæ í Hveragerði
Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í  annað sinn um næstu helgi í Hveragerði, eftir mikla velgengni síðastliðið  sumar. Um 40.000 gestir sóttu hátíðina heim í frábæru veðri í fyrra og nutu fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir „græna geiranum“.

Fjöldi viðburða á sviði garðyrkju, umhverfismála, íslenskrar framleiðslu og handverks verður á sýningunni. Í ár verður þema sýningarinna „Börn“ og koma skreytingar og annað til með að bera keim af því.

Sýningar, markaðir og ýmsar keppnir verða allan sýningartímann. Þá verður lífleg markaðsstemning í sölutjöldum með skemmtilegum uppákomum.

Sýningin er fjölskyldumiðuð þar sem lögð verður áhersla á að gera börnum hátt undir höfði og verður góð aðstaða til gistingar í boði á tjaldsvæði með allskyns uppákomum.

Gjaldtöku fyrir markaðsbása verður haldið í lágmarki með það að markmiði að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í sýningunni.

Frekari upplýsingar um sýninguna og dagskrá má finna á vefnum www.blomibae.is.

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður