Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf í dag, þriðjudaginn 9. febrúar, kl. 14:30-16:30 í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Þar munu sérfræðingar Matvælastofnunar kynna efni nýrrar matvælalöggjafar fyrir fyrirtækjum í matvælaiðnaði, matvælaverslun og veitingaþjónustu.

Fundurinn verður endurtekinn á sama stað 16. febrúar kl. 14:30-16:30 og á Akureyri 22. febrúar kl. 14:30-16:30 í fundarsal Alþýðuhússins á fjórðu hæð að Skipagötu 14.
Dagskrá:
• Af hverju ný matvælalöggjöf?
• Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
• Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?
Eftir hverja kynningu verður boðið upp á fyrirspurnir.
Fundarstjóri verður Ragnheiður Héðinsdóttir hjá Samtökum iðnaðarins.
Upplýsingar um matvælalöggjöfina eru á heimasíðu Matvælastofnunar: http://mast.is/logogreglur/matvaelaloggjofees
Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér löggjöfina.
Stjórnendur og gæðastjórar matvælafyrirtækja sem og aðrir áhugasamir úr iðnaðinum eru hvattir til að mæta og fá svör sérfræðinganna við sínum spurningum sem varða hina nýju löggjöf. Vinsamlegast látið vita um þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Vinsamlega takið fram hvaða fund af fundunum þremur þið hyggist sækja.
Sjá frekar á www.mast.is.