Innlendar fréttir

8.2.2010  Sigurður Már Harðarson
Málþing um hafís og strandmenningu
Miðvikudaginn 10. febrúar verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins.

Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17.00-19.30 verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins. Meðal fyrirlesara eru alþjóðlega virtir erlendir og íslenskir fræðimenn. Ljóst er að á málþinginu gefst fólki kostur á að fræðast um ýmsar hliðar viðfangsefnisins frá mismunandi sjónarhornum.

DAGSKRÁ:

Stutt kynning á Háskólasetri Háskólans á Hólum á Blönduósi

Fulltrúi stjórnar og Ester Helgadóttir sérfræðingur við Háskólasetrið

Island 1830-1999 :climate, paleoclimate and sea ice

Jean-Luc Mercier, prófessor við Háskólann í Strasbourg, Frakklandi

Hafíssaga síðustu tíu þúsund ára

Ólafur Ingólfsson prófessor við Háskóla Íslands

Hafís og siglingar

Þór Jakobsson veðurfræðingur

Kaffihlé

Útbreiðsla og áhrif hafíss fyrr á öldum

Astrid Ogilvie prófessor við Institute of Arctic and Alpine Research í Boulder, Colorado

Rauntímaeftirlit með hafís við Ísland

Ingibjörg Jónsdóttir dósent við Háskóla Íslands

Heimsóknir hvítabjarna á Íslandi á síðastliðnum árum

Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra

Umræður

Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum verður fundarstjóri.

Aðgangur að málþinginu er ókeypis og eru allir velkomnir.

Háskólasetrið á Blönduósi er á vegum Háskólans á Hólum og starfar í góðu samstarfi við Blönduósbæ og önnur fræðasetur á svæðinu. Tilgangur setursins er að nýta aðstæður og svæðisbundna sérstöðu á Blönduósi og í Húnavatnssýslum til þess að efla fræðastarf og rannsóknir á forsendum staðbundinna auðlinda og í samstarfi við heimamenn. Markmið setursins er tvíþætt: Í fyrsta lagi að stunda annars vegar rannsóknir og fræðslu á sviði strandmenningar og hafíss á Norðurslóðum og hins vegar á sviði textílfræða. Í öðru lagi að styðja við uppbyggingu hvers kyns rannsókna og fræðslustarfa í héraðinu. Lögð er áhersla á samstarf við söfn, þekkingar- og fræðasetur á svæðinu, sem og á landsvísu og alþjóðlega.

Samkvæmt reglum Háskólans á Hólum um háskólasetur er meginhlutverk þeirra að efla rannsókna- og fræðastarf skólans um allt land og tryggja góð tengsl og samstarf við hvers kyns þekkingar- og fræðastarfsemi. Með þessu sé stuðlað að eflingu mannauðs á hverjum stað, góðri nýtingu staðbundinna auðlinda, aukinni menntun, rannsóknum og nýsköpun í öllum byggðum landsins.

Nánari upplýsingar veitir Ester Helgadóttir sérfræðingur við Háskólasetrið s: 8658019 / ester@mail.holar.is

 
  


 


 

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður