
Á morgun, fimmtudaginn 4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís halda námskeið sem kennir fólki að greina innihaldslýsingar og merkingar á matvælum, með tilliti til reglugerða sem í gildi eru um þau mál. Námskeiðið er haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ).

Á morgun, fimmtudaginn 4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís halda námskeið sem kennir fólki að greina innihaldslýsingar og merkingar á matvælum, með tilliti til reglugerða sem í gildi eru um þau mál. Námskeiðið er haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ).
„Merkingar á matvælum eru oft einu upplýsingarnar sem við höfum í höndunum til þess að velja matinn okkar á upplýstan hátt, “ segir í tilkynningu frá Endurmenntun Háskóla Íslands. „Merkingarnar þurfa að fylgja ákveðnum reglum, sem segja til um hvað þarf að koma fram. Þær eiga að vera skýrar og ekki villa um fyrir okkur. Innihaldslýsing og næringargildisupplýsingar eru mikilvægar til þess að geta borið saman innihaldsefni, orkuinnihald og bætiefni matvæla og kunna að vera forsenda þess að við getum sett saman heilsusamlegt mataræði.
Farið verður yfir gildandi reglur um merkingar matvæla eins og þær snúa að neytendum. Merkingar á umbúðum matvæla verða skoðaðar og komið verður inn á hvernig á að merkja ofnæmis- og óþolsvalda. Gerð verður grein fyrir hinum ýmsu merkjum á matvælum: hollustumerki, glas- og gaffalmerkið, lífræn vottunarmerki, Fair Trade o.fl. Skýrt verður hvernig merkingar á innihaldi, næringargildi og geymsluþoli eru unnar. Tekin verða dæmi um vinnslu merkinga og þátttakendur vinna verkefni. Sýnd verður notkun á íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) og vefforritinu hvaderimatnum.is, auk fleiri forrita og aðferða við útreikninga.
Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa á merkingum matvæla og hentar einnig þeim sem nota þær í störfum sínum, s.s. í mötuneytum, framleiðslu- og innflutningsfyrirtækjum. Markmið með námskeiðinu er að gera þátttakendur færa um að túlka merkingar matvæla og veita þeim skilning á innihaldi þeirra.
Kennsla og umsjón:
Jónína Þ. Stefánsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun (MAST)
Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís
Fim. 4 feb. kl. 18:00 - 21:00. Verð: 8.500 kr. Meðlimum MNÍ býðst námskeiðið á 5.950 kr. ef tekin er fram félagsaðild að MNÍ við skráningu.
Frekari upplýsingar um námskeiðið er að finna á vef Endurmenntunar HÍ, þar sem skráning fer einnig fram.