
Þegar ég var ungur drengur í sveitinni var ekki algengt að komast í tæri við þekkta Íslendinga. Ómar Ragnarsson kom til dæmis aldrei fljúgandi á Frúnni, lenti á túninu heima og tók viðtal við bændur og búalið sem svo birtist í sjónvarpsfréttum. Ekki heima hjá mér. Hemmi Gunn og Bylgjulestin átti ekki leið um sveitirnar og Valgeir Guðjónsson sat ekki uppi á Stuðmannarútunni með gjallarhorn og auglý