7.9.2010
Sigurður Már Harðarson

Hvað er beturviti og banastrik? Hvaða aðrar merkingar hefur orðið gemsi? Þessum spurningum og mörgum öðrum er velt upp á mjólkurfernum landsmanna í nýju málræktarátaki Mjólkursamsölunnar sem myndskreyttar eru af Halldóri Baldurssyni. Í átakinu er áhersla lögð á nýyrði og nýyrðasmíðar auk þess sem fjallað er um nýyrði sem náð hafa fótfestu í málinu.
6.9.2010
Tjörvi Bjarnason

Innfluttar matvörur ættu með réttu að hafa lækkað í verði á árinu. Verð á innfluttri matar- og drykkjarvöru hefur verið nánst óbreytt á þessu ári þó svo að gengisvísitala hafi lækkað umtalsvert.
Henný Hinz, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, furðar sig á þessu í samtali við Rúv og segir að heimilin hafi ekki notið styrkingar krónunnar þrátt fyrir loforð kaupmanna um að svo yrði.
6.9.2010
Freyr Rögnvaldsson

Ríkisendurskoðun hefur skilað skýrslu um framkvæmd búvörusamninga en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið óskaði í júní 2008 eftir því að stofnunin athugaði framkvæmd sauðfjársamnings á árunum 2001-2007. Síðar óskaði ráðuneytið eftir því að stofnunin athugaði jafnframt framkvæmd gildandi mjólkursamnings og aðlögunarsamnings í garðyrkju.
6.9.2010
Sigurður Már Harðarson

Nú gefst almenningi í fyrsta sinn kostur á að gera athugasemdir við drög að stefnumótun í skógræktarmálum Íslendinga. Er þetta gert í ljósi breyttra tíma og krafna samfélagsins um opna stjórnsýslu og aukin áhrif almennings eins og fram kemur í tilkynningu frá Skógrækt ríkisins.
2.9.2010
Sigurður Már Harðarson

Í vikunni undirritaði Björn Örvar, framkvæmdastjóri ORF líftækni viljayfirlýsingu við Dilip Mohite, forstjóra indverska fyrirtækisins DM Corporation, um samstarf við lyfjaþróun. Fyrirtækin stefna að samstarfi við þróun, framleiðslu og markaðssetningu á próteinlyfjum fyrir alþjóðlegan markað.
1.9.2010
Tjörvi Bjarnason
Fimm af sjö sláturleyfishöfum hafa gert breytingar á verðskrám sínum á síðustu dögum. Í flestum tilfellum hafa breytingarnar snúist um að dregið er úr verðmun milli vikna en sauðfjárbændur hafa lýst verulegri óánægju með hversu mikill munur er á verðum eftir tímabilum. Meðal annars ályktaði stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) 24. ágúst síðastliðinn þar sem verðstefnu sláturleyfishafa var mótmælt.
31.8.2010
Tjörvi Bjarnason

Stjórn félags sauðfjárbænda í Dalasýslu hefur sent út fundarboð til sauðfjárbænda þar sem fjallað verður um nýbirta verðlista sláturleyfishafa. Fundurinn verður haldinn í Dalabúð í Búðardal, föstudaginn 3. sept. og hefst hann kl. 20:00.
27.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Það voru ánægðir gangnamenn sem komu til réttar á Leiðvöllum í Meðallandi um miðjan dag í gær. Á undan sér höfðu þeir safn um 2.500 fjár sem hafð gengið í girðingu Landgræðslunnar í sumar. Var þar um að ræða fé sem flutt var af áhrifasvæði gossins í Eyjafjallajökli í vor.
27.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Miðstjórn ASÍ samþykkti í gær umsögn um frumvarp til breytinga á búvörulögum, mjólkurmálið svokallaða. ASÍ leggst í umsögninni gegn því að frumvarpið verði að lögum.
26.8.2010
Tjörvi Bjarnason

Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, segir í grein í Bændablaðinu sem kom út í dag að verði umsókn um aðild að ESB ekki dregin til baka á næstu vikum, eins og BÍ hafi krafist, muni aðlögun stjórnkerfis að ESB hefjast innan skamms tíma.
25.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Í minnisblaði Sigurgeirs Þorgeirssonar ráðuneytisstjóra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins sem Bændablaðið hefur undir höndum kemur fram að íslenskt landbúnaðarkerfi sé gjörólíkt fyrirkomulaginu í Evrópusambandinu (ESB) og því þurfi að breyta áður en til aðildar geti komið.
24.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Eins og undanfarin ár hafa Bændasamtökin tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verður fyrsta fjárrétt haustsins sunnudaginn 29. ágúst en það er Baldursheimsrétt í S-Þingeyjarsýslu. Fyrsta stóðrétt ársins er hins vegar Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur Húnavatnssýslu laugardaginn 4. september.
19.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Samtök ungra bænda munu standa fyrir keppninni Ungi bóndi ársins í tengslum við landbúnaðarsýninguna og bændahátíðina Sveitasælu 2010 í Skagafirði, laugardaginn 21. ágúst. Fjögur landshlutafélög eiga aðild að samtökunum og mun hvert þeirra senda þriggja manna lið til keppni en liðsmenn munu einnig keppa um titilinn „Ungi bóndi ársins 2010“. Keppnin hefst klukkan 10:00 að morgni laugardagsins og má búast við miklum atgangi. Sigurvegari keppninnar í fyrra, Guðmundur Þór Guðmundsson frá Kvennabrekku í Dölum hyggst mæta á svæðið og verja titilinn en búast má við að hörð atlaga verði gerð að honum. Samtök ungra bænda hvetja félagsmenn sína sem og aðra til að mæta, styðja sitt lið og kíkja á fjölbreytta sýningu í leiðinni.
19.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Bændur munu ekki una því ætli ríkisvaldið sér ekki að standa við gildandi búvörusamninga heldur leita réttar síns segir Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra segir það sitt mat að standa beri við gildandi samninga.
19.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla verður haldin laugardaginn 21. ágúst næstkomandi við í og við reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki. Meðal dagskrárliða eru kálfa- og hrútasýning, smalahundasýning, klaufskurður á kúm, keppni í dráttarvélakstri í boði Pardus á Hofsósi, kynbótadæming hrossa, sveitamarkaður, handverkssýning, vélasýning, hæfileikakeppni gröfumannsins auk annars. Yngsta kynslóðin ætti ekki að láta sér leiðast en þau geta skellt sér í húsdýragarð eða ærslast í hoppukastala. Það ættu því allir að fá eitthvað við sitt hæfi á SveitaSælu laugardaginn 21.ágúst.
18.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Allir sláturleyfishafar hafa nú birt verðskrár sínar fyrir slátrun á sauðfé á komandi sláturtíð. Áður hefur verið greint frá birtingu verðskráa SS, KS, SKVH og nú síðast Norðlenska. Fjallalamb, Sláturfélag Vopnafjarðar og SAH afurðir hafa nú einnig birt sínar verðskrár. Verð eru að mestu óbreytt frá síðasta ári hjá öllum sláturleyfishöfum utan að geymslugjöld svokölluð verða ekki greidd af sláturleyfishöfum í ár eins og verið hefur.
17.8.2010
Tjörvi Bjarnason

Norðlenska birti á vef sínum dag verðskrá vegna sauðfjárafurða fyrir haustið 2010. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að niðurstaðan sé sú að greiða svipað verð og á síðasta ári fyrir dilkakjöt, að frádregnum 39 krónum vegna geymslugjalds. Það hefur fram til þessa verið greitt til afurðastöðva en samkvæmt nýjustu breytingum rennur það nú beint til bænda.
17.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis hafa borist tíu umsagnir um frumvarp til breytinga á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Um er að ræða mjólkurmálið svokallaða sem verið hefur í umræðunni að undanförnu. Stefnt er að því að nefndin fundi á föstudaginn kemur en samkvæmt upplýsingum Bændablaðsins er ekki gert ráð fyrir því að umsagnaraðilar verði kallaðir á þann fund.
16.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

BSRB lýsir stuðningi sínum við breytingar á búvörulögum eða mjólkurmálinu sem svo hefur verið nefnt. Þetta kemur fram í umsögn sem BSRB hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis. Í umsögninni kemur fram að BSRB taki ekki afstöðu til þess hvort rétt sé að viðhalda greiðslumarkskerfi í mjólkurframleiðslu en á meðan það sé við lýði sé eðlilegt að farið sé eftir þeim lögum sem um það gilda.
16.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra um þekkingarsetur á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu. Skýrslan tekur til 189 setra um land allt og sýnir að þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni er margbrotin og einkennist af smáum en fjölbreyttum einingum.
13.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Í frumvarpi til breytinga á búvörulögum, mjólkurfrumvarpinu svokallaða er gert ráð fyrir því að aðilar sem stunda heimavinnslu á mjólk fái ívilnun upp á 15.000 lítra utan greiðslumarks sem þeir geti þá nýtt til sinnar framleiðslu. Eftir sem áður er þeim sem stunda heimavinnslu auðvitað heimilt að framleiða að vild úr mjólk af því greiðslumarki sem er til staðar á búunum.
13.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda (LK) segir það sé mat landssambandsins að það að heimavinnsluaðilum í mjólkurframleiðslu sé veitt ívilnun upp á15.000 lítra framleiðslu árlega utan greiðslumarks sé verulega mikill stuðningur þeim til handa. Þá segir hann það ekki réttan skilning að landssambandið geri kröfu um að mjólk sem framleidd er og unnin innan þessara marka skuli einungis seld heima á þeim bæjum sem framleiðsluna stunda. LK leggist á engan hátt gegn því að heimavinnsluaðilar selji sínar afurðir í Reykjavík eða hvar annars staðar á landinu sem þeim þóknast.
12.8.2010
Tjörvi Bjarnason

Frumvarp til laga um breytingar á búvörulögum hefur á síðustu dögum orðið tilefni háværrar umræðu í fjölmiðlum. Með frumvarpinu er lagt til að þeir sem stunda heimavinnslu mjólkurafurða geti nýtt til þess 15.000 lítra mjólkur án þess að skerða greiðslumark og að ráðherra geti lagt stjórnvaldssektir á afurðastöðvar sem markaðsetja mjólk umfram eða utan greiðslumarks á innanlandsmarkað án þess að fyrir því liggi samþykki framkvæmdanefndar búvörusamninga.
12.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Bændasamtök Íslands hafa sent Alþingi umsögn sína um frumvarp til breytinga á búvörulögum sem nú liggur fyrir Alþingi. Í umsögn sinni mælast samtökin til að frumvarpið verði samþykkt í núverandi mynd. Í umsögninni er vakin athygli á að með frumvarpinu sé ekki lögð til eðlisbreyting á núgildandi lögum varðandi heimildir til að markaðsetja mjólk sem framleidd sé utan greiðslumarks heldur verði ákvæði um óheimila markaðsetningu og sektir við slíkum brotum skýrð og einfölduð. Þær tillögur eru mjög til bóta að mati samtakanna.
12.8.2010
Sigurður Már Harðarson

Í næstu viku, dagana 16.-18. ágúst, munu Landssamtök sauðfjárbænda gangast fyrir sjö almennum bændafundum um land allt. Fundirnir verða tvískiptir. Annarsvegar munu formaður og framkvæmdastjóri LS fjalla um störf samtakanna og verkefnin framundan m.a. viðmiðunarverð samtakanna á sauðfjárafurðum, stöðu á markaði og fleira.
12.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stjórn Samtaka ungra bænda sendi í gær frá sér ályktun þar sem frumvarpi um breytingar á búvörulögum er fagnað enda séu þær til þess fallnar að styrkja grundvöll mjólkurframleiðslu í hinum dreifðu byggðum landsins. Stjórnin lýsir sérstakri ánægju með að í frumvarpinu sé heimild þar sem aðilum sem stunda heimavinnslu sé veitt leyfi til að vinnu afurðir úr mjólk án þess að greiðslumark skerðist. Stjórnin telur hvorki búvörulög né umræddar fyrirhugaðar breytingar hamla nýliðun í mjólkurframleiðslu.
11.8.2010
Sigurður Már Harðarson

Maður er nefndur Sigurður Hilmarsson. Fyrirtæki hans framleiðir og selur skyr í ýmsum bragðtilbrigðum í Bandaríkjunum undir vörumerkinu Siggi´s skyr. Síðustu misserin hefur velgengni þessa vörumerkis vaxið mjög og til marks um það má nefna að áætlað er að það muni hala inn um sex milljónir dollara á þessu ári vegna sölu vítt og breitt um Bandaríkin, m.a. í Whole Foods verslunarkeðjunni.
11.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) hefur gefið út viðmiðunarverðskrá á kindakjöti fyrir komandi sláturtíð. Verðskráin hækkar um 5 prósent frá fyrra ári en sú hækkun er nánast á pari við hækkun vísitölu neysluverðs frá síðasta ári. Sala á kindakjöti fyrstu sex mánuði ársins hefur verið með svipuðu móti og var í fyrra og heldur betri það sem af er sumri. Úflutningur hefur hins vegar stóraukist frá síðasta ári og því telur stjórn LS svigrúm til hækkana nú.
10.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið í áttunda sinn næstkomandi laugardag 14. ágúst en mótið er hluti af árlegri stórhátíð Sauðfjársetursins í Sævangi á Ströndum. Mótið, sem vanalega gengur undir nafninu hrútaþukl hefst klukkan 14.00 og um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík þar sem Geirmundur Valtýsson mun halda upp í stuðinu með skagfirskri sveiflu.
10.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Norræna ráðherranefndin hyggst láta rannsaka hversu miklu af matvælum er hent árlega úr verslunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaráði. Vitað er að magnið er gríðarlega mikið og ljóst að kostnaður vegna þess er afar mikill. Ekki síður kemur slík sóun niður á umhverfinu. Úrgangshópur ráðherranefndarinnar sér um verkefnið og markmiðið er ekki einungis að kanna hversu mikið magn um ræður heldur einnig að leita leiða til að koma í veg fyrir að matvælum sé hent. Stefnt er að því að kynna niðurstöður rannsóknarinnar í lok ársins.
10.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að setja reglugerð þar sem kveðið er á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur á markaði hér á landi sem innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum. Stuðst verður við samsvarandi reglur Norðmanna og mun ný reglugerð taka gildi fljótlega, með nauðsynlegum aðlögunartíma fyrir framleiðendur og söluaðila. Undirbúningur að setningu reglna í þessum tilgangi hefur staðið yfir í ráðuneytinu um alllanga hríð.
9.8.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sláturfélag Suðurlands (SS) og Kaupfélag Skagfirðinga (KS) hafa birt verðskrár fyrir haustslátrun á kindakjöti. Sú breyting er orðin á milli ára að sláturleyfishafar taka ekki lengur að sér miðlun á greiðslum til bænda sem ákvarðaðar eru samkvæmt sauðfjársamningi undir liðnum „Markaðsstarf og birgðahald“, svokölluð geymslugjöld. Sú upphæð er 35,25 krónur á kíló á allt kjöt og lækka meðalverð beggja fyrirtækjanna til samræmis við þá upphæð.
5.8.2010
Þröstur Haraldsson

Hugmyndir hafa komið fram um að byggja stóra kornþurrkunarstöð við Þjórsá, í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir. Morgunblaðið hefur þetta eftir feðgunum Björgvin Þór Harðarsyni og Herði Harðarsyni í Laxárdal 2 í Gnúpverjahreppi í blaðinu í dag. Þeir segja að unnt sé að auka mjög hlut innlendra hráefna í fóðri dýra, ekki síst svína, en að til þess þurfi að stórauka kornrækt í landinu.
5.8.2010
Þröstur Haraldsson

Ráðstafanir sem gripið var til vegna heilsufars í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli í vor hafa skilað árangri, að því er niðurstöður rannsóknar sóttavarnalæknis benda til en þær eru birtar í nýútkomnum Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Heilsufar 207 íbúa á gossvæðinu var skoðað og reyndist meirihluti þeirra við góða líðan og án einkenna þegar rannsóknin fór fram dagana 31. maí til 11. júní. Enn er unnið úr rannsóknargögnum en fyrstu niðurstöður læknisrannsóknar sýna að 60% íbúanna voru við góða líðan og án einkenna þegar rannsóknin fór fram.
4.8.2010
Þröstur Haraldsson

Kornverð hefur verið á miklu flugi að undanförnu, meira en menn hafa orðið vitni að í tæplega 40 ár eða þegar olíukreppan skall á heimsbyggðinni veturinn 1972-73. Verð á hveiti hefur hækkað á Evrópumarkaði um tæplega 50% síðan í lok júní og svipaða sögu eru að segja af öðrum mörkuðum. Ástæðan er fyrst og fremst þurrkarnir sem nú herja á Rússland, Úkraínu, Úsbekistan og Kasakstan en þeir hafa ekki verið meiri í hálfa öld.
3.8.2010
Þröstur Haraldsson

Tveir sláturleyfishafar á Norðurlandi, Norðlenska á Akureyri og SAH Afurðir á Blönduósi, hafa stofnað fyrirtækið Iceland Byproducts til að fullvinna garnir úr sauðfé til útflutnings. Þetta verður í fyrsta skiptið sem garnir eru fullunnar hér á landi. Tugir milljóna skapast sem útflutningsverðmæti.
28.7.2010
Tjörvi Bjarnason

Síðustu þrjár vikur hefur eldhúsið í Stýrimannaskólanum í Reykjavík verið opið fyrir þá sem vilja þiggja ókeypis hádegisverð. Það voru Félag atvinnurekenda, Landssamband eldri borgara og fleiri opinberir aðilar og fyrirtæki sem höfðu frumkvæði að verkefninu sem ber heitið „Samverjinn“. Opið er frá hálf tólf til tvö alla virka daga en síðasti dagurinn er á föstudaginn 30. júlí.
27.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Í kjölfar hruns fjármálakerfisins í október árið 2008 varð eftirspurn eftir sumum innlendum viðarafurðum mun meiri en hefur verið vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Þannig tæplega tvöfaldaðist sala arinviðar milli áranna 2007 og 2008 og sala óunnins bolviðar var fjórfallt meiri en hún hafði verið áður að sögn Þrastar Eysteinssonr, sviðsstjóra þjóðskóganna.
26.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Félag harmonikuunnenda í Reykjavík heldur árlega útihátíð sína um verslunarmannahelgina í Félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Norskur harmonikusnillingur, Håvard Svendsrud leikur fyrir dansi á tónleikum á laugardeginum meðal annarra. Hátíðarhlaðborð að hætti Begga verður á sunnudagskvöldinu, einnig markaður, hljóðfærasýning og samspil á svæðinu.
23.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Fyrirtækið Iceland Today sem meðal annars gefur út Reykjavík City Guide-handbókina opnaði á vordögum nýjan vef á slóðinni
www.icelandtoday.is. Vefurinn er almennur kynningarvefur um Ísland en þó með nýju sniði og nýrri nálgun, segir í tilkynningu. Meginþemað á vefnum eru náttúruöflin Fire, Water, Earth og Ice en í raun má segja að öll ferðaþjónusta hér á landi byggi á þessum þáttum.
23.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Nú eru einungis tvær vikur í Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla sem fer fram dagana 6.-9.en þetta er í 18. sinn sem hátíðin er haldin og hefur vaxið ár frá ári. Margt verður í boði á sýningunni eins og vélrúningur, félag landnámshænsna verða með sýningu og fegurðarsamkeppni, sett verður upp söguþorp og sirkushópur mætir á svæðið svo fátt eitt sé nefnt.
22.7.2010
Sigurður Már Harðarson

„Ég get staðfest það að riða hefur komið upp í einni kind á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi. Grunur vaknaði vegna sjúkdómseinkenna í kindinni og voru sýni send á Tilraunastöðina að Keldum þar sem greining riðu var staðfest,“ segir Brigitte Brugger, settur héraðsdýralæknir.
22.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Í dag gefur Íslandspóstur út þrjú ný frímerki í tilefni eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli fyrr á þessu ári. Frímerkin eru offsetprentuð á hefðbundinn hátt hjá hollensku frímerkjaprentsmiðjunni Joh. Enschedé en síðan silkiprentuð með mjög fínkorna trakíandesít ösku sem féll undir Eyjafjöllum 17. apríl 2010. Hönnuðir frímerkjanna eru Borgar Hjörleifur Árnason og Hany Hadaya hjá H2 hönnun. Ljósmyndir á frímerkjunum eru eftir Óskar Ragnarsson (ljósmynd frá Fimmvörðuhálsi) og Ragnar Th. Sigurðsson (Eyjafjallajökull 2 myndir).
21.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Síðastliðin tvö ár hafa ekki verið fluttir mjaltaþjónar til landsins í kjölfar efnahagsástandsins, enda nemur slík fjárfesting tugum milljóna króna með allri aðstöðu sem slíku mjaltatæki fylgir. Nú hefur verið gengið frá kaupum á einum mjaltaþjóni, sem er af gerðinni DeLaval VMS 2010 og verður hann settur upp með haustinu í kúabúi á Suðurlandi.
21.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Hið nýstofnaða félag Á-Vöxtur sem er félag áhugafólks um ræktun ávaxta og annarra óhefðbundinna tegunda á Ísland mun standa fyrir fjáröflun sunnudaginn 25. júlí næstkomandi til styrktar þróunarstarfi og framleiðslu eplayrkja fyrir Ísland. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og David Avocado Wolfe Íslandsvinur munu fylgja átakinu úr hlaði á táknrænan hátt föstudaginn 23. júlí með því að gróðursetja fyrsta eplapar Á-Vaxtar á Klambratúni kl. 10.00.
20.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Nú hefur verið kynnt til sögunnar nýtt göngukort á fjöll í Grímsnesi, Búrfell, Mosfell og Hestfjall þar sem vitnað er í hið sígilda ljóð Tómasar Guðmundssonar, Fjallganga. Kortið er samstarfsverkefni nemanda og kennara Ljósuborgar, ferðamálafulltrúa uppsveita Árnessýslu og handhafa höfundarréttar Tómasar Guðmundssonar skálds og Ragnars Guðmundssonar.
20.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að skoða lagalega stöðu villtra spendýra og fugla á Íslandi og leggja fram tillögur um úrbætur á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Að mati umhverfisráðherra þarf að endurskoða löggjöfina í ljósi breyttra aðstæðna frá því að lögin tóku gildi árið 1994.
19.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Herjólfur sigldi undir miðnætti síðastliðið föstudagskvöld í Landeyjahöfn til prófunar áður en reglulegar áætlunarsiglingar hefjast milli hafnarinnar og Heimaeyjar næstkomandi miðvikudag. Skipsflautan var þeytt þegar siglt var um hafnarmynnið.
19.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Hákarlaveiðar í vetur og vor hafa verið heldur dræmar hjá þeim sjómönnum sem lagt hafa hákarlalínu í sjó. Stefán Guðjónsson á Eskifirði, sem stundað hefur þessar veiðar í áraraðir, fékk aðeins tvo hákarla í allan vetur og komu þeir báðir í síðustu vitjuninni. Hildibrandur Bjarnason, hákarlaverkandi í Bjarnarhöfn, segir erfitt að fá nóg af hákarli af Íslandsmiðum til verkunar.
16.7.2010
Sigurður Már Harðarson

„Við höfum talað við marga bændur og vitum við að mikill áhugi er fyrir þessu. Ef bændur á Íslandi hafa áhuga á að setja repju niður í landskika hjá sér þá geta þeir haft samband við okkur og við munum síðan aðstoða þá í framhaldinu þeim að kostnaðarlausu með upplýsingagjöf um verkið svo sem um staðarval, sáningu og uppskeru svo eitthvað sé nefnt,“ segir einn forsvarsmanna verkefnisins Björn Páll Fálki Valsson.
16.7.2010
Sigurður Már Harðarson
Beðið verður með að setja reglur um merkingu á erfðabreyttum matvælum og fóðri hér á landi þar til viðræðum EFTA-landanna og ESB lýkur og ákvæði um þetta verða tekin upp í EES-samninginn. Þetta kemur fram í svari sem Neytendasamtökin hafa fengið frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en Neytendasamtökin sendu erindi til ráðuneytisins þann 13. apríl síðastliðinn um að slíkar reglur verði settar hér sem fyrst.
16.7.2010
Sigurður Már Harðarson
Sumarlokun Bændasamtakanna verður í 2 vikur frá og með mánudeginum 19. júlí til þriðjudagsins 3. ágúst. Vefurinn bondi.is mun einnig fara í frí á þessum tíma en vefur Bændablaðsins bbl.is verður reglulega uppfærður.
15.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Bændur undir Eyjafjöllum verða mjög varir við gróðurfarsbreytingar í kjölfar öskufallsins úr Eyjafjallajökli. Þar virðast tvíkímblöðungar og súrur hafa hagnast vel á öskunni og er njólinn einna mest áberandi ásamt hvönn og kerfli. „Við getum ekkert gert í þessu, ef njólinn nær að blómstra þá fjölgar hann sér og þegar maður endurræktar þá fer hann ekki,“ segir Berglind Hilmarsdóttir bóndi á Núpum undir Eyjafjöllum.
15.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Laugardaginn 17. júlí næstkomandi verður Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu Kátt í Kjós en þetta er í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar hátíðar í sveitarfélaginu. Á undanförnum árum hafa mörg þúsund manns heimsótt Kjósina heim á þessum degi en með honum vilja Kjósverjar gefa öllum þeim sem áhuga hafa tækifæri á að koma í heimsókn til þess að skoða sveitina og það sem falleg náttúran og íbúar hafa upp á að bjóða.
14.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Frá og með 1. júlí hafa nokkur íslensk sláturhús leyfi til að flytja kinda- og hrossakjöt til Rússlands. Matvælastofnun hefur undanfarið ár unnið hörðum höndum að undirbúningi samkomulags, að svörum við spurningalistum og að frágangi vottorða til að uppfylla kröfur þarlendra yfirvalda um útflutning á kjöti á Rússlandsmarkað.
14.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Sumarhátíð Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands og Síldarvinnslunnar var haldin um síðustu helgi á Fljótsdalshéraði og eru forsvarsmenn hennar afar ánægðir með hvernig til tókst. Þar var keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum, meðal annars í boccia, strandblaki og bændaglímu þar sem vaskir karlar tókust á.
13.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Á veitingastaðnum Sölvabar í Lónkoti í Skagafirði er einungis boðið upp á íslenskan staðbundin mat, ferðamönnum til mikillar ánægju. Eldað er úr matarkistu Skagafjarðar, svo sem fisk úr firðinum, fugl úr bjarginu, grænmeti úr ræktun staðarins, aðalbláber úr berjalandi Lónkots og jurtir og grös úr náttúrunni.
13.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Þó að Eyjafjallajökull sé með rólegasta móti þessa dagana þá er ýmis starfsemi á gosslóðum vegna afleiðinga öskufalls sem þar dundi yfir fyrr á þessu ári. Nú hefur Umhverfisstofnun sett upp nýjan svifryksmæli á Raufarfelli þar sem öskufallið varð hvað mest og ný gönguleið hefur verið stikuð yfir Goðahraun á Fimmvörðuhálsi.
12.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Rannsóknir Náttúrufræðistofnunar Íslands á hræjum friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum sýna að fleiri en fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hafa verið skotnir. Þetta virðingarleysi fyrir landslögum kemur á óvart, en báðar þessar tegundir eru á válista og stranglega friðaðar, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940.
12.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Í gær afhenti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson íslensku safnaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Að þessu sinni bar Nýlistasafnið sigur úr býtum en einnig voru Byggðasafn Skagfirðinga og Heimilisiðnarðarsafnið á Blönduósi tilnefnd en í ár bárust meira en 70 ábendingar um söfn sem gætu átt heima í keppninni.
9.7.2010
Sigurður Már Harðarson
Vöktun Hafrannsóknastofnunar og MAST á eitruðum svifþörungum í Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga er yfir viðmiðunarmörkum.
9.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Á vefmyndavélum Mílu á Hvolsvelli sést vel hve mikinn hvítan gufustrók leggur nú frá Eyjafjallajökli. Ekki hefur þó greinst aukin virkni á mælum Veðurstofunnar en vandlega er fylgst þar með framvindu mála.
8.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Skúli Bjarnason, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs bænda og hæstarréttarlögmaður, segir þá einhliða niðurfellingu ríkisins á mótframlagi til bænda sem stefnir í um næstu mánaðamót þýða aukna kjaraskerðingu upp á 8% fyrir bændur miðað við aðrar stéttir.
8.7.2010
Þröstur Haraldsson

Nýtt Bændablað er komið út en þar er á forsíðu fjallað um fyrirhugaðar breytingar á greiðslutilhögun geymslugjalds sem kveðið er á um í samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar. Hér er um töluverðar fjárhæðir að ræða því alls nemur geymslugjaldið 316 milljónum króna, eða 35 krónum á hvert kíló kindakjöts. Á forsíðunni er einnig fjallað um eftirmála hæstaréttardómsins um gengistryggð lán og raunar einnig í leiðara og grein eftir ráðunauta Bændasamtakanna á bls. 7.
8.7.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sigrún Árnadóttir hefur tekið við starfi verkefnastjóra þjónustumiðstöðvar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Sigrún tekur við af Vagni Kristjánssyni og Guðmundi Inga Ingasyni sem voru verkefnastjórar þjónustumiðstöðvanna á Heimalandi og í Vík.
8.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Þeir aðilar sem áhuga hafa á að mjólka geitur og/eða ær er bent á verkefni sem er í gangi um framleiðslu á sauða- og geitaostum. Fyrirkomulagið er þannig að mjólkurframleiðandinn frystir mjólkina og safnar henni saman sendir til MS í Búðardal sem vinnur osta úr henni. Gegn ákveðnum skýrsluskilum fæst greiðsla fyrir hvern framleiddan lítra sem sendur er í MS í Búðardal upp að ákveðnu magni.
7.7.2010
Freyr Rögnvaldsson

Á aðalfundi Landssamtaka sláturleyfishafa 18. mars síðastliðinn var samþykkt að endurnýja ekki svokallaðan geymslugjaldasamning við Landssamtök sauðfjárbænda (LS) og Bændasamtök Íslands (BÍ). Samningurinn tekur til ráðstöfunar fjár vegna markaðsstarfs og birgðahalds sem ákvæði eru um í samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar. Fram til þessa hefur geymslugjald verið greitt hverjum sláturleyfishafa sem föst fjárhæð á hvert framleitt kíló af kindakjöti og hafa sláturleyfishafar greitt bændum þá fjárhæð. Á síðasta afurðaári var 316 milljónum króna varið til þessara greiðslna og lætur nærri að þær greiðslur hafi numið 35 krónum á hvert innlagt kíló kindakjöts.
7.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Fyrir um fimm árum var borað eftir heitu vatni við Hoffelli í Hornafirði. Borað var niður á 500 m dýpi og upp kom 3,5 lítrar af 60 gráðu heitt sjálfrennandi vatni. Það væri varla í frásögur færandi nema af því að smám saman hefur það komið í ljós að fólk sem er með psoriasis húðsjúkdóminn virðist fá bót meina sinna með reglulegum böðum í heitum „náttúrulaugum“ sem vatnið úr holunni rennur í.
6.7.2010
Tjörvi Bjarnason

Vegna breytinga á reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki sem gefnar voru út í gær, hefur stjórn Landssambands kúabænda samþykkt svofellda ályktun:
"Ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála hefur gefið út breytingu á reglugerð nr. 430/2010 um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum. Frá setningu reglugerðarinnar þann 17. maí sl. hefur gætt verulegrar óánægju meðal kúabænda, vegna þess að með henni voru viðskipti með greiðslumark stöðvuð út yfirstandandi verðlagsár...
6.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Það er rabbabarailmur á heimili Þóru Þórisdóttur í Hafnarfirði þegar blaðamann Bændablaðsins ber að garði á sólríkum sumardegi. Húsfreyjan var að störfum við að baka rabbabara í ofni í tilraunaskyni fyrir nýstofnað fyrirtæki sitt Urta Islandica sem sett hefur lífrænt íslenskt jurtate á markað.
5.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Afleysingar á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli á vegum Búnaðarsambandsins, Bændasamtaka Íslands og Félags kúabænda á Suðurlandi hefjast í dag. Markmiðið með afleysingaþjónustunni er að bændafjölskyldur geti tekið sér frí frá bústörfum í 2-7 daga í senn.
2.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Eigendur svínabúsins Stjörnugríss á Vallá á Kjalarnesi og stjórnendur Arion banka eiga í viðræðum um kaup hinna fyrrnefndu á svínabúunum á Brautarholti á Kjalarnesi og Hýrumel í Hálsasveit í Borgarfirði.
1.7.2010
Sigurður Már Harðarson

Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur óskað eftir heimild til þess að grípa til lögbanns til varnar neytendum hjá dómsmála- og mannréttindaráðherra. Hann ritaði ráðherra bréf þar sem farið var fram á þessa heimild fyrir embættið til þess að leita lögbanns eða höfða dómsmál í þágu heildarhagsmuna neytenda.
30.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Verðbólga á tólf mánaða tímabili mælist nú 5,7% og hefur ekki verið lægri síðan í nóvember 2007 er hún var 5,2%. Verð á bensíni og olíu lækkar um 5,9% frá fyrra mánuði og hefur 0,34% áhrif til lækkunar á vísitölunni. Sömuleiðis lækkar verð á mat- og drykkjarvörum um 1,5% sem hefur 0,23% áhrif til lækkunar á vísitölunni.
29.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Hagstofa Íslands birti í dag niðurstöður úr evrópskri könnun á verði matvæla, áfengis og tóbaks, sem gerð var vorið 2009. Til viðmiðunar er meðalverð í 27 aðildarríkjum ESB (=100). Samanburðurinn náði til Íslands auk 36 annarra Evrópuríkja. Hlutfallslegt verðlag matvæla á Íslandi var 4% hærra en að meðaltali í 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins.
29.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Bændasamtök Íslands og Landssambands smábátaeigenda hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna niðurstöðu Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána. Yfirlýsingin er svohljóðandi:
29.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Gjald fyrir skoðanir og úttekt á fjósum hefur hækkað um allt að 92 prósentum frá fyrra ári og hafa kúbændur brugðist ókvæða við hækkuninni. Þetta kemur fram á heimasíðu Landssambands kúabænda (LK), naut.is. LK hefur óskað eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að gjaldskráin verði tekin til endurskoðunar og hefur þeirri málaleitan að sögn verið vel tekið. Matvælastofnun (MAST) sér um skoðun á fjósum og innheimtir eftirlitsgjaldið. Miðað við forsendur í gjaldskrá MAST nemur meðal eftirlitskostnaður um 25.000 krónum á fjós en að sögn forsvarsmanna LK sýna útreikningar þeirra að meðalkostnaður ætti að vera talsvert lægri.
29.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Samkvæmt sjálfvirkum mælum nálægt upptökum Skaftár hefur hlaupið í ánni rénað í nótt og vatnsborð Eldvatnsins við Ytri-Ása í Skaftártungu nálægt þjóðveginum náð hámarki. Þetta kemur fram í frétt á ruv.is klukkan 08:45 í morgun en þá hafði vatnsborð þar verið stöðugt frá því um klukkan 4 í morgun.
28.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Lögreglan á Vestfjörðum hefur fengið tilkynningar um að þrjátíu og fimm ær og lömb hafi drepist í umdæminu nú í júní eftir að ekið hafði verið á skepnurnar. Í frétt á vef Ríkisútvarpsins segir varðstjóri Sýslumannsembættisins á Ísafirði að þetta sé svipað og í meðalári.
28.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að veita 791,7 milljónir króna til endurreisnar og vegna neyðaraðgerða í kjölfar eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Styðja á við uppbyggingarstarf á eldgosasvæðinu og treysta enn frekar störf þeirra sem komið hafa að neyðaraðgerðum, öryggismálum og endurreisn í kjölfar hamfaranna.
28.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stórt skinnauppboð var haldið dagana 16. til 22. júní síðastliðinn hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn. Á uppboðinu voru seldar ýmsar tegundir skinna en minkaskinnin voru þó langstærsti hlutinn. Á þessu uppboði voru seldar um 5 milljónir minkaskinna fyrir tæplega 2 milljarða danskra króna eða tæplega 40 milljarða íslenskra króna. Að sögn Einars E. Einarssonar ráðunautar hjá Bændasamtökunum þá hækkuðu minkaskinnin um 11 prósent frá síðasta uppboði í apríl og var meðalverð þeirra nú 363 danskar krónur eða um 7.700 íslenskar krónur.
24.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri Bændasamtakanna ávarpaði í dag aðalfund norsku bændasamtakanna, Norges Bondelag sem stendur yfir í Lillehammer. Í ræðu sinni fór Eiríkur yfir stöðu landbúnaðar á Íslandi nú um stundir og tæpti á helstu málum sem hafa verið og eru í forgrunni í vinnu Bændasamtaka Íslands. Lýsti hann sérstaklega baráttu Bændasamtakanna gegn ESB-aðild og þakkaði Norges Bondelag fyrir stuðning í þeirri baráttu.
24.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Í nýju Bændablaði sem kom út í dag er á nokkrum stöðum fjallað um dómana sem Hæstiréttur kvað upp þann 16. júní sl., þar sem úrskurðað var að ólöglegt sé að binda lán í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla. Eins og gefur að skilja geta þessi dómar haft mikil áhrif á fjárhagslega afkomu fjölda bænda sem fjárfest hafa með lántökum sem þessum.
24.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Hæstiréttur kvað 16. júní síðastliðinn upp dóma í tveimur málum á hendur fjármögnunarfyrirtækjunum SP-fjármögnun og Lýsingu þar sem úrskurðað var að óheimilt hafi verið að binda lán í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla. Umræddir dómar eyða þeirri réttaróvissu sem uppi hefur verið um lögmæti gengistryggingar lána af þessu tagi en dómar héraðsdóms höfðu áður gengið sinn í hvora átt, þ.e. í öðru tilfellinu var gengistrygging talin lögleg en í hinu að um ólöglegan gjörning væri að ræða.
23.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Í byrjun júní héldu Ítalska Íslenska verslunaráðið í samvinnu við Slow Food samtökin og Matís málþing um gildi staðbundinna matvæla fyrir menningu, ferðaþjónustu og samfélag. Þar flutti Eygló Björk Ólafsdóttir, einn af stofnendum Slow Food á Íslandi, erindi um verkefni samtakanna til verndar og kynningar á upprunalegum, staðbundnum matvælum.
22.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ verður haldin í annað sinn um næstu helgi í Hveragerði, eftir mikla velgengni síðastliðið sumar. Um 40.000 gestir sóttu hátíðina heim í frábæru veðri í fyrra og nutu fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir „græna geiranum“.
21.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Í Gufuhlíð í Reykholti í Biskupstungum hafa gúrkur verið ræktaðar um áratuga skeið. Helgi Jakobsson stýrir nú ræktuninni og segist hann nánast alla tíð hafa verið þátttakandi í henni með einum eða öðrum hætti. Þegar efnahagslegt hrun varð á Íslandi réðist Helgi í það að setja upp búnað til að endurnýta áburðarvatnið sem áður skolaðist í burtu með frárennslinu.
21.6.2010
Sigurður Már Harðarson
Í gær hófst hlaup í Skaftá þegar flæddi undan Vatnajökli nærri Sveinstindi, norðan við Langasjó. Nú virðist sem hlaupið hafi náð hámarki en rennsli hefur verið stöðugt nálægt upptökum, í kringum 380 rúmmetrar á sekúndu frá því á miðnætti. Í samtali við ruv.is útilokar Óðinn Þórarinsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni, þó ekki að það geti bætt í með kvöldinu.
18.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Þórsmörk og Goðaland fóru ekki varhluta af öskufalli vegna gossins í Eyjafjallajökli og leit skógurinn í Húsadal illa út fyrstu dagana á eftir. Að sögn Hreins Óskarssonar, skógarvarðar á Suðurlandi, mun askan ekki skaða skógarlönd heldur geti hún frekar orðið til bóta þegar frá líður.
18.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum, hefur kvennahreyfingin, sem samanstendur af 15 kvennasamtökum og yfir 10 þúsund konum, stofnað ný regnhlífarsamtök; Skotturnar sem hafa það hlutverk að halda utan um kvennafrídaginn 24. okóber. Verkefnið verður kynnt opinberlega á kvennafrídeginum, 19. júní í Ráðhúsi Reykjavíkur.
16.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Ríkisstjórnin hefur samþykkt aðgerðaráætlun sem felur í sér að Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum eru tryggðar 15.710.000 króna til sérstakrar rannsóknaráætlunar sem felst í að greina orsök smitandi hósta í hrossum sem lagst hefur á íslenska hrossastofninn undanfarna mánuði, greina uppruna hans, kortleggja smitdreifingu og varpa ljósi á eðli sjúkdómsins og þætti sem hafa áhrif á alvarleika hans.
16.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða 2010 var haldinn mánudaginn 14. Júní í Heydal í Djúpi.
Fundurinn var ágætlega sóttur af fulltrúum búnaðarfélaganna á sambandssvæðinu, sem nær frá Gilsfjarðarbotni í suðri ,vestur um og til Ísafjarðarbotns í norðri. Samróma álit fundargesta var að ítreka andstöðu við aðildarumsókn Íslands að ESB.
15.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Birgir Axelsson og Guðmundur Vignir Þórðarson sigruðu um helgina á finnsku móti í hellulögn, hleðslu og gróðursetningu sumarblóma. Frá þessu er sagt á vef Landbúnaðarháskóla Íslands. Meistarafélag skrúðgarðyrkjunnar bauð þeim félögum að fara til Finnlands til keppni á mótinu en þeir Guðmundur og Birgir urðu í fyrsta og öðru sæti á Íslandsmóti iðnnema sem haldið var um miðjan mars...
15.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð á Vatnsnesi er orðið velþekkt í matarflóru sumarsins. Þar framreiða Húsfreyjurnar margskonar rétti sem nú á tímum eru sjaldséðir á borðum landsmanna. Einnig eru þar á meðal nýrri matarhefðir svo allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið veitinganna. Að þessu sinni verður hátíðin haldin laugardaginn 19. júní og hefst kl. 19.
14.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Landgræðsla ríkisins, með stuðningi Vegagerðarinnar og heimamanna, hefur hafið aðgerðir til að hefta öskufok á Sólheimasandi í Mýrdal. Tilbúinn áburður verður borinn á og grasfræblöndu sáð í sandana meðfram Þjóðvegi 1 á Sólheimasandi og er vonast til þess að árangur sjást strax í sumar. Takist aðgerðirnar mun gróðurinn sem upp kemur draga verulega úr öskufoki á sandinum og tryggja öruggari umferð á þjóðveginum.
11.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Mikil hátíð verður haldin í Reykholti í Biskupstungum og nágrenni laugardaginn 12. júní. Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir gesti og gangandi og m.a. ætla bændur að opna sín býli fyrir gestum.
11.6.2010
Sigurður Már Harðarson
.jpg)
B.S. próf í hestafræðum er byggt á sameiginlegu námi Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands og voru 3 fyrstu nemendurnir útskrifaðir við hátíðlega athöfn í Reykholti þann 4.júní sl. en alls voru 20 nemendur á námsbrautinni í vetur. Tvö fyrstu námsárin eru nemendurnir á Hvanneyri en eina sumarönn og þriðja námsárið á Hólum.
11.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Samkvæmt rjúpnatalningu Náttúrufræðistofnunar Íslands í vor var uppsveifla á Norður- og Austurlandi þriðja árið í röð og annað árið í röð á Vestfjörðum, en á Suður-, Suðvestur og Vesturlandi hefur fækkun verið frá 2005, ef 2009 er undanskilið. Í heild fækkar rjúpunni um 39% á milli áranna 2009 og 2010, en mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst ...
11.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Þórsmörk og Goðaland fóru ekki varhluta af öskufalli í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og litu skógar svæðanna mjög illa út fyrstu dagana eftir mesta öskufallið. Í sumar verður einstakt en sjaldséð tækifæri fyrir almenning að sjá hvernig náttúrulegir birkiskógar bregðast við öskufalli segir í fréttabréfi Skógræktar ríkisins.
10.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Miklar sviptingar eru nú á nautakjötsmarkaði. Á heimasíðu Landssambands kúabænda (LK),
naut.is, hafa reglulega birst fréttir alla þessa viku af hækkunum sláturleyfishafa á greiðslum á nautakjöti til bænda. KS og SKVH hækkuðu verð í síðustu viku og var það fyrsta hækkun á nautakjöti frá því í mars 2008. Sú hækkun gerði það að verkum að fyrirtækin greiddu sambærilegt verð og aðrir sláturleyfishafa.
10.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Að þessu sinni er Bændablaðinu dreift í 62 þúsund eintökum um allt land en auk hefðbundinnar dreifingar er því dreift til áskrifenda Morgunblaðsins. Með þessu vill Bændablaðið kynnast enn fleiri lesendum en venjulega, vonandi með langtímasamband í huga! Blaðið kemur út á tveggja vikna fresti að jafnaði, alls 22 sinum yfir árið.
10.6.2010
Freyr Rögnvaldsson
.jpg)
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna lagði í gærkvöld fram frumvarp á Alþingi um breytingar á lögum um stjórnarráðið. Helstu breytingarnar sem felast í frumvarpinu eru að ráðuneytum verður fækkað úr tólf í níu með sameiningum. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið verður sameinað samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti í nýju innanríkisráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti verður sameinað heilbrigðisráðuneyti í nýju velferðarráðuneyti og nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti verður til með sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við iðnaðarráðuneytið.
10.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Miðað við verðbólguforsendur Seðlabankans munu greiðslur til bænda skerðast um 1.700 milljónir á árunum 2009 og 2010 frá upphaflegum búvörusamningi. Ástæða þessa eru þær breytingar sem gerðar voru á búvörusamningum vorið 2009 eftir að ákveðið var í fjárlögum sama árs að skerða samningsbundnar greiðslur til bænda samkvæmt þágildandi búvörusamningum. Þær forsendur sem samningsaðilar, Bændasamtökin og ríkisvaldið, gáfu sér við samningagerðina voru hins vegar að skerðingin væri um 1000 milljónir á þessu tímabili.
9.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Að sögn Þorsteins Jóhannssonar, sérfræðings í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, er mengunin frá öskufallinu í Eyjafjallajökli minna skaðlegri en venjuleg borgarmengun og iðnaðarmengun. Hann segir efnin því ekki bráðhættuleg þó þau valdi óþægindum en bendir á að huga þurfi að sálrænum áhrifum öskufalls.
8.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Þann 27. maí sl. var opið málþing haldið í nýjum húsakynnum Matís að Vínlandsleið 12 þar sem fjallað var um baráttuna gegn kampýlóbakter á Íslandi. Á málþinginu, sem Matvælastofnun og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið stóðu fyrir, var fjallað um þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar kampýlóbakterfaraldursins í fólki árið 1999 og þann árangur sem náðist í kjölfarið.
7.6.2010
Freyr Rögnvaldsson

Verð á nautakjöti til bænda hefur verið hækkað verulega hjá Sláturhúsinu á Hellu og einnig hjá Sláturfélagi Suðurlands (SS). Sláturhúsið á Hellu reið á vaðið og tilkynnti að frá deginum í dag muni allir kjötflokkar, utan kálfakjöt, hækka um 8 prósent. Heimtökukostnaður hjá fyrirtækinu var hins vegar hækkaður jafnhliða, um 10 krónur á kíló og einnig mun flutningskostnaður hækka.
4.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Komnar eru niðurstöður á efnagreiningum flúors í gróðursýnum sem tekin voru 26. maí s.l. Samkvæmt þeim er ekki ástæða til þess að óttast flúormengun í gróðri eins og staðan er. Þolmörk nautgripa og sauðfjár eru 30-40 mg/kg F þurrefnis og 70-100 mg/kg F þurrefnis hjá sauðfé.
3.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Bændasamtökin, Búnaðarsamband Suðurlands, Félag kúabænda á Suðurlandi og Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa tekið höndum saman og auglýst eftir afleysingamanni til starfa á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Fleiri aðilar hafa sýnt því áhuga að koma að afleysingaþjónustunni en það er möguleiki að þeir komi að samstarfinu á seinni stigum. Markmiðið er að ráða sem allra fyrst starfsmann sem getur leyst bændur af nokkra daga í senn. Afleysingaþjónustan verður m.a. fjármögnuð með styrktarfé sem norskir bændur hafa aflað vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
3.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Sævar Einarsson, bóndi á Stíflu í Vestur Landeyjum, og sonur hans Jóhann eru byrjaðir að slá og eru þeir væntanlega þeir fyrstu til að byrja að slá sumarið 2010. Þeir slógu 8 hektara í gærkvöldi og 12 hektara í dag.
3.6.2010
Freyr Rögnvaldsson
Skipa á vinnuhóp sem mun hafa það hlutverk að móta reglur um uppboðsmarkað með greiðslumark. Þetta var niðurstaða fundar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og forsvarsmanna Landssambands kúabænda (LK) sem haldinn var í gær. Í vinnuhópnum munu eiga sæti fulltrúar ráðuneytisins, LK, Bændasamtakanna og Matvælastofnunar. Vinnuhópurinn á jafnframt að skoða möguleika á því að fyrsti uppboðsmarkaðurinn verði fyrr heldur en áætlað var, en samkvæmt reglugerð á fyrsta uppboð að fara fram 1. desember næstkomandi. Er sú vinna í samræmi við áherslur LK en í síðasta Bændablaði lýsti Sigurður Loftsson formaður LK áhyggjum yfir því hversu langur tími væri í fyrsta kvótauppboð. Frá þessu er greint á vef LK, naut.is.
3.6.2010
Tjörvi Bjarnason

Bændablaðið hefur ferðast um gosslóðirnar síðan eldgosið hófst í Eyjafjallajökli og tekið myndir en þær eru aðgengilegar á
myndavef bbl.is. Um síðustu helgi voru bændur í óða önn að bera áburð á tún en ljóst er að öskumengun mun valda truflun á bústörfunum um hríð.
2.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Á vef Matvælastofnunar (MAST) er nú að finna fróðleik um hestapestina sem víða herjar á íslensk hross í dag og valdið miklum usla í greininni; m.a. orðið til þess að Landsmóti hestamanna hefur verið frestað um eitt ár. Á fróðleikurinn sérstakt erindi til hestamanna og þeirra sem umgangast hesta reglulega, enda er þar að finna leiðbeiningar um þrif á hesthúsum og ...
2.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Bændasamtök Íslands hafa nú skipað nefnd sem mun endurskoða innheimtu búnaðargjaldsins. Nefndin er skipuð í kjölfar ályktunar frá Búnaðarþingi 2010 og er starfssvið hennar að finna leiðir til þess að lækka búnaðargjaldið, sem og að skoða leiðir til að fjármagna félagskerfið með öðrum hætti.
2.6.2010
Sigurður Már Harðarson

SS lækkar verð á kúafóðri um 4%. Eftir verðlækkun er besta verð SS á K20 kúablöndunni kr. 55.979 kr/tonn án virðisaukaskatts, staðgreitt þrjú tonn eða meira í lausu. Er 7% afsláttur á því verði.
1.6.2010
Sigurður Már Harðarson

Ítalska Íslenska viðskiptaráð, í samvinnu við Slow Food samtökin og Matís, efna til málþings um gildi staðbundinna matvæla fyrir menningu, ferðaþjónustu og samfélag. Fer málþingið fram í Húsi verslunarinnar 14. hæð kl. 15.-17.00.
31.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Ákveðið hefur verið að fresta Landsmóti hestamanna sem vera átti á Vindheimamelum 27. júní til 4. júlí í sumar. Ástæðan er hóstapestin sem herjað hefur á hross hérlendis undanfarna mánuði. Frá þessu var sagt í fréttum Ríkisútvarpsins.
31.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Á fundi stjórnar LK 27. maí sl. var m.a. rætt um nýsetta reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum. Í framhaldi af ýtarlegum umræðum um málið samþykkti stjórnin eftirfarandi bókun:
31.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Samkomulag um stofnun og starfsemi Matarsmiðjunnar á Flúðum var undirritað á fimmtudaginn sl. á Flúðum. Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Háskólafélag Suðurlands, Hrunamannahreppur, Bláskógarbyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, garðyrkjumenn, Matís og Háskóli Íslands hafa unnið að undirbúningi Matarsmiðjunnar.
28.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að bjóða bændum á gossvæðinu á vináttulandsleik Íslands og Andorra sem fer fram á Laugardalsvelli á morgun laugardaginn 29. maí kl. 16:00.
Þessar þjóðir hafa mæst þrisvar sinnum áður og þar af einu sinni í vináttulandsleik. Tvær viðureignanna voru í undankeppni EM 2000. Þá vann Ísland 2-0 sigur ytra og 3-0 á Laugardalsvellinum. Í vináttuleiknum, sem fram fór árið 2002, vann íslenska liðið aftur 3-0 sigur.
27.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Norska bændahreyfingin og fleiri fyrirtæki í Noregi hafa ákveðið að styðja við bakið á íslenskum bændum sem hafa orðið fyrir neikvæðum áhrifum af gosinu í Eyjafjallajökli. Þeir hafa lagt 7 milljónir íslenskra króna í sjóð sem Bændasamtökum Íslands er ætlað að ráðstafa til þeirra bænda sem eiga í hlut.
27.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Í Bændablaðinu sem kom út í dag er sjónum talsvert beint að bændum undir Eyjafjöllum nú þegar ráðrúm hefur skapast til endurmeta stöðu og horfur. Á blaðsíðu 10 er fjallað um nokkur úrlausnarefni sem lúta að stöðu mála á svæðinu í dag, t.a.m. um heymiðlun inn á svæðið og vöktun á magni flúors á svæðinu.
26.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kynnti sl. föstudag markaðsátakið Inspired by Iceland sem iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að ráðast í vegna verulegs samdráttar í komum erlendra ferðamanna til landsins í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Icelandair, Reykjavíkurborg, Iceland Express, Útflutningsráð og Samtök ferðaþjónustunnar eru samstarfsaðilar iðnaðarráðuneytisins í þessu ...
26.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif Cosmetics kynnnti á dögunum nýjung á snyrtivörumarkaði; húðdropa sem innihalda svokallaðan frumuvaka sem hvetur til endurnýjunar húðfruma. Það er Orf líftækni sem framleiðir þessa frumuvaka, prótein, í erfðabreyttu byggi en þau eru einnig notuð við læknisfræðilegar rannsóknir, lyfjaþróun og sem lyf. Fjölmargir áhugasamir gestir heimsóttu kynningu ...
25.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Opið málþing um Campy-on-Ice verkefnið og baráttuna gegn kampýlóbakter verður haldið fimmtudaginn 27. maí kl. 9-13 að Vínlandsleið 12 í Reykjavík. Á málþinginu verður fjallað um þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar kampýlóbakterfaraldursins í fólki árið 1999 og þann árangur sem náðist með þessum aðgerðum.
25.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Bændasamtök Íslands hafa tekið saman tölur um framleiðslu eggja árið 2009. Byggt er á upplýsingum frá 11 framleiðendum. Heildar framleiðsla var 3.024.177 kg. Undanfarin ár hefur framleiðsla verið áætluð á grundvelli stærðar varphænsnastofnins og var talin nema milli 2.800 og 2.900 tonnum á ári.
25.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, sagði í morgun í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 að bændum á Suðurlandi og undir Eyjafjöllum sé mjög létt að ekki gjósi lengur í Eyjafjallajökli. Fulltrúar Bændasamtakanna fara yfir stöðu mála með bændum á svæðinu í dag, en Eiríkur sagði að áhyggjur manna snúist fyrst og fremst um þörf ...
21.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Landsmót hestamanna verður haldið á áður ákveðnum tíma á Vindheimamelum í Skagafirði þrátt fyrir hóstapestina sem herjað hefur á hross að undanförnu. Hagsmunaaðilar innan hestamennskunnar voru boðaðir á fund í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í dag til að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar.
21.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Mjólkursamsalan (MS) fór ekki út fyrir ramma samkeppnislaga og reyndi ekki að með kerfisbundnum hætti að útiloka keppinauta frá markaði með samkeppnishamlandi aðgerðum. Þetta er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins eftir formlega rannsókn á meintri misnotkun MS á markaðsráðandi stöðu sinni en sú rannsókn hófst með húsleit í húsakynnum MS þann 4. júní 2007 í kjölfar ábendinga og upplýsinga frá Mjólku ehf.
21.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Um 150 manns mættu á íbúafund á Hvolsvelli í gærkvöldi þar sem farið var yfir ýmis málefni tengd gosinu í Eyjafjallajökli. Magnús Tumi Guðmundsson frá Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands fór yfir þróun gossins og var með nýjar tölur um magn gjósku í gosinu. Nú hafa komið um 300 milljón rúmmetrar af gjósku frá Eyjafjallajökli og til viðmiðunar má nefna að í Kötlugosinu 1918 komu 700 milljónir rúmmetra af gjósku frá því gosi.
21.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Þann 18. maí sl. var kúnum á Þaravöllum undir Akrafjalli í Hvalfjarðarsveit, áður Innri-Akraneshreppi, hleypt út í fyrsta sinn í vor. Bóndinn, Ólafur Sigurgeirsson, segir að aldrei áður hefur þeim verið hleypt svo snemma út – oftast hafi það verið í kringum mánaðamótin maí-júní. Hann segir að tíðarfar hafi verið gott og fari sífellt batnandi með árunum. Þá njóti þeir góðs af skjólinu...
21.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Landbúnaðarháskólinn hefur fengið styrk fyrir sumarstarfsmanni til vöktunar flúors og áburðarefna (Ca, Mg, K, P, S) í ösku, jarðvegi, plöntum og drykkjarvatni búpenings á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum sumarið 2010. Einnig hefur fengist styrkur til kaupa á tækjabúnaði til flúormælinga á rannsóknastofunni á Hvanneyri. Styrkurinn er veittur frá Vinnumálastofnun og iðnaðarráðuneytinu.
21.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Hefja á átaksverkefni um aðstoð við íbúa á gossvæðinu á Suðurlandi. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Vinnumálastofnun, Landgræðslan og sveitarstjórnir Rangárþings eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur eru á þessari stundu að undirrita samning þess efnis að bænum Fljótsdal í Fljótshlíð. Samningurinn felst í að sveitarfélögin á svæðinu munu bjóða fólki á atvinnuleysisskrá vinnu við afleysingar og aðstoð við búskap á svæðinu. Gríðarlegt vinnuálag hefur verið á bændum auk þess sem björgunarsveitir og sjálfboðaliðar hafa lagt fram mikla vinnu við að aðstoða bændur frá gosbyrjun.
20.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti á greiðslumarki mjólkur, tók gildi við birtingu hennar þann 17. maí sl. Í henni felst að komið verður á fót markaði með mjólkurkvóta sem Matvælastofnun starfræki. Verður markaðurinn starfræktur tvisvar á ári, 1. júní og 1. desember, og í fyrsta sinn 1. desesmber nk. Nokkur óánægja hefur risið meðal bænda vegna breytinganna. Telja þeir t.a.m. að þær eigi sér stað án nægilegs fyrirvara.
20.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli var heldur lægri í gær en undanfarna daga og gæti það bent til þess að krafturinn í gosinu fari dvínandi. Þetta kom fram í máli Steinunnar Jakobsdóttur á stöðufundi Veðurstofu Íslands í morgun. Fór mökkurinn niður í þrjá kílómetra hæð í gær en lá að mestu í um 5-6 kílómetrum.
19.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Svaðbælisá, sem rennur rétt við Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, flæddi yfir bakka sína í morgun. Í samtali við ruv.is segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, að eðjuflóð hafi byrjað um kl. 9 í morgun, en farvegurinn var fullur af aur eftir fyrsta fljóðið í upphafi goss. Ekki hafa orðið teljandi ...
18.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Breytingar á Bjargráðasjóði og búvörulögum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi nú fyrir skemmstu. Frumvarp þess efnis var lagt fram í síðustu viku og hlaut það flýtimeðferð í þinginu. Full samstaða var um málið í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og sömuleiðis í þinginu. Enginn kvaddi sér hljóðs um frumvarpið í annarri og þriðju umræðu utan Atli Gíslason sem kvaddi sér hljóðs um atkvæðagreiðsluna. Atli þakkaði þar fyrir þá miklu samstöðu sem um málið skapaðist og fyrir það hversu fljótt var hægt að afgreiða málið en beita þurfti afbrigðum við þingsköp til þess. Þá þakkaði Atli fyrir þann samhug sem fólki á áhrifasvæði gossins væri sýnd.
18.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Óskað er eftir því að þeir sem eru aflögufærir með hey og viljugir til að selja bændum á áhrifasvæði eldgossins hafi samband sem fyrst við Bændasamtökin í síma 563-0300. Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu sem BÍ og Búnaðarsamband Suðurlands sendu frá sér í hádeginu í dag.
17.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sá sjaldgæfi atburður átti sér stað aðfararnótt laugardagsins síðasta á bænum Þverholtum á Mýrum að kýr bar þremur kálfum. Var það kýrin Fýla sem bar kálfunum, tveimur kvígum og einu nauti sem allir eru sprækir. Frá þessu er sagt á fréttavefnum skessuhorn.is. Ekki eru mörg dæmi um þríkelfdar kýr en þó bara kýr á bænum Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi þremur kálfum fyrir um hálfu öðru ári síðan.
17.5.2010
Freyr Rögnvaldsson
.jpg)
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingar á aðilaskiptum á greiðslumarki í mjólk. Reglugerðarbreytingin hefur í för með sér að komið verður á kvótamarkaði sem Matvælastofnun (MAST) skal starfrækja. Halda skal kvótamarkað tvisvar sinnum á ári, 1. júní og 1. desember og skal í fyrsta sinn halda slíkan markað 1. desember næstkomandi. Ekki verður heimilt að versla með kvóta utan markaðsins og þýðir þetta í raun að kaup og sala á greiðslumarki mjólkur verður óheimil frá og með deginum í dag og til 1. desember næstkomandi.
14.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Dagana 11. og 12. maí fóru rúmlega 20 héraðs- og landsráðunautar ásamt fleirum í heimsóknir á 120 bú á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tilgangurinn var að ræða við bændur og m.a. meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og í sumar. Úrvinnslu gagna er ekki að fullu lokið úr ferðinni en niðurstöður ættu að liggja fyrir í byrjun næstu viku.
14.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur boðist til að slátra fé fyrir bændur á Suðurlandi í næstu viku. Frá þessu er greint á mbl.is. Bændum gefst þar með tækifæri til að grynnka á því fé sem er á húsi, til að mynda geldfé. Haft verður samband við deildarstjóra á svæðinu í dag.
14.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Búið er að leggja fram á Alþingi þingskjal með frumvarpi til laga um breytingar á lögum um Bjargráðasjóð og á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Er breytingunum ætlað að styðja við bændur á náttúrhamfarasvæðum og hefur áður verið sagt frá innihaldi frumvarpsins á vef Bændablaðsins sem og í síðasta Bændablaði.
14.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Breyta á búvörulögum til að bregðast við þeim vanda sem eldgosið í Eyjafjallajökli hefur skapað fyrir bændur á svæðinu. Þeir bændur sem bregða búi eða draga úr framleiðslu munu halda óskertum beingreiðslum verði frumvarp þess efnis samþykkt. Sömuleiðis er stefnt að því að afnema hámark þeirra fjárhæða sem ríkissjóði er heimilt að leggja í Bjargráðasjóð, í ljósi þess umfangsmikla hlutverks sem sjóðurinn hefur að gegna við að bæta tjón af völdum eldgossins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju Bændablaði sem komið er út.
14.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Matfugl ehf. var 3. maí síðastliðinn í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknaður af kæru Sambands garðyrkjubænda um óheimila notkun á vörumerki sem væri ruglingslega líkt vörumerki sambandsins, svokallaðri Fánarönd. Merki garðyrkjubænda er þunn lárétt rönd með bláum, hvítum og rauðum litum. Merki Matfugls er einnig þunn rönd með bláum, hvítum og rauðum lit en lóðrétt og í öðrum hlutföllum en rönd garðyrkjubænda. Gerði Samband garðyrkjubænda kröfu um að dómurinn staðfesti að Matfugli væri óheimilt að nota vörumerkið, að eyða skyldi öllum umbúðum, kynningarefni og gögnum sem bæru vörumerkið að viðlögðum dagsektum og að málskostnaður skyldi greiðast af Matfugli. Á það féllst dómari ekki.
12.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Þeir sem dvalið hafa á gossvæðinu fyrir austan hafa lýst öskufalli þar með ófögrum hætti. Fínt öskuduft dreifist þar um allt, smjúgi inn í hús og í vit fólks og valdi því óþægindum. Hefur því verið velt upp hvort að dvöl á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli sé heilsuspillandi og jafnvel hættuleg fólki.
12.5.2010
Tjörvi Bjarnason
Veiruskita í kúm hefur komið upp á nokkrum bæjum á Austurlandi og Norðurlandi á síðustu vikum. Veiruskita er mjög smitandi en ekki er vitað með vissu um hvaða veiru er að ræða. Þegar hún berst í fjós smitast flestar kýr sem ekki hafa smitast áður.
11.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Gera á breytingar á búvörulögum til að bregðast við því ástandi sem skapast hefur á Suðurlandi vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frumvarpi um breytingarnar verður fallið frá framleiðslutengingu beingreiðslna, bæði hjá kúabændum og sauðfjárbændum, ef þeir ákveða að bregða búi eða að draga verulega úr sinni framleiðslu af völdum gossins. Sömuleiðis verður sett inn ákvæði um að flytji bændur bústofn tímabundið af jörðum sínum á aðrar jarðir geti þeir engu að síður lagt inn afurðir í sínu nafni og haldið beingreiðslum. Bæði ákvæðin eru tímabundin, tengd hamförum af völdum gossins í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frumvarpinu er stefnt að því að ákvæðin gildi til ársins 2012. Þá er stefnt að því að afnema hámarksupphæð sem ríkissjóður hefur heimild til að veita til Bjargráðasjóðs samkvæmt fjárlögum. Sú upphæð er 80 milljónir í dag en verður afnumin og ákvörðuð á fjárlögum hverju sinni. Ekki er um bráðabirgðaákvæði að ræða í tilfelli breytinga á Bjargráðasjóði.
11.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Þegar ekið er undir Eyjafjöllunum má sjá þar framúrstefnulegt skilti Guðmundar Viðarssonar, bónda í Skálakoti, við veginn þar sem boðið er upp á hesta- og jeppaferðir í átt að gosstöðvunum. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og hefur Guðmundur nú ferjað tugi áhugasamra ferðamanna inn eftir heiðinni hjá sér.
11.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Síðastliðna helgi var vaskur flokkur björgunarsveitarfólks og flutningabílsstjóra að störfum í Mýrdalnum við að flytja 150 hross austur á Síðu í Skaftárhreppi og í Árnessýsluna. Að sögn Hermanns Árnasonar, starfsmanns Búnaðarsambands Suðurlands, gekk þessi vinna gríðarlega vel en nú er unnið að því í Mýrdalnum að setja upp gerði í kringum fjárhús svo hægt sé að viðra féð eilítið.
10.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Teymi héraðsráðunauta alls staðar að af landinu munu á þriðjudag og miðvikudag fara á bæi á öskufallssvæðinu fyrir austan, ræða við bændur og meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og sumar. Það er Búnaðarsamband Suðurlands, Bændasamtökin og búnaðarsambönd um allt land sem standa að skipulagningu heimsókna ráðunauta auk sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Alls munu rúmlega 20 ráðunautar koma að verkefninu frá flestum búnaðarsamböndum og BÍ. Ekki verður eingöngu farið á bæi þar sem öskufalls hefur orðið vart heldur einnig á svæði í nágrenni hamfaranna.
10.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Það var ansi grátt yfir að líta á bænum Þykkvabæjarklaustri 2 í Álftaveri þegar blaðamaður og ljósmyndari Bændablaðsins áttu leið þar um á dögunum. Hjónin Kristbjörg Hilmarsdóttir og Sigurður Arnar Sverrisson höfðu í nógu að snúast í sauðburði en gáfu sér tíma til að ræða um ástandið.
10.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Lífland hefur lækkað verð á kjarnfóðri hjá sér um allt að fjögur prósent. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér. Tekur lækkunin gildi í dag, mánudaginn 10. maí. Í tilkynningunni kemur fram að það sé einkum hagstæð þróun gengis á síðustu vikum sem geri lækkunina mögulega. Jafnframt segir í tilkynningunni:
7.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Öskufall á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli og aukin gosvirkni hefur letjandi áhrif á bændur og aðra íbúa á svæðinu. Bændablaðið fór á gosslóðir í gær, fimmtudag, og heimsótti m.a. nokkra bændur í Mýrdal, Álftaveri og Meðallandi. Sauðburður er kominn vel á veg á sumum bæjum og hafa menn nú áhyggjur af því að geta ekki sleppt lambfé í beitarhaga vegna flúormengunar og ösku. Víðast er fé á húsi þó einstaka bændur hafi hleypt sauðfé í afmörkuð hólf við bæi. Eðli málsins samkvæmt eru menn tvístígandi um þessar mundir hvort ráðlegt sé að hefja áburðargjöf þar sem ösku getur rignt niður án fyrirvara. Í máli þeirra bænda sem Bændablaðið ræddi við kom fram að nauðsynlegt sé að gera áætlanir sem fyrst um utanaðkomandi fóðuröflun ef ekki verður hægt að heyja á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.
7.5.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að bregðast við miklum skorti á sumarstörfum og skapa í samvinnu við undirstofnanir sínar allt að 70 spennandi sumarstörf, segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Haft var samband við Hafrannsóknastofnun, Veiðimálastofnun, Fiskistofu, Matís og Rannsóknarsjóð til að auka verðmæti sjávarfangs og óskað þess að hugað verði að ráðningu sumarfólks í sumar. Er við það miðað að Verkefnasjóður sjávarútvegsins veiti stofnunum fé til að standa straum af kostnaði vegna sumarstarfanna. Auk þess hefur Framleiðnisjóður landbúnaðarins orðið við erindi ráðherra og lagt fjármuni í átakið. Ráðuneytið hefur einnig haft samband við Matvælastofnun sem mun skoða málið í samstarfi við atvinnuleysistryggingasjóð, en þau verkefni tengjast hreinsun gamalla girðinga. Áætlað er að hvert starf standi í allt að tvo mánuði í sumar.
6.5.2010
Þröstur Haraldsson

Á fréttavef Landssambands kúabænda, naut.is, segir frá því í dag að Fóðurblandan hf og Bústólpi ehf hafi lækkað verð á kjarnfóðri um allt að 3% vegna gengisþróunar og hagstæðrar þróunar á hráefnisverði. Lækkunin hjá Bústólpa tók gildi 30. apríl en í fyrradag, 4. maí hjá Fóðurblöndunni eins og fram kom hér á síðunni í gær. Þá lækkaði Lífland verðið þann 12. apríl s.l. eins og fram hefur komið. SS hækkaði hins vegar verð á kjarnfóðri um 2% þann 1. apríl sl. Þeirrar hækkunar hefur í engu verið getið og ber að átelja það, að mati LK er það eðlileg kurteisi gagnvart viðskiptavinum að tilkynna um verðbreytingar.
5.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Fóðurblandan hf. hefur lækkað allt tilbúið fóður um allt að 3%, misjafnt eftir tegundum. Lækkunin tók gildi í gær. „Að megninu til er þetta gengi og hagstæð innkaup og er í línu með það sem er að gerast á markaðnum,“ segir Eyjólfur Sigurðsson framkvæmdarstjóri Fóðurblöndunnar.
5.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Fanney Ólöf Lárusdóttir bóndi á Kirkjubæjarklaustri 2 og starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands segir bændur hafa áhyggjur af sauðburðinum því mikill flúor sé í öskunni sem nú fellur og nú séu flest fjárhús að fyllast og því lítið annað í stöðunni en koma sauðfénu út og passa upp á að nóg sé af rennandi vatni og fóðri fyrir féð.
5.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Miklar líkur eru nú til þess að iðnaðarhús við Vallarás í Borgarnesi, sem byggt var sem kjötvinnsla fyrir fáum árum, öðlist nú nýtt hlutverk og fari undir mjólkurvinnslu. Búið er að skrifa undir leigusamning á húsinu, með vitneskju og samþykki Byggðastofnunar, milli BK fasteigna og nýs fyrirtækis sem heitir Vesturmjólk ehf.
4.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Alla þessa viku verða haldnir fræðslufundir í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi þar sem sérfræðingar koma og miðla upplýsingum til heimamanna. Í hádeginu í gær svaraði Jónatan Hermannsson, jarðræktarfræðingur fyrirspurnum og í dag verður Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir með fræðslu og svarar fyrirspurnum. Á miðvikudaginn 5. maí verður Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri til viðtals, fimmtudaginn 6. maí Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytissjóri í landbúnaðarráðuneytinu og 7. maí verður formaður Bændasamtaka Íslands Haraldur Benediktsson í hádeginu í Heimalandi.
4.5.2010
Tjörvi Bjarnason

Ferðasýningin Íslandsperlur var haldin dagana 1. og 2. maí í Reykjavík en fjöldi fólks lagði leið sína í Perluna til að kynna sér hvað boðið er upp á í ferðaþjónustu hér á landi. Ferðaþjónusta bænda ásamt Beint frá býli og Opnum landbúnaði tók þátt í sýningunni en nýr bæklingur, „Upp í sveit 2010“ er nýkominn úr prentvélunum. Bændur í Beint frá býli gáfu gestum að bragða á framleiðslu sinni en m.a. var boðið upp á reyktar nautatungur, grafið hrossakjöt, heimagert skyr og ljúffengan ís.
4.5.2010
Sigurður Már Harðarson

Laugardaginn 8. maí nk. verður Eylands-þing haldið á Hvanneyri. Með þinginu á að minnast Árna G. Eylands og starfs hans sem eins helsta frumkvöðuls tæknivæðingar og nýrra verkhátta í sveitum á 20. öld. Það eru Landbúnaðarsafn Íslands og Bændasamtök Íslands sem standa sameiginlega að þinginu.
30.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Jenný Lind Grétudóttir, bóndi í Langholti í Meðallandi, er óhress með það upplýsinga- og sinnuleysi sem sveitungar hennar hafa upplifað í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli. Hún segir brýnt að almannavarnakerfið sé hugsað upp á nýtt, því sjálf búi hún undir Kötlu og kemst á Netið með gamla innhringisambandinu og að farsímasamband sé ekki inni í húsum á hennar svæði.
30.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Mikill áhugi er fyrir því að rækta eigið grænmeti um þessar mundir. Hátt í þrjú hundruð manns hafa fengið úthlutað reitum á svæði við Ræktunarstöð Akureyrarbæjar á Krókeyri en þar voru reitir af þessu tagi fyrst boðnir til leigu í fyrra. Jóhann Thorarensen verkstjóri í ræktunarstöðinni segir að áhugi hafi aukist og mun fleiri sóttu um nú, aukningin nemur um 25-30% á milli ára.
29.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Matvælastofnun hélt í dag svokallað Samráðsþing 2010 þar sem tilgangurinn var að hitta eftirlitsþega og aðra viðskiptavini stofnunarinnar og styrkja samskiptin við þá. Á þinginu var skipst á skoðunum um starfsemi Mast og rætt það sem betur mætti fara og gerðar tillögur að úrbótum.
29.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, hefur óskað eftir sameiginlegum fundi viðskiptanefndar Alþingis og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar hið fyrsta til að ræða málefni skuldugra bænda.
29.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Í kjölfar gæðakönnunar á nautahakki sem Matís vann fyrir Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin kemur fram að nauðsynlegt sé að endurskoða reglugerð um kjöt og kjötvörur. Að því tilefni hafa Neytendasamtökin sent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jóni Bjarnasyni bréf og benda á tillögur Matís um að meðal annars sé reglugerðin óljós varðandi viðbætt vatn.
29.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Að sögn Sigríðar Björnsdóttur, dýralækni hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun, hefur enn ekki fundist hvað veldur en allt bendir til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum.
28.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Sóttvarnalæknir beinir þeim tilmælum til allra sem vinna við hreinsun á þurri ösku að þeir noti öndunargrímur sem sóttvarnalæknir hefur dreift eða iðnaðarmannagrímur. Þó að öskufall frá eldstöðinni hafi minnkað til muna þá fer nú í hönd mikil hreinsunarvinna á svæðinu.
28.4.2010
Sigurður Már Harðarson
Árið 2009 var Norðlenska afar erfitt. Reksturinn var heldur verri en áætlanir gerðu ráð fyrir og er fyrirtækið gert upp með rúmlega 78 milljóna króna tapi. Þetta kom fram í máli Sigmundar Ófeigssonar framkvæmdastjóra á aðalfundi fyrirtækisins. Velta Norðlenska í fyrra var um 3,7 milljarðar, ámóta og árið á undan. Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 208 milljónir en óhagstæð gengisþróun og háir vextir af skammtímalánum hafa komið illa við fyrirtækið eins og mörg önnur.
28.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Nýsköpunarfyrirtækið ORF Líftækni hyggst í sumar tvöfalda ræktun sína á erfðabreyttu byggi til að anna aukinni eftirspurn eftir afurðum fyrirtækisins. Í sumar mun hluti byggræktunar fyrirtækisins fara fram í 2500 fermetra gróðurhúsi að Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Ræktuninni á Kleppjárnsreykjum fylgja ný störf en auk þess munu aukin umsvif skapa störf við vinnslu próteinsins úr bygginu.
27.4.2010
Sigurður Már Harðarson

„Við verðum áþreifanlega vör við þetta ástand en þó hefur verið tiltölulega lítið um afbókanir. Miðað við sama tíma í fyrra erum við að bóka um einn þriðja af því sem var þá en fram að öskufallinu hafði verið mikið að gera. Þegar flugvandamálin byrjuðu dró snöggt úr bókunum,“ segir Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda.
27.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Starfsfólk Landgræðslunnar vinnur nú að því hörðum höndum að kanna þær leiðir sem stofnunin getur farið til að aðstoða bændur undir Eyjafjöllum svo sem varðandi aukatún til sláttar í sumar, að hefta fok þar sem jökulhlaupið skyldi eftir leir og framburð beggja vegna Markarfljóts og kanna ástand heiðanna.
26.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælastofnun (MAST) heldur fræðslufund um lyfjagjöf og lyfjaleifar í búfé þriðjudaginn 27. apríl 2010 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um reglur um lyfjagjöf til afurðagefandi dýra, skráningu lyfja og rekjanleika, ásamt ströngum kröfum um eftirlit með lyfjaleifum í búfjárafurðum.
26.4.2010
Sigurður Már Harðarson

„Ræktun ávaxta hefur verið reynd á Íslandi í nokkur ár og hafa tveir einstaklingar verið þar fremstir í flokki. Jón Guðmundsson hefur náð ótrúlega góðum árangri við ræktun peru,- epla,- og kirsuberjatrjáa í garðinum sínum á Akranesi. Þá hefur Sæmundur Guðmundsson á Hellu ræktað epli úti í garði í fjöldamörg ár og fengið á annað hundrað kíló í uppskeru árlega,“ segir Lilja Oddsdóttir, formaður Á-vaxtar.
26.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Á Ásmundarstöðum við Hellu rekur Reykjagarður stórt kjúklingabú og þar hafa menn haldið viðbragðsfundi ef til öskufalls kemur við búið því fuglarnir lifa og hrærast við ákveðna loftræstingu og geta breytingar haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Við erum með alla fugla í húsi og verjum þannig fuglana frá beinu öskufalli,“ segir Jarle Reiersen, framleiðslustjóri hjá Reykjagarði.
26.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Dagur umhverfisins var haldinn hátíðlegur í gær og við það tilefni veitti umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, nokkrar viðurkenningar. Þar á meðal voru nemendur Hvolsskóla sem útnefndir voru varðliðar umhverfisins fyrir greinargóða skýrslu sem þau gerðu um umhverfisáhrif Landeyjahafnar.
23.4.2010
Sigurður Már Harðarson
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kynnt þá ákvörðun í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum. Þessi tiltekni bær fór einstaklega illa undan flóðinu í Svaðbælisá og hluti túna eru þakin jökulleir og öðrum framburði.
21.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Bændablaðið fór á þriðjudaginn í leiðangur austur undir Eyjafjöll og hitti þar íbúa og ýmsa viðbragðsaðila vegna gossins. Myndir úr ferðinni eru komnar á vefinn þar sem að auki eru myndir sem Jónas Erlendsson og Valgerður Erlingsdóttir hafa gefið blaðinu góðfúslegt leyfi til þess að birta. Jónas var á ferðinni á miðvikudeginum og náði góðum myndum af gosmekkinum.
21.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Um 150 manns mættu á íbúafund með almannavörnum, viðbragðsaðilum og fulltrúum frá Bjargráðasjóði sem fram fór í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld. Þar var farið yfir stöðu mála í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli og gafst íbúum færi á að spyrja spurninga. Að sögn lögreglu er hljóðið í íbúunum ágætt en það hafi létt yfir mönnum þegar það birti yfir jöklinum. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is.
21.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Það er að mörgu að hyggja á þeim slóðum sem örfínt öskuryk plagar menn og málleysingja. Meðal þess eru vinnuvélar sem eru síður en svo hannaðar til að þola eldgos og allt sem þeim fylgir. Vélafyrirtækið Vélfang hefur gefið út á vef sínum stuttar leiðbeiningar fyrir vélaeigendur á öskusvæðum. Það er Guðmundur Sigurðsson, verkstæðisformaður og þjónustustjóri Vélfangs, sem skrifar eftirfarandi pistil:
21.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Magnús Guðmundsson forstöðumaður flutningadeildar MS á Selfossi hefur staðið í ströngu undanfarna daga við að skipuleggja mjólkurflutninga frá bæjum undir Eyjafjöllum til Selfoss. Um 10 þúsund lítrar eru framleiddir á dag á 18 bæjum sem staðsettir eru frá Eystra-Seljalandi að Skógum en strangt gæðaeftirlit er viðhaft með innihaldi mjólkurinnar.
21.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Blaðamaður Bændablaðsins hitti Guðmund Viðarsson bónda í Skálakoti undir Eyjafjöllum að máli í fjöldahjálparmiðstöð Rauða krossins að Heimalandi og var hann ómyrkur í máli vegna aðgangshörku fjölmiðla sem hann segir ólíðandi þegar bændur séu enn í áfalli eftir hamfarir undanfarinna daga. Hann sagðist sjálfur hafa talað við tugi fjölmiðlamanna og kvartaði ekki yfir því en fólk væri misjafnlega í stakk búið að svara erfiðum spurningum um framtíðina. Hann áréttaði að í sveitinni tækju menn nú fyrir einn dag í einu, eins og sagt er.
20.4.2010
Þröstur Haraldsson

Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um gosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess. Eftir að hafa hlýtt á skýrslur ráðherra um sína málaflokka ákvað stjórnin að leggja áherslu á að veita íbúum svæðisins sálgæslu og annan nauðsynlegan stuðning. Einnig er tekið fram í frétt frá ríkisstjórninni að hún muni beita sér fyrir því að Bjargráðasjóði verði tryggt nægilegt fjármagn til að standa undir því að bæta það tjón sem honum er lögum samkvæmt ætlað.
20.4.2010
Þröstur Haraldsson

Eggert Gunnarsson dýralæknir hefur ritað fróðlega grein um áhrif öskufalls á búpening sem birtist á heimasíðu Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. Þar rekur Eggert helstu áhættuþætti og útskýrir hver áhrifin eru í bráð og lengd. Skiptir hann þeim í þrennt: Í fyrsta lagi eru það óþægindi og erting vegna öskufallsins, í öðru lagi bráð eitrun af völdum flúors og í þriðja lagi langvinn eitrunaráhrif, einnig af völdum flúors.
19.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Berglind Hilmarsdóttir bóndi á Núpi III undir Eyjafjöllum var rétt í þessu að koma af Almannavarnarfundi þar sem samankominn var hópur fólks að hennar sögn, prestur, starfsfólk heilsugæslunnar og sálfræðingur til að fara yfir stöðu mála. „Það mátti heyra saumnál detta á fundinum, það eru allir svo þreyttir. Þetta er búið að vera mikið álag síðustu daga,“ útskýrir Berglind.
19.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Þóra Valsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, Brynhildur Pálsdóttir, vöruhönnuður og Theresa Himmer, arkitekt hafa unnið að verkefni um hvernig hægt sé að standa að fiskmarkaði fyrir almenning víðsvegar á landinu. Nú lítur út fyrir að Höfuðborgarstofa og Faxaflóahafnir muni hrinda slíkum markaði af stað í sumar í Reykjavík í samvinnu við hóp aðila sem starfa við Gömlu höfnina.
16.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir að mikil samvinna sé af hálfu Matvælastofnunar við viðbragðsaðila á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. „Héraðsdýralæknar og búfjáreftirlitsmenn eru að vinna náið með bændum vegna öskufalls og það er búið að hafa samband við alla dýraeigendur á svæðinu um að taka dýr inn og huga að þeim. Leiðbeiningar okkar hafa verið á vefsíðu stofnunarinnar, mast.is og ég hef líka bent mönnum á forsíðu Bændablaðsins frá 25. mars, þar er góð umfjöllun um þetta allt. Það sem við sögðum varðandi gosið á Fimmvörðuhálsi gildir allt ennþá. Svo hafa hins vegar komið upp auka mál vegna Eyjafjallasvæðisins og Mýrdalsins því að vegurinn við Markarfljót er jú rofinn og Mýrdalssandur á tímabili lokaður þá voru menn dýralæknislausir á svæðinu.“
16.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli er viðbúið að bændur hafi orðið, og eigi eftir að verða fyrir ýmsu tjóni. Raunar hafa þegar borist fregnir af verulegu tjóni, meðal annars á bænum Önundarhorni þar sem líklegt má telja að ríflega helmingur ræktarlands hafi orðið fyrir miklum skemmdum auk þess sem skurðir eru margir hverjir fullir af eðju. Þá er ljóst að girðingar bænda eru víða skemmdar, vatnsveitur hafa sömuleiðis orðið fyrir skemmdum og þannig mætti áfram telja. Mikilvægt er því að bændur átti sig á hvert, og með hvaða hætti, á að tilkynna tjón, hvernig meta skuli tjón og hvert hægt verður að sækja bætur.
16.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Mjólk af svæðinu undir Eyjafjöllum er nú á leið til Selfoss eða mögulega komin þangað. Eins og Bændablaðið greindi frá í gær þurfti að flytja mjólk af Suðurlandi austur á Selfoss á miðvikudaginn var. Guðmundur Geir Gunnarsson mjólkurbústjóri MS á Selfossi er sjálfur kominn yfir Markarfljót og stýrir nú aðgerðum við mjólkursöfnun á Suðurlandi. Hægt var að koma mjólkurbílum austur yfir Markarfljót í morgun og eru nú fjórir bílar við mjólkursöfnun á Suðurlandi. Mátti það í raun vart seinna vera en að sögn Guðmundar arð hvergi tjón af biðinni. Ef ástand vegna gossins breytist ekki verulega ætti engin truflun að verða á mjólkursöfnun á næstunni.
15.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Gosmökkur úr eldgosinu í Eyjafjallajökli með tilheyrandi öskufalli er á leið austur eftir landinu og talsverðs öskufalls hefur orðið vart nú þegar á Kirkjubæjarklaustri og nærsveitum. Búist er við suðvestan-átt í dag og nótt en líkur til að vindur snúist í norðaustan-átt á morgun. Bændur um allt land verða því að vera tilbúnir að bregðast við ef öskufalls gætir á þeirra svæðum. Leiðbeiningar um viðbrögð við eldgosum má finna á síðu Bændasamtakanna, bondi.is og eru bændur allir hvattir til að kynna sér þær grannt.
15.4.2010
Sigurður Már Harðarson
.jpg)
Vinna er talsvert á veg komin í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu við breytingar á búvörulögum. Breytingarnar fela í sér að komið verði á fót miðlægum tilboðsmarkaði þar sem öll viðskipti með greiðslumark í mjólk skulu fara fram. Einnig er rætt um að samskonar markaði verði komið upp fyrir viðskipti með greiðslumark í sauðfé. Þá er jafnframt stefnt að því að setja bráðabirgðaákvæði í búvörulög sem takmarki framsal greiðslumarks út úr tilteknum byggðalögum ef um er að ræða greiðslumark sem tilheyri þrotabúum eða búum sem komin eru í greiðslustöðvun. Samkvæmt heimildum Bændablaðsins eiga bráðabirgðaákvæðin að gilda út verðlagsárið 2013.
15.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Innfluttar matvörur hafa hækkað í verði um 62,8% frá ársbyrjun 2007 þar til nú. Innlendar búvörur og grænmeti hafa hins vegar einungis hækkað um 22,2% á sama tímabili. Þetta kemur m.a. fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á Alþingi í dag.
15.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Bændablaðið kom út í morgun. Á forsíðu er greint frá áhuga erlendra loðdýrabænda á því að hefja loðdýraeldi hér á landi. Á síðustu mánuðum hefur staðið yfir kynningarátak Fjárfestingastofu Íslands, í samstarfi við Samtök íslenskra loðdýrabænda og Bændasamtök Ísland, á möguleikunum á því að laða þá til landsins. Þykir Ísland hafa marga kosti, s.s. nægt og gott fóðurhráefni og nægt landrými.
15.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Mjólkursöfnun á Suðurlandi var með nokkuð óvenjulegum hætti í gær, og verður reyndar ekki alveg hefðbundin í dag heldur. Stafar það eins og geta má af þeirri röskun sem nýja eldgosið í Eyjafjallajökli olli með jökulflóðum og hamförum. Mjólk af Suðurlandi var í gær flutt til Egilsstaða í stað þess að fara á Selfoss eins og venja er en sökum jökulhlaupsins í Markarfljóti var engin leið að koma mjólkurbíl til Selfoss. Þessar breytingar hafa hins vegar ekki orðið til neinna trafala fyrir bændur né fyrir mjólkursamlagið á Selfossi.
14.4.2010
Tjörvi Bjarnason

Eldgos er hafið í Eyjafjallajökli og vatnsflæði úr jöklinum ógnar löndum og mannvirkjum í nágrenni jökulsins. Gos er í toppgígnum en ekki í suðvesturhlíðum eins og talið var í fyrstu. Vatn flæðir niður suðurhlíðar Eyjafjallajökuls og hætta er á að vatnsmagns aukist töluvert á þeim slóðum. Vatnsrennsli hefur aukist í Markarfljóti við gömlu Markarfljótsbrúnna og hefur vatnsyfirborð hækkað mikið. Þjóðvegurinn hefur verið rofinn til þess að freista þess að hlífa brúarmannvirkjum. Óttast er um nýju brúna við Markarfljót. Vatn er auðveldlega talið geta farið yfir varnargarðana á Markarfljótsaurum.
13.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Sýningunni Ræktun 2010 sem haldin er á vegum Hrossaræktarsamtaka Suðurlands, hefur verið frestað um viku eftir að tilkynnt var um smitandi hósta í hrossum á Hólum í Hjaltadal og nokkrum nágrannabæjum. En sambærilegra einkenna hefur einnig orðið vart í hrossum víða á Suðurlandi og svo virðist sem hóstinn hafi tekið að breiðast út á svipuðum tíma sunnan lands og norðan.
13.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Sútunarverksmiðjan Loðskinn ehf. á Sauðárkróki mun taka við lambskinnum í vor líkt og í fyrra en vel tókst til með verkefnið sem fyrirtækið var stofnaðili að. Hér er hráefni nýtt sem hingað til hefur verið fleygt eða urðað og notað í hátískufatnað.
12.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Hreinn Óskarsson skógarvörður Suðurlands tók á dögunum við „Uppsveitabrosinu 2009“ fyrir hönd Skógræktar ríkisins á Suðurlandi en það er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki til að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert.
12.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Það voraði snemma sunnan- og vestanlands í ár. Raunar kom langur hlýindakafli strax í janúar, en svo kólnaði í febrúar. Marsmánuður var að mestu mjög hlýr en í lok hans kom kuldakast sem stóð yfir í um hálfan mánuð. Víða var farið að sjást í brum og jafnvel laufgaða runna. Hver skyldu vera áhrif slíkra umhleypinga á trjágróður?
9.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) lauk nú upp úr hádegi. Fjöldi mála lá fyrir þinginu, eða á sjötta tuginn. Afgreiðsla mála hófst í gærkvöldi og hélt áfram nú í morgun. Meðal þess sem fundurinn samþykkti var ályktun þar sem aðild Íslands að ESB var alfarið hafnað og skoraði fundurinn á stjórnvöld að draga umsókn að sambandinu til baka og beina kröftum sínum að uppbyggingu íslensks samfélags. Að sama skapi mótmælti fundurinn fyrirhugaðri sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við iðnaðarráðuneyti harðlega.
9.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) er fram haldið í dag á Hótel Sögu sem kunnugt er. Í morgun klukkan átta hófust nefndarstörf, en frá klukkan níu er afgreiðsla mála á dagskrá til hádegishlés. Klukkan 13:00 hefst málþing LS og Fagráðs í sauðfjárrækt (sjá dagskrá
hér) í ráðstefnu...
8.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Eins og fram hefur komið stendur aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) nú yfir á Hótel Sögu. Fundurinn var settur í morgun með setningarræðu Sigurgeirs Sindra Sigurgeirssonar en á eftir fylgdu ávörp frá Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Haraldi Benediktssyni formanni Bændasamtaka Íslands og Jóhannesi Kristjánssyni fyrsta formanni LS en samtökin eru 25 ára á þessu ári.
8.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Námskeiðið Orkubóndinn verður haldið í Ásgarði hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri 13. og 14. apríl næstkomandi en á námskeiðinu getur áhugafólk um virkjun orku kynnt sér smávirkjanir af ýmsu tagi og fengið ráð um hvernig hægt er að beisla orkuna heima fyrir. Orkubóndinn hefur verið haldinn á sjö stöðum í vetur og hafa 650 þátttakendur sótt námskeiðið.
8.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2010 hófst í dag 8. apríl á Hótel Sögu. Hér að neðan má sjá dagskrá fundarins og rétt er að benda á að frekari gögn og upplýsingar má finna á heimasíðu samtakanna,
saudfe.is, þar sem einnig er hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu.
7.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Á morgun, fimmtudaginn 8. apríl, verða samtök lánþega í landbúnaði stofnuð á Hótel Hvolsvelli. „Ástæðan fyrir því að við förum út í að stofna þessi samtök er að okkur finnst hafa hægt gengið, við höfum farið á fund ráðherra og alþingismanna, en lítið komið út úr því svo þetta er ein leið til að þrýsta á að eitthvað fari að gerast,“ segir Sigrún Þórarinsdóttir í Bollakoti.
7.4.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sláturfélag Austurlands stefnir á að koma á fót kjötvinnslu í húsnæði Matvælamiðstöðvar Austurlands í Mjólkurstöðinni á Egilsstöðum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi Sláturfélagsins 25. mars síðastliðinn. Ekki hefur verið rekin kjötvinnsla né slátrun á Egilsstöðum frá haustinu 2002 og hafa framleiðendur eystra lengi haft í huga að bæta þar úr.
6.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Föstudaginn 9. apríl nk. mun Landssamtök sauðfjárbænda standa fyrir opnu málþingi um sauðfjárrækt. Er málþingið haldið í tilefni af 25 ára afmælis samtakanna og fer þinghald fram á Hótel Sögu í ráðstefnusalnum Stanford, frá kl. 13:00 til 17:00. Aðgangur er ókeypis.
6.4.2010
Sigurður Már Harðarson

Grunur er um salmonellusmit hjá Matfugl ehf. og hefur fyrirtækið innkallað kjúkling með framleiðslunúmerinu 215-10-08-1-03. Í tilkynningu frá Matfugli kemur fram að enn sé um grun að ræða og þörf sé á frekari rannsóknum til að skera úr um hvort um salmonellusmit sé að ræða.
31.3.2010
Sigurður Már Harðarson

„Það hefur ekki farið framhjá okkur garðyrkjufræðingum hérlendis hversu mikill ræktunaráhugi braust hér út í kjölfar kreppunnar. Hann hefur aðeins minnkað aftur en þó er til stór hópur fólks sem vill fræðast meira og rækta sjálft. Það kemur fólki yfirleitt á óvart hversu margar berjategundir er hægt að rækta hérlendis til nytja,“ útskýrir Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur.
30.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur svarað fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar þingmanns Framsóknarflokksins frá 1. mars síðastliðnum um undanþágur frá reglum Evrópusambandsins (ESB). Í fyrirspurn Gunnars Braga var spurt hvort einhver aðildarríki ESB hefðu fengið varanlegar og ótímabundnar undanþágur frá reglugerðum, tilskipunum eða öðrum lagafyrirmælum sambandsins og í hverju þær undanþágur hefðu þá falist.
30.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stefnt er að því að móta stefnu um mótsstaði Landsmóts hestamanna til framtíðar á landsþingi Landssambands hestamannafélaga (LH) á Akureyri í haust. Skipa á svokallaða milliþinganefnd sem á að vinna að stefnumótun í þá veru og skila niðurstöðum í haust. Þetta var ákveðið á formannafundi LH 26. mars síðastliðinn.
30.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Vakin er athygli á ágætum umfjöllunum í sjónvarpi í gærkvöldi um framsýna bændur. Annars vegar var viðtal tekið í Ísland í dag á Stöð 2 við bræðurna Aðalstein og Garðar Hallgrímssyni á bænum Garði, rétt utan við Akureyri, en þeir hafa nýlega endurnýjað gamla fjósið hafa nú reist tæknilegt 2000 fermetra fjós sem hýsir um 100 kýr.
30.3.2010
Sigurður Már Harðarson
Í Umhverfisteiknum Umhverfisstofnunar Evrópu 2010 birtast sex frásagnir af fólki og sambandi þess við umhverfið. Þessir sjónarvottar leiða þig á bæði kunnuglegar og framandi slóðir og kynna fyrir þér undirstöður lífs á jörðinni – vatn, jarðveg og loft. Frásagnir þeirra eru persónulegar og staðbundnar.
29.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stjórn Samtaka ungra bænda hefur sent frá sér ályktun þar sem tekið er undir ályktun aðalfundar Landssambands kúabænda um sameiginlegan markað með greiðslumark í mjólk. Í ályktun ungra bænda kemur fram að hátt verð á mjólkurkvóta undanfarin ár hafi bæði verið greininni kostnaðarsamt auk þess sem það hafi hamlað nýliðun. Ályktunin er svohljóðandi:
29.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Landssamband kúabænda (LK) vill að öll viðskipti með greiðslumark í mjólk fari fram á sameiginlegum uppboðsmarkaði og jafnframt verði íhugað að setja takmörk við því hversu mikið greiðslumark geti verið í eigu sama aðila. Þetta er meðal þess sem ályktað var um á aðalfundi LK sem haldin var dagana 26. og 27. mars síðastliðna.
29.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Um 200 landnámshænur urðu eldi að bráð þegar kviknaði í útihúsum á bænum Tjörn á Vatnsnesi aðfararnótt sunnudagsins síðasta. Tæplega þúsund egg eyðilögðust einnig í eldinum en á Tjörn var fyrir brunann stærsti landnámshænsnastofn landsins. Tíu hanar sem voru í öðru húsi voru einu skepnurnar sem björguðust úr brunanum.
26.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Miðvikudaginn 24. mars hófs fyrsti dagur í fundarherferð Heimssýnar „Áfram Ísland – Ekkert ESB“. Um er að ræða 17 fundi sem farnir verða um allt land á milli 24. og 31. mars. Frummælendur verða 21 talsins og munu þeir skipta á milli sín þeim stöðum sem farið verður á, en 2-3 frummælendur verða á hverjum fundi.
26.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundur Landssambands kúabænda (LK) var settur á Hótel Sögu í morgun. Stendur fundurinn yfir í tvo daga og annað kvöld verður árshátíð LK haldin. Fundurinn hófst með fundarsetningu en að svo búnu flutti Sigurður Loftsson, formaður LK setningarræðu. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefnum...
24.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í síðustu viku litu fyrstu lömb vorsins í Mýrdalshreppi dagsljósið á bænum Garðakoti en Eva Dögg Þorsteinsdóttir sendi Bændablaðinu þessa skemmtilegu mynd af börnunum á bænum með nýborin lömbin. Fyrsta lambið í Árneshreppi fæddist í morgun á bænum Bæ í Trékyllisvík, stórt hvítt hrútlamb undan ærinni Vöndu sem er fimm vetra gömul.
24.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Við sögðum frá því í Bændablaðinu í janúarmánuði sl. að Þórarinn kornbóndi Ólafsson í Drangshlíð 2 undir Eyjafjöllum ynni að verkefni sem hann kallaði Frá akri í glas. Eftir kornvertíðina í haust sl. snéri hann sér að möltun á bygginu sínu og bruggtilraunum. Nú hefur það verkefni verið fullkomnað og blaðamaður varð þess heiðurs aðnjótandi fyrir skemmstu að fá að bragða á ölafurðum Drangshlíðarbúsins.
24.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Það hefur vart farið framhjá landsmönnum að Krabbameinsfélagið stendur fyrir landssöfnuninni „Mottu-mars“ þessa dagana. Um allt land má sjá karlmenn með misjafnlega gróskumikið yfirvaraskegg bera saman bækur sínar um lengd, vöxt og áferð. Svo langt hefur metingurinn gengið að menn hafa stofnað til keppni á Netinu þar sem almenningur heitir á bæði einstaklinga og hópa í mottusöfnun. Bændasamtökin hafa ekki legið á liði sínu og teflt fram sínum mönnum til keppni undir liðsheitinu „Fjósamotturnar“. Þá hefur frést að Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt, er meðal efstu manna í einstaklingskeppninni en hann skartar vígalegri mottu í prússneskum stíl.
24.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Nýverið hóf Vélaborg-Landbúnaður ehf. að selja ýmsar vörur fyrir bændur sem vilja stunda heimavinnslu á landbúnaðarafurðum. Að sögn Sverris Geirmundssonar sölumanns hafa viðtökurnar verið framar vonum og nú rjúka skilvindur, þurrkofnar og smjörstrokkar út eins og heitar lummur.
24.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í gær buðu uppsveitir Árnessýslu til stefnumóts við „Gullna hringinn“ í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem gestir og gangandi nutu sín vel að fræðast um svæðið og þjónustuna sem þar er í boði við ljúfa harmonikkutóna Böðvars á Búrfelli. Fjórtán fyrritæki og bændur kynntu starfsemi sína og boðið var upp á afurðir beint frá býli eins og heimagert skyr, hverabrauð, ástarpunga og heitt tómataseyði.
23.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Niðurstaða liggur nú fyrir úr sýnatöku á flúormagni í ösku frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Níels Óskarsson hjá Jarðvísindastofnun Háskólans hefur tekið saman minnisblað um niðurstöðurnar og í því kemur fram að niðurstaða hans sé sú að flúormagn sé ekki tiltakanlega mikið, eða nálægt þriðjungi þess sem yfirleitt er í gjósku frá Heklugosum. Þrjú sýni voru mæld á tveimur stöðum, frá eldstöðinni sjálfri og sýni í snjó undir Eyjafjöllum. Níels tekur fram að sýnin séu gróf aska og geraverði ráð fyrir að flúorgildi séu hærri fjær eldfjallinu þar sem askan sé fíngerðari. Hugsanlega gæti flúormagn á Mið-Suðurlandi verið fjór- eða fimmfalt miðað við þessar mælingar.
23.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Um síðustu helgi var haldið sjötta forntraktoranámskeið Landbúnaðarháskóla Íslands, Landbúnaðarsafns Íslands og verktakafyrirtækisins Jörva. Á síðasta námskeiði heyrði það til tíðinda að fyrstu konurnar sóttu námskeiðin en það voru þær Jóna Þórunn Ragnarsdóttir frá Selfossi og Sigríður Kristjánsdóttir frá Kaupangi í Eyjafirði.
22.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svaraði í dag fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur frá 3. mars sl. um breytingar á fánalögum. Spurt var hvað líði boðuðum breytingum á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldamerkið sem leggja átti fyrir Alþingi haustið 2009 samkvæmt þingmálaskrá. Í svari Jóhönnu kemur fram að drög að frumvarpi liggi fyrir og að vinnsla þess sé á lokastigi í ráðuneytinu.
22.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Fjórða Opna hús ársins 2010 hjá Skógræktarfélögunum verður þriðjudagskvöldið 23. mars nk. og hefst kl. 20:00. Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur mun segja frá eplatrjám á Íslandi, en hann er þekktur í garðyrkjugeiranum fyrir ræktun sína og hefur honum tekist að rækta eplatré og önnur ávaxtatré í garðinum sínum á Akranesi sem stendur alveg niður við sjó.
21.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Hraungos er hafið á Fimmvörðuhálsi og 0,7-1 km sprunga myndast frá suðvestri til norðausturs. Hraun rennur frá henni stutta leið til austurs en meginhraunstraumurinn rennur til vesturs. Lítilsháttar gosmökkur er frá gosinu en hann nær um 1 km í loft upp og leggur beint til vesturs. Áhrif eru mjög staðbundin enn sem komið er og ekki flóðahætta fyrir hendi. Samkvæmt fréttum Rúv hefur rýming heimila gengið vel fyrir sig en vegir eru ennþá lokaðir við Vík, Fljótshlíð og Hvolsvöll. Ekki hafa heyrst fréttir af gjóskufalli eða eiturgufum í tengslum við gosið. Mjög hvasst er á svæðinu.
19.3.2010
Þröstur Haraldsson

Í könnun sem fyrirtækið MMR, Markaðs- og miðlarannsóknir ehf., hefur gert kemur í ljós að liðlega þrír af hverjum fjórum aðspurðum, 76,3%, kváðust frekar eða mjög fylgjandi því að ríkið greiði styrki til íslensks landbúnaðar. Konur eru frekar fylgjandi því en karlar og verulegur munur er á afstöðu manna eftir búsetu, 15,6% þeirra sem búa á landsbyggðinni eru andvígir ríkisstyrkjum en 29% höfuðborgarbúa.
19.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Nýverið hóf göngu sína áskriftaklúbburinn Saumaklúbburinn þar sem áhugafólk um handavinnu og hannyrðir getur fundið fjölbreyttar uppskriftir í hverjum mánuði á spjöldum sem send eru félögum í handhægri teygjumöppu. Í Saumaklúbbnum er lögð mikil áhersla á íslenska hönnun í bland við hönnun þekktra erlenda prjónahönnuða og til að mynda eru gamlar Álafoss-prjónauppskriftir færðar til nútímans.
18.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Um 50 manna hópur íslenskra sauðfjárbænda mun á morgun leggja land undir fót til Færeyja. Ásamt því að fara í skoðunarferðir, heimsækja bændur og fræðast um menningu eyjarskeggja ætla gestirnir að halda lambakjötskynningar í nokkrum verslunum ytra, m.a. í Bónus og Miklagarði. Af því tilefni hefur Færeyska ríkisútvarpið spilað fjöruga auglýsingu sem lesendur bbl.is geta hlustað á
hér.
17.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Á aðalfundi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) þann 4. mars sl. var ný stjórn kjörin. Eftirtaldir hlutu kosningu: Rögnvaldur Ólafson formaður, Erlingu Teitsson varaformaður, Jón Axel Pétursson ritari, Egill Sigurðsson, Einar Sigurðsson, Sigurður Loftsson og Pálmi Vilhjálmsson meðstjórnendur.
17.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Rektorar íslenskra háskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á fjárveitingum til háskólanáms. Skora þeir á íslensku þjóðina að nýta sér kraft háskólanna til endurreisnar samfélagsins, snúa vörn í sókn, og horfa á vandamálin sem tækifæri til frumlegra lausna.
16.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Íþróttadómar allra FEIF-landa (alþjóðasamtök eigenda íslenskra hesta) er nú að finna í WorldFeng. Um er að ræða íþróttadóma frá öllum aðildarlöndum FEIF, sem eru 18 talsins. Upplýsingar um íþróttadóma verða lesnir inn vikulega í WorldFeng. Á ráðstefnu FEIF, sem haldin var í Danmörku í síðasta mánuði, kom fram að innlestur dómsniðurstaðna frá löndum FEIF verði eitt af forgangsverkefnum á þessu ári hvað varðar þróun á WorldFeng.
16.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Sauðfjárbændur sem ætla að sækja um nýtt leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2010 á eyðublöðum sem finna má á
www.mast.is eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send.
16.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Erlendur Björnsson, sauðfjárbóndi í Seglbúðum í Landbroti, hlýtur í dag Evrópsku landgræðsluverðlaunin The Environment and soil management award, sem ELO-samtökin (European Landowner's organization) veita árlega. Erlendur hlýtur verðlaunin fyrir uppgræðslu lands og endurheimt raskaðra vistkerfa á jörð sinni. Hann hefur grætt land sitt frá 1982 og frá 1994 innan verkefnisins Bændur græða landið, sem er samstarfsverkefni bænda og Landgræðslu ríkisins.
15.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Dýralæknafélag Íslands hvetur Bændasamtök Íslands, Landssamtök sauðfjárbænda, Landssamband kúabænda og búnaðarsambönd um land allt til að beita sér gegn því að leikmenn geldi hrúta og kálfa með svokölluðum hrúta- eða kálfatöngum.
12.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Enn logar glatt í deilu vegna ákvörðunar um staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Nú hafa stjórnarmenn 26 aðildarfélaga Landssambands hestamannafélaga sent frá sér harðorða yfirlýsingu um málið og fer hún hér í heild sinni ásamt greinargerð:
12.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Landssamband sauðfjárbænda krefst þess að sala á dýralyfinu Albencare verði stöðvuð á meðan áhrif þess eru rannsökuð. Grunur leikur á að lyfið valdi stórfelldu fósturláti í sauðfé.
12.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Framleiðsla á kjöti í febrúar nam 1.424 tonnum, 4,1% minni en á sama tíma í fyrra. Síðustu 3 mánuði er framleiðslan hins vegar sambærileg við sama tíma í fyrra. Mest breyting hefur orðið í framleiðslu hrossakjöts, 22% samdráttur miðað við 3 mánaða tímabil. Þegar litið er á kjötsölu, kemur fram 3,5% samdráttur í febrúar og 4,6% samdráttur sl. 3 mánuði miðað við sama tíma í fyrra.
12.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Landssamband kúabænda (LK) og Neytendasamtökin (NS) hafa birt niðurstöður úr gæðakönnun á nautahakki sem staðið var fyrir í kjölfar umræðu um þau mál sl. haust. Könnun LK og NS náði til átta vörutegunda nautahakks. Helstu niðurstöður eru þær að í mörgum tilvikum voru merkingar á umbúðum ekki í samræmi við gildandi reglur. Þá reyndist fituinnihald í tveimur tilvikum vera meira en gefið var upp.
11.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í gær fæddist sannkallaður risakálfur á Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Kálfurinn vóg 77 kg og var að sjálfsögðu tekinn með keisara enda varla á færi nokkurra kúa að bera slíku flykki. Lars Hansen, dýralæknir, aðstoðaði kálfinn, sem er kvíga, í heiminn. Kvígan lifði burðinn af og heilsast vel. Móðirin er Húfa 350 Trefilsdóttir 96006, móðir Húfs 07049, en hún var komin 35 daga fram yfir tal.
11.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í nýju tölublaði Bændablaðsins er nýafstöðnu Búnaðarþingi gerð nokkuð ýtarleg skil í blaðauka. Veitt er yfirlit yfir ályktanir þingsins og þrír nýir stjórnarmenn Bændasamtaka Íslands teknir tali; þau Vigdís Sveinbjörnsdóttir, Guðný Helga Björnsdóttir og Árni Brynjólfsson. Þá er gerð grein fyrir veitingu landbúnaðarverðlaunanna árið 2010 sem komu í hlut bændanna á Hrauni á Skaga og Grænhóli ...
10.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Það er hálf eyðilegt um að litast við Dynskóga í Hveragerði þar sem áður stóð ullarþvottastöð Ístex en nú er búið að jafna húsið við jörðu og eftir stendur steypt grunnplatan og grús á víð og dreif. Árið 2004 var ullarþvotti hætt í húsinu sem hefur undanfarið verið nýtt sem tjaldvagnageymsla.
9.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í kvöld, þriðjudaginn 9. mars, verður opið hús hjá skógræktarfélögunum í fundarsal Arion-banka að Borgartúni 19, kl. 20:00. Er þetta í þriðja sinn á árinu sem félögin standa fyrir opnu húsi og að þessu sinni segir Daði Már Kristófersson, lektor í náttúruauðlindahagfræði hjá Háskóla Íslands, frá rannsókn á virði Heiðmerkur.
8.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undiritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu Landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi Hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að Landsmót skyldi haldið í Reykjavík.
8.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ályktunar Búnaðarþings um mótsstaði Landsmóts hestamanna. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Stjórn HEÞ lýsir yfir undrun sinni á erindi Félags Hrossabænda til Búnaðarþings 2010 um Landsmót hestamanna. Stjórn HEÞ kannast ekki við að staðsetning landsmóta hafi verið til umfjöllunar á aðal- og/eða formannafundum undanfarin ár.
5.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Landssamband hestamannafélaga og Fákur í Reykjavík undirrituðu í dag samning um að Landsmót hestamanna 2012 verði haldið í Reykjavík. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambandsins, Bjarni Finnsson, formaður Fáks og Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur undirrituðu samninginn. Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.
5.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Vegna aukinnar virkni í Eyjafjallajökli hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra beðið Matvælastofnun að hvetja alla þá sem hafa með búfjárhald að gera í nágrenni jökulsins að fylgjast vel með fréttum útvarpsstöðva. Nýjustu fréttir eru einnig að finna á heimasíðu Almannavarna:
www.almannavarnir.is.
5.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Í ársreikningi SS sem birtur var fyrir skömmu, kemur fram í skýringum, að fyrirtækið hafi fengið niðurfellingu vaxta, verðbóta og taps vegna gengisbreytinga upp á 565 milljónir króna. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins. Hagnaður SS á árinu 2009 nam 379 milljónum króna, og því er ljóst að afskriftin kom afkomu fyrirtækisins vel upp fyrir núllið.
5.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Siv Friðleifsdóttir þingkona Framsóknarflokksins lagði í gær fram fyrirspurn á Alþingi til forsætisráðherra um breytingar á fánalögum. Í fyrirspurninni er spurt um hvað líði breytingum á lögum um þjóðfánann og skjaldarmerkið sem leggja átti fyrir Alþingi haustið 2009. Ennfremur spurði Siv hvort búast mætti við að frumvarpið verði lagt fram á næstunni til að tími gefist til að skoða málið og eftir atvikum samþykkja frumvarpið á yfirstandandi þingi.
5.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Skeljungur birti í gær áburðarverðlista. Allir áburðarsalar hafa þar með birt verðlista sína fyrir komandi vor. Listaverð er gefið upp í breskum pundum og umreiknað yfir í íslenskar krónur á sölugengi Seðlabanka Íslands 2. mars síðastliðinn en þá stóð það í 193,34 krónum. Greiðslukjör miðast hins vegar við sölugengi Seðlabankans 31. mars næstkomandi. Á heimasíðu Skeljungs er ekki að sjá að boðnir séu sérstakir afslættir, hvorki pöntunarafsláttur, staðgreiðsluafsláttur né magnafsláttur. Sé áburðurinn hins vegar staðgreiddur er miðað við gengi á greiðsludegi reiknings í stað gengis 31. mars.
4.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Búnaðarþingi 2010 lauk í gær á ellefta tímanum. Fjöldi mála voru afgreidd á þinginu og má sjá niðurstöður málanna á síðu Bændasamtaka Íslands,
bondi.is. Þar er sömuleiðis að finna fundargerðir auk annarrar fylgiskjala. Mörg stór mál voru á dagskrá þingsins. Meðal annars fór fram mikil og þung umræða um skuldamál bænda og kallaði þingið eftir því í ályktun sinni að þegar yrði gripið til aðgerða sem miði að úrlausn þeirra mála.
4.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Samband garðyrkjubænda hefur gert rammasamninga við Orkusöluna og Orkuveitu Reykjavíkur til fimm ára sem leiða til hagsbóta fyrir ylræktendur með afsláttarkjörum á orkuna. Nýmæli samninganna er að allir félagsmenn SG geta gengið inn í samninginn hvort sem þeir framleiða gúrkur, garðplöntur, kartöflur eða blóm.
4.3.2010
Sigurður Már Harðarson
Í vikunni skrifuðu Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri BÍ, og Hildur Traustadóttir, stjórnarmaður Bjargáðasjóðs undir samstarfssamning sem felur í sér að Bændasamtökin annast skrifstofuhald fyrir sjóðinn frá 1. mars 2010 og leggja til sérhæfðan starfsmann sem hefur umsjón með málefnum sjóðsins.
3.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Bændasamtökin hyggjast beita sér fyrir því að landsmót hestamanna verði haldin á landsbyggðinni og að landsmótsstaðirnir verði tveir, Vindheimamelar í Skagafirði og Gaddstaðaflatir við Hellu. Búnaðarþing samþykkti þetta í ályktun sinni nú í kvöld.
3.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Tafarlaust þarf að hefja almennar leiðréttingar á lánum en að öðrum kosti blasir við að enn fleir bændur lendi í greiðsluerfiðleikum. Einnig verður þegar að finna úrlausnir á skuldavanda búa sem voru rekstrarhæf fyrir bankahrun en hafa nú lent í greiðsluerfiðleikum. Þetta er megininntakið í ályktun Búnaðarþings um fjármál bænda sem var samþykkt nú fyrir skömmu.
3.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Búnaðarþing samþykkti fyrr í dag ályktun þar sem fyrirhugaðri sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við iðnaðarráðuneyti er harðlega mótmælt. Í ljósi þeirrar miklu hagsmunabaráttu sem framundan er í málefnum sjávarútvegs og landbúnaðar, sem séu meginstoðir atvinnulífs hinna dreifðari byggða, sé slík sameining á engan hátt tímabær. Er þessi afstaða Búnaðarþings í miklu samræmi við þau viðbrögð sem fyrirhuguð sameining hefur vakið hjá öðrum hagsmunaaðilum í landbúnaði, hagsmunaaðilum í sjávarútvegi og ýmsum sveitarstjórnum svo dæmi séu tekin.
3.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Samfylkingin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa sína til fundar við Evrópunefnd Búnaðarþings sem hefur starfað síðustu tvo daga. Nefndin boðaði á sinn fund fjölda gesta og óskaði meðal annars eftir því við alla stjórnmálaflokkana sem sæti eiga á Alþingi að þeir sendu sína fulltrúa til að fjalla um Evrópusambandsumsóknina. Við því brugðust Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Vinstri græn og Hreyfingin. Fulltrúar Samfylkingarinnar létu hins vegar ekki sjá sig og að sögn Sigurbjarts Pálssonar formanns nefndarinnar bárust engin skilaboð frá flokknum. „Aðstoðarmaður Evrópunefndarinnar var í sambandi við alla þessa flokka fyrir Búnaðarþing þannig að tíminn var nægur. Það var haft samband við fulltrúa Samfylkingarinnar eins og aðra og það stóð víst til að athuga málið en síðan hefur ekkert frá þeim heyrst, þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað“ segir Sigurbjartur.
3.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

SS birti í dag áburðarverðskrá fyrir komandi vor. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að verðið sé svipað og það var í fyrra og einnig að fyrirtækið sé búið að tryggja sér nægjanlegt magn. Bændur eru þó hvattir til að hraða pöntunum sínum til að hægt verði að ganga sem fyrst frá því áburðarmagni sem flutt verði til landsins. Sömuleiðis sé hægt að nýta sér hærri pöntunarafslátt ef pantað er snemma auk þess sem að staðgreiðsluafsláttur er hærri en verið hefur. SS selur áburð frá Yara verksmiðjunni norsku og er um að ræða einkorna áburð.
2.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Áburðarverksmiðjan gaf út sitt áburðarverð í dag. Í tilkynningu frá félaginu er sagt að verðið sé háð gengisþróun evru á innflutningstímanum. Þeir taka jafnframt fram að að gert sé ráð fyrir því að endanlegt verð liggi fyrir þann 15 apríl 2010.
2.3.2010
Sigurður Már Harðarson

Í fyrsta sinn í sögu Búnaðarþings sitja þar systur, þær Guðrún Lárusdóttir í Keldudal í Hegranesi og Fanney Ólöf Lárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri II. Fanney Ólöf situr sitt þriðja þing en Guðrún er í fyrsta sinn fulltrúi á Búnaðarþingi. Þær feta í fótspor móður sinnar, Sólrúnar Ólafsdóttur, sem var eitt sinn í stjórn Bændasamtakanna og sótti þar af leiðandi Búnaðarþing.
2.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Lítið hefur farið fyrir málefnalegri umræðu um íslenskan landbúnað í boðsferð Evrópusambandsins fyrir Íslendinga í Brussel til þessa. Eftir því sem Bændablaðið hefur fregnað var rætt um íslenskan landbúnað á fundi í morgun og fannst forsvarsmönnum Evrópusambandsins lítið til málflutnings Bændasamtakanna koma. Sögðu þeir að umræða hér á Íslandi væri á algjörum villigötum. Máli sínu til stuðnings vörpuðu þeir upp frétt grínsíðunnar Baggalúts. Eftir því sem Bændablaðið kemst næst var ekki færður frekari rökstuðningur fyrir þeirri skoðun talsmanna Evrópusambandsins um að hér heima væri umræðan á villigötum.
2.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Nú rétt í þessu var tilkynnt um úrslit í kosningum til stjórnar Bændasamtaka Íslands. Eins og greint var frá í fyrri frétt var Haraldur Benediktsson kjörinn formaður fyrr í dag með öllum greiddum atkvæðum. Að auki voru kosnir sex fulltrúar í stjórn samtakanna. Alls gáfu ellefu þingfulltrúar kost á sér til stjórnarsetu. Úrslit kosninganna voru þau að Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð fékk 45 atkvæði, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum fékk 41 atkvæði, Sigurbjartur Pálsson á Skarði fékk 40 atkvæði, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir á Egilsstöðum fékk 40 atkvæði, Árni Brynjólfsson á Vöðlum fékk 23 atkvæði og Guðný Helga Björnsdóttir á Bessastöðum fékk 22 atkvæði. Aðrir sem í kjöri voru fengu minna. Einar Ófeigur Björnsson í Lóni var næstur inn í stjórn og hlaut 20 atkvæði. Þeir Haraldur, Sveinn, Jóhannes og Sigurbjartur sátu allir í síðustu stjórn Bændasamtakanna en þau Vigdís, Árni og Guðný Helga koma ný inn.
2.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Haraldur Benediktsson var rétt í þessu endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands. Uppstillinganefnd sem skipuð var í gær á Búnaðarþingi ákvað að gera ekki tillögu að formanni og var því kosið óhlutbundinni kosningu á þinginu. Alls kusu 45 Búnaðarþingsfulltrúar atkvæði og fór kosninginn svo að Haraldur fékk öll greidd atkvæði, 45 fimm talsins. Var honum fagnað með dynjandi lófataki.
2.3.2010
Tjörvi Bjarnason

Orsök efnahagskreppunnar eru jakkafataklæddir karlmenn sem trúðu því að verðmæti yrðu til úr engu. Framferði þeirra hefur skapað vandræði fyrir fjölda fólks en þó er von til þess að efnahagskreppan verði til þess að fólk enduruppgötvi það sem hefur eitthvað raunverulegt gildi í lífinu. Mjög mikilvægt er að samstaða íslensku þjóðarinnar rofni ekki meðan erfiðleikarnir ganga yfir hana. Þetta sagði Brita Skallerud, annar varaformanna norsku bændasamtakanna Norges Bondelag, í ræðu við setningu Búnaðarþings í gær en hún var þar sérstakur gestur Bændasamtaka Íslands.
1.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Ljóst er að hið minnsta þrír stjórnarmenn Bændasamtakanna Íslands hafa lýst því yfir að þeir muni ekki sækjast eftir áframhaldandi setu í stjórn. Það eru þau Svana Halldórsdóttir á Melum, Karl Kristjánsson á Kambi og Þorsteinn Kristjánsson á Jökulsá. Aðrir stjórnarmenn hafa gefið kost á sér til áframhaldandi setu. Það eru þeir Haraldur Benediktsson formaður á Vestri-Reyni, Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð, Sigurbjartur Pálsson á Skarði og Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum. Kosið verður til stjórnar klukkan 13.00 á morgun og hefur verið skipuð uppstillingarnefnd sem gera mun tillögu um nýja stjórn.
1.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Atli Gíslason formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar segir sameiginlegan fund nefndarinnar og efnahags- og skattanefndar með fulltrúum Bændasamtakanna hafa verið mjög gagnlegan. „Það var mikill skilningur hjá þingmönnum og samstaða um að bregðast við þessum mikla vanda bænda. Ráðneytin voru hvött til að leggja til lagabreytingar sé þeirra þörf, bæði varðandi breytingar á virðisaukaskatti, áframhaldandi frystingu lána og möguleg þvingunarúrræði gagnvart fjármögnunarfyrirtækjum. Þingnefndirnar lýstu því yfir að þær væru tilbúnar að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að flýta slíkum málum í gegnum þingið.“
1.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Forsvarsmenn Bændasamtakanna, sitja nú sameiginlegan fund sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem fara á yfir skuldastöðu bænda. Á fundinum á að upplýsa nefndarmenn um þær aðgerðir sem Bændasamtökin hafa gripið til vegna stöðunnar og þau úrræði sem að standa bændum til boða.
1.3.2010
Freyr Rögnvaldsson
.jpg)
Fundað var um skuldamál bænda í landbúnaðarog sjávarútvegsráðuneytinu 26. febrúar síðastliðinn. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði til fundarins en til hans mættu einnig Atli Gíslason formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, Lilja Mósesdóttir formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Jón Gunnarsson þingmaður, Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands, Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Jóhann Guðmundsson aðstoðarmaður ráðherra, Ingimar Jóhannsson skrifstofustjóri í ráðuneytinu og fulltrúar viðskiptabankanna sem fara með málefni bænda.
1.3.2010
Freyr Rögnvaldsson

Ef ekki væri stundaður landbúnaður á Íslandi þyrftu landsmenn að verja um 100 milljónum króna á hverjum degi í kaup á erlendum landbúnaðarvörum sem skapa myndi tilheyrandi vöruskiptahalla. Þess í stað skilar íslenskur landbúnaður á bilinu 35 til 40 milljörðum í ríkisskassann árlega þegar frá eru talin erlend aðföng. Íslenskur landbúnaður skapar því bæði gjaldeyri og sparar hann að sama skapi. Þó slíkt hafi alltaf verið mikilvægt hlýtur það að teljast mikilvægara nú en nokkru sinni. Innlendar landbúnaðarvörur hafa á undanförnum misserum haldið niðri matarverði og verið þáttur í að halda niðri verðbólgu hér á landi.
28.2.2010
Tjörvi Bjarnason

Búnaðarþing var sett við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni í dag. Þar héldu ávörp Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Brita Skallerud annar tveggja varaformanna norsku bændasamtakanna Norges bondelag og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís. Einnig voru veitt landbúnaðarverðlaun sem ábúendurnir á bæjunum Hraun á Skaga og Grænhóli í Ölfusi hlutu að þessu sinni. Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi kom sá og sigraði með hressilegri fiðlutónlist.
26.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti 24. febrúar síðastliðinn að hún legði til að hafnar yrðu aðildarviðræður við Ísland. Ljóst er að skoðanir varðandi aðild hér á landi eru verulega skiptar. Evrópusambandið hefur nú hafið kynningarvinnu á starfsemi sambandsins og meðal annars hefur sambandið sett upp sendiskrifstofu hér á landi. Aukinheldur hefur sambandið nú farið af stað með boðsferðir fyrir valda aðila úr íslensku viðskiptalífi ásamt fulltrúum hagsmunasamtaka. Ein slík ferð verður farin mánudaginn 1. mars næstkomandi og í þá ferð fara meðal annars fulltrúar hagsmunasamtaka í landbúnaði. Þar má nefna Hörð Harðarson formann Svínaræktarfélags Íslands, Björn Víking Björnsson framkvæmdastjóra Fjallalambs á Kópaskeri og Helga Hauk Hauksson formann Samtaka ungra bænda. Aðrir þátttakendur í ferðinni eru fulltrúar frá hinum og þessum fyrirtækjum s.s. hvalaskoðunarfyrirtækinu North sailing á Húsavík, Orf líftækni og Marorku svo einhverra sé getið.
26.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Nafnabreyting hefur orðið á Hótel Sögu við Hagatorg og heitir það nú Radisson Blu Hótel Saga. Hótelið hét áður Radisson SAS Hótel Saga, en það er hluti af einni stærstu hótelkeðju heims.
26.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Í áliti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að sambandinu kemur fram að landbúnaðarstefna hérlendis byggist upp á miklum stuðningi. Það sé gert vegna einangrunar landsins, erfiðra ræktunarskilyrða og smæðar markaðar. Þær leiðir sem nýttar eru til þess eru innflutningstollar á landbúnaðarvörur, beingreiðslur, kvótakerfi og opinber verðlagning á mjólkurafurðum og útgáfa viðmiðunarverðs á kindakjöti svo dæmi séu tekin. Ljóst er hins vegar að ef til inngöngu í sambandið kæmi munu allir innflutningstollar á landbúnaðarvörur frá ríkjum Evrópusambandsins falla niður og breyta þurfi verulega stuðningskerfinu þar sem framleiðslutengdur stuðningur myndi að miklu leiti falla niður.
26.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Stjórn Beint frá býli hefur ákveðið að halda aðalfund félagsins föstudaginn 19. mars nk. að Hótel Hamri í Borgarbyggð. Fyrirlesari á fundinum verður, Skotinn, Donald MacPherson. Hann er bóndi á Castlehills – býlinu sem er sunnarlega á austurströnd Skotlands. Þar rekur hann nautgripabú með áherslu á kjötfarmleiðslu undir sérstöku gæðamerki og selur beint frá býli eftir ýmsum leiðum...
25.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Miklar breytingar þarf að gera á íslensku landbúnaðarkerfi ef af inngöngu í Evrópusambandið verður. Þetta kemur skýrt fram í álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem birt var í gær. Í álitinu kemur fram að landbúnaðarstefna Íslands sé ekki í samræmi við landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og á því þurfi að ráða bragarbót áður en til aðildar kæmi. Það eigi einkum við um styrkjakerfi í landbúnaði sem sé í litlu samræmi við stuðningskerfi og samkeppnislöggjöf Evrópusambandsins. Nauðsynlegt sé því að gera breytingar á kerfinu og færa stuðning við landbúnað frá framleiðslutengdum stuðningi yfir stuðnings óháð framleiðslu.
25.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Hreindýraveiðileyfum fyrir árið í ár var úthlutað 20. febrúar síðastliðinn. Í boði voru leyfi til veiða á 1.272 dýrum og bárust 3.737 gilda umsóknir. Útdrátturinn var sendur út beint í gegnum netið og vakti sú nýbreytni mikla lukku. Horft var á úrdráttinn úr 2.700 tölvum í beinni útsendingu og sama kvöld hafði upptaka af úrdrættinum verið skoðum um 2.000 sinnum.
25.2.2010
Tjörvi Bjarnason

Bændablaðið kom út í dag og er stútfullt af fréttaefni. Þar er m.a. fjallað um lækkandi orkukostnað garðyrkjunnar, Búnaðarþing sem er á næsta leiti og nýja ljósdíóðulampa sem lofa góðu fyrir garðyrkjuna. Í miðju blaðsins er kastljósinu beint að menntamálum í landbúnaði og m.a. rætt við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra og rektor LbhÍ Ágúst Sigurðsson. Skúli Skúlason rektor á Hólum ritar pistil og greint er frá ýmsum endurmenntunarkostum sem bjóðast bændum.
25.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Búvís hefur birt áburðarverðlista sinn á heimasíðu sinni. Reyndar er aðeins um að ræða takmarkað magn á þremur tegundum áburðar því enn er beðið staðfestingar á vöruframboði og verðum frá birgjum. Áburðartegundirnar og kjörin sem nú eru í boði eru eftirfarandi:
24.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Svo virðist sem opinbert eftirlit með kjötvörum fari eingöngu fram í eftirliti með vörumerkingum. Stefán Vilhjálmsson, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun (MAST) segir að hann viti ekki til þess að kjötvörusýni hafi verið send til kjöttegundagreiningar af hálfu MAST. „Slíkum aðferðum verður varla beitt, einkum vegna kostnaðar, nema fyrir liggi rökstuddur grunur um vörusvik.“
24.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn, fyrir árið 2009. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl næstkomandi.
23.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Einar Kr. Guðfinnsson og Guðlaugur Þór Guðlaugsson, þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa sent formönnum Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og Viðskiptanefndar bréf og óskað eftir sameiginlegum fundi nefndanna þar sem farið verði yfir skuldamál í landbúnaði og þau úrræði sem standi bændum til boða.
23.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Mánudaginn 15. febrúar sl. var haldin málstofa á Keldnaholti á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar hafði Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, framsögu og fjallaði um það sem hann kallar vegagerð framhjá kerfi. Þar vísar Andrés til þess vegaslóðakerfis sem hann segir að hafi myndast vegna skorts á regluverki og aðhaldi.
22.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Matar- og menningarhátíðin Food and Fun fer nú fram í níunda sinn og munu íslenskir og erlendir matreiðslumeistarar laða fram ómótstæðilega rétti úr íslensku hráefni. Dagana 24. - 28. febrúar mun þjóðþekktur matreiðslumeistari frá Svíþjóð Johan Gustafsson matreiða á Grand hótel.
22.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælastofnun heldur fræðslufund um rekjanleika og innköllun matvæla þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15:00 - 16:00, í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Á fundinum verður fjallað um kröfur um rekjanleika og innköllun í nýju matvælalöggjöfinni, framkvæmd innkallana og ástæður, og nýleg dæmi tekin fyrir.
19.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Á Fræðaþingi landbúnaðarins í gær héldu Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins og Guðjón Þorkelsson frá Matís ohf. fróðlegt erindi um sóknarfæri í kjötvinnslu á Íslandi. Þar kemur meðal annars fram að með bættri ímynd íslenskra kjötvara og með nýju matvælalöggjöfinni opnist tækifæri fyrir íslenskan kjötiðnað.
19.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Fræðaþing landbúnaðarins var sett í gær kl. 13:00 í Súlnasal Hótels Sögu. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setti þingið en fyrsta erindið flutti Þorsteinn I. Sigfússon hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ), um orkumál. Ræddi hann um smávirkjanir á Íslandi og þann mikla áhuga meðal einstaklinga á virkjun vatnsafls, hita, vindafls, sjávarfalla og ...
19.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur birt
skýrslu nefndar um notkun og varðveislu ræktanlegs lands á Íslandi á
heimasíðu ráðuneytisins. Nefndin sem var skipuð af Einari Kristni Guðfinnssyni fyrrum landbúnaðarráðherra í desember 2008 skilaði skýrslunni 16. febrúar síðastliðinn.
Í skýrslu nefndarinnar er fjallað um fæðuöryggi á heimsvísu, sem og hér á landi. Gerð er grein fyrir landbúnaðarframleiðslunni í landinu, þróun hennar og þýðingu fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar. Því næst er tekið til athugunar hvað sé til mikið af góðu ræktunarlandi á Íslandi.
19.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Frá febrúar og fram í lok maí heldur Blómaval ókeypis fræðslunámskeið öll fimmtudagskvöld á sviði garðyrkju og ræktunar matjurta. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og er nú uppbókað á helming námskeiðanna sem í boði eru en um 100 manns sitja þau í hvert sinn.
18.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Í nýútgefnum tölfræðibæklingi Ferðamálastofu má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu. Niðurstöðurnar eru settar fram á myndrænu formi með stuttum skýringum í texta með það að markmiði að auka og auðvelda aðgengi að handhægum upplýsingum um atvinnugreinina.
17.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Ríkisstjórnin fjallaði í liðinni viku um tillögur iðnaðarráðherra um margvíslegar aðgerðir í atvinnu- og nýsköpunarmálum. Meðal aðgerða sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hrinda í framkvæmd er að vinnuhópur með aðkomu lífeyrissjóða að stórframkvæmdum útfæri stofnun sérstaks ferðamálasjóðs.
17.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Aldrei hafa fleiri sótt um hreindýraveiðileyfi en 3800 umsóknir hafa borist veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar. Umsóknarfresturinn rann út í gær.
Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður veiðistjórnunarsviðs, bendir á að endanlegur fjöldi umsókna liggi þó ekki fyrir því póstlagðar umsóknir gætu átt eftir að berast og eins eigi eftir að sía úr ógildar umsóknir.
16.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Alþingi kom saman í dag á ný, eftir viku hlé vegna kjördæmadaga. Í óundirbúnum fyrirspurnum spurði Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður sauðfjárbænda sem nýverið tók sæti á Alþingi, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um fyrirhugaða sameiningu ráðuneytis sjávarútvegs- og landbúnaðar við iðnaðarráðuneytið.
16.2.2010
Sigurður Már Harðarson

„Hvers vegna vilja bændur ekki í Evrópusambandið?“ er yfirskrift opins umræðufundar í kvöld, þriðjudag 16. febrúar. Fundurinn verður kl. 20:00 á Thorvaldsen Bar við Austurstræti. Það er Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, sem stendur að fundinum.
16.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Fræðaþing landbúnaðarins 2010 verður haldið í Bændahöll (Hótel Sögu) dagana 18. – 19. febrúar nk. Fræðaþingið er samvinnuverkefni 9 stofnana sem tengjast landbúnaði og eru eftirfarandi: Bændasamtök Íslands ásamt búnaðarsamböndunum í landinu, Landbúnaðarháskóli Íslands, Matvælastofnun, Skógrækt ríkisins, Landgræðsla ríkisins, Háskólinn á Hólum, Veiðimálastofnun, Hagþjónusta landbúnaðarins og Matís.
16.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Íslensk hollusta ehf. fékk Matís til samstarfs við sig til að ljúka vöruþróun á kryddlegnum sölvum en gerðar voru prófanir á maríneringu á nokkrum algengum efnum eins og olíu, sojasósu, ediki, mysu og saltpækli. Prófanir sýndu að verulega var hægt að bæta vinnsluferlið til að besta vöruna með tilliti til útlits, bragðs og geymsluþols.
16.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra hlaut Eyrarrósina 2010 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðdegis í gær. Áskell Heiðar Ásgeirsson og Magni Ásgeirsson forsvarsmenn Bræðslunnar veittu verðlaununum viðtöku úr hendi frú Dorrit Moussaieff, sem er verndari Eyrarrósarinnar.
15.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Á síðasta ári hófu Orkusetur iðnaðarráðuneytisins og Vistvæn Orka ehf samstarf um smíði og prófanir á svokölluðum ljósdíóðulömpum sem þróaðir eru á Íslandi til að auka hagkvæmni í lýsingu gróðurhúsa.
12.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælaskólinn hjá Sýni heldur námskeið um stofnun matvælafyrirtækja dagana 25. og 26. febrúar og 11. og 12. mars og er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi kröfur sem gerðar eru til matvælafyrirtækja bæði hvað varðar gæði, öryggi og hollustu matvæla svo og húsnæði og búnað.
11.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Mun minna ræktunarland er til staðar hér á landi en talið hefur verið fram að þessu. Þetta kemur fram í rannsókn þeirra Þórodds Sveinssonar og Jónatans Hermannsonar lektora við Landbúnaðarháskóla Íslands um ræktun orkujurta á bújörðum. Greint er frá þessum niðurstöðum á forsíðu Bændablaðsins sem kom út í dag.
10.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Í byrjun árs flutti Matís ohf. starfsemi sína í Reykjavík á einn stað í glæsileg húsakynni að Vínlandsleið en áður hafði fyrirtækið haldið úti þremur starfsstöðvum í höfuðborginni. Mikið hagræði er í flutningnum þar sem sérfræðingar og rannsóknarstofur eru nú staðsett á einum og sama staðnum og allt starf verður því markvissara fyrir vikið.
9.2.2010
Tjörvi Bjarnason

Því miður hefur ekki reynst unnt að skrá smáauglýsingar í gegnum vef Bændablaðsins um þriggja daga skeið. Búið er að laga bilunina en þeir sem sendu inn veflæga skráningu dagana 7.-9. feb. þurfa því miður að gera það aftur eða hafa samband símleiðis við auglýsingastjóra í síma 563-0303.
9.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf í dag, þriðjudaginn 9. febrúar, kl. 14:30-16:30 í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Þar munu sérfræðingar Matvælastofnunar kynna efni nýrrar matvælalöggjafar fyrir fyrirtækjum í matvælaiðnaði, matvælaverslun og veitingaþjónustu.
8.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Miðvikudaginn 10. febrúar verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á
Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins.
5.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Nú hefur verið staðfest að tímaritið Icelandic Agricultural Sciences er komið á Web-of-Science og þar með ISI- grunninn (Institute for Scientific Information). Þar með er ritið viðurkennt sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit. Eftir því sem best er vitað er ritið þriðja íslenska fræðiritið að komast inn á þennan virðulegasta gagnagrunn vísindasamfélagsins.
4.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðalfundur Félags kúabænda á Suðurlandi var haldinn í Árhúsum, Hellu 1. febrúar sl. Þórir Jónsson á Selalæk var endurkjörinn formaður félagsins en í skýrslu hans komu fram m.a. áhyggjur af stöðu bænda, bæði vegna skuldastöðu yngri bænda og eins vegna raunlækkunar á afurðaverði.
3.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur birt spurningar Evrópusambandsins um landbúnað ásamt svörum á heimasíðu sinni, sjavarutvegsraduneyti.is. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setti fram þá stefnu að þýða bæri bæði spurningar og svör og hefur það nú verið gert.
3.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Á morgun, fimmtudaginn 4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís halda námskeið sem kennir fólki að greina innihaldslýsingar og merkingar á matvælum, með tilliti til reglugerða sem í gildi eru um þau mál. Námskeiðið er haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ).
2.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Forstjóraskipti urðu um mánaðamótin hjá Auðhumlu. Magnús Ólafsson lét þá af störfum forstjóra en Einar Sigurðsson tók við starfi hans. Einar Sigurðsson mun því héðan í frá sinna störfum forstjóra bæði hjá Auðhumlu og MS.
1.2.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda tók í dag sæti á Alþingi sem varmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Norðvesturkjördæmi. Sindri skipaði þriðja sæti á lista flokksins í síðustu Alþingiskosningum og tekur nú sæti í fjarveru Guðmundar Steingrímssonar sem farinn er í fæðingarorlof. Mun Sindri sitja í rúman mánuð á þingi að óbreyttu. Með innkomu Sindra sitja nú tveir bændur á þingi en fyrir á fleti er sauðfjárbóndinn úr Dölunum, Ásmundur Einar Daðason þingmaður Vinstri grænna.
1.2.2010
Sigurður Már Harðarson

Á stjórnarfundi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði sem haldinn var á dögunum, var samþykkt að beina þeim tilmælum til aðildarfélaga að greiðslur fyrir mjólk í 1. flokki A yrðu framvegis 1,40 kr/ltr. Það nemur um 2% af afurðastöðvaverði. Sem kunnugt er hefur þessi greiðsla verið 1,00 kr/ltr um nokkurra ára skeið. Stjórnir afurðastöðva eiga eftir að taka afstöðu til þessa.
29.1.2010
Freyr Rögnvaldsson

Lögregla ásamt fleiri aðilum tók kindur úr vörslu ábúenda á sauðfjárbúinu Stórhóli í Álftafirði í gær. Var það gert að beiðni Matvælastofnunar. Ábúendur hafa fjögurra sólarhringa andmælafrest. Þeir voru í lok seinasta árs sektaðir fyrir brot á lögum um dýravernd og búfjárhald.
Aðgerðin,sem kallast vörslusvipting, felur það í sér að það búfé sem umfram er leyfilegan fjölda er tekið og komið fyrir annars staðar.
Austurglugginn.is greindi frá þessu og sjá má frekari umfjöllun um málið
hér og
hér.
29.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Spegill fortíðar – silfur framtíðar er yfirskrift fyrirlestra sem Íslenska vitafélagið stendur fyrir í Sjóminjasafni Reykjavíkur – Víkinni . Fimmtudagskvöldið 4. febrúar kl. 20:00 verður tveimur merkum stöðum gerð skil í máli og myndum. Agnes Stefánsdóttir segir frá fornminjum á Reykjanesi og frá Reykjanesvita og safnvörðurinn Finnbogi Bernódusson mætir í fornum sjóklæðum og ræðir um Ósvör. Umfærður og kaffi.
28.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) hafa ráðið Guðna Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra til starfa. Guðni mun sinna hagsmunagæslu fyrir afurðastöðvarnar og gæta þess að framleiðendur og afurðastöðvar nýti sem best tiltæka markaði hverju sinni, innan lands og utan. Ekki þarf að efa að tengsl Guðna vegna starfa hans í stjórnmálum muni nýtast honum á þeim vettvangi.
27.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Fjárfestingarstofa undirbýr kynningu á Íslandi sem minkaræktarlandi, sem verður komið á framfæri við minkaræktendur á Norðurlöndum og í Hollandi. Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður Fjárfestingarstofu Íslands, segir að Íslendingar standi sig vel í minkaræktinni. Hér séu framleidd góð skinn sem seljist fyrir hátt verð, rekstrarkostnaður búanna sé tiltölulega lítill og mikið til af hráefni ...
26.1.2010
Tjörvi Bjarnason

Fóðurblandan hefur tilkynnt breytta samsetningu kúaóðurs. Ákveðið hefur verið að auka sojainnihald og minnka fiskimjölsinnihald í nokkrum þeim tegundum fóðurs sem í dag innihalda fiskimjöl. Er þetta gert vegna mjög takmarkaðs framboðs og mikilla verðhækkana á fiskimjöli.
26.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Þann 11. desember sl. var Guðmundur Jónsson, lögfræðingur í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, ráðinn til starfa hjá JÁS Lögmönnum. Guðmundur mun sjá um að byggja upp starfsemi JÁS Lögmanna á Suðurlandi og sinna lagalegum málefnum bænda.
22.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Á ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag þann 28. janúar munu grasrótarhópar, hagsmunaaðilar og samtök fjalla um sóknarfæri og áherslur sem aukið geta lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum. Ráðstefnan er á vegum stýrihóps 20/20 Sóknaráætlunar og forsætisráðuneytisins.
22.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Ölgerðin sendir í vínbúðir og á veitingastaði í dag á bóndadaginn sem markar upphaf þorra. Þorrabjórinn er að þriðja hluta gerður úr íslensku byggi sem er ræktað á bænum Belgsholti í Melasveit á Vesturlandi.
21.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Á nýliðnu ári var heildarframleiðsla á mjólk hér á landi tæplega 125,6 milljónir lítra, sem er 0,38% samdráttur frá fyrra ári, eða rúmlega 400 þús. ltr minna en 2008. Sala á próteingrunni var 117,7 milljónir lítra, sem tæplega hálfs prósents aukning frá 2008, eða rúm hálf milljón lítra.
21.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælastofnun heldur opinn fræðslufund um breytingar með nýrri matvælalöggjöf þriðjudaginn 26. janúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um þær breytingar sem innleiðing matvælalöggjafar ESB hefur í för með sér og áhrif þeirra á neytendur, framleiðendur, innflytjendur og eftirlitsaðila.
20.1.2010
Sigurður Már Harðarson
Bæði Norðlenska og SAH afurðir á Blönduósi hafa tilkynnt um að framvegis verði innheimtur flutningskostnaður af stórgripum sem koma til slátrunar. Í fréttatilkynningu frá SAH afurðum kemur fram að um nokkurt skeið hafi slíkt gjald ekki verið innheimt en nú verði ekki komist hjá slíkri gjaldtöku og tók hún gildi 17. janúar síðastliðinn. Hjá Norðlenska tóku breytingarnar gildi 18. janúar síðastliðinn.
Landssamband kúabænda hefur haldið til haga upplýsingum um flutningskostnað sláturleyfishafa. Hér að neðan má sjá verð á flutningi stórgripa til slátrunar samkvæmt þeirra upplýsingum og tilkynningum um breytingar hjá einstökum sláturleyfishöfum.
19.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Árið 2009 voru framleidd rösklega 27 þúsund tonn af kjöti. Mest var framleitt af kindakjöti (8.840 tonn) og alifuglakjöti (7.146 tonn). Heildar kjötsala á árinu 2009 nam 24.175 tonnum og dróst saman um 6,4% frá árinu 2008. Hér koma án efa til áhrif af samdrætti í efnahagslífi þjóðarinnar. Einnig fækkaði landsmönnum um 2.163 íbúa eða 0,7%.
19.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Sala á dilkakjöti í desembermánuði 2009 var 270 tonn samanborið við 557 tonn í desember 2008. Miðað við sama ársfjórðung og í fyrra (okt-des) er 17.4% samdráttur en sé litið til 12 mánaða (áranna 2008-2009 í heild) er 16.9% samdráttur. Þessi mikli samdráttur m.v. des. 2008 skýrist m.a. af því að mikið var selt á milli afurðastöðva í desember 2008 en ekki 2009, því að þá fóru þær fram fyrr.
18.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Héraðsdýralæknir lógaði í seinustu viku þremur ám á Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði vegna gruns um garnaveiki, sem síðar var staðfestur við krufningu. Búist er við að bólusetning við garnaveiki hefjist að nýju á svæðinu.
18.1.2010
Þröstur Haraldsson

Í viðtali á ÍNN við Björn Bjarnason þann 13. janúar sl. gagnrýndi Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, stjórnvöld fyrir að hamla því að samtökin eigi sjálfstæðar og opnar viðræður við önnur ríki um málefni landbúnaðarins og Evrópusambandið (ESB). Orðaði Haraldur það þannig að það væri sem stjórnvöld „önduðu ofan í hálsmálið á BÍ“ í sjálfstæðri gagnaöflun samtakanna...
18.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Við járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga stendur nú gríðarlega stór timburstafli. Timbrið, sem alls er um 1.000 rúmmetrar, bíður eftir að verða kurlað og notað sem kolefnisgjafi í járnblendiverksmiðjunni. Skógrækt ríkisins skrifaði í sumar undir samning við verksmiðjuna um 1.000 tonn af grisjunarviði sem nota á í stað jafðefnaeldsneyta í tilraunaskyni.
14.1.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórnina að leggja til hliðar áform um sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins annars vegar og iðnaðarráðuneytisins hins vegar í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Þar með bætist sveitastjórnin í hóp fjölmargra aðila sem hafa lagst gegn slíkri sameiningu að undanförnu. Meðal þeirra eru sveitarstjórn Skagafjarðar, Landssamband smábátaeigenda og sauðfjárbændur á Héraði og Fjörðum, svo einhverjir séu nefndir. Ljóst er að umtalsverð andstaða er við boðaða sameiningu hjá hagsmunaaðilum. Ekki er ljóst hvenær stefnt er að því að leggja fram frumvarp um boðaðar breytingar en það hefur þegar dregist all nokkuð.
14.1.2010
Tjörvi Bjarnason

Á forsíðu nýjasta Bændablaðsins sem kom út í dag er greint frá verðkönnun sem Bændablaðið hefur gert í sjö Evrópulöndum. Þar kemur fram að matarverð á Íslandi er fjarri því að vera það hæsta í Evrópu eins og oft heyrist í pólitískri umræðu hér á landi. Sömu ályktun má draga af tölum Evrópsku hagstofunnar Eurostat yfir verðlagi í Evrópulöndum á árinu ...
13.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Síðastliðið sumar var starfræktur sveitamarkaður um 50 söluaðila í húsnæði Grettistaks á Laugarbakka. Viðtökur voru góðar en talið er að um sex þúsund gestir hafi litið við á markaðnum. Í boði var handverk og heimaframleidd matvæli með áherslu á héraðið og sögu. Söluaðilar gengu um í stílfærðum víkingabúningum en allt yfirbragð var frekar hrátt og náttúrutengt.
12.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Aðal framleiðsluafurð Kalkþörungaverksmiðjunnar á Bíldudal er steinefnafóður. Um 14 þúsund tonn voru flutt út af því á síðasta ári, aðallega til kúabænda víða um heim. Þar hefur einnig verið framleitt áburðarkalk en mest af því er selt úr landi undir merkjum Íslenska kalkþörungafélagsins.
11.1.2010
Þröstur Haraldsson

Ekkert lát er á vetrarhörkunum í Evrópu. Á Bretlandseyjum er ástandið orðið það alvarlegt að menn ræða um hættuna á matarskorti. Matarverð hefur farið hækkandi að undanförnu og á veðrið sinn þátt í því. Þannig hefur til dæmis ekki verið hægt að skera upp grænmeti vegna jarðbanna og víða eru afurðirnar orðnar að graut í frostinu. Fyrir vikið verða Bretar að reiða sig á innflutt grænmeti sem er dýrara en heimaræktað.
11.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Árið 2009 var það besta í sögu Ístex, en hagnaður ársins nam yfir 70 milljónum króna. Rekstrarskilyrði fyrirtækisins á síðasta ári voru afar hagstæð; útflutningsverð hækkaði mjög eftir fall krónunnar, hagstæðir samningar voru gerðir við bændur um ullarverð og lágt innkaupsverð var á öðrum efnum til framleiðslunnar. Þá tvöfaldaðist ...
11.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og prjónakona með meiru hefur í þó nokkurn tíma verið iðin við kolann með prjónana. Árið 2008 gaf hún út prjónabókina Prjóniprjón í samstarfi við Halldóru Skarphéðinsdóttur líffræðing, en í framhaldinu fór Ragnheiður að velta fyrir sér prjónaferðum til Íslands fyrir erlenda ferðamenn.
8.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Á Grundartanga í Hvalfirði rís nú ný fóðurverksmiðja Líflands. Um er að ræða mikla framkvæmd; verksmiðjuhús og síló sem spanna yfir 1.200 fermetra. Framleiðslugeta verksmiðjunnar mun nema 30 þúsund tonnum á ári miðað við dagvinnu og geymslurými fyrir hráefni og fullunna vöru er um 9.000 tonn.
7.1.2010
Freyr Rögnvaldsson

Fóðurblandan hefur sent frá sér tilkynningu um hækkun á gjaldskrá vegna fóðurflutninga um fimm prósent og tekur hækkunin gildi miðvikudaginn 13 janúar 2010. Fram kemur í tilkynningunni að hækkunin sé tilkomin vegna aukins rekstrarkostnaðar og kostnaðarhækkana við rekstur bifreiða. Fóðurblandan fylgir þar með í fótspor Líflands sem sendi frá sér tilkynningu um viðlíka hækkun sem taka mun gildi mánudaginn 11. janúar næstkomandi.
6.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Hagstofan hefur gefið út tölur um útflutning á kindakjöti fyrstu 11 mánuði ársins 2009. Útflutningur var 2.269 tonn þessa 11 mánuði að verðmæti um 1.270 milljónir íslenskra króna. Að auki voru flutt út 528 tonn af sviðum og innmat að verðmæti rúmar 89 milljónir króna. Til samanburðar má nefna að samkvæmt yfirliti fyrstu 10 mánuðina árið 2008 hafði 1.044 tonn...
6.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur að loknu útboði úthlutað tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ESB á árinu 2010. Alls var úthlutað 745 tonnum þar af eru 100 tonnum af ostum, en 645 tonn af kjöti og kjötafurðum.
6.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Matvælastofnun í samráði við sveitarstjórnir boðar til opins fræðslufundar með sauðfjárbændum í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi miðvikudaginn 13. janúar 2010 kl. 13.00 - 15.30 í félagsheimilinu Heimalandi undir Eyjafjöllum.
6.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Tilkynning hefur borist frá Líflandi um hækkun á gjaldskrá fyrir akstur um 5% frá og með mánudeginum 11. janúar. Í tilkynningunni kemur fram að hækkunin sé tilkomin vegna mikilla breytinga á velflestum rekstrarþáttum bifreiða. Segir þar enn fremur að síðasta verðbreyting á gjaldskrá Líflands vegna flutninga hafi verið í september 2008.
5.1.2010
Freyr Rögnvaldsson

Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkaði um tíu prósent að jafnaði um áramótin en þá hækkaði virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5 prósentum í 25,5 prósent. RARIK segir hækkunin fyrst og fremst tilkomna vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar.
4.1.2010
Sigurður Már Harðarson

Á Stálpastöðum í Skorradal er nú dönsk skógarhöggsvél sem notuð er við grisjun í 50 ára gömlum sitkagreniskógi. Vélin afkastar á við 15 skógarhöggsmenn og er því afar hagkvæm, að sögn Lárusar Heiðarssonar hjá Skógrækt ríkisins. Hann segir að hugmyndin að því að fá slíka vél til landsins hafi vaknað fyrir mörgum árum en það var ekki fyrr en sl. haust að haft var samband við skógarverktaka í Danmörku...
4.1.2010
Freyr Rögnvaldsson

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum 17. desember síðastliðinn ályktun þar sem ríkisstjórnin er hvött til að hverfa frá hugmyndum um að leggja niður ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðar. Átta sveitarstjórnarfulltrúar samþykktu ályktunina en einn greiddi atkvæði gegn henni, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi Samfylkingarinnar. Frá þessu er greint á
feyki.is.
30.12.2009
Sigurður Már Harðarson
Þann 23. desember sl. sendi Hagstofa Danmerkur frá sér frétt um samanburð á verðlagi í Evrópulöndum árið 2008. Þar kemur fram að Danmörk er dýrasta land í Evrópu. Verðlag á neysluvörum þar er 41% hærra en í ESB löndunum 27 að meðaltali. Þegar EES löndunum Noregi, Sviss og Íslandi er bætt við, reynist verðlag í Noregi næst hæst, 39% hærra en að meðaltali í ESB löndunum 27 og í þriðja sæti er Sviss með 31% hærra verðlag. Í fjórða sæti er Írland, síðan Finnland og Lúxemborg og þá Ísland í 7. sæti með 17% hærra verðlag en í ESB-27.
29.12.2009
Sigurður Már Harðarson

Hrútur sem slapp laus í Grundarfjarðarbæ í gær gerði sér lítið fyrir og stökk inn um svefnherbergisrúðuna hjá sóknarprestinum Aðalsteini Þorvaldssyni. Verið var að færa hrútinn milli bæja þegar hann slapp laus.
28.12.2009
Tjörvi Bjarnason

Um áramótin hækkar auglýsingagjaldskrá og áskriftargjöld Bændablaðsins. Ástæðan er miklar verðlagsbreytingar á rekstrarvörum en gjaldskrá blaðsins hefur verið óbreytt í tvö ár. Dálksentimetraverð í fjórlit verður kr. 1.190 án vsk. og kr. 910 í svarthvítu.