Danskir vísindamenn leita nú að nýjum hveitiyrkjum sem þola betur hita og þurrka en þau sem nú eru í notkun. Ástæðan er að sjálfsögðu hlýnun andrúmsloftsins vegna losunar gróðurhúsalofttegunda.
Leitin fer þannig fram að í vetur munu vísindamenn skoða mörg hveitiyrki í rannsóknarstofum og velja úr þau sem reynast þola best hærri hita. Þeim verður svo plantað út í vor og fylgst með viðgangi þeirra í sumar.
Þau yrki sem koma best út úr sumrinu verða svo víxlfrjóvguð. Næsta skref verður að endurtaka tilraunina með þeim yrkjum sem best þola hitann og reynt að finna út hvaða yrki þola best þurrka.
Þetta eru nokkuð flóknar tilraunir og í þeim taka þátt vísindamenn úr mörgum fræðigreinum. Auk þess að ná fram betri yrkjum vonast vísindamennirnir til þess að auka þekkingu sína á þeim erfðaeiginleikum sem segja fyrir um þol gegn hita og þurrki. Úr því hyggjast þeir búa til líkan sem nota má við rannsóknir á fleiri sviðum því loftslagsbreytingarnar koma víða við.
/LandbrugsAvisen