Innlendar fréttir

8.3.2010  Freyr Rögnvaldsson
Undrast afstöðu Félags hrossabænda
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ályktunar Búnaðarþings um mótsstaði Landsmóts hestamanna. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Stjórn HEÞ lýsir yfir undrun sinni  á erindi Félags Hrossabænda til Búnaðarþings 2010 um Landsmót hestamanna.  Stjórn HEÞ kannast ekki við að staðsetning landsmóta hafi verið til umfjöllunar á aðal- og/eða formannafundum undanfarin ár.

Þegar farið er fram með svo stórt og umdeilt mál hlýtur það að vera mikilvægt fyrir stjórn slíkra samtaka að vita hug sinna félagsmanna.  Það geta því varla talist eðlileg vinnubrögð að blanda félaginu í þetta viðkvæma deilumál með þessum hætti, og marka stefnu til framtíðar án þess að nokkur umræða hafi farið fram um það á vetvangi félagsins.

Í greinargerð með ályktuninni er staðhæft að það sé almennt viðhorf að farsælast sé að sameinast um tvo mótsstaði.  Stjórn HEÞ kannast ekki við þetta almenna viðhorf,  enda engin formleg umræða farið fram um málið innan samtakanna.“

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður