Innlendar fréttir

5.3.2010  Freyr Rögnvaldsson
Landsmót í Reykjavík - Ákvörðun í mótsögn við vilja Búnaðarþings
Landssamband hestamannafélaga og Fákur í Reykjavík undirrituðu í dag samning um að Landsmót hestamanna 2012 verði haldið í Reykjavík. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambandsins, Bjarni Finnsson, formaður Fáks og Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur undirrituðu samninginn. Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.

Landssamband hestamannafélaga og Fákur í Reykjavík undirrituðu í dag samning um að Landsmót hestamanna 2012 verði haldið í Reykjavík. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambandsins, Bjarni Finnsson, formaður Fáks og Kjartan Magnússon, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur undirrituðu samninginn. Frá þessu er greint á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.

Bjarni Finnsson sagði í samtali við Viðskiptablaðið að þetta væri mjög ánægjuleg niðurstaða fyrir Fák. Fyrirvarar séu í samkomulaginu um atriði er varða fjármögnun og aðkomu Reykjavíkurborgar að framkvæmdinni. Það þurfi þó eitthvað mjög óvænt að koma upp á til að forsendur breytist og undirstöður samningsins bresti.

„Við Fáksmenn erum staðráðnir í að halda gott Landsmót 2012. Borgarráð og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar hafa líst yfir stuðningi við framkvæmdina. Það eru deildar meiningar um staðarvalið meðal hestamanna, en nú skiptir miklu máli að við sameinumst um þá ákvörðun sem tekin hefur verið og stefnum allir sem einn að góðu Landsmóti hestamanna í Reykjavík,“ sagði Bjarni í samtali við Viðskiptablaðið.

Kemur mjög á óvart

Búnaðarþing samþykkti á miðvikudaginn sem leið einróma ályktun þess efnis að halda eigi landsmót á landsbyggðinni og að mótsstaðirnir skuli vera tveir, Vindheimamelar og Gaddstaðaflatir. Sigurbjartur Pálsson fulltrúi Bændasamtaka Íslands í stjórn Landsmóts ehf. segist mjög undrandi á þessari niðurstöðu. „Það kemur mjög á óvart í ljósi niðurstöðu Búnaðarþings að menn skuli gera þetta. Verandi með þá ályktun tæplega sólarhringsgamla fyrir framan sig, samhljóða samþykkta, tel ég ljóst að þetta hljóti að kalla á einhver viðbrögð af hendi Bændasamtakanna. Ég ætla kannski ekki að úttala mig um hver þau verða, Landssamtök hestamannafélaga munu væntanlega skýra sitt mál og hvað rekur þá til að ganga frá þessu með þessum hætti í dag. Við hljótum að ráða ráðum okkar hjá Bændasamtökunum í framhaldinu, þessi ákvörðun er í engum takti við það sem Búnaðarþing ályktaði.“

 
  


 


 

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður