Vill banna dróna við veiðiár
Á aðalfundi Landssambands veiðifélaga, sem haldinn var á Breiðdalsvík dagana 12.–13. júní 2015 var eftirfarandi ályktun samþykkt.
Aðalfundur Landssambands veiðifélaga, haldinn á Breiðdalsvík dagana 12.–13. júní 2015, vekur athygli veiðifélaga á að svokallaðir „drónar“ eru nú að verða algengir á Íslandi. Engar reglur hafa verið settir um notkun þessara flygilda. Fundurinn beinir því til veiðifélaga að settar verði reglur sem banna notkun „dróna“ við veiðiár á veiðitíma til að tryggja frið við árnar.
Um leið og við vekjum athygli á ofangreindri ályktun, þá bendum við á að frekari upplýsingar um efni hennar veitir formaður LV, Jón Helgi Björnsson, Laxamýri í síma 893 3778.
Þess má geta að á aðalfundinum var Jón Helgi Björnsson kjörinn formaður LV og tók hann við af Óðni Sigþórssyni sem var formaður LV frá árinu 2000 til aðalfundar 2015.