Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Elín Heiða Valsdóttir, bóndi í Úthlíð í Skaftártungu, tók við verðlaunum fyrir Rafal.
Elín Heiða Valsdóttir, bóndi í Úthlíð í Skaftártungu, tók við verðlaunum fyrir Rafal.
Mynd / smh
Fréttir 8. apríl 2016

Viðurkenningar sæðingastöðvanna veittar fyrir Danna og Rafal á aðalfundi LS

Höfundur: smh

Nú rétt í þessu voru viðurkenningar veittar fyrir hrúta sæðingastöðvanna á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Faghópur sauðfjárræktar hjá Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) útnefndi annars vegar Danna (12-923) sem „besta lambaföðurinn“ og hins vegar Rafal (09-881) sem „mesta alhliða kynbótahrútinn“. 

Það eru sæðingastöðvarnar sem standa að viðurkenningunum og það kom í hlut  Þórhildur Þorsteinsdóttir, formanns Búnaðarsambands Vesturlands, að veita verðlaunin fyrir hönd stöðvanna. Elín Heiða Valsdóttir, bóndi í Úthlíð í Skaftártungu tók við verðlaunum fyrir Rafal en Árni Gunnarsson bóndi í Sveinungsvík í Þistilfirði tók við verðlaunum fyrir Danna.

Þórhildur Þorsteinsdóttir veitir Árni Gunnarsson í Sveinungsvík viðurkenninguna.

Lárus Birgisson og Eyþór Einarsson sauðfjárræktarráðunautar RML fluttu pistla um verðlaunahrútana. Í pistli Lárusar um Danna kom fram að hann væri fæddur í Sveinungsvík í Þistilfirði vorið 2012 og valið byggi á skoðun lamba sem komu til dóms haustið 2015. „Danni kemur úr öflugri ræktunarhjörð í Sveinungsvík og meðal sæðingahrúta sem koma fyrir í ættartré hans eru Grábotni 06-833, Kveikur 05-965, Cat 04-992, Lómur 02-923 og Áll 00-868.

Haustið 2014 var Danni í afkvæmarannsókn í N-Þingeyjarsýslu á vegum sæðingastöðvanna og á grunni hennar valinn til notkunar á sæðingastöð. Hann kom mjög vel út úr öllum þáttum rannsóknarinnar og sýndi þar styrk sinn sem sterkur lambafaðir.

Danni fékk strax mikla notkun á sæðingastöð og kom því til dóms stór hópur afkvæma hans haustið 2015. Afkvæmi hans eru fallegar kindur á velli, frábær að gerð, lágfætt, útlögumikil, yfirleitt með ágæta bollengd og úrvals holdfyllingu hvar sem á þau er litið. Stigun og ómmælingar staðfesta þessa umsögn. Þungi afkvæmanna reyndist nokkuð yfir meðaltali. Heildarstigun hrútlamba undan Danna var sú hæsta í hópi sæðingastöðvahrúta sl. haust eða 84,4 stig. Kynbótamat hans fyrir skrokkgæði er mjög hátt, þ.e. 123 fyrir gerð og 115 fyrir fitu.

Því miður drapst Danni eftir fyrsta ár sitt á sæðingastöð en vonandi feta einhverjir sonanna í hans fótspor. Danni skipar sér ótvírætt í hóp yfirburða kynbótagripa m.t.t. kjötgæða og ber því vel nafnbótina „Besti lambafaðirinn“ árið 2015,“ sagði Lárus í yfirferð sinni.

Rafall af sterkum meiði fjárræktarinnar í Úthlíð

Rafall er frá Úthlíð í Skaftártungu og í máli Eyþórs kom fram að þar á bæ hefði lengi verið stunduð öflug fjárrækt, sem einkennist ekki síst af mikilli afurðagetu ánna. „Rafall er af sterkum meiði fjárræktarinnar í Úthlíð, kynbættri með þekktum stöðvahrútum þar sem næstir honum standa Bjálki (06-9959 frá Hesti og Lækur (97-843) frá Lækjarhúsum.

Í hóp sæðingastöðvahrúta var hann tekinn sumarið 2012.  Næstu þrjá vetur þjónaði Rafall sameiginlegu ræktunarstarfi sem stöðvahrútur.  Á því tímabili voru sæddar 2.074 ær við honum vítt og breytt um landið og undan honum hafa verið fullstigaðir 589 lambhrútar.  Því er hrúturinn orðinn mikið reyndur bæði sem lambafaðir og ærfaðir en krafan er að komin sé tveggja ára reynsla á dætur hrútsins í gegnum sæðingar til að hann komi til álita í þessu vali.

Einkennandi fyrir afkvæmi Rafals er hinn góði þroski lambanna og þá hefur hann skilað mörgum vel gerðum ásetningshrútum.  Í heildina telst hann þó ekki til mestu yfirburðahrúta m.t.t. skrokkgæða en eins og kynbótamat hans sýnir er hann þó í góðu meðallagi fyrir þessa eiginleika með 105 stig fyrir gerð og 104 stig fyrir fitu.  Meginkostur hans er hinsvegar að dæturnar reynast frjósamar, úrvals afurðaær og þar hefur kynbótamat hans risið mjög á liðnum árum og er hann í dag með 110 stig fyrir frjósemi og 114 stig fyrir mjólkurlagni.  

Rafall er sá hrútur sæðingastövðanna sem á þessum tímapunkti uppfyllir best allra hrúta  þær kröfur sem gerðar eru við valið og er þessi öflugi ærfaðir og alhliða kynbótahrútur hér með útnefndur sem „mesti kynbótahrútur stöðvanna 2016,“ sagði Eyþór í pistli sínum.

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...