Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Gosið í Eyjafjallajökli árið 2010.
Gosið í Eyjafjallajökli árið 2010.
Mynd / TB
Fréttir 21. nóvember 2017

Viðbragðsáætlanir vegna aukinnar virkni í Öræfajökli

Vegna vísbendinga um aukna virkni í Öræfajökli hvetja Bændasamtök Íslands félagsmenn sína til að kynna sér viðbragðsáætlanir sem Matvælastofnun hefur tekið saman af þessu tilefni.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna, vegna vísbendinga um aukna virkni í Öræfajökli. 

Unnið er að viðbragðsáætlunum sérstaklega fyrir Öræfajökul ef gýs með tilheyrandi flóðahættu. Hjálmar Björgvinsson deildarstjóri almannavarna sagði í gær í samtali við Ríkisútvarpið drög að viðbragðsáætlun væru tilbúin.
 
Amennar viðbragðsáætlanir almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra vegna eldgosa má finna í gegnum tengilinn hér:

Viðbragðsáætlanir almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra

 

Eftirfarandi texti er birtur á vef Matvælastofnunar:

„Þar sem náttúruhamfarir gera oft ekki boð á undan sér, ættu dýraeigendur að gera áætlanir um skyndileg viðbrögð við mismunandi vá og undirbúa aðstæður eftir því sem kostur er, með það að markmiði að koma í veg fyrir slys og aðrar þjáningar dýranna. Sér í lagi á þetta við um aðstæður sem valda því að eigendur gætu þurft að yfirgefa dýrin í skyndi.

Við gerð viðbragðsáætlana þyrftu eigendur að velta fyrir sér hvernig þeir telja að dýrunum sé best borgið miðað við tilteknar aðstæður, s.s. hættu á flóði, öskufalli, ofsaveðri o.s.frv. og gera ráðstafanir í samræmi við það. Jafnframt ættu þeir að tryggja eftir föngum að til staðar sé nauðsynlegur búnaður fyrir eigið öryggi og dýranna, sem og flutningstæki til rýmingar ef til þess kæmi.

Dýraeigendur þyrftu einnig að íhuga hvort aðrir geti sinnt dýrunum ef þeir sjálfir eru ekki í stakk búnir til þess. Til að auðvelda björgunarsveitum eða öðrum ókunnugum umhirðu dýranna, ætti hver og einn dýraeigandi að leitast við að hafa eftirtaldar upplýsingar uppfærðar og sýnilegar á staðnum á hverjum tíma:

1. Nöfn, heimilisföng og símanúmer þeirra sem þekkja best til
2. Upplýsingar um hvar finna megi lista yfir dýrin með númerum og/eða öðrum einkennum
3. Upplýsingar um veikindi dýra, burði og aðra mikilvæga þætti
4. Upplýsingar um fjölda dýra og staðsetningu þeirra í húsum og beitarhólfum
5. Kort yfir hús og beitarhólf
6. Leiðbeiningar um helstu verk, s.s. fóðrun og mjaltir
7. Upplýsingar um fóður, s.s. staðsetningu og birgðir
8. Upplýsingar um stjórnun mikilvægs tækjabúnaðar, s.s. mjalta-, fóður- og loftræstikerfis, vararafstöðvar o.s.frv.

Einstaklingsmerkingar dýra eru mikilvægar í þessu sambandi, meðal annars með tilliti til umönnunar og til að koma dýrum sem lent hafa á flækingi til síns heima.“

Öræfajökull er megineldstöð

Á vef Bændasamtaka Íslands hafa verið teknar saman upplýsingar um Öræfajökul og eldvirkni hans. „Öræfajökull er eldkeila í Austur-Skaftafellssýslu. Yfir fjallinu er jökulhetta, þ.e. Öræfajökullinn sjálfur, sem er jafnframt syðsti hluti Vatnajökuls. Hann fyllir stóra öskju efst á fjallinu. Margir skriðjöklar skríða út frá jökulhettunni niður fjallshlíðarnar og um dali við fjallsræturnar. Meðal þeirra eru Svínafellsjökull, Virkisjökull, Kotárjökull, Kvíárjökull og Hrútárjökull. Á norðurhlið fjallsins er Hvannadalshnúkur, hæsti tindur Íslands, 2.110 m. Öræfajökull (jökullinn sjálfur) er allur innan Vatnajökulsþjóðgarðs og fjallið að miklu leyti líka.

Öræfajökull er megineldstöð og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma; fyrst 1362 þegar Litlahérað lagðist í eyði, og síðan minna gosi 1727. Mikið tjón varð í báðum gosunum og þeim fylgdi öskufall og jökulhlaup,“ segir á vef Bændasamtaka Íslands.

Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...

Grípa þarf tækifærin
Fréttir 26. mars 2024

Grípa þarf tækifærin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, telur að bændur eigi að leyfa sér að hor...