Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Vignir og Jónína í Litlu-Brekku ásamt einu ungu og efnilegu tryppi úr ræktuninni.
Vignir og Jónína í Litlu-Brekku ásamt einu ungu og efnilegu tryppi úr ræktuninni.
Mynd / VS
Fréttir 9. ágúst 2017

Til alls líklegir

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir
Það heyrir til tíðinda að tveir hestar í 16 hesta keppnisliði Íslands komi úr ranni sama ræktunarbús. Hjónin Vignir Sigurðsson og Jónína Garðarsdóttir eru þó engir stórræktendur. Bæði sinna þau störfum utan heimilis en stunda hrossarækt og hestamennsku meðfram því á jörðinni Litlu-Brekku í Eyjafirði. 
 
Ræktunin á Litlu-Brekku hefur þó getið sér gott orð fyrir að gefa af sér góð keppnishross og nú eru tveir hestar þaðan meðal fremstu keppnishrossa landsins og munu keppa sem fulltrúar Íslands á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Oirschot í Hollandi dagana 7.-13. ágúst.
 
Tveir öflugir
 
Reynir Örn Pálmason teflir fram Spóa frá Litlu-Brekku í fimmgangi, slaktaumatölti og skeiðgreinum og Gústaf Ásgeir Hinriksson kemur fram á stóðhestinum Pistli frá Litlu-Brekku í tölti- og fjórgangskeppni ungmenna. 
 
Vignir ætlar að fylgja liðinu eftir til Hollands og fylgjast með þessum félögum sínum gera atlögu að heimsmeistaratitlum. Sjálfur þjálfaði hann báða þessa hesta og kom fram með þá á sínum fyrstu mótum. 
 
Ólíkir hestar
 
Pistill hefur verið í eigu fjölskyldunnar að Árbakka síðan 2014. Hann er 10 vetra undan Mola frá Skriðu og Prinsessu frá Litla-Dunhaga I sem er dóttir Baldurs frá Bakka.
 
Gústaf Ásgeir og Pistill á brautinni í Hollandi í gær.     Mynd/Jacco Sujkerbujk
 
„Pistill er velheppnuð blanda af Mola og Baldri. Hann var rosalega skemmtilegur foli, þægur og ganggóður hestur.  Hann sýndi alltaf mikinn myndarskap sem folald og lét mikið yfir sér. Pistill og Spói eru ólíkir á þann hátt. Spói var rólegur og gangsamur en óx svo jafnt og þétt með tamningunni.“
 
Spói er 12 vetra gamall alhliða­gæðingur undan Ofsa frá Brún, bróður Óðs frá Brún, og Syrpu frá Ytri-Hofdölum.
 
„Spói kom hægt og bítandi en ég fór að keppa á honum sex vetra gömlum. Á níunda vetri kaupir Sigurbjörn Bárðason hann og þeir hafa átt farsælan keppnisferil,“ segir Vignir en Spói er nú í eigu Margrétarhofs ehf.
 
Reynir Örn Pálmason teflir fram Spóa frá Litlu-Brekku í fimmgangi, slaktaumatölti og skeiðgreinum. Hér eru þeir félagar á æfingu áður en þeir héldu út. Mynd/ /Margrétarhof
 
Lentu í góðum höndum
 
Aðspurður segir Vignir erfitt að selja frá sér gæðinga á borð við þá Pistil og Spóa. Hins vegar sé það raunarbót að sjá þeim vegna vel. 
 
Það er það sem maður óskar sér að þeir haldi áfram að vaxa. Það hafa þessir tveir gert enda lentu þeir báðir í frábærum höndum. Þeim hefur verið fylgt vel eftir og eru vandlega þjálfaðir og sýndir. Þeir hafa vaxið frá því ég lét þá frá mér sem er alveg frábært. Auðvita sér maður eftir svo góðum hestum sérstaklega þegar maður hefur lagt mikla vinnu í þá, en það er víst gangur lífsins.“
 
Vignir segist óneitanlega hlakka mikið til að fylgjast með hestunum í Hollandi. „Ég vona að þeim gangi rosalega vel. Ég held að þeir séu báðir til alls líklegir,“ segir Vignir.
Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...