Seljalandsfoss fær viðurkenningu frá TripAdvisor
Seljalandsfoss hefur hlotið viðurkenningu frá ferðamálavefnum TripAdvisor sem einn af þeim ferðamannastöðum í heiminum sem fær stöðugt góðar athugasemdir inni á vef þeirra. Glæsileg viðurkenning sem að sannar að þegar vel er gert á ferðamannastöðum þá er eftir því tekið.
TripAdvisor er einn af stærstu ferðamiðlum heims með yfir 100 milljón notendur. Á síðunni gefa ferðalangar stöðum, afþreyingu, hótelum og fl. einkunn sem aðrir ferðamenn geta svo nýtt sér.