Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir og Ómar Sigurvin Jónsson.
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir og Ómar Sigurvin Jónsson.
Mynd / HKr.
Fréttir 21. júní 2016

Samanlagt með 110 ára reynslu af störfum í þágu bænda

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Síðasta dag maímánaðar héldu Bændasamtökin hóf til heiðurs þremur starfsmönnum sem um áratuga skeið hafa þjónað samtökunum en hafa nú flutt sig yfir í Matvælastofnun. 
 
Þetta eru þau Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir, nú skrifstofufulltrúi búnaðarmála hjá MAST. Hún hóf störf hjá Búnaðarfélagi Íslands árið 1976. Þaðan lá leiðin árið 1988 til Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Þegar Framleiðsluráðið var síðan lagt niður um áramótin 1999–2000 flutti Guðrún, eða Gulla Sigga eins og flestir þekkja hana, með verkefnunum sínum yfir til Bændasamtaka Íslands, en þau voru stofnuð 1995. Hún flutti síðan yfir til Landssamtaka sláturleyfishafa árið 2000, en þau voru líka með aðsetur í Bændahöllinni. Árið 2013 flutti hún svo á ný með verkefnum Landssamtakanna yfir til BÍ. Allan tímann var Gulla Sigga í raun að halda utan um sömu verkefnin, er lutu m.a. að gagnaöflun og að sinna stuðningsgreiðslum fyrir hönd ríkisins til sláturleyfishafa og bænda. Hún flutti svo enn með verkefnin yfir til MAST árið 2016 samfara lagabreytingum um flutning verkefna frá BÍ. 
 
Ómar Sigurvin Jónsson, nú fag­sviðsstjóri búnaðarmála hjá MAST, hóf störf hjá Framleiðsluráði árið 1979 og sá þar í byrjun um útreikninga á búmarki. Varð síðan umsjónarmaður Fóðursjóðs og gerðist í framhaldinu gjaldkeri Framleiðsluráðs og var aðalbókari ráðsins þar til það var lagt niður í árslok 1999. Þá fór hann yfir til  Bændasamtakanna og tók að sér  verkefni í sambandi við  beingreiðslur, sjóðagjöld og greiðslumark, sem starfsmenn Framleiðsluráðs, sem fluttust ekki yfir til BÍ, höfðu áður sinnt.
 
Ásdís Kristinsdóttir, nú skrifstofufulltrúi búnaðarmála hjá MAST, hóf störf hjá Búnaðarfélagi Íslands árið 1983. Hún flutti síðan yfir til Bændasamtaka Íslands við stofnun þeirra 1995. 
 
Yfirfærsla verkefna til MAST
 
Fyrir áramótin 2014 til 2015 voru verkefni þessara þremenninga hjá Bændasamtökunum sett undir hatt sérstakrar deildar innan BÍ sem nefnd var Búnaðarstofa og var stýrt af Jóni Baldri Lorange sem áður var yfirmaður tölvudeildar BÍ og hafði einnig umsjón með WorldFeng og hefur enn. Í kjölfar lagabreytingar voru verkefni Búnaðarstofu svo endanlega flutt yfir til MAST um síðustu áramót í sjálfstæða einingu sem nefnd var „Búnaðarmálaskrifstofa“. Urðu Ómar og Guðrún Sigríður þá starfsmenn MAST en Ásdís hélt áfram þeim við hlið sem starfsmaður BÍ. Nú hefur hún einnig verið ráðin til MAST og hefur þar formlega störf 1. júlí. Þeim til aðstoðar var Bjarki Pjetursson ráðinn á búnaðarmálaskrifstofu MAST fyrir skömmu og sem fyrr er Jón Baldur Lorange framkvæmdastjóri skrifstofunnar sem er til hús á annarri hæð Bændahallarinnar (Hótel Sögu).
 
Gríðarleg þekking og reynsla
 
Í höndum þessa fólks er eins og undanfarna áratugi tölfræðileg upplýsingaöflun er lýtur að framleiðslu íslensks landbúnaðar. Þar undir eru einnig öll talnasöfnun um fjölda búfjár Íslendinga, upplýsingar um slátrun og aðra afurðaframleiðslu og margvíslegt skýrsluhald. Allt er þetta svo grunnur að úthlutun stuðningsgreiðslna ríkisins við bændur sem BÍ annaðist áður fyrir hönd ríkissjóðs.
Ljóst er að þremenningarnir búa yfir gríðarlegri upplýsingaþekkingu á sviði landbúnaðarmála.
Samanlagður starfsaldur þremenninganna hjá fyrrnefndum stofnunum og í þágu  íslenskra bænda er 110 ár. 
 
Þökkuð störf í þágu bænda
 
Sigurður Eyþórsson, framkvæmda­stjóri Bændasamtaka Íslands, þakkaði þeim fyrir dygga og frábæra  þjónustu í þágu íslenskra bænda í gegnum tíðina. Tók hann þó fram að þetta væri engin kveðjustund, því íslenskir bændur myndu áfram þurfa á þeirra þjónustu að halda um ókominn tíma, þó skipt hafi verið um vinnuveitanda.
 
Þökkuðu þremenningarnir fyrir sig og lýsti Gulla Sigga því með dæmisögu hvernig þeirra vinna snerist að verulegu leyti um mannleg samskipti og að leysa úr málum sem upp geta komið í flóknu kerfi. Ánægjuleg samskipti við bændur og starfsfólk Bændasamtakanna í gegnum tíðina væri það sem skýrði best hvers vegna hún, Ásdís og Ómar hafi verið svo lengi í starfi á sama vettvangi. 
Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...

Grípa þarf tækifærin
Fréttir 26. mars 2024

Grípa þarf tækifærin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, telur að bændur eigi að leyfa sér að hor...