Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Nýju lífi blásið í gróður­stöðina að Tumastöðum
Fréttir 25. nóvember 2014

Nýju lífi blásið í gróður­stöðina að Tumastöðum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Skógrækt ríkisins rak á sínum tíma gróðurstöðvar víða um land. Ein þessara stöðva var á Tumastöðum í Fljótshlíð og þótti hún framleiða einstaklega góðar plöntur.

Af samkeppnisástæðum  var Skógræktinni ekki heimilað að reka gróðrarstöð á Tumastöðum þótt skógræktin sjálf  væri heimil. Síðan hefur stöðin verið í ýmsum höndum, síðast á vegum Barra ehf. sem varð gjaldþrota fyrir um tveimur árum.

Hjónin Óskar Magnússon og Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir á Sámsstaðabakka tóku stöðina á leigu í vor og stefna að því að endurreisa hana.

Sárt að horfa á stöðina í niðurníðslu

Óskar, sem er einn af stærstu eigendum Morgunblaðsins, segir að þeim hjónum hafi þótt óþægilegt að horfa á stöðina í niðurníðslu og grotna niður. „Ég hafði samband við Skógræktina og við söndum um að taka stöðina á leigu og við fengum hana formlega afhenta seint í vor.

Við erum ekkert sérstakt skógræktarfólk og höfum ekki stundað neina sérstaka skógrækt  til þessa. Við kunnum vel við okkur í víðsýninu hér á Sámsstaðabakka. Leigan á Tumastaðastöðinni er því meira hugsuð til þess að skapa einhverja atvinnu og koma í veg fyrir að stöðin eyðileggist eins og þegar var byrjað að gerast.

Gróðurstöðin á Tumastöðum á sér farsæla sögu og naut á sínum tíma mikilla vinsælda og virðingar. Nafnið og staðsetningin er því traust og markmið okkar er að koma rekstrinum í gang aftur og reyna að láta hann standa undir sér.“

Sáðu 160 þúsund birkifræjum

„Fyrsta verk okkar var að sá 160 þúsund birkifræjum í bakka og setja þær í uppeldi í köldu gróðurhúsi. Við það skapaðist nokkur vinna í vor og sumar fyrir heimamenn héðan úr Fljótshlíðinni. Ég vonast því til að geta ráðið fleiri þegar starfsemin eykst og við getum farið að selja plönturnar.

Hrafn Óskarsson, starfsmaður Skógræktarinnar, er okkur svo innan handar með ráðgjöf varðandi ræktunina og ekki veitir af því að halda í höndina á okkur því við hjónin höfum ekkert fengist við þetta áður. Án hans miklu en hógværu þekkingar kæmumst við ekki langt.“

Óskar segir að þrátt fyrir að hafa ekki ræktað mikið í gegnum tíðina finnist honum það ekki leiðinlegt hlutverk í sjálfu sér. „Ræktun er í eðli sínu  uppbyggileg og okkur hjónunum þykir spennandi að rótast  í þessu.“

Aldrei neinn stóriðja

„Ég á ekki von á að gróðurstöðin á Tumastöðum verði nein stóriðja en ég hef samt trú á að stöðin geti vel risið undir fornri frægð með tímanum og að fólk komi á ný langan veg þangað til að kaupa plöntur.

Við munum að sjálfsögðu laga okkur að markaðnum og rækta þær plöntur sem fólk vill kaupa í dag og bæði selja til stærri kaupenda í útboðum og til einstaklinga sem heimsækja okkur heim á hlað.“

Var aldrei í sveit

Óskar slær og heyjar túnin á bökkum Sámsstaða svo að þau fari ekki í órækt þrátt fyrir að vera ekki með skepnur. „Ég var aldrei í sveit sem krakki og er líklega að fá útrás fyrir það núna,“ segir Óskar Magnússon að lokum.

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...