Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Þórarinn Ingi Pétursson er formaður Markaðsráðs kindakjöts.
Þórarinn Ingi Pétursson er formaður Markaðsráðs kindakjöts.
Fréttir 15. desember 2016

Matvælalandið Ísland fær 100 milljónir til markaðsátaks fyrir íslenskar sauðfjárafurðir

Höfundur: smh

Samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga, sem nú er til meðferðar á Alþingi, verða hundrað milljónir króna settar í sérstakt markaðsátak til Matvælalandsins Íslands fyrir sauðfjárafurðir á erlendum mörkuðum, til að koma í veg frekari birgðasöfnun og verðfalls sauðfjáráfurða innanlands. Formaður markaðsráðs kindakjöts segir að íslenskir sauðfjárbændur hafi tekið á sig 600 milljóna króna tekjuskerðingu í haust vegna ástandsins á heimsmarkaði og styrkingu íslensku krónunnar.

Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að 800 til þúsund tonn lambakjöts gætu safnast upp vegna ástandsins. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Markaðsráðs kindakjöts, sendi frá sér tilkynningu í dag um stöðu mála.

Tilkynning Þórarins fer hér á eftir.

„Mikil styrking á gengi íslensku krónunnar hefur valdið þrengingum hjá öllum útflutningsgreinunum á Íslandi. Þá hefur viðskiptadeila Vesturveldanna og Rússlands leitt til verðlækkunar á mörkuðum fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir í Evrópu. Flest bendir til þess að þetta sé tímabundin niðursveifla. Verð á kindakjöti á heimsmarkaði hefur lækkað undanfarna mánuði en virðist nú vera á uppleið.

Bændur tekið á sig mikla lækkun

Íslenskir sauðfjárbændur tóku á sig um 600 milljóna kr. tekjuskerðingu í haust vegna ástandsins á heimsmarkaði. Rétt er að hafa í huga að bændur hafa þegar lagt út fyrir nánast öllum framleiðslukostnaði og innt af hendi nánast alla þá vinnu sem til þarf. Engin opinber verðlagning er í sauðfjárrækt á Íslandi. Kvótakerfi var afnumið 1995 og útflutningsbætur aflagaðar 1992.

Lækkun kemur illa við afurðarstöðvar

Íslenskur landbúnaður veltir hartnær 70 milljörðum kr. árlega og skapar 10 til 12 þúsund bein og óbein störf um land allt. Erfiðleikar í útflutningi á sauðfjárafurðum vegna gengis krónunnar og sveiflna á heimsmarkaði hafa komið illa við kjötafurðarstöðvar. Viðskiptasambönd og útflutningsverkefni í þróun eru í uppnámi.

Brugðist við tímabundnu ástandi

Ríkisstjórn Íslands lofaði sérstöku framlagi haustið 2016 til að bregðast við þessu tímabundna ástandi eins og fram kemur í fjáraukalögum sem nú eru til meðferðar hjá Alþingi. Samtök kjötafurðastöðva sjá um skipulagningu þess. Tilgangurinn er að vernda störf út um landið og koma í veg fyrir alvarlega byggðaröskun. Markaðsráð Kindakjöts kemur að verkefninu til að tryggja að féð nýtist í áframhaldandi markaðssetningu á erlendum mörkuðum.

Ágæt innanlandssala

Sala á íslensku kindakjöti hefur verið ágæt undanfarin misseri og ár. Birgðir í upphafi sláturtíðar 2016 voru minni en á sama tíma árið á undan. Samkvæmt tölum MAST jókst sala á kindakjöti 2012 til 2014 en dróst lítillega saman 2015. Á fyrsta ársfjórðungi 2016 varð hins vegar 25,1% söluaukning. Í júní jókst salan um 5,6% miðað við sama mánuð 2015. Sala til veitingastaða innanlands hefur aukist samfara markaðsstarfi gagnvart erlendum ferðamönnum sem hófst í sumar.

Neytendur og bændur í sama liði

Lambakjötsneysla á mann á Íslandi er með því mesta sem þekkist. Samkvæmt nýlegri könnun Gallup og Klúbbs matreiðslumeistara telja um 74% að lambakjöt og lambakjötsréttir séu þjóðarréttur Íslendinga. Alþjóðlegur samanburður á smásöluverði sýnir jafnframt að verð á lambakjöti til neytenda er mjög lágt hér á landi.

Algengt að þjóðir grípi inn í

Sala á íslensku lambakjöti hefur þannig gengið ágætlega innanlands og erlendis þar sem afurðirnar eru seldar sérstaklega sem íslenskar. Þar sem verið er að selja kjöt eða aðrar afurðir án upprunatengingar inn á heimsmarkaði er verðið hins vegar sveiflukenndara. Það er nokkuð algengt að þjóðir grípi til aðgerða ef hætta á er á hruni í einstaka greinum, gjaldþrotum afurðastöðva, atvinnuleysi eða byggðaröskun vegna slíkra tímabundinna sveiflna. Nýjust aðgerðir í Evrópu og Bandaríkjunum eru raktar hér á eftir.

Ótengt nýjum búvörusamningi

Sú staða sem nú er uppi varðandi útflutning á íslenskum sauðfjárafurðum án upprunatengingar tengist ekki nýjum sauðfjársamningi, enda voru ákvarðanir um framleiðslu þessa hausts teknar áður en viðræður um þá hófust. Með þeim verður hins vegar hægara að færa útflutning frá sveiflukenndum heimsmörkuðum yfir á betri og kröfuharðari markaði,“ segir í tilkynningu Þórarins.

Frekari upplýsingar um aðgerðir annarra landa vegna slíkra aðstæðna má finna á vef sauðfjárbænda.

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...