Jólakveðjur frá bændum
Jólakveðjur eru órjúfanlegur hluti af aðventunni og hefur Bændablaðið undanfarin ár boðið bændum að senda jólakveðjur úr sveitinni í síðasta tölublað ársins. Engin undantekning er á því í ár.
Ein sameiginleg jólakveðja verður efst í fallegri auglýsingu og nöfn bænda undir. Hver kveðja fær þrjár línur þar sem hægt er að koma fyrir (1) nafni á búi, (2) staðsetningu og (3) nöfnum heimilisfólks.
Kveðjan kostar kr. 2.490 og hægt er að ganga frá skráningu og greiðslu í gegnum vef Bændablaðsins. Frestur til að skrá kveðju er til miðnættis mánudaginn 16. desember. Jólablað Bændablaðsins kemur út þann 19. desember.