Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Magnús Benediktsson afhenti Hólmfríði Halldórsdóttur ávísun upp á kr. 2.119.000 að viðstöddum fulltrúum Hrossaræktar ehf. og fræðslunefndar fatlaðra hjá Herði, auk þátttakenda frá M.S. félaginu sem stunda reiðþjálfunina.
Magnús Benediktsson afhenti Hólmfríði Halldórsdóttur ávísun upp á kr. 2.119.000 að viðstöddum fulltrúum Hrossaræktar ehf. og fræðslunefndar fatlaðra hjá Herði, auk þátttakenda frá M.S. félaginu sem stunda reiðþjálfunina.
Fréttir 21. nóvember 2014

Hrossarækt ehf. styrkir fatlaða

Hrossarækt ehf. afhenti í gær, 20. nóvember, ríflega tveggja miljóna króna styrk til góðgerðarmála. Er þetta í fjórða sinn sem fyrirtækið afhendir slíkan styrk, en styrkupphæðin er afrakstur stóðhestahappdrættis og uppboðs á folatollum og listaverki, sem fram fóru í tengslum við Stóðhestaveisluna svokölluðu sl. vetur. Í ár fór styrkurinn til fræðslunefndar fatlaðra hjá hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ, þar sem boðið er upp á reiðþjálfun fyrir fatlaða á öllum aldri. Starfsemin í Herði er rekin á sjálfboðaliðastarfi að stórum hluta og kemur styrkurinn sér vel enda þarf töluverðan búnað, hestakost og aðstöðu, auk starfsfólks, til verkefnisins. Hrossarækt ehf. hefur áður styrkt Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, LAUF félag flogaveikra og Duchenne samtökin á Íslandi. Magnús Benediktsson framkvæmdastjóri Hrossaræktar ehf. afhenti styrkinn sem að þessu sinni var kr. 2.119.000.

Ánægjuleg samstaða

Við afhendinguna sagði Hulda G. Geirsdóttir fjölmiðlafulltrúi Hrossaræktar ehf. að gaman væri að sjá að hestamenn gætu staðið saman um að gera góða hluti og þakkaði hrossaræktendum sem gáfu folatolla í happdrætti og uppboð, listakonunni Helmu sem gaf málverk, fyrirtækjunum Spónn.is og Hringdu fyrir sitt framlag og ekki síst öllum þeim hestamönnum sem keyptu tolla á uppboði eða happdrættismiða og lögðu þannig sitt af mörkum. „Það er ekki sjálfgefið að fá verðmæti eins og þessi, folatolla undir marga bestu stóðhesta landsins og yngri vonarstjörnur. Við erum afskaplega stolt og glöð yfir því að geta styrkt þetta frábæra starf í Herði, sem hefur gefið góða raun og borið mikinn árangur. Hesturinn okkar er fjölhæfur og nýtist í ótalmargt, hann gefur mikið af sér og bætir bæði andlega og líkamlega heilsu þeirra sem hann umgangast. Við vitum að styrkurinn kemur að góðum notum og verður aðstandendum starfsins vonandi hvatning til áframhaldandi góðra verka,” sagði Hulda. Reiðþjálfun fatlaðra er opin öllum sem áhuga hafa og er hægt að finna upplýsingar um starfið á Facebook síðunni “Fræðslunefnd fatlaðra Hestamannafélagið Hörður” eða á vefsíðu Harðar www.hordur.is Um þessar mundir eru 28 nemendur á sex námskeiðum, fólk með mismunandi þarfir og á ýmsum aldri og er leitast við að koma til móts við alla. Þjálfunin fer fram bæði innan- og utandyra og fylgir fjöldi aðstoðarmanna þátttakendum. Þegar afhending styrksins fór fram voru nokkrir nemendur á vegum M.S. félagsins nýkomnir úr reiðtúr og létu þeir sérstaklega vel af starfinu sem þeir sögðu bæði skemmtilegt og góða þjálfun. Þeir sem vilja leggja verkefninu lið geta lagt inn á eftirfarandi reikning: 0549-26-2600 Kt. 650169-4259.

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...