Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Myndin byggir á 2189 sýnum sem voru tekin á árunum 2014–2021.
Myndin byggir á 2189 sýnum sem voru tekin á árunum 2014–2021.
Á faglegum nótum 26. september 2022

Um sýni úr heyjum, jarðvegi og búfjáráburði

Höfundur: Eiríkur Loftsson og Sigurður Max Jónsson.

Að gera góða áburðaráætlun getur verið kúnst og reynist stundum talsvert vandaverk. Þó gerð hennar sé sannarlega ekki forgangsverk bænda þessa dagana er þó rétt að huga að gagnaöflun og undirbúningi hennar. Skráning á ræktunarsögu, upplýsingum um uppskeru, áburðarnotkun, bæði á tilbúnum áburði og búfjáráburði og fleiri þáttum gefa gagnlegar upplýsingar sem nýtast við áætlanagerðina.

Eiríkur Loftsson og Sigurður Max Jónsson.

Efnagreiningar á heyi, jarðvegi og búfjáráburði gefa líka mikilvægar og gagnlegar upplýsingar við gerð áburðaráætlana. Heyefnagreiningar segja m.a. til um hvernig tekist hefur til með áburðargjöf og hvort innihald næringarefna er í hæfilegu magni og hlutföll þeirra eðlileg í uppskeru. Lág gildi einstakra næringarefna í heyjum geta valdið minni sprettu og há gildi gefa til kynna að um ofgnótt sé að ræða og mögulega útskolun viðkomandi næringarefnis og þannig tapi úr næringarhringrás búsins. Þar fyrir utan eru niðurstöður heyefnagreininga mikilvægar fyrir skipulag fóðrunar og gerð fóðuráætlana.

Efnagreiningar á jarðvegi gefa upplýsingar um sýrustig jarðvegs og innihald hans af helstu næringarefnum.

Jarðvegssýnaniðurstöður sýna forða helstu plöntunæringarefna í jarðvegi. Samantektir hafa sýnt að tiltekin tún geta auðveldlega verið með mikinn forða af einhverju einu plöntunæringarefni og lítinn sem engan forða af öðru næringarefni. Slíkar upplýsingar hjálpa til við val á áburði sem hentar á móti næringarefnainnihaldi ræktunarjarðvegs okkar.

Sýrustig í landbúnaðarlandi á Íslandi er breytilegur. Hann er bæði breytilegur á milli landshluta og einnig innan hvers landshluta. Hægt er að líta á sýrustig í jarðvegi sem mælikvarða til að meta eiginleika jarðvegs til þess að geyma plöntunæringarefni og einnig er sýrustig ráðandi þáttur í lifun sáðgresis (smára, bygg og annað). Öll sáðgresi hafa sitt kjörsýrustig og það er mismunandi á milli tegunda. Mælt er með að taka jarðvegssýni á 5-7 ára fresti úr ræktunarlandi til að fylgjast með þróun sýrustigs og innihaldi næringarefna í jarðvegi.

Efnagreiningar á búfjáráburði hafa sýnt að mikill breytileiki getur verið á innihaldi hans milli búa. Frávik frá töflugildum geta verið talsverð ýmist fyrir eitt næringarefni eða fleiri. Þegar notast er við töflugildin getur verið mikill munur á því sem áætlað er að borið sé á af einstökum næringarefnum og raunverulega er gert, sé frávik í innihaldi búfjáráburðarins á viðkomandi búi mikið. Í þannig tilvikum má búast við að með tímanum verði skortur á viðkomandi næringarefni sé lítið af því en ofgnótt sé gildið hátt m.v. töflugildi. Sem dæmi má ætla að séu gildi fyrir kalí í búfjáráburði lág verði það lágt í heyjum og á sama hátt ef kalí er lágt í heyjum í lengri tíma lækki það með tímanum í búfjáráburðinum.

Þurrefnisinnihald mykju er mikilvægt að vita því það er ólíkt milli búa og milli dreifinga á sama búi m.a. vegna mismikillar vatnsblöndunar og hefur það mikið að segja um magn næringarefna sem á er borið.

Á heimasíðu RML er hnappur til að panta hey- og jarðvegssýnatöku. Þar er einnig (undir ráðgjöf/áburður) að finna leiðbeiningar um töku á sýnum úr búfjáráburði. Einnig má að sjálfsögðu hafa samband og panta sýnatöku í síma 5165000.

Skylt efni: Heysýni

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...