Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Nýr vel búinn og rúmgóður Skoda Kodiaq
Á faglegum nótum 14. júlí 2017

Nýr vel búinn og rúmgóður Skoda Kodiaq

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Fyrir rúmum þrjátíu árum auglýsti Jöfur Skoda 120L með eftirminnilegum hætti. Annaðhvort að kaupa 290 bomsur með rennilás eða nýjan Skoda á sama verði. Þá kostaði nýr Skoda 120L 121.600 krónur og voru margir sem áttu svona bíla. Þar á meðal var konan mín sem átti svona eðalvagn þegar við kynntumst og var farið víða á þessum bíl.

Nú er kominn enn einn nýr bíll frá Skoda sem ber heitið Skoda Kodiaq og eru í boði sex mismunandi Kodiaq bílar. Ég prófaði sjálfskiptan Kodiaq með smærri dísilvélinni sem kostar 5.920.000.

Rúmgóður með mikið farangursrými

Strax og ég settist inn í bílinn var ég ánægður með allt rými, en allt plássið sem maður hefur kom mér á óvart þar sem að utanfrá virkaði bíllinn ekkert stór. Geymsluhólf eru mörg og öll innrétting er greinilega hönnuð til þess að öllum sem í bílnum eru líði sem best. Frammi í bílnum eru a.m.k. þrjú góð geymsluhólf og glasafestingar á stöðum sem gott er að ná til þegar verið er að keyra.

Fyrir farþega í aftursætunum er hægt að setja niður borð og utan á því er glasastandur. Einnig er í bílnum 230 v rafmagnstengill, USB rafmagnstengill og nokkrir venjulegir 12v tenglar (hef aðeins séð 230v tengil í einum öðrum bíl sem ég hef prófað).

Farangursrýmið aftur í bílnum er mjög gott og til staðfestingar á því þá prófaði ég að setja tvö golfsett og tvær rafmagnskerrur inn í bílinn sem ekki kemst í skottið á mörgum bílum. Þetta komst vel fyrir og töluvert pláss í afgang.

Eyðslan var langt undir væntingum

Í flestum sölubæklingum nýrra bíla er uppgefin eyðsla og er uppgefin eyðsla á bílnum sem ég prófaði 5,7 lítrar á hundraðið. Almennt er ég vel yfir þessari tölu í meðalakstri, en nú bar svo við að ég var eftir fyrstu 60 km í blönduðum akstri að eyða samkvæmt aksturstölvunni nákvæmlega 5,7 lítrum á hundraðið án þess að reyna neitt að vera að spara eldsneytið. Eitthvað sem mér hefur ekki tekist nema einu sinni áður í þessum prufukeyrslum mínum. Næstu 50 km var tekið frekar mun meira á bílnum í innanbæjarakstri og ekki vottur í aksturslaginu að verið væri að spara eldsneytið. Niðurstaðan var rúmir 8 lítra eyðsla og ég sem taldi mig í „einbeittum brotavilja“ vera að reyna að koma bílnum yfir 10 í eyðslu.

Snilldar varnarbúnaður á öllum hurðum

Í akstri eru ekki mikil umhverfishljóð inni í bílnum, en það heyrist aðeins í vélinni. Á grófum malarvegi er gott að keyra bílinn, fjöðrun góð og nánast ekkert malarvegahljóð undir bílnum þegar ekið er á möl, 17 tommu dekkin fjaðra vel og henta vel íslenskum malarvegum. Örugglega er hægt að minnka felgustærðina um tommu til að setja enn belgmeiri og betur fjaðrandi dekk undir bílinn fyrir malarakstur og akstur í snjó.

Bíllinn sem ég prófaði var með 150 hestafla vél og að mínu mati alveg nóg. Hann var þó aðeins latur af stað fyrstu bíllengdina en góður eftir það. Í boði er einnig Kodiaq með 190 hestafla vél. Fullbúið varadekk er í bílnum og nokkur góð geymsluhólf við hliðina á varadekkinu. Ein nýjung er í Kodiaq sem ég hef ekki séð áður, en það eru plastverjur sem koma út á hurðum þegar þær eru opnaðar sem varna því að hurðirnar skemmi bíla í stæðum við hliðina á bílnum ef hurðirnar rekast í þá.

Eigulegur fjölskyldubíll sem gott er að keyra

Í bíltúrnum sem ég tók á bílnum var ég mjög ánægður með hann í alla staði. Í óréttlátum samanburði við „heimanmund“ konunnar fyrir 30 árum, sem líkt var við bomsur, er greinilegt að Skoda er kominn í flokk með best hönnuðu og framleiddu bíla, þótt verðið sé ekkert sérlega lágt þá er þessi bíll eigulegur bíll sem hentar vel fyrir flestar fjölskyldur, til bæði lengri og styttri ökuferða. Verðið á 150 hestafla Skoda Kodiaq er frá 5.460.000 upp í 190 hestafla bíl sem kostar 6.950.000. Hægt er að nálgast meiri upplýsingar um bílinn á vefsíðunni www.hekla.is.

Skylt efni: Skoda | vélabásinn

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...