Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Opel Movano L1H2.
Opel Movano L1H2.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 11. september 2017

Níu manna smárúta frá Opel

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Fyrir um ári síðan prófaði ég í stórum prufuakstri fjórhjóladrifna smárútu, eftir að hafa ekið nokkrum sinnum framhjá Bílabúð Benna og séð þar við húsið kubbslega smárútu sem er mun hærri en almennt gerist með svona bíla. 
 
Ég veit ekki af hverju, en einhvern veginn kemur alltaf upp í hugann smjörlíkisstykki sem búið er að skera smá klípu af þegar ég hef horft á þennan bíl. Sennilega er þó ljótt af mér að hugsa svona. Ég ákvað að fá bílinn til prufuaksturs og tók stuttan hring á Opel Movano 9 manna, beinskiptur sex gíra smárútu sem kostar 6.290.000.
 
Hátt til lofts og rými fyrir farþega gott 
 
Að sitja í aftursætunum er þægilegt, en oft vill verða að farþegasæti eru hörð og ekkert sérstakt að sitja í þeim til lengdar, en í þessum bíl eru sætin mjúk og þægileg.
 
Lofthæðin er rétt um 170 cm og því ágætt að athafna sig aftur í bílnum séu menn á svipaðri hæð og ég sem er nálægt 175 cm.
 
Hólf eru úti um allt fram í bílnum, efst fyrir aftan framrúðuna, í hurðum og undir sætunum tveim sem eru við hlið bílstjóra. Aftast er svo um eins metra svæði sem ætlað er fyrir farangur. Afturbekkirnir, þeir tveir öftustu, eru auðlosanlegir og er þá bíllinn orðin að hefðbundnum sendibíl enda er burðargeta Opel Movano 838 kg. 
 
Á tómum bílnum var óþægilega mikið loft í dekkjunum
 
Bíllinn kemur á átta strigalaga burðardekkjum (eins og flestir aðrir bílar í þessum flokki), en það sem mér fannst óvenjulegt við þennan bíl er hversu mikið loft á að vera í dekkjunum. Uppgefið loftmagn er á bilinu frá 55 psi. upp í 66 psi.
 
Þegar ég fór að keyra bílinn fann ég að bíllinn fékk enga fjöðrun út úr dekkjunum og prófaði því að hleypa loftinu niður í 40 psi. Það var nefnilega fínt að keyra bílinn tóman með svona lítið loftmagn. Þá sagði mælaborðið mér að stoppa strax þar sem að öll dekk væru of loftlítil. Samgöngustofa bannar okkur bílablaðamönnum að keyra með farþega á óskráðum bílum sem eru á rauðum númerum. Þá er einfaldlega ekki hægt að prófa bílana undir því álagi sem þeim er ætlað út af einhverju óskiljanlegu regluverki. 
 
Eftir að hafa sett loftið aftur upp í 55 psi. kláraði ég prufuaksturinn og í hvert sinn sem ég fór í holu eða yfir hraðahindrun fann maður fyrir högginu upp í óæðri endann rétt eins og að maður væri á vörulyftara.  
 
Prufuaksturinn
 
Hljóðið í dísilvélinni er ekki mikið inn í bílinn, en vélin er 2,3 lítra sem á að skila 145 hestöflum. Uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 6,3–6,6 lítrar á hundraðið, en ég var að eyða á bilinu 8,5 upp í 11,2 lítrum með mínu aksturslagi. 
 
Mér fannst vélin toga vel þegar kom að brekkum og tel ég að þessi bíll fari létt með kerru sem er á bilinu 2000 til 2500 kg. 
 
Á möl var bíllinn hastur og kenni ég þar mestu um hversu hart þarf að vera í dekkjunum. Á malarveginum var töluverð drulla og kom það mér á óvart hversu bíllinn sóðaði sig lítið út þrátt fyrir kubbslega lögun. Fyrirfram hafði ég gert mér upp þá skoðun að bíllinn yrði haugskítugur að aftan eftir drullupollasullið hjá mér.
 
Á malbiki er bíllinn fínn og gott að keyra þótt heyrist aðeins veghljóð, sennilega má einnig kenna hörðum dekkjum um megnið af því hljóði. 
 
Fjölnota bíll á góðu verði
 
Miðað við mögulegt notagildi er Opel Movano L1H1 á góðu verði og ætti að gagnast stórum fjölskyldum, smærri fyrirtækjum, eða sem smárúta til aksturs á komandi réttarböll. Jafnvel þótt mér finnist bíllinn hastur tómur og óhlaðinn, þá er hann eflaust betri með einhverja hleðslu eða farþega.
 
Eini mínusinn sem ég sé við bílinn er að persónulega hefði ég viljað keyra þennan bíl á 45 psi. loftþrýstingi í dekkjunum, eða sama og ég keyri minn Benz Sprinter sem er töluvert þyngri og stærri. Plúsarnir eru mun fleiri samanber lofthæð, sæti, verð og háa setu inni í bílnum sem gefur gott útsýni í umferð og akstri. 
 
Helstu mál og upplýsingar:
Þyngd 2.062 kg
Hæð 2.307 mm
Breidd 2.070 mm
Lengd 5.048 mm
 

 

7 myndir:

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...