Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Jólakötturinn – uppruni hans, ættir og hlutverk
Á faglegum nótum 22. desember 2016

Jólakötturinn – uppruni hans, ættir og hlutverk

Höfundur: Hrefna S. Bjartmarsdóttir þjóðfræðingur
„Fólk vissi ekki hvaðan hann kom eða hvert hann fór.“ Þannig segir í kvæði Jóhannesar úr Kötlum um jólaköttinn. Í samræmi við þau orð skáldsins hefur skepnan löngum þótt dularfull og torskilin.
 
Allt frá tímum Forn-Egypta, þegar byrjað var að temja köttinn sem heimilisdýr, hefur hann haft á sér dularfullan blæ í trúarbrögðum og þjóðtrú manna og verið tengdur göldrum og myrkraöflum ýmiss konar. Tengsl kattarins við undirheima og myrkraverk eru eflaust tilkomin vegna náttúrulegs eðlis kattarins sem næturdýrs og meðfæddra hæfileika hans til að bjarga sér í náttmyrkri. Þessi ímynd kattarins í þjóðtrúnni hefur fylgt honum fram á þennan dag og ekki er að sjá að kristin trúarbrögð hafi náð að breyta henni. 
 
Óvættur sem fer á kreik í svartasta skammdeginu
 
Jólakötturinn er í samræmi við þessa ímynd, hann er óvættur sem fer á kreik í svartasta skammdeginu ár hvert og vekur ugg í brjóstum manna. Hversu gömul hún er þessi þjóðtrú um köttinn í tengslum við undirbúning jóla, er ekki vitað né hvernig hún varð til. 
 
Elsta íslenska heimildin um hann, sem þekkt er, eru ummæli Árna Sigurðssonar úr Breiðdal frá því um miðja 19. öld en þau voru ekki fest á blað fyrr en 1911. Frásögn um jólaköttinn birtist fyrst á prenti í þjóðsögum Jóns Árnasonar árið 1864.
 
Siðir sem tengjast honum eru þó mun eldri því elsta heimild, sem ég þekki, um að skömm þyki að fá ekki ný föt fyrir jól er frá því um aldamótin 1500. Þær upplýsingar koma fram í ljóði hins skoska Williams Dunbar (1460–1520) sem var hirðskáld hjá James IV Skotakonungi (ríkjandi 1488–1513). Mikilvægi þess að fá ný föt fyrir jólin þekkist því víðar en á Íslandi en það sem virðist séríslenskt við siðinn er hlutverk kattarins við að refsa þeim sem ekki fá ný föt. 
 
Jólakötturinn er nefnilega einn af mörgum svipuðum jólavættum sem þekkst hafa í Evrópu á liðnum öldum og talið er að eigi sér fornar sameiginlegar rætur í heiðni. Hlutverk allra er að fylgjast með jólaundirbúningi manna og sjá til þess þeir klári þau verk sem vinna þarf fyrir jólin.
 
Tengdust vinnusemi fólks í bændasamfélaginu
 
Ljóst er að hlutverk jólakattarins og samskonar jólavætta tengdust vinnusemi fólks í bændasamfélaginu og jólaundirbúningi. Það gefur auga leið af hverju hræða þurfti fólk og refsa þeim sem ekki fengu ný föt fyrir jólin.
 
Í samfélagi sjálfsþurftar­búskaparins valt á öllu að fólk ynni saman að sameiginlegu markmiði og til þess að njóta jólahátíðarinnar varð að ljúka öllum verkum tímanlega, hvort sem það var að prjóna og vinna fatnað, þrífa, baka, brugga eða útbúa jólamatinn.
 
Það var hagur húsbænda og heimilismanna að allur undirbúningur jóla gengi vel fyrir sig og ef einhverjir voru latir og töfðu verkin varð eðlilega að grípa til einhverra úrræða. Þar komu ofangreindir refsivendir, jólakötturinn og ættingjar hans, til sögunnar.
 
Át stundum „jólaref“ fólksins
 
Jólakötturinn gerði víst ýmsar skammir af sér en sagt var að hann æti stundum jólaref fólksins en það er sá matur sem hverjum manni var skammtaður til jólanna hér áður. 
 
Fleiri siðir tengdust jólakettinum og einn var sá að klára skyldi allt sem byrjað var á fyrir jólin, annars varð það jólafeitt. Það þýddi að jólakötturinn tók þá allt feitmeti sem fólki var skammtað á jólum og nuddaði því í óklárað prjónlesið. Af einhverjum ástæðum, sem ekki er vitað um, virðist sem þessi siður hafi einkum þekkst á vestanverðu landinu. 
 
Að fara í jólaköttinn
 
Það sem er þó þekktast við kött þennan eru þau orðtök sem honum tengjast. Ef fólk stendur sig illa við jólaundirbúning er sagt að hann refsi fólki, en sagt er að sá sem enga flík fái fyrir jólin fari í jólaköttinn. 
Samkvæmt heimildamönnum þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns og Árnastofnunar merkir þetta orðtak eitthvað miður gott, t.d. að fólk fari í jólaköttinn ef það fær engar gjafir, að jólakötturinn taki fólkið, éti jólamat þess eða geri því eitthvert mein, í versta falli éti það. Einnig þekkist orðtakið að sá klæði köttinn/ jólaköttinn sem ekki fær nýja flík fyrir jólin og þekkist það einkum norðanlands. Einn heimildarmaður þjóðháttadeildar þekkir það að sá fari í jólaköttinn sem síðastur fer í sparifötin á aðfangadagskvöld og annar segir að það hafi þýtt „… að vera í sömu fötunum og áður eins og kötturinn…“.
 
Sams konar vættir og jólakötturinn hérlendis eru Grýla og jólasveinarnir synir hennar. Hlutverk þeirra hefur einkum falist í því að hafa hemil á óþekkum börnum sem trufla undirbúning foreldra fyrir jólin. Ekki er annað vitað en Grýla gamla gegni enn samviskusamlega þessu hlutverki sínu en eftir að jólasveinarnir okkar kynntust frásögnum af heilögum Nikulási, fyrirmynd hins vestræna nútíma jólasveins, hafa þeir orðið velviljaðir karlar og fært börnum gjafir. Þó eimir enn eftir af hrekkjóttri lund þeirra en það er a.m.k. ljóst að þeir eru löngu hættir að stunda mannát líkt og móðir þeirra Grýla er hvað þekktust fyrir. 
 
Einn þekktasti ættingi jóla­kattarins á erlendri grund er hinn norræni jólahafur (jólageit) sem er að mörgu leyti eins í háttum og kötturinn, þ.e. jólavættur sem refsar þeim sem ekki fá nýja flík fyrir jólin. Um jólahafur þekkist norska orðtakið: „att gå buck“ sem er sambærilegt við fyrrnefnd orðtök um jólaköttinn. Í norskri þjóðtrú þýðir það beinlínis að klæðast gervi jólahafursins eins og tíðkast hefur í jólaleikjum á Norðurlöndum. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur, austurrísk/norski þjóðfræðingurinn Lily Weiser-Aall (1898–1987) og Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands, hafa bent á að orðtök þau sem tilheyra jólakettinum, þ.e. að fara í jólaköttinn eða klæða köttinn/jólaköttinn geti haft sambærilega merkingu og orðtökin um jólahafurinn, þ.e. í þeirri merkingu að klæða sig í gervi kattarins. Þó ekki þekkist innlendar heimildir þess efnis er það samt síður en svo útilokað þar sem hérlendist tíðkuðust vikivakaleikir fyrr á öldum, m.a. um jólaleytið, þar sem menn klæddust í gervi ýmissa kynjadýra og vætta. Ef svo væri gæti jólakötturinn átt sér fornar rætur því ýmis dýragervi hafa þekkst í margskonar hátíðum og leikjum á Norðurlöndum, Bretlandseyjum og víðar í Evrópu á miðöldum. Sænski þjóðfræðingurnn Dag Strömbäck (1900–1978) telur að þessir alþýðuleikir séu leifar af heiðnum helgisiðum og megi rekja þá allt aftur til menningar Rómaveldis. 
 
Fleiri tilgátur má nefna sem varða uppruna jólakattarins í íslenskri þjóðtrú. Árni Björnsson telur að munnmæli um jólahafurinn hafi borist hingað frá Noregi einhvern tímann á tveimur síðastliðnum öldum og haft áhrif á að til urðu sagnir um jólaköttinn. Hann segir enn fremur að þar sem geitur hafi verið fátíðar hér og óþekktar sem óvættir hafi kötturinn orðið fyrir valinu og vísar í þekktar sagnir um kattarskrímsli í þjóðtrúnni máli sínu til stuðnings. Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur er þessu ekki sammála og telur líklegt að jólakötturinn sé mun eldri í þjóðtrú okkar Íslendinga. Hann setti fram þá tilgátu að jólakötturinn og jólahafurinn væru eins konar afkomendur púka þess sem fylgdi heilögum Nikulási í leikrænni framsetningu þess siðar sem tíðkaðist öldum saman í Evrópu. Heilagur Nikulás var m.a. verndari barna og tíðkaðist í kaþólskum sið að einhver klæddist gervi hans og kæmi á messudegi dýrlingsins, 6. desember og færði börnum gjafir. Í fylgd hans var oft hlekkjuð vera í gervi púka sem sá m.a. um að refsa þeim sem óþægir voru. 
 
Guðmundur fjallar um það hvernig púki þessi hafi klofnað og getið af sér mismunandi afleiddar myndir jólavætta, þ. á m. geithafurinn í Skandinavíu og köttinn á Íslandi. Þá má velta því fyrir sér af hverju þessi jólavættur okkar birtist í kattarmynd. Í því sambandi bendir Guðmundur á þá þjóðtrú sem þekkst hefur í Evrópu öldum saman um hamskiptahæfileika djöfulsins sem m.a. geti birst í kattarmynd og nefnir eitt hollenskt heiti djöfulsins sem er „Duivekater“ (djöfulsköttur). 
 
Hvað varðar síðan tengsl katta við jólasiði þá þekktist það meðal Hollendinga og Þjóðverja að baka brauð á jólunum sem fékk þetta sama heiti. Sá siður mun síðar hafa borist til Svíþjóðar og tengst jólasiðum þar. Guðmundur telur þ.a.l. að hinn evrópski „Duivekater“ og hinn íslenski jólaköttur séu báðir afkomendur fyrrnefnds púka Nikulásar. Hann álítur að Sæmundur fróði (1056–1133) hafi kynnst þessum sið, þ.e. leikrænni framsetningu Nikulásar og púkans (forvera jólakattarins) 6. desember, um það leyti sem hann er talinn hafa stundað nám í Svartaskóla og síðan flutt siðinn með sér heim. 
 
Líka í Sturlungu
 
Í Sturlunga sögu er þess getið að sonarsonur Sæmundar fróða, Sæmundur Jónsson í Odda hafi haft það til siðs að halda veislur á Nikulásarmessu. Guðmundur telur að það megi rekja til þess áhuga sem sagt er að Sæmundur fróði hafi haft á heilögum Nikulási og dýrkun hans en kirkjan í Odda var helguð dýrlingnum í kaþólskri tíð. Gunnell telur hins vegar ólíklegt að Sæmundur hafi flutt þennan sið með sér hingað til lands á 12. öld og segir að ekki virðist sem siðurinn hafi öðlast vinsældir í Frakklandi og Norð-vestur-Þýskalandi fyrr en á 13. öld, þ.e. á því svæði sem talið er að Svartiskóli gæti hafa verið. 
 
Kannski bara tungumálamisskilningur
 
Fleiri hugmyndir um uppruna jólakattarins má nefna en Gunnell telur að norskur framburður á þessum orðum jólageit og jólaköttur sé nógu líkur til að hafa getað valdið misskilningi þar sem geitur hafa ætíð verið fátíðar hér á landi. 
 
Það má einnig benda á að jólakötturinn er ekki eina kattarskrímslið í þjóðtrú okkar. Þar koma til sögunnar skrímsli af kattarkyni sem eru skoffín, skuggabaldur, finngálkn og urðarköttur en sagt er að jólakötturinn sé af urðarkattakyni. Líkt og jólakötturinn eru þetta myrkraverur sem hættulegar eru mannfólkinu. 
 
Sams konar þjóðtrú þekkist á Bretlandseyjum, ekki hvað síst í keltneskri þjóðtrú, en þar finnast mörg dæmi um illvíg kattarskrímsli sem ógna lífi og limum manna. Það sem er athyglisvert við þessar heimildir er að samkvæmt lýsingum minnir margt í fari kattarskrímslanna óneitanlega á framferði jólakattarins okkar eins og því er lýst í hugarheimum heimildamanna þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns og Árnastofnunar og í kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Því má vel álykta að samband geti verið þarna á milli því landnámsmenn, m.a. af keltneskum ættum, komu hingað frá Bretlandseyjum. Ástæðulaust er að ætla annað en að þeir hafi flutt með sér munnmæli og þjóðtrú ýmiss konar, ef til vill hugmyndir sem áhrif höfðu á þjóðtrú okkar um jólaköttinn.
 
Jólakötturinn á sér víða samsvörun
 
Samkvæmt framangreindri umræðu er ljóst að ekki er vitað með nákvæmri vissu hvernig fæðingu jólakattarins bar að enda er sjaldgæft að slíkt sé hægt þegar um aldagamla þjóðtrú er að ræða. Engu að síður er hægt að draga ákveðnar ályktanir af heimildum. Jólakötturinn er svipaður í háttum og fjöldamargir jólavættir sem þekkst hafa á Norðurlöndum, Bretlandseyjum og á meginlandi Evrópu um aldir. Þar koma líka til sögunnar jólaleikir og vikivakar þar sem þekkt var, bæði hérlendis og erlendis, að menn klæddust gervum ýmissa dýra og vætta og talið að eigi sér fornar rætur aftur í heiðni. 
Samkvæmt skoskum heimildum frá því um 1500 er ljóst að illt þótti að fá ekki ný föt fyrir jól svo sú þjóðtrú er a.m.k. 500 ára gömul. Því ætti að vera óhætt að draga þá ályktun að jólakötturinn eigi sér aldagamlar rætur þó ekki sé vitað um eldri heimildir um hann hérlendis en frá því um miðja 19. öld.
 
Ekki útdauður
 
Þrátt fyrir það að forsendurnar fyrir hlutverki jólakattarins séu brostnar með breyttri samfélagsgerð er hann samt ekki útdauður. 
 
Nú í byrjun nýrrar aldar er kötturinn enn á sveimi því stundum sést vitnað í þennan forna fjanda m.a. í fataauglýsingum fyrir jólin. Einn heimildarmaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafnsins er þeirrar skoðunar að jólaköttur nútímans birtist í gervi sölumannsins og tilbúinna þarfa þess verslunaræðis sem nú einkennir jólin og ógnar fjárhagsafkomu fólks. Á þann hátt má segja að jólakötturinn aðlagi sig nútímaháttum manna. 
„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...