Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Lambakjöt og grænmeti
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 30. ágúst 2019

Lambakjöt og grænmeti

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Allir elska íslenskt  lamb. Þetta dýrindis og góða kjöt, sem kemur nýslátrað í búðir innan tíðar. Margir Íslendingar borða lambakjöt ekki nógu oft. Þessa dagana getur verð á betri hlutunum verið í hærri kantinum, sem gerir það ekki ódýrt val fyrir þá sem eru með þrönga fjárhagsáætlun eða stór heimili. 
 
En þá er kjörið að nota ódýrari bitana eða nota annað prótein í uppskriftirnar. Þá er kúnstin að vera með fullt af grænmeti og skera kjötið þunnt niður í pítubrauð eða í vefjur og gera  fjölskylduvæna  dýrindis, holla máltíð með lamb og grænmeti í aðalhlutverki.
 
Ef þú ert að grilla enn inn í haustið  þá er grænmeti algjörlega málið, nýkomið í búðir eða beint frá bónda – pakkað trefjum og próteini.
 
Lambakjöt og grillað grænmeti
  • 400 g lambakjöt, til dæmis framfille (hægt líka að nota nautakjöt eða kjúkling)
  • 1 msk. jómfrúarólífuolía
  • safi af einni sítrónu
  • tvö hvítlauksrif, söxuð
  • 1/2 búnt af ferskri basiliku, fínt saxað
  • ólífuolía  til að framreiða sem sósu
  • tvenns konar íslenskt kál, skorið í tvennt
  • tvær rauðar paprikur, skormar í stóra bita
  • einn rauðlaukur, skorinn í  fjórðunga
  • fjórar pítur eða vefjur
  • tveir bollar salat, eða jafnvel nýjar íslenska kartöflur
  • 250 g hummus eða önnur sósa eða meðlæti sem gott er að smyrja á pítubrauðið
 
Aðferð
 
Blandið saman sítrónusafa, hvítlauk og ólífuolíu í lítilli skál. Bætið lambakjötinu við og leggið til hliðar til að marinera í um 30 mínútur. Ef þú hefur ekki tíma til að marinera mun þessi uppskrift samt bragðast vel.
 
Hitið grillpönnu á meðan á miklum hita og úðið létt með ólífuolíu. Bætið grænmetinu við og grillið í tvær mínútur á hvorri hlið þar til það er brúnað. Takið af hitanum og leggið til hliðar.
 
Setjið lambið á grillpönnuna og eldið í 2–3 mínútur á hvorri hlið eða þar til það er orðið svolítið grillað.
 
Setjið grænmetið aftur á pönnuna og hitið í tvær mínútur til viðbótar. Bætið basilikulaufunum við grænmetið og sneiðið lambið á meðan það er heitt. 
 
Berið fram í pítubrauði eða í vefju og toppið með lambakjöti og grænmetisblöndu, hummus eða sósu.
 
Berið fram og njótið!
 
 
Grillað grænmetissalat 
 
Rófur, aspas, eggaldin, blómkál og fennel er rifið niður í ólífuolíu og grillað. Síðan er þessu velt saman við sítrónusafa og góða olíu til að gera þetta góða salat. 
 
Hægt er að nota hvaða blöndu af grænmeti sem er, svo sem gulrætur, næpur og kúrbít.
  • 3 miðlungs rauðrófur, skrúbbaðar eða skrældar
  • 2⁄3 bolli ólífuolía
  • salt og ferskur malaður svartur pipar, eftir smekk
  • 1⁄2 blómkál á höfði, skorið í miðlungs blóm
  • 1 grein timjan eða blóðberg
  • 2 fennel, skorin í tvennt
  • 1 lítið eggaldin, sneitt þversum og í þykkar sneiðar
  • 1 avocado (lárpera)
  • börkur og safi af einni sítrónu
Hitið kolagrill (hafið kolin bara öðrum megin) eða stillið gasgrill á háan hita. Slökkvið á  annarri hliðinni til að búa til kaldara svæði. Einnig er hægt að hita steypujárns-grillpönnu yfir miðlungsháum hita. 
 
Nuddið grænmetið sem er stærst og þarf að elda lengst, eins og rófur, með tveimur matskeiðum af olíu, salti og pipar. Grillið yfir óbeinum hita, snúið eftir þörfum, þar til það er svolítið brúnað og soðið í gegn, um 45 mínútur til klukkustund. Látið rófurnar kólna aðeins, takið hýðið af og skerið í sneiðar. Flytjið yfir á fat og haldið hita.
 
Veltið blómkáli með þremur matskeiðum af olíu, timjan, salti og pipar. Vefjið í tvöfaldan álpappír, lokið álpappírnum og grillið yfir óbeinum hita þar til það er mjúkt (eftir smekk), eða í 18–20 mínútur. Flytjið yfir á fatið með rófunum. Bætið olíu á það sem eftir er af grænmeti eins og  fennel, eggaldin og aspas. Saltið og piprið í skálina. 
 
Grillið grænmeti sem þarf minni eldun yfir beinum hita þar til það er svolítið brúnað og með grillröndum og mjúkt viðkomu, má áætla 6–8 mínútur fyrir eggaldin og aspas en 10–12 mínútur fyrir fennel. Færið yfir á fat með rófum og blómkáli. Hellið olíunni sem eftir er yfir og sítrónusafa og börk, blandið varlega saman og berið fram heitt.
 
Hryggur um páskana
Matarkrókurinn 26. mars 2024

Hryggur um páskana

Það er nánast samofið páskunum að borða lambakjöt af einhverju tagi. Læri, hrygg...

Rasmus og Sven gera bollur
Matarkrókurinn 18. mars 2024

Rasmus og Sven gera bollur

Hakkréttir eru fín leið til að metta marga og vinsæll valkostur á heimilum lands...

Tvistað við ofurstann
Matarkrókurinn 4. mars 2024

Tvistað við ofurstann

Djúpsteiktur kjúklingur, sem flestir þekkja í gegnum ofursta nokkurn frá Kentuck...

Reykt ýsa, blaðlaukur og kartöflur
Matarkrókurinn 19. febrúar 2024

Reykt ýsa, blaðlaukur og kartöflur

Hvernig passar blaðlaukur, reykt ýsa og kartöflur saman? Jú barasta prýðilega, t...

Boli & brokkólí
Matarkrókurinn 31. janúar 2024

Boli & brokkólí

Nautakjöt og brokkólí er klassískur asísk-amerískur réttur sem á sennilega ættir...

Mátulega hátíðlegur ís
Matarkrókurinn 21. desember 2023

Mátulega hátíðlegur ís

Það er nær ómögulegt að fá alvöru rjómaís út úr búð á Íslandi og hvað þá úti í í...

Reykt ýsa
Matarkrókurinn 13. desember 2023

Reykt ýsa

Skammdegið með sínum kulda og myrkri kallar á ögn þyngri mat en annar tími ársin...

Buff í brúnni
Matarkrókurinn 23. nóvember 2023

Buff í brúnni

Kíló fyrir kíló og krónu fyrir krónu er nautahakkið sennilega fjölbreyttasta pró...