Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Sérvalið glas sem kom fyrst á markað með Bríó.
Sérvalið glas sem kom fyrst á markað með Bríó.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 27. mars 2023

Borg brugghús, brugghúsið í borginni

Höfundur: Höskuldur og Stefán

Í síðustu tölublöðum Bændablaðsins höfum við rakið sögu handverksbrugghúsa á Íslandi. Því er hér haldið áfram.

Áður en lengra er haldið vilja greinarhöfundar þó leiðrétta það sem þeir héldu blákalt fram í síðasta blaði að Bjórhátíðin á Hólum hefði verið fyrsta bjórhátíðin á Íslandi. Glöggur lesandi benti okkur á það að skömmu áður en hún var haldin hafði netsíðan Bjórspjall.is haldið upp á árs afmæli sitt með bjórsamkomu sem nefndist „Uppskeruhátíð“ á veitingastaðnum Ránni í Keflavík og þar með sett rána fyrir komandi hátíðir (meðvituð gamanmál). Það væri fyrsta bjórhátíðin á Íslandi! Er því hér með komið á framfæri.

Þau brugghús sem fjallað hefur verið um undanfarið hafa flest átt það sameiginlegt að vera lítil, vera á landsbyggðinni og vera ástríðuverkefni einstaklinga. Þau eiga það líka sameiginlegt að vera í samtökum handverksbrugghúsa, en það næsta í þessum greinarflokki er ekkert af þessu. Þar er þó engu minni ástríða svífandi yfir vötnum.

Valgeir og Árni á bjórhátíðinni á Hólum.

Þegar nýir eigendur Ölgerðarinnar ákváðu að byggja nýtt húsnæði undir starfsemina hjá sér á Grjóthálsi í kjölfar yfirtöku var eitt sem forstjóra langaði mikið að gera. Það var að taka almennilega og vel á móti fólki en vísindaferðir og heimsóknir til stærsta áfengisinnflytjandans og næststærsta
bjórframleiðanda landsins voru vitanlega eftirsóttar. Andri Þór Guðmundsson hafði margs konar hugmyndir, að koma upp Bjórskóla, að búa til lítið handverksbrugghús, byggt á fyrirmyndum frá Kaupmannahöfn, og að hafa sjálfrennandi foss niður veggina enda vatn undirstaðan í framleiðslu Egils og Ölgerðarinnar. Þetta var á því drottins ári 2007. Við hrunið voru allar hugmyndir dregnar saman, fossinn innandyra varð að prentuðum striga á veggnum, Epal húsgögnum var skilað og almennt aðhald sýnt til að fyrirtækið færi ekki sömu leið og mörg önnur. Einu var þó sem betur fer ekki hægt að skila en það voru gyllt bruggtæki sem þegar voru komin til landsins.

Bríó
Bríó var hann nefndur

Egill Skallagrímsson bjó á Borg á Mýrum þannig að Borg brugghús var kannski ekki óvæntasta nafngiftin á þessu tilraunaeldhúsi Ölgerðarinnar. Inn var ráðinn ungur maður sem hafði bæði lært bruggfræði og spilaði á horn í afleysingum með Sinfóníunni, Sturlaugur Jón Björnsson. Stulli, eins og hann er alla jafna kallaður, var hugmyndaríkur og átti rætur að rekja í heimabruggsenuna sem þá var að slíta barnsskónum. Stulli prófaði ýmislegt í nýju tækjunum sem sett voru upp í einu horni nýju byggingarinnar.

Fyrsti bjórinn á markað þó var sérbrugg fyrir eina vinsælustu bjórknæpu þess tíma, Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Bríó var hann nefndur og var um tíma einungis seldur á Ölstofunni og varð fljótlega goðsagnakenndur bjór, þurrhumlaður lager með bæverskum Mittelfrüh humlum. Bjóráhugamenn hafa í gegnum tíðina dásamað þennan bjór en kenning greinarhöfunda er þó að sérvalið glas, sem fylgdi bjórnum og raunar braut áratuga einokun bjórkollunnar sem aðalglas veitingastaða þegar kom að bjór, hafi orðið til þess að virkja afmissutilfinningu bargestanna svo rækilega að fljótlega hafði Borg ekki undan að framleiða bara Bríó. (Glasið góða hafði líka þann kost að vera 0,4 lítrar sem drykkfelldir blaðamenn og aðrir fastagestir Ölstofunnar áttuðu sig ekki endilega á þegar kom að verðútreikningum.) Bæta varð við framleiðslurýmið og Borg brugghús var formlega mætt til leiks. Þetta var árið 2010.

Annar bjórinn sem Borg brugghús kom með gekk ekki jafn vel. Eftir vel heppnað samstarf við þá félaga Kormák og Skjöld var ákveðið að blása til samstarfs við nýlega opnað steikhús sem hét Austur. Ansi ljúffengt breskt brúnöl sem nefnt var eftir staðnum og átti að vera steikarbjór varð bjór nr. 2 en skemmst er frá því að segja að fastakúnnahópurinn sem Austur var best þekktur fyrir var ekki endilega markhópurinn fyrir steikhús og hvað þá brúnöl. Vissulega er og var þarna eitthvert gott orðagrín sem ekki verður endilega haft eftir hér, en bjórinn varð skammlífur og flestir bjórnirðir smökkuðu þennan bjór í fyrsta sinn þegar hann var endurgerður í tilefni af 10 ára afmæli Borgar.

Annar greinarhöfunda og Sturlaugur, fyrsti bruggmeistari Borgar.

Úlfur

Sá þriðji var ef til vill sá sem skilgreindi Borg brugghús eins og við þekkjum það í dag, en þegar þarna var komið var Stulli ákveðinn í því að nú væri kominn tími til að brugga og bjóða upp á ferskan IPA bjór, en slíkt hafði ekki verið reynt til almennrar sölu áður, eftir því sem greinarhöfundar komast næst. Rétt er þó að ítreka fyrirvara sbr. inngang að þessari grein hér að framan að aldrei skyldi alhæfa. Stulli bar upp hugmyndina við þá sem réðu en eitthvað gekk stirðlega að fá endanlegt samþykki fyrir bjórnum enda vel humlaðir bjórar nær óþekktir utan heimabruggsamfélagsins og bjór nr. 2 hafði ekki gengið sem skyldi. Niðurstaðan varð því sú að gera skyldi 2 bjóra, nr. 3, Úlf, þurrhumlaðan IPA sem fáir höfðu trú á og svo annan sem varð nr. 4 og fékk nafnið Bjartur, sem var heitgerjaður lager og átti að vera sá sem drægi vagninn. Í sem skemmstu máli hefur Borg sjaldnast náð að anna eftirspurn á Úlfi, en er löngu hætt að framleiða Bjart.

Hér er ágætt að draga það inn í söguna að þegar Stulli hafði verið í bjórlæri vestanhafs hafði eitt af skilyrðunum verið að hann þyrfti að gangast undir lærlingsstöðu. Fyrsta val Stulla gekk ekki, en annað valið hins vegar gekk vel, en þar munstraði hann sig í brugghús á vesturströnd Bandaríkjanna sem heitir Russian River en þar ræður bruggmeistarinn Vinnie Cilurzo ríkjum.

Vinnie og Russian River brugghúsið var einna frægast fyrir bjórinn sinn Pliny the elder, sem var einn eftirsóttasti vesturstrandar IPA bjórinn og oft nefndur í sömu andrá og bestu bjórar heims.

Jólasveinarnir

Velgengni Úlfs, nr. 3, sem byggður var á Pliny the elder bjórnum hefði því raunar ekki átt að koma á óvart en segja má að sá bjór hafi að einhverju leyti sett handverksbylgjuna sem hófst með Kalda í næsta gír, enda ferskur IPA allt í einu til hérlendis. Í dag þykir hálfasnalegt að opna vínveitingastað án þess að bjóða upp á slíkan bjór en þarna fyrir um 13 árum þekktist hann varla á börum og þá alls ekki ferskur.
Jólabjórar Borgar eru síðan flestum landsmönnum kunnir, en þeir bera nöfn jólasveinanna 13 eins og þeir koma fyrir í kvæðum Jóhannesar úr Kötlum en ef til vill var sá sem kom næstur Úlfi að áhrifamætti bjórinn Surtur, nr. 8. Þarna hafði Valgeir, sem áður var bruggari Ölvísholts komið til starfa hjá Borg Brugghúsi og hafði getið sér gott orð fyrir Lava bjórinn sem áður var fjallað um í Bændablaðinu.

Var sannfæring birgðastjóranna hjá Borg að upplagið myndi endast út árið, en það dugði varla vikuna! Eftir þessi ósköp nutu bjórgerðarmeistarar Borgar Brugghúss algjörs frelsis til að skapa og afraksturinn sýnir að þeir létu ekki segja sér það tvisvar. Bjórsamfélagið spenntist upp í hvert sinn sem fréttist af nýjum Borgarbjór og biðraðir mynduðust jafnvel við Vínbúðir.

Vissulega hefur Borg brugghús ávallt starfað í skjóli Ölgerðarinnar sem hefur kannski gefið fovígismönnum brugghússins meira hugrekki í tilraunum en ýmislegt nýtt sem aldrei hafði litið dagsins ljós áður kom í gegnum Borg. Má þar með áðurnefndum fyrirvörum minnast sem dæmi á taðreykta bjóra, áfengislausa handverksbjóra, það að nota 100% íslenskt og ómaltað bygg til framleiðslu, notkun íslensks blóðbergs, auk þess sem Borg brugghús var í fararbroddi að stofna til samstarfs við erlend brugghús og koma þannig með nýja þekkingu sem bruggmeistararnir hafa alltaf verið til í að miðla. Borg brugghús hefur þannig haft mjög jákvæð áhrif á bjórsamfélagið en einnig á rekstur Ölgerðarinnar, því ýmislegt jákvætt þar virðist hafa smitast yfir í stærra brugghúsið. Þannig var Bjartur lengi vel Sumargull, Skógarpúki, bjór nr. 6, varð Þorragull og svo mætti lengi telja. Nokkru síðar varð Ölgerðin stærsti framleiðandi á bjór á Íslandi og hvort það er Bjórskólanum eða Borg brugghúsi að þakka skal ósagt látið.

En rúmlega 200 bjórum (102 með fast númer þegar þetta er skrifað, 29 á undirnúmerum, 34 samstarfsbjórar og 44 bjórar úr tilraunalínu) og einum Rússajeppa síðar er augljóst að Borg brugghús er eitt afkastamesta handverksbrugghúsið á Íslandi og þótt víðar væri leitað.

Rússajeppinn og bruggmeistararnir, Árni, Sturlaugur og Hlynur.

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...

Flugvélarflak í Eyvindarholti
Líf og starf 10. apríl 2024

Flugvélarflak í Eyvindarholti

Við Eyvindarholt undir Eyjafjöllum hefur gömlu flugvélarflaki verið komið fyrir....