Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Yndislegar skriðbuxur
Hannyrðahornið 19. febrúar 2018

Yndislegar skriðbuxur

Skriðbuxur / romper, eru mjög vinsælar á litlu krílin. Þessar skemmtilegu skriðbuxur eru fljótprjónaðar, mjög klæðilegar og krúttlegar. Uppskriftin inniheldur einnig sokka og húfu en uppskriftina að því finnur þú á garnstudio.com, uppskrift númer cm-006-bn. 
 
Stærðir:  1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða.
Garn:  DROPS Cotton Merino.
100-150-150 g. 
Prjónar:  Hringprjónar 40 cm nr 3 og 3,5 – eða sú stærð sem þarf til að 22 L og 30 umf í sléttu prjóni verði 10 x 10 cm á prjóna nr 3,5.
 
Skriðbuxur
 
ÚRTAKA-1:   úrtökur eru frá réttu
Prjónið þar til 3 L eru að prjónamerki, prjónið: 2 L slétt saman, 2 L sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2L), takið 1 L óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 L sl, steypið óprjónuðu L yfir.
 
ÚRTAKA-2: úrtökur eru frá réttu
Fellið af á eftir 3 kantlykkjum með garðaprjóni: Takið 1 L óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 L sl, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fellið af á undan 3 kantlykkjum með garðaprjóni: Byrjið 2 L á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 L slétt saman.
GARÐAPRJÓN (prjónið fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
 
MYNSTUR:
Sjá teikningu A.1. Teikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
 
Skriðbuxur:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 hlutum neðan frá og upp eftir opi fyrir fætur. Síðan er stykkið prjónað í hring áður en það skiptist aftur upp við mitti og framstykki er prjónað til loka fram og til baka.
 
BAKSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18 L á hringprjóna nr 3,5 og prjónið slétt prjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok hverrar umf alls 9 sinnum á hvorri hlið = 50-52-54 L á prjóninum og stykkið mælist ca 6 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki.
 
FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18 L á hringprjóna nr 3,5 og prjónið slétt prjón fram og til baka í 5 cm. Fitjið nú upp 6 nýjar lykkjur í lok hverrar umf alls 3 sinnum á hvorri hlið = 50-52-54 L á prjóninum og stykkið mælist ca 7 cm.
 
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Sameinið fram- og bakstykki á hringprjón = 100-104-108 L. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 50-52-54 l á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið slétt prjón í hring – byrjun umf = hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-5 cm er fækkað um 1 L hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 L færri). Endurtakið úrtöku með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 84-88-92 L á prjóninum. Þegar stykkið mælist 10-11-14 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 17-18-21 cm frá uppfitjunarkanti) er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið sl eins og áður yfir fyrstu 42-44-46 L þ.e.a.s. fram að 2. prjónamerki (= framstykki – ATH: Ekki er prjónuð upphækkun yfir þessar lykkjur), prjónið sl þar til 5 L eru  að prjónamerki í byrjun umf, snúið við og prjónið br til baka þar til 5 L eru eftir að prjónamerki á hinni hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 10 L eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka þar til 10 L eru eftir á undan prjónamerki á hinni hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 15 L eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka þar til 15 L eru eftir á undan prjónamerki á hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka í byrjun umf (= hlið). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt yfir allar L JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 80-88-96 L – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við er lykkjan sótt á milli 2 L upp og prjónað er áfram slétt með næstu L á prjóni. Prjónið síðan stroff í hring þannig: 1 L sl, *2 L br, 2 L sl*, endurtakið frá *-* þar til 3 L eru eftir af umf, endið á 2 L br og 1 L sl. Þegar stroffið mælist 1½ cm er prjónuð gataumferð þannig: 1 L sl, *2 L br saman, sláið uppá prjóninn, 2 L sl*, endurtakið frá *-* þar til 3 L eru eftir af umf, endið á 2 L br saman, sláið uppá prjóninn og 1 L sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir áður en stroffið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 40-44-48 L (= framstykki), fellið LAUST af næstu 40-44-48 L með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki). 
 
FRAMSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, 9-11-13 L slétt prjón, prjónið mynstur eftir teikningu A.1 (= 16 L) 9-11-13 L slétt prjón og 3 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka. JAFNFRAMT eftir 1-1-0 cm er fækkað um 1 L á hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í 2.- 4.- 6. hverri umf alls 7-7-6 sinnum = 26-30-36 L á prjóninum. Þegar stykkið mælist 7-9-11 cm frá prjónamerki – stillið af þannig að næsta umf er prjónuð frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar L. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 L sl og setjið þessar L á þráð/nælu (axlaband), fellið af næstu 10-14-20 L og prjónið sl yfir síðustu 8 L (= axlaband). 
 
AXLABAND:
Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka þar til bandið mælist ca 18-20 cm (eða sú lengd sem hentar). Fellið af og prjónið seinna axlabandið.
 
STROFF:
Prjónið upp frá réttu ca 50 til 56 L meðfram öðru fótaropinu á hringprjóna nr 3 með. Prjónið 1 umf br frá röngu en JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í 58-62-66 L. Prjónið síðan stroff (2 L sl, 2 L br) fram og til baka með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 2 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hinu opinu.
 
Saumið saman op í klofbótinni innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroff kantinn, síðan er saumað saman í klofi og að lokum hitt stroffið.
 
Saumið tölu neðst í hvort axlaband. Tölurnar eru hnepptar í gegnum gat á gataumferð í stroffi.
 
SNÚRA:
Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum göt í gataumferð á stroffi í mitti. 
 
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
 
 
Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð

Jólakósí
Hannyrðahornið 11. desember 2023

Jólakósí

Prjónuð flöskuhulstur úr DROPS Nepal